Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Side 52
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
» &ikmyndir
^ r
ANIONIO HANDERAS ANIHONY HOPKINS
I 1 ra iuikstjóra „(ioliit‘iu*yc" og fmmlciðcndum „\1en In BKuk"
I lott.isl.i stórmynd .írsins er komin. Spenn.i, h.is.ir, rómantfk og
húmor í hland. Stóikostlegir leikar.ir: Antonio Bander.is
i(,I.)es|)er.ido"), Anthony Hopkins („Legends of the I all")
og fr.ih.er tdnlist J.imes Horners („ t it.inic").
Auk.ifr.imleið.indi: Steven Spielherg.
Sýndkl. 5 og 11. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5,7, 9og11.
itm
FRUMSVNING „Gríma Zorros"
ANTONIO BANDTRAS ANTHONY HOPKINS
I r.í leikstjór.i „Cioldcneye" og Ir.imleiðendum „Men In Bl.ick"
I lntt.ist.i stormynd .irsins ei komin. Spenn.i, h.is.ir, ríimanlik og
hiímor i hl.ind. Slórkostlegir leikar.ir: Antonio Banderas
(„Desper.uio"), Anlhony i lopkins („I.egcnds of the l all")
og tr.iha'i tónlist |.unes Homers („ lit.inic").
Auk.»fr.imleiðandi: Steven Spielherg.
Sýnd kl. 3,5.30,9 og 11.30. B.i 12 ára.
Synd kl. 9 og 11. B.i. 16. Synd kl. 3 og 5.20 B.i. 10
Sími 551 9000
■ <:
1 ■laaaas’ jk
Við höfum alltaf staðið4peirn trú að
hættan kæmi fram ef hættan leyndist
neðanjarðar? Frábær spennutrylíir með
Ben Afleck úr Good Wiil Hunting og
Armageddon á yfirborði jarðar...
TheRe'S
S MðHlNG ib' “T
ÍVI.4RY ^
Ein tyndnastsít
myndallra
tíma.
Forsýr
sunnudagskv§iá
kl. 9.
Sýnd kl. 3,5 og 7.
■'V.' Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9
og 11.20. B.i. 16 ára
TILBOÐ 400 KR.
NIGHTWATCH
Sýndld.. 9og11.
B.i. 16ára.
Sýnd m/ísl. tali L
kl. 3, 5 og 7
Isýndkl. 9og11.15.
a
Væntanlegt í bíó - The Truman Show:
Velkomin í Trumanþáttinn
Truman Burbank hefur lengi haft þaö á tilfinningunni áð einhverjir séu
aö fylgjast með honum. Skyldi engan undra þvi allan sólarhringinn, allt frá
þeirri stundu aö hann fæddist, hefur Truman Burbank verið, án þess að
hafa gert sér grein fyrir þvi, stjaman í vinsælustu heimildasápunni í sjón-
varpinu, The Truman Show. Hann veit ekki að borgin sem hann býr í, Sea-
haven, er ekkert annað en risastórt leiksvið og allir sem eru í kringum
hann, flölskylda og vinir og í raun ailir sem verða á vegi hans, eru leikar-
ar. Þúsundir myndatökuvéla fylgjast með honum hvert einasta skref sem
hann tekur.
Þetta er söguþráður nýjustu kvikmyndar ástralska leikstjórans Peters
Weir, The Truman Show, sem fengið hefur frábærar viðtökur þar sem hún
hefur verið sýnd og hafa gagnrýnendur varla átt nógu sterk lýsingarorð til
að lýsa gæðum hennar. Laugarásbíó og fleiri kvikmyndahús
munu taka hana til sýningar 23. október næstkomandi.
1 hlutverki Trumans er Jim Carey og er þetta fyrsta hlutverk-
ið sem hann leikur þar sem hann fær ekki að gera það sem hann
er kannski þekktastur fyrir, að fetta sig og bretta, heldrn- reynir
mikið á leikhæfileika hans og þykir hann hafa staðist þessa miklu
eldraun. Aðrir leikarar eru Laura Linney, Noah Emmerich,
Matascha McElhone og
Ed Harris.
Peter Weir er meðal
virtustu leikstjóra í
heiminum í dag. Hann
var boðberi nýrra
strauma í Ástralíu og
átti mestan þátt í að
koma Ástralíu á blað í
kvikmyndaheiminum
með myndum á borð við
Picnic at Hanging Rock,
Galipoli, The Last Wave
og The Year of Living
Dangerously. í Banda-
ríkjunum hefim hann lát-
ið til sín taka og gert úr-
valsmyndir á borð við
Witness og Dead Poet’s
Society.
-HK
Jim Carey leikur fórnarlambið Truman Burbank. Á innfelldu myndinni er leikstjórinn, Peter Weir.
