Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 1 iV
4 tméttir
★ —----
Sveinbjörn Jónsson trillukarl segir formann LÍÚ vilja afvegaleiða almenning:
Best að fá ekkert að róa
- og fá 100 daga á næsta ári, segir Sveinbjörn, sem fluttur er frá Suðureyri
„Ég fagna því að Kristján Ragn-
arsson sknli taka eftir mér en það
er ýmislegt í máli hans sem bendir
til vanþekkingar eða er til þess fall-
ið að afvegaleiða almenning eins og
ýmislegt fleira sem LÍU lætur frá
sér fara þessa dagana. Það hefur
enginn kvóti verið seldur af þeim
báti sem ég seldi sl. haust. Þvert á
móti munu aflaheimildar hans hafa
verið auknar," segir Sveinbjöm
Jónsson, trillukarl frá Suðureyri,
vegna ummæla Kristjáns Ragnars-
son í DV i fyrradag.
Kristján nefndi Sveinbjöm sér-
staklega í því samhengi að
trillukarlar heimtuðu meira og
meira og seldu síðan kvóta sinn og
högnuðust af. Eins og DV greindi
frá á mánudag var 15 smábátum
laumað úr aflahámarkskerfmu yflr
í kerfi dagabáta eftir að allur kvóti
þeirra hafði verið seldur. Svein-
bjöm segir þetta ekki eiga við um
sína útgerð þar sem hann hafl ein-
faldlega selt bát sinn og keypt ann-
an í staðinn.
„Það eina sem gerðist var það að
einstaklingurinn Sveinbjöm Jóns-
son trillukarl seldi krókabátinn
sinn, sem var á þorskaflahámarki,
og keypti í staðinn krókabát sem er
á dögum. Ég reri þessum báti í sum-
ar og fiskaði rúm 100 tonn,“ segir
hann.
Mikil ólga er meðal trillukarla
sem eiga báta í dagakerfi og sjá
fram á að mega aðeins róa 9 daga á
yfirstandandi fiskveiðiári í stað 40
daga á því seinasta. Sveinbjöm tek-
ur ekki undir kröfúr um fjölgun
daga heldur vill þvert á móti fækka
þeim.
„Ég var að vona að þetta yrðu að-
eins 2-5 dagar núna svo augljóst
væri aö ekki þýddi að róa til fiskjar
þann tíma og dagamir því aðeins
nothæfir til að skapa sér viðmiðun
til frjálsrar sóknar annað hvert ár.
Lögin em þannig að það gefur betri
afkomu að róa 100 daga annað hvert
ár heldur en 9-10 daga á hverju ári.
Við sem búum við þetta kerfi hljót-
um að gera okkar áætlanir okkar í
samræmi við lögin. Þetta snýst um
það að hegða sér þannig að leiði til
sem bestrar afkomu," segir Svein-
bjöm.
Hann segist ekki skilja gagnrýni
Kristjáns á trillukarla og bendir á
að löggjafinn hafi búið til þann
ramma sem þeir eigi að starfa inn-
an. Þeir fylgi síðan lögunum og
reyni að bæta afkomu sína svo sem
hægt sé.
„Kristján hefúr lagt á það áherslu
í gegnum tíðina að lög séu skýr svo
hægt sé að gera raunhæfar framtíð-
aráætlanir. Málið snýst um óbeit
hans á því hve mikið trillukarlar
fiska sem ég skil ekki því hans floti
skildi eftir drjúgar leifar af flestum
þeim tegundiun sem þjóðfélagið ætl-
aði þeim að veiða. Steinbíts- og ýsu-
kvótinn náðist ekki þrátt fyrir gríð-
arlega hjálp krókabáta,“ segir
Sveinbjöm.
Sveinbjöm, sem þekktur er sem
trillukarl á Suðureyri, hefur nú
flutt búferlum með fjölskylduna til
Reykjavikur. Hann segist munu róa
dagabáti sínum hér eftir sem hingað
til enda taki þaö hann ekki nema
rúmar 6 klukkustundir að sigla frá
Reykjavík til Suðureyrar. Hann seg-
ist ekki vilja svara orðum Kristjáns
varðandi það að trillukarlar geri lít-
ið úr skoðunum fiskifræðinga.
