Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Side 6
6
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
stuttar fréttir
81 árs barnaníðingur
81 árs barnaníðingur í Svíþjóð
sleppur við fangelsisvist vegna
, aldurs. í héraðsdómi hafði maður-
inn verið dæmdur í 6 mánaða
fangelsi. Á æðra dómstigi fékk
1 hann skilyrðisbundinn dóm.
Hann á jafiiframt að greiöa 150
I dagssektir.
Shokhin hættir
Shokhin, aðstoðar-
forsætisráðherra
Rússlands, sagði
af sér i gær eftir
að Borís Jeltsín
forseti hafði skip-
að Mikhail Za-
dornov á ný í
embætti fjármála-
ráðherra. Shok-
] hin átti að hafa eftirlit meö fiár-
I máium og samningaviðræöum
við alþjóðlegar lánastofnanir.
Farþegaflugvél hrapaði
34 farþegar og 4 flugliðar létu
lífið er spænsk farþegaflugvél af
gerðinni BAE 146-100 hrapaði í
hafið undan strönd Marokkó í
j gærmorgun.
Clinton vill borga Jones
; Lögmenn Bills Clintons
Bandaríkjaforseta bjóða Paulu Jones
sem svarar 40 milíjónum íslenskra
Ikróna fyrir að falla frá kæru um
kynferðislega áreitni. Kæru Jones
var visað frá í april síðastliðnum en
úrskurðinum var áfrýjað.
Rehn varðist ástleitni
Finnski stjórnmálamaðurinn
Elisabeth Rehn segir frá því í end-
urminningum sínum að hún hafi
þurft að verjast ástleitni varnar-
málaráðherra Sýrlands, Mustafa
Tlass, er hún var ein með honum
í bíl í opinberri heimsókn í Sýr-
landi 1994.
Fjársjóður frá miðöldum
Fjársjóður frá miðöldum hefur
| fundist í akri utan við Freistadt í
| Austurríki. Um var að ræða
| fjölda skartgripa og 6 þúsund silf-
I urpeninga.
Samstarf við vinstri
Göran Persson, forsætisráð-
herra Sviþjóðar,
sagði í gær að
framkvæmda-
stjóm Jafnaðar-
mannaflokksins
hefði samþykkt
samstarf flokksins
við Vinstri flokk-
inn og flokk græn-
ingja. Persson á ekki von á mikl-
um breytingum á fjárlagafrum-
varpinu sem lagt verður fram um
miðjan október.
Ástir Mitterrands í bók
Bókmenntamenn í Frakklandi
velta því nú fyrir sér hver sú sé
sem í væntanlegri bók segir opin-
skátt frá 8 mánaða ástarsambandi
sinu við Mitterrand Frakklands-
forseta á árunum 1966 og 1967.
Olía undir Kattegat
Líkur eru á því að mikið magn af
oliu og jarðgasi sé að frnna í jarðlög-
um undir sjávarbotninum í Kattegat
innan lögsögu Danmerkur. Kattegat
er sundið milli Jótlands og Svíþjóðar
norður af Sjálandi. Þetta er álit jarð-
fræðingsins Jan Gording, forstjóra
rannsóknarfyrirtækisins Odin
Energy, eftir byrjunarrannsóknir
sem gerðar hafa verið á jarðlögum á
austurströnd Norður-Jótlands.
Odin Energy hefur rannsakað jarð-
lög á þessu svæði í samvinnu við
dönsku olíu- og jarðgasstofnunina.
Sjávarbotninn norður af Sjálandi
hefúr einnig verið rannsakaður að
undanfómu með aðferðum jarðeðlis-
fræðinnar og þær rannsóknir hafa
bent til sömu niðurstöðu. Hvort
tveggja hefur vakið áhuga erlendra ol-
íuvinnslufyrirtækja, svo sem
Amarada Hess í Bandarikjunum,
Courage Energy í Kanada og Emerald
Energy í Bretlandi og hafa þau sótt um
leyfi til danskra yfirvalda til að leita
að olíu á svæðinu. Áætlað er að til-
raunaboranir hefjist strax næsta vor.
