Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Síða 44
„ >1
52
MANUDAGUR 18. MAI 1998
nn
Ummæli
Leyfir bara
virkjanir
„Ég hef enga heimild til aö
: fyrirskipa um-
hverfismat. Ég
gef Landsvirkj-
, un bara leyfi til
, að virkja."
Finnur Ingólfs-
son iðnaðarráð-
herra, í Degi.
Rumpulýður
„Helftin af fjölmiðlamönn-
um er menningarsnauður
rumpulýður. Ekki nóg með
það að þeir séu óskrifandi,
heldur leggja þeir sig í líma
við að afílytja og ófrægja
hvaöeina, sem þeir skriftól-
um við koma.“
Sverrir Hermannsson, fyrrv.
bankastjóri, í Morgunblað-
inu.
Þjóðargjöfin
Kvótinn er eina þjóðargjöf-
in sem vitað er
um að gefin sé á
, móti einlægum
vilja gefand-
ans.“
Ásgeir Hannes
Eiríksson, fyrrv.
þingmaöur, í
Morgunblað-
inu.
Andlátstilkynning
„Kvikmynd verður sýnd
vegna andláts Frank Sinatra
á morgun."
Erla Friðgeirsdóttir, á Bylgj-
unni.
Hættulegt svæði
„Liðbönd slitna eða menn
fótbrotna... Það
gefur ekkert eft-
ir og allur lík-
aminn fer úr
skorðum,
hryggsúlan
skekkist, öll
liðamót, nári,
bak, hné.
Þrátt fyrir að
menn sleppi við meiðsli
eru þeir marga daga að jafna
sig eftir leik.“
Atli Eðvaldsson knatt-
spyrnuþjálfari, í lýsingu á
gervigrasvellinum í Laugar-
dal, í DV.
Hlaupa í felur
„Ráðamenn hafa hugrekki
til að taka erlend lán upp á
milljaröa vegna ýmissa stór-
framkvæmda, svo sem borana
gegnum fjöll og jarðganga
undir firði, en þegar kemur
að menningunni hlaupa þeir 1
felur."
Bragi Ásgeirsson myndlist-
armaður, í Morgunblaðinu.
Fjöruganga á Garðskaga
Ein besta og skemmtilegasta
fjörugangan á Reykjanesskaga er
frá Garðskaga til Sandgerðis, hvort
heldur öll leiðin er gengin í einum
áfanga eða komið er oftar og hluti af
leiðinni genginn í hvert sinn. Þetta
svæði er þekkt fyrir fuglalíf. Eink-
um er vor og haust góður tími til
fuglaskoðunar þegar margir farfugl-
ar eru á leið til eða frá norðlægari
slóðum. Mælt er með fuglaskoðun-
arferðum Náttúrufræðifélagsins,
Ferðafélagsins og Útivistar sem
skipulagðar eru á hverju vori.
Umhverfi
A leiðinni milli Garðskaga og
Sandgerðis er farið hjá Kirkjubóli
en þar gerðust afdrifaríkir atburðir
á miðöldum. Árið 1433 brenndu
sveinar Jóns Gerrekssonar bæinn í
hefnadarskyni fyrir hryggbrot og
155 gerðu stuðningsmenn Jóns Ara-
sonar aðfór að Kristjáni skrifara er
hann var staddur að Kirkjubóli og
drápu hann og menn hans en Krist-
ján hafði ákveðið að Jón Arason
skyldi hálshöggvinn.
Leiðin frá Garðskaga til Sand-
gerðis er um 5 km löng og þarf að
fara hægt yfir og hafa 2-3 tíma til
ráðstöfunar.
Heimild: Gönguleiðir á íslandi eftir
Einar Þ. Guðjohnsen.
Kristinn Helgi Guðbrandsson, fyrirliði Keflavíkur:
Iílbúinn að taka við fleiri bikurum
DV, Suðurnesjum:
„Það er skemmtilegt að byrja tíma-
bilið vel. Ég held að þetta sé það sem
koma skal hjá okkur í sumar,“ sagði
Kristinn Helgi Guðbrandsson, varn-
arjaxlinn sterki og fyrirliði Bikar-
meistara Keílavíkur.
