Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Síða 49
I>V LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
gsonn
57
Toril Malmo Sveinsson heldur hér
á málverki eftir sig.
Myndir og
módelskartgripir
Nú stendur yflr í Gallerí Garði,
Selfossi, sýning á málverkum og
módelskartgripum úr silfri eftir
Toril Malmo Sveinsson. Listakonan
rekur verkstæði á Helgastöðum í
Biskupstungum þar sem hún býr.
Toril er frá Malm í Norður-
Þrændalögum i Noregi en hefur
búið á íslandi síðan 1967. Hún lauk
hönnunarnámi frá málmsmíðadeild
listaskólans Statens hándverk- og
kunstindustriskole í Ósló vorið
1967 og fyrir tveimur árum útskrif-
aðist hún sem innanhússarkitekt
frá norskum bréfaskóla (NKI).
Sýningar
Toril hefur haldið íjölda einka-
sýninga auk þess að taka þátt í sam-
sýningum með Myndlistarfelagi Ár-
nessýslu þar sem hún er ritari.
Sýningin í Gallerí Garði stendur
til 15. október og er þetta önnur
sýningin i galleríinu frá opnun
þess. Það er opið samkvæmt af-
greiðslutíma verslana í Miðgarði.
Vatnslitamyndir
í Stöðlakoti
í dag kl. 15 opnar Nikulás
Sigfússon sýningu á
vatnslitamyndum í Stöðlakoti,
Bókhlöðustíg 6. Myndefnið er sótt
í náttúru íslands. Sýningin veröur
opin alla daga kl. 14-18 til 11.
október.
Orgeltónleikar
Á sunnudaginn kl. 20.30 heldur
dr. Douglas A. Brotchie, organisti
Hallgrímskirkju, tónleika í kirkj-
unni. Hann flytur verk eftir
frönsku tón-
skáldin Jean
Langlais, Jeh-
an Alain og
Ólivier Messi-
aen auk orgel-
verks eftir
Arvo Part.
Orgelverkið
Messe de la
Pentecöte,
sem Olivier
Messiaen samdi árið 1950, heyrist
mjög sjaldan og er hér e.t.v. um að
ræða frumflutning verksins í
heild sinni á íslandi.
Tónleikar
Einsöngstónleikar
í Hafnarborg
Einsöngstónleikar Signýjar Sæ-
mundsdóttur sópransöngkonu og
Þóru Fríðu Sæmundsdóttur píanó-
leikara hefjast á sunnudaginn kl.
20.30. Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Clara Schumann, Robert
Schumann, Amold Schönberg,
Erik Satie, Francis Poulenc og
Hector Berlioz.
Þetta eru sjöttu tónleikamir í
tónleikaröðinni „Tónleikar á af-
mælisári" sem Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofun Hafnarfjarð-
ar, stendur fyrir í tilefni af 90 ára
kaupstaðarafmæli Hafnarfjarðar
og 15 ára afmæli Hafnarborgar.
Gola eða kaldi
í dag verður gola eða kaldi. Bjart
veður verður norðaustanlands í
fyrstu en annars verður yflrleitt
skýjað og víða súld eða dálítil rign-
ing með köflum. Hiti verður 3 til 10
stig að deginum. Á höfuðborgar-
svæðinu verður hæg breytileg átt og
dálítil súld af og til. Hiti verður 5 til
9 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 19.15
Sólarupprás á morgun: 07.24
Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.38
Árdegisflóð á morgun: 10.2
Veðríð í dag
Veðrið kl. 12
á hádegi í gæn
Akureyri heiösklrt
Akurnes skýjaö
Bergsstaöir
Bolungarvík alskýjaö
Egilsstaöir
Kirkjubœjarkl. skúr
Keflavíkurflugvöllur súld á síö. kls.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöföi
Bergen
Kaupmannahöfn
Ósló
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Dublin
Halifax
Frankfurt
Hamborg
Jan Mayen
London
Lúxemborg
Mallorca
Montreal
New York
Nuuk
Orlando
París
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
skýjaö
súld 8
alskýjaö 8
súld 11
alskýjaö 15
súld 8
skýjaö 22
skýjað 21
þokumóða 20
þokumóöa 15
léttskýjaó 11
skýjað 19
mistur 17
skýjaö 1
skýjaö 22
skýjaö 20
skýjað 25
alskýjaó 13
skýjað 18
ringing 10
skýjaö 26
skýjaö 22
skýjað 22
léttskýjaö 19
alskýjaö 14
alskýjaö 11
Alsæll í fangi
stóra bróður
Ingibjörg Ingadóttir og Sigurð-
ur Viggó Halldórsson eignuðust
son 24. júlí og fæddist hann í
Barn dagsins
Kaupmannahöfn. Við fæðing
var hann 54 sm og 3.550 g. Liti
drengurinn á þrjú systkini en þai
eru Guðmunda María Sigurðæ
dóttir, íris Sigurðardóttir o
Gauti Þorvaldsson.
Útgáfuhátíð á
Hótel Sögu
í dag kemur út geisladiskurinn
Maöur lifandi sem gefinn er út til
styrktar þroskaheftum. Ágóðanum
af sölu geisladisksins verður varið
til kaupa á tækjum til sjúkra- og
iðjuþjálfunar fyrir þroskahefta.
