Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1998, Page 6
1
6
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
Fréttir
Breta vísaö frá Noregi:
Alræmdur flagari
á leið til íslands
- frá Noregi fyrir að fleka 230 konur
DV, Ósló:
„Nú fer ég til íslands. Kvenfólkið
þar er fallegra en það norska og
auðveldara að komast yfir það. Ég
hef satt að segja orðið að hafa nokk-
uð fyrir því að komast yfir konur
hér í Noregi," sagði Bretinn David
Coombs um leið og hann yfirgaf
Noreg nú í vikunni. Honum var vís-
að úr landi fyrir kvennafar, en sjálf-
ur segist hann hafa sængað með 230
norskum konum og haft út úr þeim
meira en 10 milljónir íslenskra
króna.
Coombs fór til Lundúna með flugi
frá Ósló og sagði við Verdens Gang
að hann myndi dvelja viku hjá for-
eldrum sínum en halda síðan til ís-
lands.
Þekkingu sína um íslenskt kven-
fólk sagðist hann hafa frá vini sín-
um. Coombs er 34 ára og hefur ver-
ið mjög umtalaður í Noregi síðasta
árið vegna kvennafars.
Hann segist ekki geta verið til
langframa hjá foreldrum sínum
enda sé móðir hans mjög ósátt við
fjölþreifni sína.
„Ég hef heyrt að 60% íbúanna á
íslandi séu konur. Það er eitthvað
fyrir mig. Ég hef líka heyrt að ís-
lenskar konur falli fyrir okkur
körlunum alveg fyrirhafnarlaust,"
segir Coombs.
Þótt honum hafi verið vísað úr
landi í Noregi verður hann að koma
þangað aftur fyrir áramót því tvö
dómsmál hafa verið höfðuð á hend-
ur honum fyrir að hafa haft fé af
norskum vinkonum sínum. Því
reiknar hann með að vera í fórum
milli íslands og Noregs næstu mán-
uðina. -GK
Kvikmyndaver tekið
í notkun I október
Landssamband hestamannafélaga:
Formaður Léttis I framboð
íslenska kvikmyndasamsteypan
og Loftkastalinn hafa gengið til
samstarfs um rekstur Kvikmynda-
vers íslands og í því skyni keypt
skemmu við Héðinshúsið. Skemm-
an er um 1000 fermetrar og á kvik-
myndaverið að komast í gagnið í
október. Um er að ræða eina kvik-
myndaverið á íslandi í þessari
stærð. „Úti í heimi þykir það þokka-
lega stórt,“ segir Friðrik Þór Frið-
riksson, kvikmyndagerðarmaður og
eigandi Kvikmyndasamsteypunnar.
„Á næstu mánuðum verða fimm
myndir teknar í kvikmyndaverinu,"
segir Friðrik Þór, „Englar alheims-
ins, 101 Reykjavík, Fíaskó, 66" N og
Öskur í spegli.“
Gerðar verða nauðsynlegar breyt-
ingar á skemmunni áður en starf-
semi hefst. „Framkvæmdir verða
ekki dýrar miðað við hagkvæmnina
sem verður af þessu í framtíðinni."
Það er margt á döfinni hjá Frið-
riki. Hann á í viðræðum við erlenda
aðila um gerð myndar um síðasta ár
tónskáldsins Chopin. „Viðræðurnar
ganga vel.“ Leitað verður eftir
samningum við leikarana Holly
Hunter og Robert Carlyle sem lék í
Full Monty. „Carlyle hefur sagt að
honum líki handritið og að hann
langi að vinna með mér.“
Friðrik er að fara að vinna mynd
eftir handriti Dereks Jarmans sem
var einn virtasti leikstjóri Breta og
DV, Akureyri:
Sigfús Ólafur Helgason, formað-
ur Hestamannafélagsins Léttis á
Akureyri, hefur tilkynnt að hann
gefi kost á sér til setu
í aðalstjórn Lands-
sambands hesta-
mannafélaga en þing
sambandsins verður
haldið á Akureyri í
lok október. í 50 ára
sögu landssamtaka
hestamanna hefur
Léttir á Akureyri,
sem verður 70 ára í
nóvember, aldrei átt
mann i aðalstjóm.
Fjórir af sjö aðal-
stjórnarmönnum LH
gefa ekki kost á sér
til áframhaldandi
setu í stjórninni en
það eru: Birgir Sigurjónsson for-
maður, Halldór Gunnarsson, Sig-
urgeir Bárðarson og Sigríður Sig-
þórsdóttir. Það verður því veruleg
uppstokkun á forustusveit hesta-
manna en auk
Sigfúsar Ólafs Helga-
sonar, sem er vara-
maður í stjóm, mun
Haraldur Þórarins-
son varastjórnar-
maður gefa kost á
sér í aðalstjórn og
einnig er nefnt nafn
Oddnýjar Jónsdótt-
ur. Þá er ekki annað
vitað en að Jón Al-
bert Sigurjónsson,
varaformaður lands-
sambandsins, gefi
kost á sér til for-
mennsku.
-gk
Sigfús Ólafur Helgason.
Ingþór Guðmundsson var vakandi þegar hann settist inn í bílinn sinn.
