Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1999, Síða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999
23
+
Iþróttir
Iþróttir
Bland í poka
Tertnes, meö Fanneyju Rúnarsdótt-
ur í markinu, vann óvæntan útisigur
á Bækkelaget, 26-30, i norsku A-deild-
inni í handbolta á laugardaginn.
Þetta var fyrsta tap Bækkelaget á
tímabilinu en liðið vann Tertnes meö
18 mörkum í bikarnum í vetur. Lyk-
illinn að sigri Tertnes var sá að
Kjersti Grini, fremsta handbolta-
kona Noregs, tók Önju Andersen
hina dönsku gjörsamlega úr umferð,
svo rækilega að Anja, sem talin er
besta handboltakona heims, var að
lokum tekin af velli.
Gústaf Bjarnason átti stjömuleik
með Willstatt i þýsku B-deildinni i
handbolta á sunnudaginn. Gústaf
skoraði 9 mörk úr jafnmörgum skot-
um þegar Willstatt vann Friesenheim
á útivelli, 22-25. Willstatt er enn tap-
laust á toppnum í suðurriðli deildar-
innar, er með 30 stig eftir 16 umferð-
ir.
Alþjóóa knattspyrnusambandió,
FIFA, setti í gær Kamerún i alþjóð-
legt bann um ótiltekinn tima. Þetta
eru eftirmál af HM i Frakklandi í
sumar en þá voru 3.000 miðar á leiki
sem knattspymusambandið í Kamer-
ún fékk til umráða seldir á svörtum
markaði.
Spœnska knattspymufélagið Real
Betis hefur ráðið einkaspæjara til að
hafa uppi á einum vamarmanna
sinna, Celso Ayala frá Paraguay.
Ayala hefur ekki sést á Spáni eftir að
hafa fariö heim í jólafri en vitað er að
hann vill yfirgefa Spán og fara til síns
gamla félags, River Plate í Argentínu.
Michael Olowokandi, fremsti nýlið-
inn sem væntanlegur var í NBA-
deildina í körfubolta í vetur, hefur
samiö við Bologna á Ítalíu. Hann er
þriðji leikmaðurinn sem yfirgefur
NBA í verkfallinu á stuttum tíma en
Vlade Divac og Arvydas Sabonis
em einnig komnir til liða í Evrópu.
Tvö af neöstu liðum spænsku A-
deildarinnar í knattspyrnu ráku
þjálfara sína í gær. Nando Yosu fékk
sparkið hjá Racing Santander og
Miguel Angel Russo hjá Salamanca.
-VS
ENGLAND
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn ætlar
að fara hópferð á stórleik Arsenal og
Chelsea í ensku A-deildinni i knatt-
spymu sem fram fer á Highbury í lok
mánaöarins. Farið veröur út fóstu-
daginn 29. janúar og til baka heim
sunnudaginn 31. janúar. Verðið í
þessa ferð er kr. 43.400. Nánari upp-
lýsingar era hjá Úrval-Útsýn í s. 569-
9300.
Danska félagið Bröndby er á höttun-
um eftir danska markverðinum Peter
Schmeichel hjá Manchester United.
Schmeichel lék með Bröndby áður en
hann fór til United.
Enskir fjölmiðlar hafa greint frá því
að Bröndy sé reiöubúið að gera Sch-
meichel þvílíkt tilboð að hann geti
ekki hafnað því. Hann á að fá 115
milljónir króna á ári fyrir að leika
með félaginu en að auki verður hann
gerður að nokkurs konar knatt-
spymustjóra hjá félaginu.
Alex Ferguson, stjóri United, er
sagður óánægður með frammistöðu
Schmeichels í undanfomum leikjum.
Hann er á fullri ferð að leita að arf-
taka Schmeichels og er með 5 milljón-
ir punda í veskinu fyrir réttan mark-
vörð. Talið er að Ferguson vilji skipta
fljótlega um markvörö, jafnvel fyrir
næstu leiki i meistaradeildinni í
mars.
