Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Qupperneq 10
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
Stúlkan sem þráði sviðsljósið
Monica kemur til annarrar yfirheyrslu Kenneths Starr 20. ágúst, döpur í bragði. Draumurinn orðinn að martröð og
Monica veit að hún vaknar ekki.
Hún setti heiminn í stofufangelsi,
þrýsti fólki niður í sófann fyrir
framan sjónvarpið. Monica Lewin-
sky, 25 ára stúlka frá Los Angeles. Á
forsetaskrifstofunni var það hún
sem stundaði kynlíf en ekki Clint-
on.
Þegar sögur af kynlífsathöfnun-
um komu fyrst fram var reynt að
koma óorði á hana með því að draga
upp sögur af háttalagi hennar. Hún
var sögð óáreiðanleg og jafnvel
kynóð. En hver er þessi stúlka? Er
hún ómerkileg tík eða óþroskuð ung
kona frá Beverly Hills?
Milljón dala brosið
Monica Samille Lewinsky er fædd
í San Fransisco árið 1973. Foreldrar
hennar eru Bernard Lewinsky
krabbameinslæknir og Marcia Lew-
is rithöfundur. Hún á yngri bróður,
Michael.
Þau fluttust snemma á ævi Mon-
icu til Beverly Hills þar sem hún
ólst upp í hverfinu 90210 sem marg-
ir kannast við úr þáttum á Stöð 2.
Fjölskyldan var ekki á flæðiskeri
stödd. Þau bjuggu í 70 milljóna
króna villu og eyddu ríflega 1,4
milljónum í ferðalög á ári. Adam
Dave, fyrsti kærasti Monicu, segir
að þrátt fyrir auðinn hafi Monica
átt nokkuð sem ekki varð keypt:
Fallegt andlit og augu. „Ég man enn
milljón dala brosið hennar,“ segir
Adam.
Faðir hennar var mjög strangur
og segja vinir Monicu að höfnun
hans hafi ýtt undir þá tilhneigingu
hennar að þurfa að þóknast karl-
mönnum. Áðurnefndur Adam og
bróðir hans G.T. segja að allt sem
Monica hafi sagt um foður sinn hafi
verið blandið vanþóknun. „Athyglin
sem hann veitti henni var mjög
gagnrýnin og hann var aldrei
ánægður með það sem hún gerði.“
Erfitt samband við fóður hafði
því öfug áhrif á Monicu miðað við
Hillary Clinton. Hillary varð köld
en Monica sífellt að reyna að ná at-
hygli karlmanna.
Of feit með gleraugu
Samband Monicu og móður henn-
ar var annars eðlis. Þær voru vin-
konur.
Marcia Lewis skrifaði bókina
Einkalíf tenóranna þriggja um
Pavarotti, Domingo og Carreras. í
einum kaflanum gefur Marcia í
skyn að Domingo hafi verið elsk-
hugi hennar. Talsmaður Domingos
neitaði því og útgefandi bókarinnar
hefur sagt að Marcia hafi ekki einu
sinni talað við Domingo.
Þrátt fyrir góðan vinskap mæðgn-
anna gerði Marcia kröfur til Mon-
icu en þær voru annars eðlis en
kröfur fóður hennar. Marcia setti
átta ára dóttur sína í megrun.
Holdafarið var nokkuð sem Mon-
ica hefur þurft að hafa áhyggjur af.
Hún passaði ekki inn í glansmynd
Beverly Hills og hefur verið sagt að
versta áfall á uppvaxtarárum Mon-
icu hafi verið þegar henni var ekki
boðið í afmælisveislu Tori Spelling
vegna þess að hún var of feit og með
þykk gleraugu.
Skilnaður foreldra Monicu árið
1988 tók mjög á hana. Fjölskylduvin-
ir þeirra sögöu að skilnaðurinn
hefði ekki komið á óvart. Þau hjón-
in hefðu aldrei átt vel saman.
Marcia tók ekki upp eigið nafn,
Kaye Vilensky, heldur stytti Lewin-
sky í Lewis.
Það var ekki aðeins andlega hlið-
in sem varð fyrir áfalli við skilnað-
inn. Monica þyngdist um 15 kíló á
örskömmum tíma og var send á rán-
dýrt heilsuhæli til að ná af sér
mestu holdunum.
Utanveltu
Barnaafmæli í Beverly Hills eru
ekki pylsur og kaka. Þau eru litlar
þjóðhátíðir með filum, auk þess sem
oft er fluttur snjór ofan úr fjöllum
til að gleðja börnin á sumrin.
