Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Síða 2
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 B 3~\7'
2 Zfbéttir
*“----------------------------
Innrás KEA í verslun höfuöborgarinnar svarað:
Leita að húsnæði
- líklegt að Bónus eða Hraðkaup fari í slag við KEA-Nettó á heimavelli
DV, Akureyri:
„Ég get ekkert talað um þetta mál.
Ég hef hins vegar látið hafa eftir mér
að það sé jafnlangt til Akureyrar frá
Reykjavík og frá Reykjavík til Akur-
eyrar,“ segir Óskar Magnússon,
stjórnarformaður Baugs sem er eig-
andi verslana Hagkaups, Nýkaups og
Bónuss, en sterkur orðrómur er nú
uppi um að Baugur hyggist svara
„innrás" KEA á matvörumarkaðinn
í höfuðborginni með opnun nýrrar
verslunar á Akureyri.
Óskar Magnússon vildi ekki tjá
sig um málið að öðru leyti, en DV
hefur fyrir því öruggar heimildir að
Baugur hafi að undanfömu leitað að
hentugu húsnæði fyrir verslunar-
rekstur á Akureyri. Ýmsir möguleik-
ar þykja hafa komið upp á borðið í
þeirri skoðun, en ákvörðun um leigu
eða kaup á slíku húsnæði hefur ekki
enn verið tekin.
Ljóst þykir að Baugur hyggist
svara á einhvem hátt því að KEA
hefur opnað Nettó-verslun sina í
Mjóddinni í Reykjavík, og liggur þá
beinast við að hefja gagnsókn á þeim
markaði þar sem KEA er öflugast, á
Akureyri. Samkvæmt heimildum
DV era þeir möguleikar helst uppi
að annaðhvort verði opnuð Bón-
usverslun á Akureyri eða „Hrað-
kaupsverslun“ eins og Baugur rekur
í Borgamesi en í slíkri verslun er
m.a. lögð áhersla á langan afgreiðslu-
tíma.
Þá hefur verið í umræðunni að
KEA hyggist færa enn frekar út kvf-
arnar í verslunarrekstri á höfuð-
borgarsvæðinu og hefur ýmislegt
verið rætt í því sambandi. Eiríkur
Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA,
sagði í samtali við DV að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar í því
sambandi, ....en maður veit aldrei
hvað gerist,“ sagði Eiríkur. -gk
18 ára stúlka hætt komin þegar hún hékk í bílbelti:
Vorum hreinlega
að missa hana
- segir Sigurbjörn S. Grétarsson - tókst að skera hana lausa
„Ég var að keyra bílinn, bróðir
minn sat frammi í farþegamegin og
18 ára mágkona mín sat aftur í. Við
voram rétt hjá Skálanesi á leið til
Reykjavíkur frá Patreksfirði. Stúlk-
an sofnaði en var í öryggisbelti.
Beltið fór þá einhvern veginn aftur
fyrir bakið á henni. Við stöðvuðum
bílinn skömmu síðar og við bróðir
minn fórum út úr honum. Hún ætl-
aði að gera það sama en þá var belt-
ið fyrir aftan bakið á henni. Hún
losaði beltið úr festingunum, stóð
upp og ætlaði út úr bílnum. Þá var
beltið enn utan um magann á henni.
Þá kipptist í beltið og þaö dróst inn.
Beltið herti fast að maganum á
henni og hún gat varla andað. Hún
hékk hreinlega í beltinu," segir Sig-
urbjöm Sævar Grétarsson frá Pat-
reksfirði i samtali við DV.
18 ára ára stúlka, Jóna Þorgerður
Andrésdóttir, mágkona Sigurbjörns,
var hætt komin í fyrrakvöld. Sigur-
bjöm og bróðir hans, Grímur Barði
Grétarsson, unnusti Jónu, björguðu
Bræðurnir Sigurbjörn Sævar og Grímur Barði
Grétarssynir björguðu Jónu með því að skera á
beltið. Hér eru þeir með hnífinn sem þeir fundu og
notuðu í björguninni. DV-myndir Pjetur
henni þar sem hún var mjög hætt
komin.
