Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Síða 26
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 JÖV
26 Qfrgt fÓlk
Viö þá sem eru aö pæla í aö prófa segir Hafsteinn: „Kynntu þér staöreyndir málsins. Ef þú ert enn þá ákveðinn eftir þaö þarftu aö leita þér hjálpar."
DV-myndir E.ÓI.
Amfntamínbilun er andleg; oft
heldur neytandinn að hann sé
undir eftirliti og jafnvel að
hann sé ofsóttur. Það er ekki
bara andleg bilun sem á sér
stað heldur skemmir amfetamin
taugaenda varanlega. Fólk get-
ur t.d. fengið einkennilega kæki
sem það losnar ekki við, jafnvel
þótt það hætti í neyslu.
Jafningjafræðslan er fyrirbæri
sem hefur vakið mikla verðskuldaöa
athygli hér og erlendis. Hafsteinn
Snæland er nýtekinn við fram-
kvæmdastjórastöðu fræðslunnar.
Hann er tvítugur, var kosinn formað-
ur Félags framhaldsskólanema í vor
en hætti því og tók við starfi fram-
kvæmdastjórans í síðustu viku. FF
og Jafningjafræðslan er á sömu skrif-
stofunni í Hinu húsinu þannig að
Hafsteinn færði sig bara yfír á næsta
skrifborð.
Hafsteinn vann hjá Jafningja-
fræðslunni sumarið 1996 og síðan aft-
ur í sumar.
„Strax á fyrstu vikunum fannst
mér þetta áhugavert og þess virði að
standa í þessu. Þannig að ég var aft-
ur í þessu í sumar og þá sem milli-
stjómandi. í framhaldi af því ákvað
ég að sækja um þetta starf í vetur,"
segir Hafsteinn.
Eitthvað sem allir vita um
Hefur Hafsteinn kynnst eiturlyfj-
um af eigin raun?
„Ekki persónulega en ég hef séð
þetta í kringum mig eins og flestir.
Svo leiðinlegt sem það er þá er ísland
litið samfélag og það ber svo mikið á
svona vandamálum þó að þetta sé
ekki jafnstórt vandamál og annars
staðar á Norðurlöndunum. Þaö hafa
allir kynnst þessu einhvem veginn,
hvort sem það er áfengisneysla eða
sjálfsmorð vegna vímuefna.
Það koma margir til okkar og við
forum til margra. Það er mikið um
það að við séum beðin um að halda
námskeið fyrir unga krakka. Fólk
er að sjá að þeir hlusta kannski bet-
ur á okkur og það sem við emm að
segja. Við segjum þeim hvað þeir
græða mikið og hvað þeir geta gert
miklu meira; að það eru meiri
möguleikar sem fylgja því að láta
dópið vera heldur en hitt.
Við erum að reyna að ná til fólks-
ins sem er ekki búið að lenda í ves-
eni heldur er í áhættuhópnum. Við
eram ekki fagaðilar og getum ekki
hjálpað fólki sem er komið í skítinn.
Þegar fólk er komið þangað er hættu-
legt að vera með einhverjar tilraun-
ir.“
Sjálfsmorð - sigur eitursins
Undanfarið hefur verið rætt mikið
um aukna sjálfsmorðstíðni meðal
ungs fólks og hefur hún verið tengd
aukinni amfetamínneyslu.
„Óvinurinn er að vinna okkur í
smátíma með vissa einstaklinga. Við
getum ekkert hætt. Við vitum að við
erum aö hjálpa einhverjum þó að við
náum ekki til allra. Við vitum að við
getum ekki bjargað heiminum. Það
er alltaf sorglegt aö heyra af sjálfs-
morðum en við gerum okkar besta.“
Er einhver sérstakur áhættuhóp-
ur?
„Það em allir í hættu en í mismun-
andi mikilli. Það er sannað mál að
það er enginn sérstakur hópur sem
er í þessu. Við fókusum á nýnema í
skólum því að þeir era kannski að
skipta um hverfi, vinahóp og komast
í framhaldsskóla sem er stórt skref.
Þeir verða stundum áttavilltir og þá
era þeir auðvelt skotmark fyrir þá
sem vilja fá þá í dópið. Ef rangur
hópur kemst í hann fyrst og nær að
tala við hann þá fær hann kannski
þá hugmynd aö dóp sé töff í fram-
haldsskóla. Við verðum bara að leið-
rétta þann misskilning.
Það hjálpar manni mikið ef maður
á góða vini, hvort sem maður er í
þessu eða einhveiju öðra, en ég veit
ekki hvort það er mikilvægasti þátt-
urinn. Sjálfstæð hugsun og vilji getur
bjargað þér út úr öllu. En auðvitað
gerir vinahópurinn mikið, skólinn og
fjölmiðlar."
Að deyja í fráhvarfi
Samkvæmt fikniefnalögreglunni
hefur ecstacy nær horfið. Er ekki
hætt við því
að eitthvað
annað komi í
staðinn?
„Vonandi
ekkert. Am-
fetamínið og
hassið er að-
alvandamálið
núna. Síðan
eru margir
hræddir við
að heróínið
komi. Það eru
ýmsar kenn-
ingar um það; hvort það komi eða
ekki; hvort það nái rótfestu eða ekki.