Hættuástandi
aflýst í Flórída
- íslendingar búnir að safna 2 vikna matarbirgðum
Hættuástandi í Miami í Flórída og
nágrenni vegna fellibylsins Georgs
var aflýst í gær. Yfirvöld hvöttu þó
íbúa til að halda sig innandyra
vegna hættu á hvirfilbyljum sem oft
fylgja í kjölfar fellibylja, að því er
Guðmundur Pálmason lögfræðing-
ur, sem er í framhaldsnámi i Mi-
ami, greindi DV frá í gær.
Miðja fellibylsins náði eyjunni Key
West, syðsta odda Flórída, um miðj-
an dag í gær að íslenskum tíma.
Herjaði fellibylurinn sunnar en gert
var ráð fyrir. Að sögn Guðmundar
urðu miklar skemmdir á Key West
af völdum náttúruhamfaranna.
Sjálfur hafði Guðmundur og fjöl-
skylda hans búið sig vel undir veð-
urhaminn. „Ég límdi aftur alla
glugga og setti límband í kross á
gluggarúður. Við erum með matar-
birgðir fyrir tvær vikur. Við flutt-
mn öll húsgögn í öruggasta herberg-
ið. Eftir á að hyggja var þetta óþarfi
en þetta var nauðsynlegt á meðan
útlit var fyrir að Georg skylli á
hér.“
Guðmundur kvaðst hafa dormað
fyrir framan sjónvarpið á meðan
beðið var eftir Georg í fyrrinótt. „Ég
held ég hafi sofið þokkalega." Að
sögn Guðmundar flýðu margir is-
lendingar til Orlando af ótta við
fellibylinn.
Skólastarf lá alls staðar niðri í
Flórída í gær og opinberum
athöfnum var frestað. Erlend
flugfélög aflýstu ferðum sínum til
Flórída í gær vegna veðrahamsins.
Borgaryfirvöld í Miami lýstu yfir
ánægju sinni með varúðarráðstaf-
anir íbúanna. Þegar fellibylurinn
Andrés stefndi að Flórída fyrir sex
árum tóku íbúarnir viðvaranir ekki
alvarlega, að því er Guðmundur
greindi frá. Gríðarlegar skemmdir
urðu er Andrés gekk þá yfir.
Georg hefur skilið eftir sig slóð
eyðileggingar í Karíbahafi og er
talið að um 240 manns hafi látið
lífið af völdum hans.
Jim og Susan Watson töldu óhætt að leika sér í öldunum á Hollywoodströnd á Flórtda í gær, eftir að hættuástandi
hafði verið aflýst. Simamynd Reuter
Kosningarnar í Þýskalandi:
Þriðji hver óákveðinn
Samkvæmt síðustu skoðanakönn-
unum fyrir sambandsþingskosning-
amar í Þýskalandi á morgun verður
Jafnaðarmannaflokkurinn stærsti
flokkurinn á nýju þingi. Sérfræðing-
ar lögðu hins vegar áherslu á að
þriðji hver kjósandi hefði ekki gert
upp hug sinn og það gæti orðið
kristilegum demókrötum, flokki
Helmuts Kohls kanslara, í hag.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar Forsa-stofnunarinnar, sem
birtar voru í gær, fær Jafnaðar-
mannaflokkurinn, flokkur Gerhards
Schröders, 42 prósent atkvæða en
kristilegir demókratar 38 prósent.
Margir eru þó þeirrar skoðunar
að jafnaðarmenn og græningjar fái
ekki nógu mikið fylgi til að mynda
samsteypustjóm. Síðustu daga hafa
möguleikar á samsteypu stóru
flokkanna verið ræddir.
Óvissan 1 stjórnmálunum hefur
leitt til þess að margir kjósendur
hafa ekki getað ákveðið sig.
Kosningasérfræðingur við Dimap-
stofnunina sagði að kjósendur hefðu
ekki hugmynd um hvað þeir ættu
að gera. Yfir þriðjungur þeirra væri
óákveðinn.
