Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
Leikararnir Hilmir Snær Guðnason og Sveinn Þ. Geirsson með Stutta þáttinn:
Létt spaug á Bylgjunni
Eftir helgina, nánar tiltekið
mánudaginn 28. september, hefur
göngu sína nýr grinþáttur á Bylgj-
unni er nefnist Stutti þátturinn. Þar
eru á ferð leikaramir Hilmir Snær
Guðnason og Sveinn Þ. Geirsson.
Hilmi kannast öll þjóðin við en
Sveinn er minna þekktur. Margir
muna eflaust eftir honum úr mynd
Friðriks Þórs, Djöflaeyjunni, og í
vetur verður hann á fjölum Þjóð-
leikhússins ásamt Hilmi Snæ.
Að sögn Skúla Helgasonar, dag-
skrárstjóra Bylgjunnar, er Stutti
þátturinn fyrsta skref stöðvarinnar
í átt að útvarpsleikhúsi. Draumur-
inn sé að vera með meira af leiknu
efni á dagskránni.
„Hilmir og Sveinn eru höfundar
efhis og leika þetta sjálfir. Þarna er
aðallega verið að gera létt grín að
útvarpsfólki. Hver þáttur er 5-7 mín
útna langur, byggður upp með við-
tölum við þekkta einstaklinga, sál-
fræðihomi, símatímum og fleiru.
Þeir félagar voru með þátt um versl-
unarmannahelgina sem mæltist
mjög vel fyrir. Því báðum við þá
Hilmi og Svein að halda áfram hjá
okkur,“ sagði Skúli.
Stutti þátturinn verður á dagskrá
þrisvar í viku; mánudag, miðviku-
dag og föstudag um kl. 18.03, eða
strax á eftir sexfréttum Bylgjunnar.
Sveinn og Hilmir Snær við upptök-
ur í hljóðveri Bylgjunnar í fyrradag.
Grínþáttur þeirra fer í loftið á mánu-
daginn.
DV-mynd Hilmar Þór
Ölyginn sagði...
... að Ros-
eanne væri
flækt í merki-
legt lagamái
fyrir að hætta
við að kaupa
reimt hús.
Eigandi
hússins, en
það kostar
480 milljónir,
segir að Roseanne hefði tekið
þátt i djöfullegri fléttu sem sam-
in hefði verið af fyrrverandi
konu hans svo hún gæti verið
áfram í húsinu. Roseanne tók
nefnilega krakkana sína með til
að skoða húsið og voru þau að
spá i tarrotspil í húsinu og
komust að því að þarna var
reimt. Roseanne hætti við að
kaupa. Draugarnir voru of fegn-
ir til að svara spurningum
vegna málsins.
... að Dean Cain, Súpermann,
hefði ekki fundið hana Lois
Lane sína. Nýlega var hætt að
framleiða ofurmennisþættina
og skömmu seinna hætti Mindy
McCready að elska hann. Þau
hafa bæði farið mikinn í fjöl-
miðlum og talað hátt um eilífa
ást sína sem virðist hafa snúist
upp í skammvinnt ástarævintýri
aðeins einum mánuði fyrir áætl-
aða giftingu. Svo virðist sem
ráðgjafar Deans hafi sannfært
hann um að það væri ekki æski-
legt að verða kántrfstjarna, en
Mindy er fræg kántrísöngkona,
og ráðlagt honum að fresta
brúðkaupinu um eitt ár þar tii
hann fengi fleiri atvinnutilboð.
Mindy samþykkti að fresta g'ift-
ingunni... en til eilífðarnóns.
rúm
heilsudýnur
lyftibotnar
sængur
heilsukoddar
rúmfatnaður
gerið reyfarakaup í
svefnherbergisvörum
■H
FRISTUND OKKfiR FfiG
BÍLDSHÖr-ÖX 20 - 112 REYKJftVIK - SlSlO 8022 - FftX: 5iO 802?
Opið laugardag kl. 10-18, sunnudag kl. 13-18