-GH/SK
Ikvöld
1. deild karla í handknattleik:
ÍR-HK.......................20.00
Stjaman-Afturelding.........20.00
Þattaskil hja
Keflavíkurstelpum
- sem töpuöu fyrir Stúdínum í gær
ÍS vann Keflavík, 44-41, í 1. deild
kvenna í gær í spennandi leik sem ekki
verður þó minnst fyrir gæðin því jólafriið
hefur greinilega sett stelpurnar úr nokk-
urri leikæfmgu. Spennan var þó til staðar
og fyrir utan góðan kafla hjá ÍS í upphafi
seinni hálfleiks er þær komust í 11 stiga
forustu var jafnt allan tímann. Keflavík
leiddi með 4 stigum þegar 5 mínútur voru
eftir en ÍS skoraði 7 síðustu stigin og Alda
Leif Jónsdóttir tryggði ÍS sigurinn með
því að skora úr 2 vítum 11 sekúndum fyr-
ir leikslok. ÍS tryggði þar með stöðu sína
í 2. sætinu á eftir KR-stúlkum.
12 ára tímabili lokið
Það eru liöin 12 tímabil síðan Keflavík
tapaði síðast fimm deildarleikjum á einu
tímabili og markar þetta tímabil nokkur
þáttaskil i kvennakörfunni í Keflavík.
Ungar stelpur fá að reyna sig í vetur
og strax má sjá það fara að skila sér því
síðast töpuðu þær með 26 stigum í Kennó
en nú aðeins með þremur. Ein af þeim
ungu, Svava Stefánsdóttir, er aðeins 14
ára en sýndi góð tilþrif í gær og skoraði
5 stig á síðustu tveimur mínútum fyrri
hálfleiks og á framtíðina fyrir sér.
Anna María Sveinsdóttir þjálfari
miðlar reynslu sinni og það verður ekki
lengi að bíða eftir sterku liði úr Keflavík.
Stig ÍS: Georgia Kristiansen 9, Alda Leif
Jónsdóttir 8 (7 stoðsendingar), Lovisa Guð-
mundsdóttir 8, Signý Hermannsdóttir 7 (11 frá-
köst), Hafdis Helgadóttir 7, Liliya Sushko 3,
Maria Leifsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Kristín Blöndal 14, Anna
María Sveinsdóttir 8 (14 fráköst og 7 stolnir
boltar), Svava Stefánsdóttir 5, Marín Rós Karls-
dóttir 5, Bjarney Annelsdóttir 3, Kristín Þórar-
insdóttir 2, Bima Guðmundsdóttir 2 og Lóa
Björg Gestsdóttir 2. -ÓÓJ
Undarleg lending
- í lyQamáli hjá Petr Korda
Þrátt fyrir að
hafa fallið á lylja-
prófi á dögunum
er tékkneski
tennisleikarinn
Petr Korda á fullri
ferð í stórmóti at-
vinnumanna í
Katar sem hófst í
gær.
Upp komst um
lyfjaát Korda þeg-
ar umtalsvert
magn stera fannst
í þvagi hans. Þrátt
fyrir þessar niður-
stöður slapp
Korda með sekt og
að auki voru dreg-
inafhonumnokk-
ur stig á afreka-
listanum.
Menn hafa velt
fyrir sér ástæð-
unni fyrir þessari
undarlegu lend-
ingu í máli Korda
en engu er líkara
en að hann sitji
ekki við sama
borð og aörir
íþróttamenn þeg-
ar ólöglegt lyfjaát
er annars vegar.
Með réttu hefði
Tékklendingurinn
átt að dúsa í árs
banni frá tennis-
mótum.
Eins og venju-
lega hefur Korda
þrætt fyrir að
hafa étið sterana
en þaö er háttur
íþróttamanna þeg-
ar til þeirra næst.
Hann segist ekk-
ert skilja í þessu
og þvemeitar aö
hafa neytt ólög-
legu lyfjanna.