Meðal flyljenda em Milljónamær-
ingarnir og Bjami Ara, Ómar
Ragnarsson og Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Casino og Páll Óskar, Mó-
Skemmtanir
eiður Júniusdóttir, Ragnar
Bjamason, Stefán Hilmarsson,
André Bachmann, Álftagerðis-
bræður, Björgvin Halldórsson,
Gildran, KK og Rúnar Júlíusson
og Guðrún Gunnarsdóttir. Á
geisladiskinum em 14 lög s.s. Ist-
anbúl-Konstantinópel, Man ég
þinn koss, Cold sweet sugar tears
og Sveitin milli sanda.
Útgáfuhátíð verður haldin i
Ómar Ragnarsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir koma fram á Hótel Sögu í
kvöld ásamt fjölda annarra.
Súlnasal Hótel Sögu í kvöld og
munu langflestir listamennimir
skemmta milli kl. 22 og 24. Kynnir
er Þorgeir Ástvaldsson. Eftir mið-
nætti verður dúndurdansleikur
með Milljónamæringunum ásamt
söngvurunum Ragnari Bjarna-
syni, Bjama Ara, Stefáni Hilmars-
syni og leikkonukvartettinum
Heimilistónum.
Miðaverð er 1.200 krónur og er
forsala aðgöngumiða á Hótel Sögu
í dag kl. 13-19. Ágóðinn rennur til
átaksins „Styrkur, von og starf".
Myndgátan
Drepur tittlinga
Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsorði.
Þau dansa blóöheitan dans - Ant-
onio Banderas sem Alejandro
Murieta eöa Zorro og Catherine
Zeta-Jones sem Elena.
The Mask of Zorro
Fyrsta hasarblaðaútgáfan um
grímuklæddu hetjuna Zorro kom út
árið 1919. Fyrsta kvikmyndin um
hetjuna var sýnd ári síðar og var
hún framleidd í draumaverksmiðj-
unni Hollywood. Þetta var „þögla“
kvikmyndin The Mark of Zorro.
Tveimur áratugum síðar klæddist
Tyrone Power svörtu fotumnn og
setti á sig grímuna. Á eftir fylgdu
þáttaraðir sem sérstaklega vora
ætlaðar kvikmyndahúsmn og svona
hélt boltinn áfram að rúlla.
Kvikmyndir
Nýjasta myndin um hetjuna með
grimuna heitir The Mask of Zorro
eða Gríma Zorros og er hún sýnd í
Stjömubíói, Laugarásbíói og Bíó-
höllinni. Spánverjinn Antonio
Banderas er þar í aðalhlutverki auk
Anthony Hopkins og Catherine
Zeta-Jones. Leikstjóri er Martin
Campbell.
í myndinni er að flnna ævintýri,
rómantík, hasar, spennu og__grín.
Áhættuatriðin ku vera ótrúlega vel
útfærð og framsett.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Dansinn
Saga-bíó: Hope floats
Kringlubíó: Saving private Ryan
Bíóborgin: The Horse Whisperer
Regnboginn: Phantoms
.Baltneski fulltrúinn" í bíósal MÍR
Á sunnudaginn kl. 15 verður
sýnd rússneska myndin Baltneski
fulltrúinn í bíósal MÍR, Vatnsstig
10. Myndin er frá 1937 og vora
leikstjórar hennar Alexander
Sarkis og Jósif Heifítz. í aðalhlut-
verki er Nikolaj Tsérkasov sem
m.a. lék Alexander Névski og ívan
grimma i frægum kvikmyndum
Eisensteins.
Kvikmyndir
í myndinni er sagt frá öldnum
og virtum vísindamanni, Polesa-
jev prófessor, sem gekk til liðs við
byltingarmenn árið 1917 og lýsti
fullum stuðningi við ráð verka-
manna og bænda er til þeirra var
stofhað.
Aðgangm- að sýningunni er
ókepypis.
Bamamynd í Norræna húsinu
Bamadagskrá vetrarins í Nor-
ræna húsinu er að hefjast. Á
sunnudaginn kl. 14 verður sýnd
leikbrúðumyndin Fyrtojet sem
gerð er eftir ævintýri H.C. Ander-
sem, Eldfæranum.
Gengið
Almennt gengi LÍ 25. 09. 1998 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollaenai
Dollar 68,950 69,310 72,300
Pund 117,410 118,010 119,510
Kan. dollar 45,620 45,900 46,030
Dönsk kr. 10,8540 10,9120 10,6170
Norsk kr 9,2900 9,3420 8,9260
Sænsk kr. 8,7740 8,8220 8,8250
Fi. mark 13,5630 13,6430 13,2590
Fra. franki 12,3160 12,3860 12,0380
Belg. franki 2,0016 2,0136 1,9570
Sviss. franki 49,9800 50,2600 48,8700
Holl. gyllini 36,6200 36,8400 35,7800
Þýskt mark 41,3200 41,5400 40,3500
ít. líra 0,041610 0,04187 0,040870
Aust sch. 5,8690 5,9050 5,7370
Port escudo 0,4026 0,4051 0,3939
Spá. peseti 0,4858 0,4888 0,4755
Jap. yen 0,511300 0,51430 0,506000
írskt pund 103,150 103,790 101,490
SDR 94,780000 95,35000 96,190000
ECU 81,1600 81,6400 79,7400
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270