Þannig var það ekki hjá Monicu og
hún var ekki snobbuð. Skólafélagar
hennar í Beverly Hills High muna
eftir henni sem rólegri, feiminni og
góðhjartaðri stúlku sem vildi vera
vinsæl en var það ekki. Hún var ut-
anveltu.
Eden Sassoon, dóttir Vidal
Sassoon, segir að hún hafi hangið á
klíkunni en aldrei komist í hana.
„Ef við héldum partí þá var Monica
þar en ég hringdi aldrei í hana og
sagði: Heyrðu við ætlum að gera
þetta eða hitt, ertu ekki með?“
Adam Dave segir að Monica hafi
byrjað að hringja í hann seint á
kvöldin sumarið 1987 og oft birst á
setri fjölskyldunnar með gjafir
handa honum. Þegar hann keypti
sér hvítan Jeep Wrangler, keypti
hún sér líka einn slikan. Þegar
hann var kosinn Homecoming-kóng-
ur árið 1990 færði hún honum tvö
kíló af uppáhaldslakkrísnum hans.
„Hún þráði að verða hluti af hópn-
um. Hún gerði hvað sem var til
þess. Henni þótti sælla að gefa en
þiggja," segir Adam.
Móðirin kom henni í
sviðsljósið
Sáluhjálp fann Monica í sápuóper-
um. Ung hafði hún yndi af Dynasty
og síðar varð hún heltekin af sáp-
unni Days of Our Lives. í Beverly
Hills High fór hún í leiklistardeild-
ina til að finna eigin sápuóperu.
Samfélag kennara og nemenda í
deildinni var mjög náið og gátu nem-
endur verið þar í fjögur ár.
Monica fór ekki í sviðsljósið. Hún
skráði sig í búningadeildina og sá
um ýmislegt baksviðs. Samnemandi
hennar, sem lék í Rómeó og Júlíu,
ber henni vel söguna: „Það var mjög
gott að vinna með henni. Hún var
alltaf til staðar baksviðs með leik-
muni og vatnssopa."
Monica var alltaf i leikhúsinu. Það
var griöland hennar. Samband henn-
ar við Bruce Hertford var mjög náið.
Bruce var yfir leiklistardeildinni og
var mjög heillandi og drífandi,
þekktur fyrir góða kímnigáfu og það
að reka fólk miskunnarlaust af svið-
inu ef hann taldi það hæfileikalaust.
Hann valdi Monicu til að leika og
syngja í söngleiknum The Music
Man og var það í fyrsta skiptið sem
Monica stóð í sviðsljósinu. í leikskrá
segir að þetta sé fyrsta hlutverk
Monicu Lewinsky sem hafi verið
mjög virk i leiklistarstarfí skólans.
Seinna í skránni segir að eini styrkt-
araðili sýningarinnar sé Marcia
Lewis.
Monica varð fyrir miklu áfalli þeg-
ar Bruce skar sig á háls. Kona sem
keyrði Monicu að jarðarförinni segir
að hún hafi verið niðurbrotin: „Hún
var mjög auðsærð, of feit, þunglynd
og foreldrar hennar voru í miðri
skilnaðarbaráttu. Leiklistarkennar-
inn var hennar eina skjól.“
Ást í leikhúsinu
Skömmu eftir andlát Bruce kom
upp kvittur um að Monica ætti í
sambandi við einn kennara sinna.
Foreldrar hennar fluttu hana þá í
annan skóla en þrátt fyrir það fór
Monica í gamla skólann sinn á
hverjum degi til að taka þátt í leik-
listarstarfinu og vann þar fram á
nætur í búningadeildinni. Það
kunni ekki góðri lukku að stýra.
Leikhúsið er þröngt samfélag og þar
komst hún í kynni við Andy Bleiler,
giftan sviðsmann og foður, fallegan
með sítt tagl. \
Samband þeirra stóð yfir í
nokkurn tíma og þegar Monica fór í
skóla til Portland í Oregon ílutti
hann líka þangað með fiölskyldu
sinni. Monica passaði börnin þeirra
og hélt um leið við föður þeirra.
Monica reyndi mikið að koma
Andy í vinnu í skólanum hennar í
Portland en allt kom fyrir ekki. Síð-
an tók hún það til bragðs að nota
nafn eins yfirmanna skólans o'g fals-
aði bréf þar sem sagt var að Andy
yrði brátt ráðinn til skólans. Þetta
gerði Monica til að Andy héldi at-
vinnuleysisbótum sínum.