Þessar hefð-
bundnu fullyrðing-
ar hefur alþjóða
tennissambandið,
öllum að óvörum,
tekið gildar. Var
einhver að tala um
Jón og séra Jón?
-SK
ikf IA fær liðsstyrk
Birna Guðmundsdóttir úr Keflavík reynir hér skot en Signý Hermannsdóttir
Stúdína er til varnar. ÍS hafði betur og tryggði stöðu sína í 2. sæti deildar-
innar. DV-mynd Hilmar Þór
Baldur Ingimar Aðalsteinsson, 18 ára
knattspymumaður frá Húsavík, er geng-
inn til liðs við ÍA en hann hefur leikið
með Völsungi til þessa. „I heildina er
samningurinn til fimm ára, þ.e. þrjú ár á
uppeldissamningi og tvö ár á leikmanna-
samningi," sagði Sæmundur Víglunds-
Handboltinn af staö í kvöld:
Stórleikur í Gardabæ
- þegar Stjarnan mætir toppliöi Aftureldingar
son, framkvæmdastjóri Knattspymufé-
lags ÍA, við DV.
Teitur ekki að leita
„Teitur Þórðarson er ekki að leita að
leikmönnum fyrir félagið í samráði við
Loga. Við höfum rætt við Teit um upp-
byggingu og skipulag knattspymufélaga.
I þeim málum hafa fáir ef nokkur meiri
þekkingu og reynslu en einmitt hann. Að
sjálfsögðu hefur erlenda leikmenn borið á
góma í viðræðum þessum en ég ítreka að
gefnu tilefni að Teitur er ekki að leita að
leikmönnum fyrir félagið erlendis," sagði
Sæmundur. -DVÓ
Knattspyrna:
Andri
Andri Marteinsson knattspymumaður,
sem leikið hefur með Leiftursmönnum á
Ólafsfirði undanfarin tvö ár, hefur ákveð-
ið að ganga til liðs við FH og mun leika
með liðinu í 1. deildinni í sumar.
Andri þekkir vel hjá Hafnarfjarðarliö-
inu en hann lék með því í sex ár frá
1990 1994. Andri er 33 ára gamall og þriðji
leikjahæsti leikmaður efstu deildar frá
upphafi en alls hefur hann leikið 232
leiki. Hann var fyrirliði Leifturs á síðasta
keppnistímabili og lék stórt hlutverk með
liðinu í stööu aftasta varnarmanns.
„Það er farið að síga á seinni hlutann
hjá manni og mér finnst gott að enda fer-
ilinn á kunnum slóðum. Ég átti mín bestu
ár í knattspymunni hjá FH og það er
gaman að vera kominn aftur til félagsins.
Ég átti tvö mjög góð ár með Leifturs-
mönnum og ég óska þeim alls hins besta
í framtíðinni," sagði Andri í samtali við
DV í gær. Hann hélt í gær til Bandaríkj-
FH
anna þar sem hann er í námi en hann er
svo væntanlegur til íslands í maí.
Andri verður góður liðsstyrkur fyrir
FH-inga sem tvö síðustu keppnistímabil
hafa naumlega misst af úrvalsdeildar-
sæti. FH-ingar halda sama mannskap og
lék með þeim í sumar og undir stjórn
Magnúsar Pálssonar hafa þeir sett stefn-
una á úrvalsdeildina.
-GH
Sigfús Sigurðsson á heimleið frá Spáni:
Mætti illa á morgnana
- sagði Mats Olson, framkvæmdastjóri Cantabria, við DV
Andri Marteinsson er hér í búningi Leifturs síðastliðið
sumar. Andri hefur nú ákveðið að yfirgefa herbúðir Leift-
urs og er genginn í raðir síns gamla liðs, FH.
Islandsmótið í handknattleik:
Sigfús Sigurðsson er hættur að leika
með spænska handknattleiksliðinu Caja
Cantabria frá Santander. Hann er á heim-
leið og eru allar líkur á því að hann leiki
í 1. deildinni hér á landi það sem eftir er
vetrar en með hvaða liði er ekki vitað á
þessu stigi.