Keflvíkingar sigruöu íslandsmeist-
ara Eyjamanna, 3-1, í meistara-
keppni KSÍ 9. maí sl. og urðu því
meistarar meistaranna. Kristinn tók
við glæsilegum bikar í leikslok. „Það
var góð tilfinning að taka við bikarn-
um og ég er alveg meira en tilbúinn
tU þess aftur í sumar." Kristni hefur
verið falið það hlutverk að vera fyrir-
liði síns liðs í sumar og í fyrsta sinn
sem hann er skipaður slíkur fyrir
mót. „Ég er alveg sáttur við það og
treysti mér alveg til þess.“
Knattspyrnan er að hefjast en
hvernig verður Landssimadeildin í
sumar? „Ég held að hún verði jafn-
ari en áður. Það verða 4-5 lið sem
munu berjast um titilinn og við
verðum eitt þeirra. Við erum tilbún-
ir í slaginn og svakaleg tilhlökkun í
mannskapnum að byrja að spUa.“
Kristinn segir að styrkur Keflvík-
inga sé gott varnarskipulag, dugnað-
ur, kraftur og samviskusemi. Krist-
inn er fæddur og uppalinn í Kefla-
vík. Hann spilaði upp alla yngri
flokkana með Keflavík. Hins vegar
æfði hann ekki á sumrin en þá fór
hann í sveit tU ömmu sinnar og afa
í Miðengi í Grímsnesi. Kristinn hef-
ur fengið styrk sinn í sveitinni enda
geysisterkur leikmaður sem erfitt er
að hagga. Það var ekki fyrr en á síð-
asta árinu í 3. flokki sem hann fór
að æfa á sumrin, þá 16
ára. En Kristinn æfði Kristinn
knattspyrnu á veturna og vorin.
Hann byrjaði að æfa sem framlínu-
maður og síðan var hann á miðjunni
en í dag er hann aftasti maður í
vöm. „Maður færist alltaf aftar á
völlinn eftir því sem árin færast yfir
mann.“
Kristinn, sem er 28 ára, hefur spU-
að 79 leiki í 1. deild og aldrei náð að
skora í leik. Hins vegar hefur hann
gert 2 mörk í bikarkeppninni. Annað
þeirra var afar þýðingarmikið en
hann gerði úrslitamarkið sem
tryggði Keflvíkingum sigur í bikar-
keppninni í fyrra. „Ég hef trú á því
að fyrsta markið mitt í 1. deUd eigi
Maður dagsins
eftir að koma bráðlega. Það eru
aUtaf einhver skot í gangi frá leik-
mönnum um að ég eigi eftir að
skora mark í deildinni.
Þeir hafa gaman af
því. Þetta hvetur
mann bara tU dáða.
En þegar það kemur
verður það þýðingar- “
mikið mark.“
Kristinn heldur
mikið upp á Arse-
nal í ensku knattspym-
unni. Svo skemmti-
lega vildi tU að
báðir varnar-
jaxlarnir og
fyrirliðar síns
liðs, Tony
Adams og
Kristinn,
tóku við
Helgi Guðbrandsson,
bikar á dögunum. Það mátti sjá sömu
takta þegar þeir lyftu bikamum. „Ég
byrjaði að halda með Arsenal þegar
ég var smágutti. Við Bjarki Guð-
mundsson markvörður fórum til
London þegar liðið varð enskur
meistari eftir sigur á Everton fyrir
stuttu og var bikarinn afhentur þá.
Það var ótrúleg stemning á Higbury.
Ég hef aldrei upplifað áður slika
stemningu. Við fórum í dagsferð en
ég hefði viljað vera eina nótt í Lon-
don tU að gleðjast yfir sigrinum með
stuðningsmönnum Arsenal.“
Kristinn er smiður að mennt og
hefur unnið hjá Hjalta Guðmunds-
syni síðan 1990.
Hann á sér nokkur áhugamál.
„Það eru íþróttir almennt, skemmt-
anir og bíómyndir. Þá eru ferðalög
erlendis ofarlega og sérstaklega að
fara og sjá
Sf Arsenal spila.“
-ÆMK
Listaklúbbur
Listahátíðar
Fjölbreytt menningardag-
skrá er á hverjum degi í
Iðnó á vegum Klúbbs Lista-
hátíðar sem verður starf-
ræktur tU 7. júní. Klúbbur-
inn er opnaður kl. 17 dag-
lega og er aðgangur ókeypis,
nema annað sé auglýst. Mat-
seðill Klúbbs Listahátíðar
mun bera keim af þeim við-
burðum sem verða í húsinu
hverju sinni.