„Við rembdumst við að reyna að
losa beltið en það
gekk ekki neitt. Það
var ekki hægt að
slaka neitt á beltinu.
Það var þéttingsfast
um magann á henni.
Við fóram í skyndi að
yfirgefnum sveitabæ
sem er þama og þar
fundum við gamlan
hníf. Með honum náð-
um við að skera á
beltið og það mátti
ekki tæpara standa.
Það var alveg að líða
yfir stúlkuna og hún
var mjög kvalin. Við
vorum orðnir ansi
smeykir um að við
væram hreinlega að
missa hana,“ segir Sig-
urbjöm.
Hann segir að stúlk-
an hafi jafnað sig fljótlega eftir at-
vikið en ljót för hafi verið á magan-
um á henni eftir beltið. -RR
Jóna Þorgerður Andrésdóttir var
hætt komin þegar bílbelti hertist
fast um magann á henni.
Stofnkostnaöur gagnagrunns 10,5-19,3 milljarða:
Oryggiskröfur auka kostn-
aö um tugi prósenta
Kostnaður við uppsetningu mið-
lægs gagnagranns á heilbrigðissviði
verður á bilinu 10,5-19,3 milljarðar.
Kostnaðurinn fer eftir því hve langt
verður gengið við skráningu gagna
um heilsufar landsmanna. Þetta er
niðurstaða kostnaðargreiningar
Stefáns Ingólfssonar verkfræðings
sem hann vann fyrir heilbrigðis-
ráðuneytið um kostnað við hönnun
og uppsetningu miðlægs gagna-
granns á heilbrigðissviði. Athygli
vekja fjölmargar athugasemdir eða
fyrirvarar sem Stefán tekur fram. í
skýrslu hans er ekki lagt mat á
rekstrarkostnað kerfis fyrir miðlæg-
an gagnagrann. Er einungis að
finna mat á stofnkostnaði. Þá er
kostnaður við markaðsfærslu
grunnsins ekki reiknaður með. Er
tekið fram að eftir sé að taka mikil-
vægar ákvarðanir sem hafa áhrif á
matsfjárhæðir. Ríki sérstaklega
óvissa um skráningu upplýsinga af
pappírsgögnum en um gríðarlegt
magn upplýsinga sé að ræða. Loks
vekur athygli að öryggiskröfur sem
gerðar verða til upplýsingakerfanna
Unnur Steinson og Bubbi Mortens voru í gær f vikulegu spjallí Vísis. is og
var þar ansi líflegt.
Stofnkostnaður miðlægs gagnagrunns
,. Sjúklingaupplýsingakerfi—
H Gagnagrunnskerfi
8 —rrSkránlnggagna---------------
7
Lágmarksverð
l> »’Á 10,5 milljarðar
Miðlungsverö
14,1 mllljaröur
7
Hámarksverö
19,3 milljaröar
era svo strangar að þær einar sér
munu auka kostnað um tugi pró-
senta.
Stefán gerir marga fyrirvara
varðandi tölvuskráningu af gögnum
sem varða heilsufar manna.
Ákvarðanir liggi ekki fyrir um
hvaða upplýsingar skuli skrá,
hversu langt verði gengið í skrán-
ingunni og hvaða verklag verði við-
haft. Þá liggi ekki fyrir nægilega ít-
arlegar upplýsingar um skjalasöfn
sem hafa að geyma gögn sem skrá á.
Gögn um heilsufar landsmanna sé
að finna á mörgum stöðum á land-
inu. Ekki liggi fyrir úttekt á hvar
gögn liggi í skjalasöfnum eða á því
hvert ástand þessara safna er. Sem
dæmi nefnir hann að á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur einu séu 107 þúsund
sjúkraskrármöppur varðveittar með
skipulegum hætti.
