Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
71
Til hamingju með afmælið 20. desember
85 ára
Sigþrúður Guðbjartsdóttir, Stigahlíð 34, Reykjavík.
80 ára
Ida Anna Karlsdóttir, Keldulandi 3, Reykjavík.
75 ára
Hjördís Guðmundsdóttir, Laugarnesvegi 96, Reykjavík. Ólafur Grímsson, Hraunbæ 144, Reykjavík. Jón Kári Jóhannsson, Gránufélagsgötu 29, Akureyri. Margrét Sigurjónsson, Brimhólabraut 5, Vestmannaeyjum.
70 ára
Hákon Heimir Kristjónsson, Hverfisgötu 16a, Reykjavík. Einar Kristján Enoksson, Fannafold 125, Reykjavík. Sigurður Sigurðsson, Sólbrekku 11, Húsavík.
60 ára
Davíð Kristján Guðmundsson, Svínaskálahlíð 19, Eskifirði.
50 ára
Jón Ármannsson, Aflagranda 21, Reykjavík. Halldór Helgi Halldórsson, Fifúseli 7, Reykjavík. Anna S. Guðmundsdóttir, Álfhólsvegi 79a, Kópavogi. Ólafur Guðmundsson, Hraunbrún 52, Hafnarfírði. Arnbjörg Gunnarsdóttir, Njarðarholti 9, Mosfellsbæ. Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir, Furulundi 4g, Akureyri.
40 ára
Guðmundur Magnússon, Bergstaðastræti 62a, Reykjavík. Guðsteinn Eyjólfsson, Berjarima 51, Reykjavík. Egill Róbertsson, Fögrubrekku 11, Kópavogi. Stefán Snær Konráðsson, Bæjargili 44, Garðabæ. Kristín Björg Jónsdóttir, Skógarhæð 7, Garðabæ. Frímann Grímsson, Eyjavöllum 1, Keflavík. Ingibjörg Samúelsdóttir, Mávabraut 4h, Keflavík. Brynja Reynisdóttir, Austurgötu 4, Stykkishólmi.
Oskar
bætir við
sig sendi-
ráði
DV.Úsló:_________________
Óskar Óskarsson, sendiherra
Noregs í Eþíópíu, hefur bætt við
sig sendiherraembætti fyrir
Noreg í Afríkuríkinu Djíbútí við
mynni Rauða hafsins. Óskar fór
í haust til Addis Ababa sem
sendiherra en hann hefur áður
gegnt sendiráðsstörfum í ýms-
um ríkjum fyrir Norðmenn.
Óskar er fæddur í Neskaupstað
en er nú norskur ríkisborgari.
Djíbúdi sunnan Eþíópíu. land-
ið er um fjórðungur af stærð ís-
lands og íbúar þar eru 450 þús-
und.
Landið hefur notið sjáifstæðis
frá árinu 1977. Þar ríkir nú ein-
ræðisstjórn. -GK
Rafn Hafnfiörð
Rafn Hafníjörð prentsmiðjustjóri,
Austurgerði 5, Reykjavík, verður
sjötugur á mánudaginn.
Starfsferill
Rafn fæddist i Hafharfirði og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Flensborg, stundaði nám við
Iðnskólann í Hafnarfirði og í
Reykjavík og lauk sveinsprófi í off-
setprentun 1953.
Rafn stofnaði, ásamt öðrum,
prentsmiðjuna Litbrá hf. 1954 og
hefur verið prentsmiðjustjóri þar
frá 1964 og einkaeigandi hennar frá
1979.
Rafn hefur tekið þátt í fjölda ljós-
myndasýninga og hélt
einkasýningu á Kjarvalsstöðum
1979. Þá sá hann um ljósmyndir
fyrir Islandsdeildina á heimssýn-
ingunni í Montreal 1967. Hann hef-
ur unnið til fjölda verðlauna, t.d.
samkeppni um gæðamerki fyrir ís-
lenskar iðnaðarvörur 1975, og hlotið
viðurkenningar á sviði ljósmyndun-
ar eins og frá útflutningsráði, AB og
Ferðamálaráði Evrópu. Ljósmyndir
eftir hann hafa birst víða, hérlendis
og erlendis. Nú síðast birtust
myndir eftir hann á
kaffírjómaboxum í Sviss í tuttugu
milljónum eintaka. Hann er nú einn
stærsti póstkortaútgefandi landsins.
Rafn var einn af
stofnendum og fyrsti
formaður Félags offset-
prentara. Hann hefur
verið formaður veiði-
klúbbsins Strengs og
formaður 1986-89.
Fjölskylda
Rafn kvæntist 30.12.
1950 Kristínu Björgu
Jóhannsdóttur, f. 18.9.
1930, skrifstofumanni.
