Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Blaðsíða 26
26
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1998
Ulpa með
liettu
Verð kr. 11.900
Fullt verð: 19.900
margir litir -
allar stærðir
Kápusalan
Suðurlandsbraut 12
sími 588 1070
ra
SJIS
Laugavegi 45a,
S. 552 2125
Netf.: www.
Islandia.ís/~gitarinn
Gitarar frá 6.900
Ttommur 49.900
Gullkrossar
Fallegir handsmíðaðir
gullkrossar.
Með og án steina.
Gullkrossar.
Verð frá 4.000
til 9.000 kr.
m/double festi,
Laugavegi
49 S. 551
7742
TILBOÐ
Taktu mefl ...
16“ 990 kr
mefl 1 áleggstegundum
og 2 I kók
Fáðu sent ...
4 hambnrgarar,
franskar
og E I kók
1.490
Opið virka daga kl. 11 - 24
Helgar 11 - 05
IXIúpalind 1
Sími 564 5777
Fréttir
Páll Helgason í Eyjum sem var yfirheyrður vegna léttvínsbruggs heima við:
Ætla að láta reyna
á málið fvrir dómi
„Ég mun hafna sekt ef þeir ætla
að halda þessu áfram. Ég mun láta
reyna á þetta fyrir dómi og mann-
réttindadómstól ef nauðsyn kref-
ur. Þegar ég fór í skýrslutökuna
spurði ég sýslumann hvort hann
heföi ekki smakkað svona vín.
Hann sagðist hafa gert það en vín-
ið hefði reyndar verið vont. Þeir
höfðu flestir á stöðinni smakkað
svona vín líka,“ sagði Páll Helga-
son í Vestmannaeyjum sem hefur
verið yfirheyrður hjá lögreglu í
Eyjum vegna framleiðslu á léttvíni
heima við eftir viðtal i DV.
Páll sagði að viðbrögð við frétt
DV um að sýslumaður muni að lík-
indum sekta Pál um tugi þúsunda
króna vegna heimaþruggsins hafi
verið afar sterk. Margir hefðu
hringt í hann og lýst undrun sinni
á viðbrögðum lögreglu við iðju sem
fjölmargir landsmenn stunda. Sam-
kvæmt upplýsingum fagaðila sem
DV ræddi við má áætla að heima-
víngerð, það er til heimabrúks,
tíðkist jafnvel á rúmlega tveimur
tugum þúsunda heimila í landinu.
„Ég dreg stórlega í efa að þetta
sé gert eins víða og menn vilja
vera láta,“ sagði Karl Gauti Hjalta-
son, sýslumaður í Vestmannaeyj-
um. Aðspurður um það hvort það
kunni að vera að ákvæði samnings
um Evrópska efnahagssvæðið
girði fyrir að hægt sé að banna
fólki að brugga léttvín heima við
til eigin neyslu sagði sýslumaður
að áfengislögin íslensku séu ný og
sett síðastliðið sumar. Hann hafi
enga trú á að lögin gangi á skjön
við ákvæði samnings um Evr-
ópska efnahagssvæðið.
„Þetta mál fer sína leið,“ sagði
sýslumaður. -Ótt
Mál Páls Helgasonar:
Gísli bróðir vill láta
rannsaka sig
Gísli Helgason úr Vestmannaeyj-
um, bróðir Páls Helgasonar, hefur
sent sýslumanni í Eyjum bréf þar
sem hann býður upp á að vera
sjálfur rannsakaður fyrir að hafa
drukkið úr einni léttvínsflösku
sem Páll gaf honum. Ástæðan er sú
að sýslumaður sagði í DV í gær að
líklegt sé að Páll fái kæru upp á
30-60 þúsund krónur í kjölfar þess
að hafa m.a. upplýst í blaðinu að
hann stundi léttvínsgerð eins og
fjölmargir aðrir landsmenn gera
heima við.
„Ég kneyfaði úr einni flösku
rauðvíns frá honum (Páli),“ segir í
bréfi Gísla. „Ég var nær einn um
að drekka þessa flösku og fann
ekki til teljandi áhrifa. Hafl ég
unnið þar saknæmt athæfi, þá er
það þitt verk að setja það til rann-
saks,“ segir Gísli Helgason. Ekki
náðist í sýslumann i Eyjum í morg-
un. -Ótt
V-Húnavatnssýsla:
Húnaþings-
nafnið enn
á borðinu
DV, Akureyri:
Þrátt fyrir að íbúar í V-Húna-
vatnssýslu sem sameinuðust í eitt
sveitarfélag á árinu hafi ekki feng-
ið framgengt þeim vilja sinum að
sveitarfélagið fengi að bera nafnið
Húnaþing, er það nafn enn uppi á
borðinu. Örnefnanefnd lagðist
gegn nafninu Húnaþing og félags-
málaráðherra vildi ekki heimila
það, en þó mun ljóst að V-Hún-
vetningar fái nafn sem er ekki
fjarri Húnaþingsnafninu.
Örnefnanefnd mun nefnilega
sætta sig við nöfn eins og Vestur-
Húnaþing og Húnaþing-vestur, og
er talið líklegt að íbúar sveitarfé-
lagsins muni kjósa á milli þessara
nafna á næsta ári. „Húnaþings-
nafnið er orðið nokkuð fast í vit-
und fólks og ég held að fólk komi
ekki til með að velta öðrum nöfn-
um fyrir sér en þessum tveimur
nöfnum, Vestur-Húnaþing og
Húnaþing-vestur þótt Örnefna-
nefndin hafi lagt blessun sína yfir
fleiri nöfn sem komu upp á borðið
á sínum tíma, en sveitarstjórnin á
eftir að ákveða formlega með
framhaldið," segir Brynjólfur
Gíslason sveitarstjóri á skrifstof-
unni á Hvammstanga þar sem
svarað er í síma með orðunum;
„Skrifstofa Húnaþings". -gk
www.visir.is
fVRSTUR MED FRÉTTIRNAR
W
Fulltrúar þeirra sem fengu styrkveitingu úr Menningarsjóði Austur-Skaftfell-
inga árið 1998. DV- myndir Júlía
Menningarsjóður A-Skaftafellssýslu:
Orðabókarfólk fékk
hæsta styrkinn
Úthlutað hefur verið styrkjum úr
Menningarsjóði Austur-Skaftfell-
inga fyrir árið 1998. Úthlutunar-
nefnd bárust 17 umsóknir um styrki
og var úthlutað til 13 aðila. 550 þús-
und krónum. Hæsta styrkinn fengu
Guðný Svavarsdóttir og Davorka
Basrak, 60 þúsund krónur til gerðar
serbnesk-islenskrar og íslensk-
serbneskrar orðabókar. Aðrir styrk-
ir voru veittir kórum og félagasam-
tökum á Hornafirði. -JI
Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri, Guðbjartur Össurarson, formaður
sjóðsins, og Björg Svavarsdóttir.