Sveinbjörn Jónsson rær smábáti sínum og úthaldið ræðst af því hve marga
daga bátarnir fá á hverju ári. Hann segir að best hefði verið að fá engan dag
í ár. DV-mynd BG
„Ég nenni ekki að svara dylgjum em einfaldlega ekki svara verðar,“
Kristjáns um afstöðu mína eða okk- segir Sveinbjöm.
ar trillukarla til fiskifræðinga. Þær -rt
Akureyri:
Ungir „sjall-
ar“ ánægðir
meöRUV
DV, Akureyri:
Ungir sjálfstæðismenn á Ak-
ureyri hafa lýst yfir fögnuði
með þá framtakssemi sem Rík-
isútvarpið Sjónvarp sýnir með
þeirri íslensku dagskrárveislu
sem það stendur nú fyrir. Hvet-
ur Vörður, félag ungra sjálf-
stæðismanna í bænxun, for-
ráðamenn Ríkisútvarpsins
Sjónvarps að gera það að reglu
frekar en undantekningu að
senda út íslenskt sjónvarpsefiii
svo landsmenn megi hafa gagn
og gaman af.
„Telin- Vörður það ánægju-
legt, sem og nauðsynlegt, að
Ríkisútvarpið Sjónvarp stígi
stöku sinnmn upp frá endur-
varpi erlendrar lágmenningar
og taki af skarið sem öflugur
miðill íslenskrar menningar.
íslensk tunga má ekki undir
nokkrum kringumstæðum
grotna niður af völdum mis-
tækra aðgerða í menningarmál-
um. Gott er fyrir alþjóð að vita
að Ríkisútvarpið Sjónvarp geti
staðið undir því hlutverki sínu
aö framleiða, varðveita og
senda út íslenskt sjónvarps-
efiii," segir í samþykkt Varðar
á Akm-eyri. -gk
Oflugri skip Alla ríka
DV, Esldfirði:
Á fundi stjómar Hraðfrystihúss
Eskifjarðar þann 24. september var
samþykkt heimild handa Þorsteini
Kristjánssyni aðstoðarforstjóra að
staðfesta kaup á tveimur 7000 hest-
afla aðalvélum auk rafala og stærri
togspila í nótaskipin Hólmaborg og
Jón Kjartansson.
Þorsteinn sagði að stefnt væri að
því að fara i breytingar á Hólma-
borg í lok mars eftir lok loðnuver-
tíðar en síöan færi Jón Kjartans-
son þegar Hólmaborg kemur heim.
Breytingamar era gerðar til að
skipin nái betri árangri á
kolmunnaveiðum hér við land.
Þær munu kosta 200 milljónir á
hvort skip. Regína
Órólega deildin
Úr órólegu deildinni í Sjálfstæð-
isflokknum heyrast þær fréttir að
Markús Möller,
hagfræðingur í
Seðlabankanum, sé
að spá alvarlega í
að skella sér í próf-
kjörsslaginn í
Reykjanesi. Mark-
ús hefur verið
harður talsmaður
auðlindagjalds i
sjávarútvegi og því
ekki átt upp á pallborðið hjá
æðstaráðinu í flokknum. Hefúr því
verið fleygt að ófáir sjálfstæðis-
menn muni hins vegar fagna þátt-
töku Markúsar, ekki síst eftir að
Sverrir Hermannsson og félagar
ákváðu að bjóða fram um land allt.
Með Markús á lista hafi Sjálfstæð-
isflokkurinn útvegað sér „alibi“ í
sjávarútvegsmálum. En fyrst verið
er að ræða um sjálfstæðismenn í
þessu kjördæmi er fullyrt í eyru
Sandkoms að Hreinn Loftsson sé
kominn mun lengra en að íhuga
framboð og að Ásgerður Hall-
dórsdóttir á Seltjamamesi ætli
ekki að gefa kost á sér þó á hana
hafi verið þrýst.
Eintök á lager?
Nú er Ijóst að Böðvar Bragason
mun koma aftur til starfa sem lög-
reglustjóri í Reykja-
vik 15. nóvember, en
hann hefúr verið í
veikindaleyfi. Ge-
org Kr. Lárusson
þykir hafa tekið
myndarlega til
hendinni á meðan
Böðvar var í
burtu og margir
á því að þar sé gott efni
í lögreglusfjóra. Sumum fannst Ge-
org hins vegar ganga fulllangt í að
styrkja stöðu sína innan lögregl-
unnar, sáu ekki betur en að klónað
eintak af honum birtist hvað eftir
annað í fjölmiðlum í hlutverki
Karls Steinars Valssonar. Velta
gárungar nú fyrir sér hvort Georg
eigi fleiri eintök á lager og Böðvar
sjái sæng sína upp reidda.