Foreldrar hennar voru
Jóhann Pétursson, skip-
stjóri á Patreksfírði, og
k.h., Elín Bjarnadóttir húsmóðir
sem bæði eru látin.
Börn Rafns og Kristínar eru Hjör-
dís Hafnfjörð, f. 26.11. 1950,
verslunarmaður, búsett í Keflavík,
gift Hirti Zakaríassyni, bæjarritara
Reykjanesbæjar; Birna Hafnfjörð, f.
23.6.1954, filmuskeytingarmaður og
starfsmaður í Odda, búsett í
Reykjavík, gift Gunnari Erni Krist-
jánssyni, forstjóra SÍF; Hrafnhildur
Hafnfjörð, f. 23.6. 1954,
skrifstofumaður, búsett í
Reykjavik, gift Kristjáni Gunnars-
syni, kerfisfræðingi og
framkvæmdastjóra Kerfisþróunar;
Elín Þóra, f. 10.11. 1955, mynd-
menntakennari, búsett i Reykjavík,
gift Steingrími Guð-
mundssyni trommu-
leikara; Þyrí, f. 28.12.
1958, þroskaþjálfi,
búsett í Garðabæ, gift
Elvari Unnsteinssyni
lögfræðingi; Jóhann
Hafnfjörð, f. 29.5. 1961,
d. 22.1. 1965; Jóhann
Hafnfjörð, f. 29.9. 1965,
prentari, búsettur í
Kópavogi, kvæntur
Lilju Kúld skrifstofu-
manni.
Hálfbróðir Rafns,
sammæðra, var Jón
Nordenskjöld Gústavs-
son, f. 9.9. 1916, fórst með
togaranum Sviða 1941, sjómaður.
Foreldrar Rafns voru Gunnlaug-
ur Sigurðsson, bóndi í Urriðakoti í
Garðahreppi, og Þuríður Sveins-
dóttir húsmóðir.
Ætt
Faðir Gunnlaugs var Sigurður,
b. í Móum á Skagaströnd Jónas-
sonar, b. í Hlíð i Garðabæ.
Þuríður, móðir Rafns, var dótt-
ir Sveins sjómanns og bæjarfull-
trúa í Hafnarfirði, eins af stofnend-
um verkamannafélagsins Hlífar og
stúkunnar Daníelshers í Hafnar-
firði, bróður Magnúsar, afa Guð-
mundar I. Guðmundssonar, fyrrv.
utanríkisráðherra, og langafa Dav-
íðs Á. Gunnarssonar, forstjóra rík-
isspítalanna. Annar bróðir Sveins
var Kristján, afi Kristjáns Andrés-
sonar, fyrrv. bæjarfulltrúa í Hafn-
arfirði, foður Loga, fyrrv. bæjar-
stjóra í Neskaupstað. Sveinn var
sonur Auðuns, hafnsögumanns í
Hafnarfirði, Stígssonar. Móðir
Auðuns var Oddný Steingrímsdótt-
ir, b. í Hofdölum í Skagafirði,
Ólafssonar, bróður Ragnheiðar,
langömmu Benedikts Sveinssonar
sýslumanns, foður Einars skálds.
Móðir Þuríðar var Vigdís, systir
Málfríðar, langömmu Björns
Bjömssonar, prófessors í guð-
fræði. Vigdís var dóttir Jóns,
þurrabúðarmanns í Selsgarði á
Álftanesi, Brandssonar, b. á Vatns-
enda, Jakobssonar. Móðir Jóns var
Karítas, systir Páls, prófasts í
Hörgslandi, langafa Guðrúnar,
móður Péturs Sigurgeirssonar
biskups. Karítas var dóttir Páls
spítalahaldara á Hörgslandi, Jóns-
sonar, og konu hans, Ragnheiðar
Guðmundsdóttur, systur Ólafs,
langafa Björns Þórðarsonar for-
sætisráðherra.
Rafn og Kristín taka á móti
vinum og vandamönnum á Grand
hótel við Sigtún, mánudaginn
21.12. milli kl. 17.00 og 19.00.
Rafn Hafnfjörð.
Helga Hafdís
Helga Hafdís Magn-
úsdóttir skrifstofumað-
ur, Blómvangi 8, Hafn-
arfirði, verður fimm-
tug á mánudaginn.
Starfsferill
Helga fæddist í
Hveragerði, ólst þar
upp, á Akranesi, í
Reykjavík og í Hafnar-
flrði.
Helga starfaði í Apó-
teki Hafnarfjarðar frá
því á unglingsárunum,
Helga Hafdís
Magnúsdóttir.
vann á launadeild
Hrafnistu í Hafnarfirði
í sex ár og hefur nú
starfað hjá Félagsstofn-
un stúdenta sl. sjö ár.
Helga hefur sinnt
ýmsum félagsstörfum
innan íþróttahreyfing-
arinnar og hjá Hafnar-
fjarðarbæ.