Andy kom siðar fram í fiölmiðl-
um og sagði frá sambandi sinu við
Monicu auk þess sem hann gaf
Kenneth Starr skýrslu. í máli
Bleiler-hjónanna kom fram að Mon-
ica væri kynóð og stjórnsöm og ætti
það til að fara rangt meö staðreynd-
ir. Þau sögðu líka að Monica hefði
montað sig af því að vera í sam-
bandi við háttsettan mann í Hvíta
húsinu.
Snerting valdsins
Monica byrjaði sem lærlingur í
Hvita húsinu í júní 1995. Hún komst
þangað inn vegna sameiginlegs vin-
ar móður sinnar og Hillary Clinton,
svo kaldhæðnislegt og það má virð-
ast.
Það eru um 1000 lærlingar sem
koma í Hvíta húsið á hverju ári og
eru þeir allir kauplausir. Ástæðan
fyrir veru þeirra þarna er því ann-
að tveggja: Þjóðhollusta eða þráin
að vera nálægt valdhafanum.
Á hverjum degi hópast lærling-
amir við lyftudyrnar og bíða eftir
að forsetinn komi út. Nærvera for-
setans var ekki síst aðdráttarafl fyr-
ir Monicu sem hafði alla sína ævi
verið utan sviðsljóssins en var nú
nærri voldugasta manni heims.
Samstarfsmenn Monicu segja að
hún hafi oft sest hjá því og sagt að
nú hún hafi fengið bréf frá forsetan-
um, blóm eða að hann hafi kallað
hana til sín til að tala við sig. Hún
var ekki tekin trúanleg.
Ein „sönn" vinkona
í Hvíta húsinu kynntist Monica
manneskjunni sem átti eftir að um-
turna lífi hennar. Linda Tripp hafði
þá verið í fiölmiðlum vegna dular-
fulls sjálfsmorðs í Hvíta húsinu.
Monica leit á Lindu sem góða vin-
konu sína þrátt fyrir mikinn aldurs-
mun. Besta vinkona Monicu var
enda móðir hennar.
Fólk innan Hvíta hússins skildi
ekki hvers vegna Linda Tripp sótt-
ist eftir vinfengi Monicu en henni
var mjög í nöp við lærlingana ungu
og Monica var í raun persónugerv-
ingrn- þess sem Linda átti að hata.
En Monica leit engu að síður á
Lindu sem vinkonu sina.
Vinir Monicu voru ekki fleiri.
Þegar hún hélt upp á 23 ára afmæli
sitt bauð hún fiölmörgum sem hún
hafði vart talað við. Veislan var í
glæsilegum sal og var yfirbragð
hennar hið vandræðalegasta. Eng-
inn virtist vera nátengdur Monicu
nema móðir hennar og voru mægð-
urnar þær einu sem töluðu. Móður-
systir Monicu var þarna líka en fór
Linda Tripp. Konan sem sóttist eftir
vinfengi við Monicu og var í raun
eina vinkona hennar í Hvíta húsinu.
Margir eru hissa á þvf að Linda, sem
þoldi ekki lærlinga, sóttist eftir vin-
skap Monicu.
í miðri veislu án þess að kveðja.
Monica hélt áfram að tala og brosa.
Sviðsljósið brennir
Framhaldið er þekkt. Vinkonan
Linda Tripp tók upp samræður
þeirra og kom þeim til Kenneths
Starr. Á þeim tímapunkti var málið
úr höndum Monicu. Hún varð hötuð
um allan heim fyrir að draga forset-
ann á tálar og ljóstra upp leyndar-
máli þeirra. Óvíst er hvað hefði
gerst ef Whitewater-rannsóknin
hefði ekki verið í gangi.
Frá æsku hafði Monica verið í
skugganum; bak við tjöldin þar sem
hún horfði á jafnaldra sína baða sig
í mærðarljóma, en hún fékk ekki að
taka þátt í sápuóperunni. Nú hefur
draumurinn um sviðsljósið ræst en
fyrir hann þurfti hún að gjalda dýru
verði.
Framtíð Monicu er ekki björt.
Henni hefur verið boðin ráðgjafar-
staða í klámiðnaðinum en sögu
hennar hefur hingað til verið hafn-
að af bókaútgefendum.
Monica þarf vart að hafa áhyggj-
ur af fiárhagnum þcir sem foreldrar
hennar eru vel stæðir. Annað er
hvort sálin þolir gjömingaveðrið í
lífi Monicu Lewinsky og því er
hvergi nærri lokið.
-sm