Rökin fyrir því er að heróínneyt-
andi þarf aö fá sinn daglega skammt,
annars fær hann fráhvarfseinkenni
og það mjög slæmt því að það era
dæmi um að fólk deyi í fráhvarfi.
Fólk er farið að sjá hvað heróínið
er ávanabindandi. Það er tekið
einu sinni og þá verður fólk háð
því. Það þarf að vera stanslaus
innkeyrsla á heróín I landið og
það er svo erfitt miðað við það að
við eram eyja og að meira að segja
veður getur gert erfitt fyrir með
innflutning. Þess vegna þorir fólk
ekki að byrja á þessu.“
Ofneysla ekki algeng hér
í Ósló er starfrækt sérstök neyðar-
lína sem sinnir eiturlyfjasjúklingum
sem hafa tekið of stóran skammt.
Ekki er algengt að fólk deyi úr of-
neyslu hér á landi en það kemur
bara annað í staðinn.
„Það er svolítið mikið um að fólk
ofkeyri líkamann. Ekki að fólk taki
of stóran skammt og deyi heldur að
fólk er á amfetamíntrippi í viku, sef-
ur ekkert, borðar ekkert og drekkur
allan tímann. Þá gefst líkaminn upp.
Fólk dettur niður og stendur ekki
upp aftur.
Sjálfsmorð eru langalgengust í
sambandi við þetta vegna þunglynd-
isins sem fylgir. Fyrir utan það að
verða þunglynt vegna dópsins veit
fólk að þetta er ólöglegt og það getur
lent í vandræðum, það veit að það er
aö eyðileggja fyrir fjölskyldunni. Þá
verður fólk auðvitað miklu þung-
lyndara."
Allir þekkja
einhvern
Er auðvelt að
ná sér í eiturlyf?
„Já. Alltof auð-
velt. Ef einhver
fær þá flugu í
hausinn að byrja
að reykja hass á
fostudaginn þá
gerir hann það.
Hann þekkir ein-
hvem sem þekkir
einhvem sem er
að reykja hass og þekkir einhvem
sala. Ef það væri ekki svona auð-
velt þá fengi fólk meiri tíma til að
hugsa sig um. Þá væri þetta ekki
jafn stórt vandamál.“
-sm
„Þaö er í tlsku aö vera edrú. Þaö er töff.“
Ffknin sem fylgir kannabis-
neyslu er að mestum hluta
andleg og það getur því tek-
ið helmingi lengri tima að
hætta þvi löngunin getur
komið yfir menn öllum
stundum; löngunin blossar
oft upp löngu seinna því
fólki hættir til að gleyma
þvi slæma við alla hluti.
|... í prófíl
Ragnar Blöndal á
Mono
Fullt nafn: Ragnar Blöndal.
Fæðingardagur og ár: 04.02 1972
Maki: Gunnhildur Guðnadóttir.
Böm: Rúnar Þór 7 ára og Ragn-
heiöur Helga tveggja og hálfs
mánaðar.
Starf: Dagskrárstjóri Mono 877.
Skemmtilegast: Fjölskyldan,
vinnan og enski boltinn.
Leiðinlegast: Verslunarferðir á
laugardögum.
Uppáhaldsmatur: Fiskisúpan
hennar mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Coca Cola
og sterkt kaffi.
Fallegasta manneskjan (fyrir
utan maka): Er í lagi að vera
svangur í bænum þó aö maður
borði heima?
Fallegasta röddin:Ragnheiður
Ásta virkar alltaf hálfskringilega
á mig ... annars er Sigmar Guð-
mundsson soldið sætur á lands-
leikjum.
Uppáhaldslíkamshluti: Hehehe
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur) rik-
isstjóminni: Hlynntur.
Meö hvaða teiknimyndaper-
sónu myndir þú vilja eyða
nótt: Piunni sem Roger Rabbit
var svo skotinn í.
Uppáhaldsleikari: Adam Sandle
og Morgan Freeman.
Uppáhaldstónlistarmað-
ur:Hmmm ... þessa stundina eru
strákamir í Wiseguys nokkuð
sterkir og svo Norman nokk-
ur Cook.
Sætasti stjómmálamaðurinn:
Guðlaugur Þór Þórðarson er sold
iö kjút... sérstaklega þegar hann
talar um útvarp (hehehe...).
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
X-files og íþróttaþættir Stöðvar 2
og Sýnar.
Leiðinlegasta auglýsingin: Ég
er ekkert sérlega hrifmn af öllui
þessum dömubindaauglýsingum.,
Leiðinlegasta kvikmyndin:
Sleepless in Seattle fannst mér
soldiö vond.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn:
Brynhildur Ólafsdóttir, frétta-
kona á Stöð 2 og Svavar Örn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Clu
Fischer og Kaffi Thomsen.
Besta „pikköpp“-línan: Komdu,
þetta verður rosa gott!
Hvaö ætlar þú að verða þegar
þú verður stór: ... ertu að segja
að ég sé lítill?
Eitthvað að lokum? Guð er
góður!