Væntanlegt í bíó - Dance with Me:
Suðrænar sveiflur
Stjörnubíó mun taka til sýning-
ar á næstunni danskvikmyndina
Dance with Me sem nýlega; var
frumsýnd í Bandaríkjunum. !
Dance with Me er að finna blöndu
af gamni og alvöru og þar er einnig
að finna frábæra salsa-, diskó- og
afródansa sem blandast við súður-
ameríska danstónlist og eru dans-
amir sérlega vel útfærðir.
í myndinni segir frá Rafael sem
ákveður eftir lát móður sinnar að
yfirgefa Kúbu og halda til Houston.
Rafael geislar af lífsgleði í nýjum
heimkynnum og smitar hann út frá
sér í dansskólanum sem gamall
vinur móður hans rekur. Rafael
veröur fijótt hrifinn af danskennar-
anum Ruby sem ekki er móttæki-
leg í fyrstu, enda hefur hún beðið
nokkur skipbrot þegar ástalifið er
annars vegar. Ruby á sér draum,
hana langar til að keppa aftur i al-
þjóðlegri danskeppni þar sem suð-
ur-amerískir dansar eru í fyrir-
rúmi. Þegar hún loks lætur undan
Rafael og fer meö honum út á lífiö
velja þau vinsælan salsa-dansstað.
Meðan Ruby fer eftir formfóstum
dansreglum og sýnir agaðar dans-
sveiflur dansar Rafael óheflað og
lætur tilfínningar sínar ráða
danstaktinum. Þau ná vel saman i
dansinum og æfa saman en Ruby
ákveður á síðustu stundu að slíta
sambandinu við Ruby og taka aftur
upp samband við fyrrverandi ást-
mann sinn og dansfélaga sem er
víðfrægur atvinnudansari.
Vanessa L. WUliams, sem leikur
Ruby, hefur jöfnum höndum feng-
ist við söng og leik og er skemmst
aö minnast hennar í Eraser þar
sem mótleikari hennar var Arnold
Schwarzenegger. Chayanne, sem
leikur Rafael er frægur söngvari i
Mexíkó þar sem hann hefur leikiö í
mörgum sápuðperum í sjónvarpi.
-HK
Flottir dansarar í spennan33di dans í Dance with Me
Háskólabíó - Paulie ★
Heima er best
Kvikmyndin um Talandi páfagaukinn Paila er i anda
The Incredible Joumey (1963) og Homeward Bound (1993).
í báðum þessum myndum segir frá tveimur hundum og
ketti sem ferðast mörg hundruð kílómetra í leit að eigend-
um sínum. Páfagaukurinn PaUi þarf reyndar að fara
lengra til litlu stúlkunnar sinnar (Hallie Kate Eisenberg)
þvi að hún flytur yfir þver Bandarikin til Kaliforníu eftir
að þau skilja.
Palli, sem er enginn venjulegur páfagaukur, segir sögu
sina sjálfur. Þetta viðskotaiila, kjaftfora og kaldlynda fið-
urfé hefur lent í ýmsum ævintýrum. Hann hefur ferðast
um Bandaríkin í húsvagni gömlu konunnar Ivy (Gena
Rowlands), verið söngvari og skemmtikraftur á mariachi-
bar Ignacio (Cheech Marin) í Los Angeles, aðstoðarmaður
smábófans Virgils (Bill Cobbs) og tilraunadýr á rann-
sóknastofu hins illa dr. Reingolds (Bruce Davison). Við
upphaf myndarinnar er PaUi innUokaður i búri i kjaUara
rannsóknastofu Reingolds. PaUi segir rússneska innUytj-
andanum og bókmenntaprófessomum Misha (Tony Shal-
houb) sögu sina en Misha vinnur, líkt og aUir háskóla-
menntaðir landUótta Rússar i HoUywood, sem ræstitækn-
ir. Frelsiselskandi Rússinn kemur PaUa tU hjálpar og
bjargar honum úr prísundinni.
Paulie er einkennUeg mynd sem virðist hvorki fyrir
börn né fuUorðna, kannski vegna þess aö hún reynir að
gera öUum aldurshópum tU hæfis. Brandararnir missa
flestir marks og tUvistarkrisur páfagauksins em ekki þess
eölis að þær veki áhorfandann tU samúðar.
Leikstjóri; John Roberts. Handrit: Laurie Craig. Að-
alhlutverk: Gena Rowlands, Tony Shalhoub,
Cheech Marin, Bruce Davison, Jay Mohr (talar fyrir
Paulie), Buddy Hackett, Hallie Kate Eisenberg og
Bill Cobbs.
Guðni Elísson
KVIKMYNDA