Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Side 33
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
Fram undan
26. september:
Öskjuhlíðarhlaup ÍR
Hlaupið hefst klukkan 11.00 við
Perluna. Vegalengd: 5 km með
tímatöku. Flokkaskipting, baeði
kyn: 12 ára og yngri, 13-14 ára,
15-16 ára, 17-39 ára, 40-49 ára, 50-59
ára, 60 ára og eldri. Skráning frá
klukkan 9.30—10.45. Upplýsingar
gefa Kjartan Árnason í síma 587
2361, Hafsteinn Óskarsson í síma
557 2373 og Gunnar Páil Jóakims-
son í síma 565 6228.
3. október:
Sparisjóðshlaup UMSB
30 km boðhlaup. Hver sveit skal
skipuð 10 hlaupurum, þar af skulu
vera a.m.k. 4 konur. Hver hlaupari
hleypur 3 x 1 km (1 km í senn
þrisvar sinnum). Skráningar skulu
berast skrifstofu UMSB, Borgar-
braut 61, Borgarnesi, sími 437 1411.
10. október:
Víðavangshlaup íslands
Keppnin fer fram á Akureyri og
hefst klukkan 14.00 í yngstu aldurs-
flokkunum. Vegalengdir: Tímataka á
öllum vegalengdum og flokkaskipt-
ing: strákar og stelpur, 12 ára og
yngri, piltar og telpur, 13-14 ára (1
km), meyjar 15-16 ára (1,5 km), svein- j
ar 15-16 ára, drengir 17-18 ára, konur
17 ára og eldri (3 km), karlar 19-39
ára, öldungaflokkur, 40 ára og eldri (8
km). Pjögmra manna sveitakeppni í
öllum aldursflokkum nema þriggja
manna í öldungaflokki. Skráningar
ásamt þátttökugjöldum þurfa að hafa
borist skrifstofu UMSE fyrir 7. okt
nk. Upplýsingar á skrifstofu UMSE í
símum 462 4011 og 462 4477.
11. október:
Sri Chinmoy friðarkeppnishlaup
Hlaupið hefst klukkan 14.00 við
Ráðhús Reykjavíkur. Vegalengd: 2
mílur (3,2 km). Flokkaskipting
ákveðin síðar. Verðlaun fyrir
fyrstu í mark, einnig veröa þeim
veitt verðlaun er ná bestum árangri
á heimsvísu í þessu alþjóðlega
hlaupi. Upplýsingar gefur Sri Chin-
moy maraþonliðið í síma 553 9282.
24. október:
Vetrarmaraþon
Hlaupið fer fram klukkan 11.00.
Hlaupið verður frá Ægisíðu um
göngustíga borgarinnar og endað á
upphafspunktinum. Upplýsingar
gefur Pétur Frantzson í símboða
846 1756. Aöaifúndur Félags mara-
þonhlaupara verður haldinn síðar
um daginn.
14. nóvember:
Hlaupið hefst klukkan 13.00 við
íþróttahúsið Kaplakrika, Hafnar-
firði. Vegalengdir: Tímataka á öllum
vegalengdum og flokkaskipting bæði
kyn: 10 ára og yngri (600 m), 11-12
ára (1 km), 13-14 ára (1,5 km), 15-18
ára (3 km), 19-39 ára, 40 ára og eldri
(5 km). Allir sem ljúka keppni fá
verölaun. Upplýsingar gefúr Sigurð-
ur Haraldsson í síma 565 1114.
31. desemben
Gamlárshlaup ÍR
Hlaupið hefst klukkan 13.00 og
skráning er frá klukkan 11.00.
Vegalengd: 10 km meö tímatöku.
Flokkaskipting bæöi kyn; 18 ára og
yngri, 19-39 ára, 40-44 ára, 45-49
ára, 50-54 ára, 55-59 ára, 60 ára og
eldri. Upplýsingar gefur Kjartan
Ámason í síma 587 2361, Hafsteinn
Óskarsson í síma 557 2373 og Gunn-
ar Páll Jóakimsson í síma 565 6228.
31. desember:
Gamlárshlaup UFA
Hlaupið hefst klukkan 12.00 við
Dynheima og skráning er frá kl.
11.00-11:45. Vegalengdir: 4 km og 10
km með tímatöku. Flokkaskipting
bæði kyn; 13-15 ára (4 km), 16-39
ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60 ára og
eldri. Upplýsingar hjá UFA, póst-
hólf 385, 602 Akureyri.