Monica kitla kunni
Clinton meö sínum munni
og forsetafrjó
húnfimlega dró
úr miölœgum gagnagrunni...
Vanir menn
Um þessar mundir er Guðný
Halldórsdóttir kvikmyndaleik-
stjóri að undirbúa
mynd eftir sögunni
Ungfruin góöa og
húsiö sem er eftir
fóður hennar, Hall-
dór Laxness. Fjöl-
margir þekktir leik-
arar eru í aðalhlut-
verkum. Statist-
amir eru þó ekki
síður þekktir. Þannig hefúr
ný fengið þijá vana menn til að
fara með hlutverk drukkinna þre-
menninga sem bregður fyrir í
myndmni. Það eru þeir Einar
Kárason rithöfúndur, Ömólfur
Thorsson, í stjóm Máls og menn-
ingar, að ógleymdum HaUdóri
Guðmundssyni, útgáfústjóra for-
lagsins. Það þarf ekki að taka fram
aö í veruleikanum era allir þrír
stakir bindindismenn...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is
Ólafsflöröur:
Kirkjan endurvígð
var reynt að halda stíl Rögnvalds
Ólafssonar sem hannaði kirkjuna
á sínum tíma.
Kirkjan rúmar allt að 130
manns en við fjölmennar athafnir
gefst kostur á að opna inn í safn-
aðarheimilið sem rúmar um 120
manns. Þaðan sést vel inn í kirkj-
una. Arkitekt hússins er Fanney
Hauksdóttir en hönnun var í
höndum Arkitekta- og verkfræði-
stofu Hauks á Akureyri. Það var
Tréver hf. í Ólafsfirði sem annað-
ist framkvæmdimar.
-HJ
Andlitsdráttur
Margir hafa haft gaman af vísu-
komum sem fjalla um andhtsdrátt
þeirra Monicu Lewin-
sky og Clintons. Páll
Ásmundsson læknir
hefúr ekki látið sitt
eftir liggja í þessum
efnum. Hann sendi
Sandkomi eftirfar-
andi limru sem
hann flutti í veislu
á dögunum:
DV; Ólafsfiröi:
Ólafsfjarðarkirkja var endur-
vígð sunnudaginn 13. september
við hátíðlega athöfn. Biskupinn,
heira Karl Sigurbjömsson, vígði
kirkjuna, en viðstaddir athöfiiina
voru tveir fyrrverandi prestar
Ólafsfjarðar, þeir Úlfar Guð-
mundsson á Eyrarbakka og Svav-
ar A. Jónsson á Akureyri, ásamt
sr. Sigríði Guðmarsdóttur, núver-
andi sóknarpresti. Aðrir sem að-
stoðuðu við vígsluna voru sóknar-
nefnd og byggingamefiid kirkj-
unnar
Athöfnin hófst á því að hinir
helgu gripir kirkjunnar voru
bomir inn og lagðir við altarið.
Sigríður Guðmarsdóttir þjónaði
fyrir altari en biskupinn yfir ís-
landi, Karl Sigurbjömsson, vígði
kirkjuna. Ólafsfjarðarkirkja, sem
var reist árið 1915, þótti orðin
alltof lítil og þarfnaðist mikils við-
halds.
Fyrir tveimur árum var byrjað
að reisa safnaðarheimili við kirkj-
ima og var það fokhelt í ársbyrjun
1997. Var síðan hafist handa við
að útfæra breytingar á gömlu
kirkjunni. Kirkjan var lengd rnn
þrjú gluggabil, skipt um alla
glugga, þak, söngloft, kirkjubekki
og altari. Við þessar breytingar
Biskupinn, Karl Sigurbjörnsson, og Birgir Snæbjörnsson prófastur við at-
höfnina. DV-mynd Helgi
Hólmaborg, stærsta nótaskip
landsins, fær öflugri vélar í
kolmunnaveiðarnar. DV-mynd ÞH