Aþena
Fundur verður haldinn í
Aþenu, hagsmunafélagi
kvenna í Félagi háskóla-
kennara, í kvöld kl. 19 á Sól-
oni íslandus (efri hæð). Gest-
ir fundarins verða Kristín
Halldórsdóttir og Guöný
Guðbjörnsdóttir sem munu
greina frá fyrsta íslenska
lagafrumvarpðinu um sam-
þættingu.
Námskeið í líföndun
Guðrún Arnalds verður
með kvöldnámskeið í lífónd-
un 20., 21., 27. og 28. maí kl.
19-23 að Bolholti 4. Allar
nánari upplýsingar í síma
5519447 og 8959447. Lífóndun
er leið til að tengjast tilfinn-
ingum og finna fyrir andar-
takinu sem er að líða.
Samkomur
Lyfjahagfræði
Fræðslufundur um lyfja-
hagfræði verður á vegum
lyfjahóps Samtaka verslun-
arinnar í Gullteigi, B-sal,
Grand Hótel við Sigtún.
Fundurinn hefst kl. 12.00.
Reiddur veröur fram léttur
málsverður.
Útspýtt hundsskinn Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi.
Þróttarar fögnuðu sigri í 1. deild-
inni í fyrra. Þeir fá meiri mót-
spyrnu í ár en í fyrra.
Nýliðar gegn
íslands-
meisturum
íslandsmótið í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu hefst í kvöld og er þá
aðeins einn leikur á dagskrá. Ný-
liðamir í Þrótti, Reykjavik taka á
móti íslandsmeisturunum frá
Vestmannaeyjum á aðalleikvangi
Laugardalsvallar. Fyrir helgi
voru þjálfarar fengnir til að spá
um lokaröðina í íslandsmótinu.
Þar urðu Vestmannaeyingar efstir
á blaði og þykja líklegir til að
verja titil sinn. Þrótturam var
hins vegar spáð fallsæti eða
næstneðsta sætinu og víst er að
þeir stefna hærra og þótt róður-
inn veröi erfiður í kvöld er víst að
hart verður barist enda hvert stig
dýrmætt. Leikurinn hefst kl. 20.
Iþróttir
Annað kvöld verða svo fjórir
leikir. Á Akranesi leika ÍA-Kefla-
vík, í Grindavík Grindavík-ÍR, á
KR-velli KR-Valur og á Ólafsfirði
Leiftur- Fram. Allir leikimir ann-
að kvöld hefjast kl. 20.
Bridge
Hér fyrr á árum vom Júgóslavar
meðal sterkustu bridgeþjóða í Evr-
ópu. Þeir enduðu í 2. sæti á EM árið
1935, en þá var skærasta stjama
þeirra Geza Klein. Hér er eitt spil úr
mótinu þar sem Klein fór á kostum
sem sagnhafi í 4 spöðum dobluðum.
Sagnir gengu þannig, suður gjafari
og enginn á hættu:
* ÁDG V D73 •f 1064 f K954 * 104 * G1094 * 982 * Á762
4 862 * 5 * AKG73 * DG103 N V A S
4 K9753 V ÁK862 f D5 4 8
Suður 1 * 3« 4 f Vestur Norður Austur 2 f 2 4 pass pass 4 w dobl p/h
Vestur hóf vörnina á því að leggja
niður tígulkóng og austur frávísaði
í litnum. Laufdrottning átti næsta
slag og austur kallaði í litnum.
Næst kom laufgosi, kóngur í blind-
um, ás hjá austri og
Klein trompaði
heima. Hann spil-
aði nú trompi á
gosa, spilaði
laufníu og henti
tíguldrottningu heima! Vestur átti
slaginn, reyndi að spila tígulkóng,
en Klein trompaði. Hann spilaði
trompi á drottningu og trompaði
síðasta tígulinn í blindum. Staðan
var þessi:
f Á
»D73
f -
* 5
f 8
*5
♦ G7
f 3
N
V A
S
* -
V G1094
-
* 6
> ÁK862
•f ■
f ■
Hjarta var nú spilað á drottningu,
spaðaásinn lagður niöur og austur
var þvingaður í laufi og hjarta.
Lauffimman í blindum var orðin að
stórveldi! ísak Örn Sigurðsson