31. desember:
Gamlárshlaup KKK
Hlaupið hefst klukkan 13.00 við
Akratorg, Akranesi. Vegalengdir: 2
km, 5 km og 7 km. Upplýsingar gef-
ur Kristinn Reimarsson í síma 431
2643.
Hp/oim
41 t-
Nöfn vinningshafa
birtast f DV
á miðvikudögum.
Hér tekur nýstofnaður kór Átthagafélags Miðbæjarskóla lagið að lokinni erfiðri hlaupaæfingu hringinn í kringum Úlf-
Ijótsvatn.
upio a vegas neyiqavn
Sunnudaga til timmtudaga kl. 21.0041DO
Föstudaga og laugardaga kl. 21.00-03Æ0
Sjá textavarp RUV bls 669
Hlaupahópur Námsflokkanna fór í æfingabúðir við Úlfljótsvatn:
Hlaupið í hvass-
viðri og rígningu
Borgartúni 26 • Sími: 535 9000
Erfiðar aðstæður
„Á laugardagsmorgninum var
síðan hlaupið hringinn í kringum
Úlfljótsvatn við vægast sagt erfiðar
aðstæður. Við lentum í brjáluðu roki
og beljandi rigningu og ég held ég
hafi bara aldrei lent í öðru eins á æv-
inni. Það kom okkur ílestum á óvart
hve gaman var þó að hlaupa við
þessar aðstæður og það var yndisleg
tilfinning að ljúka hlaupinu og kom-
ast í Ljósavatnslaugina á eftir.
Hringurinn er sennilega um 15 km
en mörgum hefur eflaust fundist
hann vera mim lengri.
Að loknu þessu afreki hópsins
komum við saman í Úlfljótsskála þar
sem haldið var borðtennismót og
ýmislegt annaö gert sér til dundurs.
Síðan var efnt til lambakjötsveislu
og ýmiss konar skemmtiatriði komu
þar á eftir. í því tilefni var stofnaður
kór Átthagafélags Miðbæjarskóla,
eingöngu skipuðum konum úr
hlaupahópnum. Upp úr miðnætti fór
fólk að tínast til sinna bústaða og ég
sá það morguninn eftir að það voru
ekki allir sem skriöu strax í koju.
Það kom sér því vel að fara í
þriggja tíma stífa göngu umhverfis
Úlfarsfell morguninn eftir. Eftir það
afrek fóru margir í gufu en síðan fór
hópurinn að tínast í bæinn aftur.
Hvíldin var þó ekki löng því hlaupa-
æfingar hófust strax á mánudegin-
um. Hlaupahópur Námsflokkanna
æfir þrisvar sinnum í viku frá Aust-
urbæjarskóla. Ný námskeið eru að
hefiast með haustinu og það eru all-
ir velkomnir á þau, byrjendur sem
lengra komnir. Boðið er upp á
tvenns konar æfingaprógrömm, fyrir
byrjendur og lengra komna. Það er
vonandi að komandi vetur verði jafn
hlaupavænn og sá síðasti. Flestir
hlauparar í hópnum voru að bæta
sig mikið i sumar og það má meðal
annars þakka því hve hagstæður vet-
urinn var til æfinga.
Það ríkir alveg einstakur andi í
hlaupahópi Námsflokkanna og það
merkilega er að þótt þangað hafi
komið mikill fjöldi fólks á öllum
aldri og öllum getustigum frá því
hann var stofnaður, þá hafa aldrei
komið upp nein vandamál eða ósætti
um nokkurn hlut. Þaö er einnig
mjög gaman af því hve nýliðar er
fljótir að komast inn í hópinn," sagði
Pétur.
-ÍS
Ein með öllu
handa öllum
ájáS,
LJhalsuhúsið
Skólavöröusttg, Kringlunnl, Smáratortl
og Skipagötu 6, Akureyri
AU=
bílalyftur
Fjölmargir þekktustu hlaupahóp-
ar landsins hafa verið starfræktir í
áraraðir. Meðlimir þeirra komast
ekki hjá því að kynnast innbyrðis og
félagslíf innan hlaupahópa er oft
með miklum ágætum. Það er á fáa
hallað þótt sérstaklega sé getið
hlaupahópsins sem kenndur er við
Námsflokka Reykjavíkur. Hinn
kunni hlaupari, Pétur Frantzson,
Um síðustu helgi brugðu 30
manns úr hlaupahópi Námsflokka
Reykjavíkur undir sig betri fætin-
um, leigðu 10 sumarbústaði við Úif-
ljótsvatn og áttu þar góða helgi. „Við
litum á þetta sem æfingabúðir, jafnt
sem skemmtun," sagði Pétur Frantz-
son, sem að sjálfsögðu var með í fór.