Varðandi tölurnar í grafinu tekur
Stefán fram að lægsta talan miðist
við að 60% af gögnum séu óskráð og
yfirverð takmarkist við hálfa aðra
Jdukksustund á sjúkraskrá. Miðtal-
an miðast við að 90% af gögnum
sjúkrahúsa og heilsugæslu séu
skráð, 50% af gögnum sjálfstætt
starfandi sérfræðinga, 50% af gögn-
um látinna og 25% af gögnum slysa-
deilda. Tvær stundir fari í hveija
skrá. Hæsta talan miðast hins vegar
við að öll gögn sjúkrastofnana séu
skráð og 2 klukkstundir fari í
hverja skrá.
Istuttar fréttir
Stjórnvöld átalin
Sveitarstjóm Skútustaða-
hrepps hefur sent frá sér ályktun
þar sem hún átelur stjómvöld
fyrir afskiptaleysi af ffamgangi
Kísiliðjunnar sem er eina stór-
iðjufýrirtæki landsins utan suð-
vesturhomsins.
Ingibjörg til Taívan
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri
hefur fengið
boð um að
heimsækja Taí-
van á næsta ári.
íslensk við-
skiptasendi-
nefnd verður
| með í fór.
25 björgunarkerrur
í dag verður mikið framfara-
skref stigið í átt til bættra al-
mannavama og eflingar björg-
; unarmála á íslandi þegar aðild-
arsveitir Landsbjargar fá afhent-
| ar vel búnar björgunarkerrur
l sem hafa verið útbúnar sérstak-
j lega fyrir þær.
100 skurðtæki
Marel afhenti í gær hundrað-
| asta tölvustýrða skurðartækið
| sem framleitt er hjá fyrirtækinu.
j Kaupandinn var Útgerðarfélag
f Akureyrar sem notar tækið við
; skoðun og skurð á fiski.
Ekki meö starfsleyfi
í Samkvæmt fulltrúa hjá Heil-
brigðiseftirliti Suðiu-lands sótti
| rússneska verktakafyrirtækið
| Technopromexport ekki um
| starfsleyfl samkvæmt lögum um
| hollustuhætti, mengun og ör-
: yggi-
í fangelsi
1 íslenskur karlmaður hefur
| verið dæmdur í þriggja ára fang-
I elsi vegna fikniefnamisferlis í
Nice í Frakklandi. Maðurinn
I smyglaði 5 kílóum af hassi. Ekki
er ljóst hvort dómnum verður
I áfrýjað. RÚV sagði frá.
Kennaraskortur
j Slæmt ástand er í grunnskól-
I um Reykjavíkurborgar þar sem
| engir forfallakennarar era í
| störfum. Eldri böm eru venju-
lega send heim ef kennarar
i þeirra era veikir en venjulega er
mannað í yngri bekki ef forföll
j eru.
Selt á Kótaþingi
| Viðskipti vora meö 1 kg af
| grálúðukvóta á Kvótaþingi í gær
| sem seldist á 70 krónur. 45 tonn
j af þorskkvóta seldust á 85 krón-
in- kílóið.
Samkomulag
í Samkomulag hefúr náöst milli
jj Landsvirkjunar og rússneska fyr-
| irtækisins Technopromexport um
| ráðstafanir til að uppfylla þær
S óskir félagsmálaráðherra og ís-
j lenskra verkalýðsfélaga að rúss-
j neskum starfsmönnum Techno-
j promexport verði tryggðar fullar
j launagreiðslur samkvæmt ís-
j lenskum kjarasamningum.
Björk í á Channel 5
Þann 2. október, kl. 19.30,
í mun breska
I sjónvarpsstöðin
j Channel 5 byija
j að sýna nýja
j þáttaröð sem
i fjallai' um tón-
! list og menn-
| ingu. Fyrstu
j gestfrnir í
í þáttaröðinni eru íslenska popp-
j stjaman Björk Guðmundsdóttir
j og leikarinn og rithöfundurinn
; Richard E. Grant.
Spáir lækkun dollars
Viðskiptastofa Landsbankans
j spáir því að dollarinn lækki á
j næstunni. Ástæður séu m.a. lækk-
j un Dow Jones-vísitölunnar og
| lægri ávöxtunarkröfu 10 ára ríkis-
; skuldabréfa niður í 3-4%. Við-
skiptablaðið sagði frá. -hlh/íbk
-hlh