Fjölskylda
Helga giftist 20.7.
1968 Hinriki Einars-
syni, f. 28.5. 1945, húsa-
Magnúsdóttir
smið. Hann er sonur Einar Er-
lendssonar bifreiðastjóra og Ingi-
bjargar Þorsteinsdóttur húsmóður.
Börn Helgu og Hinriks eru Heið-
ar Hinriksson, f. 31.12. 1968, lög-
reglumaður í Vestmannaeyjum en
sambýliskona hans er Gréta Hólm-
fríður Grétarsdóttir frá Vest-
mannaeyjum og á hún tvö börn,
Sæbjörgu Helgadóttur, f. 20.11.
1986, og Grétar Þór Grétarsson, f.
4.2. 1994; Hjörtur Hinriksson, f.
30.7. 1977, nemi; Hafdís Inga Hin-
riksdóttir, f. 1.4. 1981, nemi.
Systkini Helgu eru Edda Magn-
úsdóttir, f. 5.5. 1936; Inga Magnús-
dóttir, f. 10.3. 1939; Erlendur F.
Magnússon, f. 24.7. 1941; Elín Björg
Magnúsdóttir, f. 1.8. 1943; Sigur-
björg K. Magnúsdóttir, f. 25.9. 1945;
Jakob Skafti Magnússon, f. 22.1.
1955; Þorleifur M. Magnússon, f.
27.9. 196Í.
Foreldrar Helgu: Magnús B.
Finnbogason, f. 21.7. 1911, d. 2.2.
1992, húsasmiður, og Laufey Jak-
obsdóttir, f. 25.9. 1915, húsfreyja i
Grjótaþorpi.
Helga verður með opið hús í
Kaplakrika, laugard. 19.12. eftir kl.
20.00.
r
Tálknafjörður:
Foreldrar í
sjálfboðavinnu
DV.Tálknafirði:________________________
Rekin hefur verið félagsmiðstöð
undanfarin ár fyrir krakka í 7.-10.
bekk í Tálknafirði. Fyrirkomulagið
á rekstrinum er að sveitarfélagið
leggur til húsið, sem er efri hæð á
gömlu einbýlishúsi, en yfirumsjón
hefur nefnd á vegum sveitarfélags-
ins. Stjórn nemendafélags grunn-
skólans sér um daglegan rekstur og
skipuleggur starfið og fer allur
hagnaður af sjoppurekstri þeirra til
tækjakaupa fyrir félagsmiðstöðina.
Foreldrar sjá svo um gæslu þau
kvöld sem opið er en það er mánu-
dags-, miðvikudags- og föstudags-
kvöld. Það eru um fjögur kvöld sem
foreldrar hvers barns sjá um gæslu
yfir veturinn og er það starf allt
unnið í sjálíboðavinnu. Þetta fyrir-
komulag hefur gefist mjög vel og
kemur sér vel fyrir sveitarfélagið
þar sem kostnaður er í lágmarki.
Flest kvöld sem opið er er einhver
skipulögð dagskrá og eru það t.d.
frumskógarkvöld, furðufatakvöld,
vídeókvöld og teiknikvöld en teikni-
kvöld var einmitt þegar fréttaritari
kíkti inn til þeirra í síðustu viku. -
^Stykkishólmur:
Útboð á sýslu-
og löggustöð
DV Vesturiandi:___________
Framkvæmdasýsla ríkisins,
fyrir hönd dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins, hefur boðið út
byggingu nýrrar lögreglustöðvar
og sýsluskrifstofú að Borgar-
braut 2 i Stykkishólmi.
Um er að ræða nýbyggingu,
tveggja hæða hús, sem verður 789
fermetrar aö stærð með 3600 fer-
metra lóð og er frágangur hennar
hluti af útboðinu.
Til sölu. Toyota Land Cruiser 100 árg. 1998
Suðurlandsvegur:
Ók á kyrrstæðan bíl
Ekið var á kyrrstæðan mannlaus-
an bíl á Suðurlandsvegi um áttaleyt-
ið í fyrrakvöld. Ökumaður hafði
skilið bifreið sína eftir of nálægt
veginum og var ekið á hana eins og
áður segir.
Báðir bílarnir voru mikið
skemmdir og fluttir burt með
kranabíl. Ökumaður bifreiðarinnar
hlaut minni háttar meiðsl. Lögregl-
an í Kópavogi hvetur fólk, þurfi það
að skilja bíla sína eftir við umferð-
argötur, til að gera það þannig að
hætta stafi ekki af. -hb
1
I
I
Dísil sjálfsk., veltist., topplúga, ABS, rafm.
upphalarar, hraðastillir, fjarstýrðar
samlæsingar, tölvufjöðrun, dráttarbeisli,
álfelgur. Litur = vínrauður. Grá innrétting.
I
I
I ,
,1 '