„Ferð hópsins til Úlfljótsvatns mark-
ar lok sumaráætlunar hlaupahóps
Námsflokkanna og
upphaf vetraráætl-
unar. Við lögðum
af stað fostudaginn
18. september. Um
kvöldið hlupum
við saman nokkra
kilómetra og skellt-
um okkur síöan í
gufubað um kvöld-
ið.
Þegar allir voru
orðnir meyrir af
gufubaðinu fengu
þeir bréf í hend-
urnar þar sem þeir
voru látnir gefa yf-
irlýsingu um aö
hverju þeir stefndu í hlaupunum á
komandi ári. Flestir skrifuðu sig
annaðhvort í London-maraþon í apr-
íl á næsta vori eða „Laugaveginn" í
júlí næsta sumar. Þegar ég athugaði
bréfin í lok vikunnar kom í ljós að
flestar konurnar höfðu skráð sig i
London-maraþoniö. Vel getur verið
að búðimar í London hafi jafnmikið
aðdráttarafl og hlaupið sjálft. Flestir
af þeim sem skráðu markmið sín á
þessa miða ætla sér að hlaupa mara-
þon í fyrsta skipti á ævinni."
Gripið var í fjöruga samkvæmisleiki á laugardags-
kvöldið og ekki var að sjá að erfið hlaupaæfing sæti í
mönnum. Kristján er að taka sprettinn en Árni og Nína
sitja sem fastast. DV-myndir Jón Hjalti
veitir hópnum forstöðu af miklum
myndarskap. Hlauparar i hópnum
eru þekktir fyrir samheldni sína og
þátttaka þeirra jafnan almenn í
stærstu almenningshlaupum lands-
ins. Flestir þeirra voru meðal þátt-
takenda í Mývatnsmaraþoni í lok
júní og fjölmargir voru einnig meðal
þátttakenda í Laugavegshlaupinu.
Mikill kunningsskapur hefúr mynd-
ast meðal hlauparanna og sameigin-
legur áhugi fyrir almenningshlaup-
um þarf ekkert endilega að vera til-
efni til þess að hópurinn hittist.
Öskjuhlíðarhlaupið er í dag:
Ajmenningshlaup
ÍR frá Perlunni
Öskjuhlíðarhlaupið er hlaupið í
haustlitunum á skjólgóðum skógar-
sttgum Öskjuhliðarinnar. Hlaupið
er eitt hinna hefðbundnu hlaupa
sem hefur farið fram árlega í yfir 20
ár. Hlaupið er 5 km og hlaupaleiðin
óvenjuleg og skemmtileg um skóg-
arstíga Öskjuhiíðarinnar. Hlaupið
hefst við Perluna kl. 11.00 og skrán-
ing á staðnum frá kl. 9.30. Hlaupið
hentar öllum, bæði ungum og
óreyndari sem sterkari hlaupurum.
Lagt er upp frá Perlunni og hlaup-
inn einn hringur.
Verðlaunaafhending fer fram í
Perlunni að hlaupi loknu og ölium
þátttakendum veittur orkudrykkur.
Ræsing hlaupsins er við Perluna kl.
11.00 á laugardagsmorguninn og
skráning á staönum frá kl. 9.30.
Flokkaskipting fyrir bæði kyn, 12
ára og yngri, 13-14 ára, 15-16 ára,
17-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60
ára og eldri. Þrír fyrstu í hverjum
flokki fá verðlaunapening. Úrslit
verða send heim tU allra þátttak-
enda og aUir eiga jafnan möguleika
á útdráttarverðlaunum sem dregin
verða út að hlaupi loknu. -ÍS
Takið þáttí
krakkapakkaleik
Kjörís og DVI
Klippiö út Kgra og llmiö á
þátttökuseðil sem fæst á næsta
sölustað Kjörls krakkapakka.
Sendið svo inn ásamt
strikamerkjum af
S krakkapökkum. ^
fjölvttamIn
MEÐ STEINEFMV
r