DV-mynd GVA
Tímaþjófur á vakt
í gær lagði Ingþór Guðmundsson
bíl sínum á bílastæði við Tollhúsið
í Reykjavík. Þegar hann kom að
bílnum eftir að hafa lokið erindum
sínum í bænum sá hann að hann
var búinn að fá stöðumælasekt sem
skrifuð hafði verið kl. 14.53. Ingþór
settist inn í bílinn og leit á klukk-
una. Hún var 14.43. „Ég rölti niður
á lögreglustöð og fékk uppástimplað
að ég var þar fimm mínútum áður
en sektin hefði átt að vera gefin út.
Ég held að þeir ætli að láta þetta
ganga niður. Mér finnst stöðumæla-
verðir vera orðnir fullgrófir þegar
þeir eru farnir að sekta mann fram
í tímann.“
-SJ
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður er einn þeirra sem standa að stofnun kvikmyndaversins. Fyrirhug-
að er að það verði í húsi sem stendur vestast í vesturbænum.
heitir hún Nautron. Sjón er núna að
vinna að lokaútgáfu handritsins.
„Það er líka verið að ræða um stór
nöfn þar en myndin er heimsenda-
mynd.“
Heyrst hefur að Friðrik Þór fari
að vinna að enskri útgáfu af Böm-
um náttúmnnar. „Þessar viðræður
um endurgerð hafa alltaf verið til
staðar. Sem stendur er leikarinn
Richard Harris að vinna að því að
endurgera myndina og hefur sjálfan
sig í huga í hlutverki Gísla.“ Frið- lega leikstjóri myndarinnar. „Það
rik segir að hann verði ekkert endi- gæti orðið einhver annar.“ -SJ
Gallup-bræður
Eins og kunnugt er voru hræði-
leg mistök gerð við útreikning á
fylgi stjómmálaflokka í síðustu
skoðanakönnun Gallup. Fylgi við
félagshyggjuflokk-
ana var sagt rúmum
sjö prösentustigum
lægra en það var
skv. könnuninni.
Segja menn að
hroðvirknisleg
vinnubrögð við
könnunina stafi
m.a. af því að eig-
endur og fram-
kvæmdastjórar fyrirtækisins, þeir
Skúli Gunnsteinsson og Einar
Einarsson, verji miklum tíma í
annað en fyrirtækið. Þeir em báð-
ir þjálfarar hjá fyrstu deildar lið-
um í handknattleik. Skúli stýrir
Aftureldingu í ár og Einar þjálfar
Stjörnuna. Það verður því að öll-
um líkindum beðið með næstu
könnun þar til keppnistímabilinu í
handknattleik er lokið ...
Hvað næst?
Prófessor Hannes Hólmsteinn
Gissurarson er kunnur af ýmsum
skemmtilegheitum. Sögur fara af
frækinni för hans í sumarvinnu
við virkjanaframkvæmdir á há-
lendinu á mennta-
skólaaldri. Hannes
var þá sem nú borg-
arbarn af guðs náð.
Hann fékk það
hlutverk að setja
olíu á bíl einn hjá
vinnuflokknum
sem átti eftir að
reynast honum
hið erfiðasta mál.
Leiðbeiningar voru honum gefnar
um hvemig ætti að opna „húddið",
hvar olían væri i vélinni, hvemig
hann ætti að mæla hvort olíu vant-
aði o.s.frv. í vinnuflokknum höföu
menn vart séð aðra eins vankunn-
áttu á slíkum málum. Endaði leik-
urinn, að sagan segir, reyndar á
versta veg þegar hann tók olíu-
brúsa og hellti úr honum yfir alla
vélina. Þannig taldi hann sig hafa
bætt olíu á bíiinn ...
Finnur plottar
Innan Framsóknarflokksins full-
yrða menn að Finnur Ingólfsson
sé ekki hættur við að bjóða sig fram
til varaformanns þegar Guðmund-
ur Bjarnason hættir í embættinu á
flokksþinginu í nóv-
ember. TO marks
um það benda þeir
á að Finni hafi tek-
ist að fá Halldór
Ásgrfmsson til að
fela sér verkstjórn
fyrir undirbúning
flokksþingsins.
Það þýðir að
Finnur mun væntan-
lega heimsækja öll kjördæmisþing
flokksins sem em kjörinn vettvang-
ur til að afla fylgis fyrir kosningar
á þinginu ...
Eftirmyndir
Forvörður íslenskrar menning-
ar, Ólafur Ingi Jónsson, kenndi
íslensku þjóðinni nýtt orð, forvörð-
ur, og bætti um betur og útskýrði
merkingu þess. Ólafur ku vera
„original", að sjálf-
sögðu. Ólafur er þó
ekki húmorslaus
með öllu þvi að
hann er nú ber-
andi smágallerís
sem nefnist GaD-
erí Barmur og er
hluti af gallerí-
keðjunni Sýni- _____
rými. Það er myndlistarmaður-
inn Gunnar Magnús Andrésson
sem á listaverkið í Gallerí Barmi
þennan mánuðinn og er það spjald
sem á stendur Frummynd. Síðan
era 10 einstaklingar víða um borg-
ina sem bera svipað spjald sem á
stendur Eftirmynd...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is