Kauphallir og vöruverð erlendis
IFékk handlegg
annars manns
Nýsjálendingurinn Clint
Hallam, sem missti hægri hönd
og hluta af framhandlegg í vél-
sög fyrir 14 árum, gekkst undir
aðgerö í Lyon í Frakklandi á
fimmtudaginn. í gærmorgun
i vaknaði hann með hönd annars
manns. Átta skurðlæknar höfðu
tekið þátt í aðgerðinni sem stóð
> yfir í 12 klukkustundir. Læknar
■ í Perth í Ástralíu reyndu að
| græða hægri hönd Hallams á
J hann eftir slysið en aðgerðin
mistókst. í gær var var eðlilegur
I litur á nýrri hendi Hallams og
1 hitastigið var einnig eðliiegt.
Nýja höndin kemur frá látnum
3 Frakka. Meira fær Hallam ekki
að vita um gefandann.
Einn læknanna sem fram-
kvæmdu aðgerðina kvaðst ekki
telja að höfuð yrðu grædd á
menn en sagði umræður um
j slíkt vera í gangi.
Fátækir Norður-
landabúar
reykja sig í hel
Hjartasjúkdómar og reykingar
| eru miklu algengari meðal fá-
1 tækra Norðurlandabúa en hjá
I sama þjóðfelagshópi í Suður-Evr-
| ópu. Þetta er niðurstaða stórrar
í rannsóknar í 11 löndum sem hol-
lenski prófessorinn Johan
Mackenbach stjómaði.
Rannsóknin sýnir að þeir fá-
tækustu eiga við nær tvöfalt
; fleiri heilbrigðisvandamál að
, glíma en þeir best stöddu. Þeir
sem búa við kröpp kjör deyja
í fyrr en þeir sem búa við velmeg-
| un. Þetta er sérstaklega áberandi
á Norðurlöndum. Hjarta- og æða-
| sjúkdómar eru algengari i lægri
I þjóðfélagsstigum á Norðurlönd-
um en annars staðar í Evrópu.
Auk þess em reykingar miklu
I algengari meðal bágstaddra á
I Norðurlöndum en þjá samsvar-
1 andi hópum í Suður-Evrópu.
!! Prófessorinn bendir á að þeg-
ar skaðsemi reykinga varð ljós
hafi það verið þeir best mennt-
uðu sem voru fljótastir að drepa
í sígarettunni. í Suður-Evrópu
séu reykingar hins vegar enn al-
gengastar með vel menntraðra.
Reiðir karl-
menn eru
þunglyndir
Vísindamenn hafa uppgötvað
sérstakt þunglyndi meðal karla
sem brýst út í reiði og i verstu
tilfellunum ofbeldi. Venjulega
hefúr kjarkleysi verið talið ein-
kenna þunglyndissjúklinga.
Þeir sem haldnir era karla-
þunglyndinu telja sig ekki vera
veika og leita þess vegna ekki tii
læknis. Danski læknirinn Jes
Gerlach bendir á að tvöfalt fleiri
karlar en konur fremji sjálfs-
morð. Útskýringin geti verið sú
I aö karlar leiti ekki aöstoðar og
: bregðist við sjúkdómsástandinu
I með því að láta stjómast af til-
s finningum augnabliksins og á
* dramatískari hátt en konur.
Læknar skrifa
verst
Skrift lækna er jafn slæm og
allir hafa haldið og miklu vetri
i en annarra stétta. Fordómamir
| um hrafnaspark læknanna eru
staðreynd samkvæmt rannsókn
‘ sem gerð var af lækninum Ron-
6 an Lyons hjá heflbrigðisyfirvöld-
I um í Swansea í Bretlandi.
Hann gerði rannsókn í tölvu á
skrift 92 starfsmanna heilbrigð-
> isgeirans í suðurhluta Wales.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar var skrift lækn-
| ar>na ólæsilegt klór, jafnvel þótt
þeir væru beðnir um að skrifa
eins vel og þeir gætu. Tölvan
Piði öllum stöfum sem hún
;kki lesiö. Sjúklingum til
anar skrifa læknar tölur
.
....... ~~Tiniiriiii ii iimiMiii m