Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1998
Geimförum skotið til Mars:
Leitað að vatni
Fyrsta geimfarið sem
skotið hefur verið til
Mars í tvö ár, Mars
Climate Orbiter, lagði af
stað fyrir rúmri viku. Það
er Geimferðastofnun
Bandaríkjanna, NASA,
sem stendur fyrir þessu
fjögur hundruð milljón
mílna ferðalagi.
Ætlun leiðangursins er
að varpa ljósi á leyndar-
málið um það hvert allt
vatn plánetunnar rauðu
fór. Að sögn vísinda-
manna er nauðsynlegt að
„finna vatnið" áður en
einhver möguleiki sé á að
finna steingervinga eða
önnur ummerki um líf á
öðrum plánetum. í janúar
á næsta ári er svo áætlað
að senda annan ferðalang
í kjölfarið, „Mars Polar
Lander“.
Nöfh flauganna tveggja
eru lýsandi fyrir hlutverk
þeirra, þó ekki séu þau
þjál í munni né heppileg
til þýðingar. Fyrri flaugin
mun fara á sporbaug um
Mars en sú seinni lenda á
öðrum pól plánetunnar.
Sporbaugsflaugin mun í
upphafi undirbúa lend-
ingu seinni flaugarinnar
með því að rannsaka yfir-
borð pólanna og síðan
mun hún nýtast sem end-
urvarpsstöð fyrir gögn
sem send verða frá yfir-
borði Mars.
Mars Climate Orbiter skotið á loft fyrir rúmri viku. Önnur
geimflaug mun fylgja í kjölfarið í næsta mánuði.
Endurbættur
Pathfinder
Áætlað er að sporbaugs-
flaugin, sem er litlu stærri
en ísskápur, muni nýtast í
tvö ár við ýmiss konar
rannsóknir á gufuhvolfi
Mars, auk aðstoðarinnar
við lendingarflaugina. Sú
síðarnefnda er ekki ólík
Pathfinder-flauginni sem
lenti á Mars fyrir tveimur
árum. Það sem sú nýja
hefur þó umfram fyrir-
rennara sinn á Mars er að
hún er búin fyrsta hljóð-
nema sem sendur hefur
verið á aðra plánetu. Þó
ekki séu vonir bundnar
við að einhver söngelskur
Marsbúi eigi leið hjá og
taki lagið munu upptökur
af vindgnauði á Mars
verða nýtilegar jarðnesk-
um vísindamönnum.
Flaugin mun að auki
áður en hún lendir kasta
frá sér tveimur tækjum á
stærð við körfubolta sem
munu hrapa til jarðar á
suðurpól plánetunnar,
grafast undir yfirborðið
og senda þaðan upplýs-
ingcir.
Þessi för geimflaug-
anna tveggja er fyrsti
hluti af átta þrepa verk-
efni sem mun verða fram-
kvæmt á næstu fimmtán
árum.
Einræktun manns heppnast
Vísindamenn í Suður-Kóreu til-
kynntu í síðustu viku að þeim hefði
tekist að einrækta mannlegan fóst-
urvísi með því að nota mannsfrum-
ur. Tilraun þeirra er ein sú fyrsta
sem gerð hefur verið í heiminum.
Það sem þeir gerðu var að rækta
fósturvísi með því að blanda saman
ófrjóvguðu eggi og venjulegri lík-
amsfrumu, þ.e. ekki kynfrumu.
Kynfruman var fengin úr líkama
konu á fertugsaldri. Lee Bo-yon,
einn rannsakendanna, sagði að fóst-
urvísirinn hefði sést skipta sér í
fjórar frumur skömmu áður en
rannsókninni var hætt.
„Ef fósturvísinum hefði verið
komið fyrir í legvegg konu gerum
við gert ráð fyrir að barn hefði
þroskast og að það hefði haft sömu
genauppbyggingu og sá sem
frumuna gaf,“ segir Bo-yon. Aðferð-
in sem hann notaði var sú sama og
hafði verið áður notuð á mýs við há-
skólann á Hawaii. Þá voru einrækt-
aðar um 50 mýs sem allar voru ná-
kvæm eftirmynd af upprunalegu
músinni.
Lee Bo-yon sýnir blaðamönnum hvernig tilraunin með einræktun mannlegs
fósturvísis var framkvæmd.
Lee Bo-yon tók jafnframt fram sínum fyrr en almennt lagalegt og
að rannsóknarhópur sinn myndi siðferðilegt samþykki fengist fyrir
ekki ganga lengra í rannsóknum slíku.
43 '
Sokkabuxur
c
Vift
álnrsíjuiusl
amincíssant
iia
i
1«i«»u
llUMll*
ISO 9002
30 ileii
Söluaðilar:
Kcykjavík: Grœna línan, Laugavegi 46. Snyrtivöruverslunin Spes, Háaleitisbraut 58-60, Tískuhúsið
Gala, Laugavegi 101, Hárgreiðslust. Brúskur, Höföabakka 1, Ilársnyrtistofan Særún, Grand Hótel,
Hárgeiðslust. Manda, Hofsvallagat 46, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ. llársnyrtist. Dóra, Langholts-
vegi, Regnhlífabúðin, Laugavegi, Tískuvöruverslunin Tess, Dunhaga. Kópavogur: Snyrtivöruverslun-
in Sandra, Smáranum.Rós, Engihjalla 8 Hafnarfjörður: Snyrtivöruv. Dísella Garðabær: Snyrtihöll-
in, Förðun hf. Garðatorgi 3. Mosfellsbæ: Snyrtivöruverslunin Fína. Stykkishólmur: Heimahornið
Vestmannaeyjar Klettur, Strandvcgi 44. Akureyri: Vcrslunin Ynja. Suðurland: Olabúð, Eyrarbakki.
Tískuhúsið, Selfossi. Austurland: Lónið, Höfn Hornafirði.
Newco Pöntunarsími 520-6144
-C
*v