Sigfús lék með Val áður hann gerði
samning við Caja Cantabria fyrir
yfirstandandi tímabil.
„Sigfús mætti illa á morgunæfingar.
Hann var búinn að fá viðvörun frá félag-
inu að taka sig á í þeim efnum. Sigfús er
ungur að árum og á tvímælalaust framtíð-
ina fyrir sér. Þetta gekk því miður ekki
upp hér og ég er mjög leiður yfir þessum
málalokum. Sigfús var leystur undan
samningi og við höfum gert upp við hann
að fullu. Ég tel ekki ólíklegt að félagið fari
fram á einhverja greiðslu fyrir Sigfús fari
hann að leika með íslensku félagi. Við
borguðum fyrir hann þegar hann kom til
okkar fyrir tímabiliö," sagði sænski
markvörðurinn góðkunni, Mats Olson, í
samtali við DV í gærkvöld en hann er
framkvæmdastjóri Caja Cantabria og lék
með liðinu í mörg ár. -JKS
^ Stórmót IR í frjálsum íþróttum:
Galkauskas Susan Smith etur kappi við Guðrúnu
grófastur
Gintas Galkauskas, Litháinn í í liði Aftureldingar, er
grófasti leikmaður 1. deildarinnar eftir 13 umferðir. Hann
hefur 17 sinnum mátt þola að líta tvo fingur og hefur því
dúsað í 34 mínútna refsivist til þessa á tímabilinu.
Næstir koma félagi hans úr Aftureldingu, Magnús Már
Þórðarson, Björgvin Björgvinsson úr Fram og Erlingur
Richardsson úr Val, allir með 16 brottvísanir. Petr
Baumruk úr Haukum hefur hlotið 15 slíkar, Alexander
Amarsson úr HK 14 og Theódór Valsson úr Val er síðan
þar á eftir með 13 brottvísanir.
KA er grófasta liðið í deildinni en efsti maður þar á lista
er Sverrir Bjömsson með 10 brottvísanir. -ÓÓJ
Fylkir lagði Fjölnismenn
Frjálsíþróttadeild IR hef-
ur gengið frá samningum
við fyrstu erlendu stór-
stjömuna til að koma og
keppa á stórmóti ÍR-inga í
Laugardalshöll þann 24. jan-
úar.
Það er engin önnur en
Susan Smith, írski methaf-
inn í 400 metra grindahlaupi
kvenna og heimsfrægur
hlaupari, sem hefur ákveðið
að keppa á mótinu en hún
hefur skotist fram á stjömu-
himininn síðustu 2 árin rétt
eins og Guðrún Amardóttir.
Smith á best 54,31 sek. í 400
m grindahlaupi sem er 8.
besti tími í heiminum. ís-
landsmet Guðrúnar er 54,59
sek. sem hún setti á EMí
Búdapest í fyrra.
Guðrún og Susan Smith
munu etja kappi saman í 50
metra grindahlaupinu á IR-
mótinu auk þess sem þær
keppa i 50 metra hlaupinu.
Smith er jafngömul Guðrún
og býr í Athens í Georgíu
þar sem Guðrún hefúr verið
við æfingar og nám undan-
farin ár. Þær tvær em góðar
vinkonur og hafa marga
hildi háð á hlaupabrautinni
á undanförnum árum. -GH
Fylkir sigraði Fjölni,
23-19, í 2. deild karla í
handknattleik í Fylkishús-
inu í gærkvöld. Eymar
Kuger skoraði 7 mörk fyrir
Fylki og Þorri B. Gunnars-
son 7 mörk fyrir Fjölni.
-JKS
Arsenal áfram í bikarnum
Ai-senal er komið í 4. umferö ensku bik-
arkeppninnar eftir sigur á Preston, 2-4, á
útivelli í gærkvöld. Það blés ekki byrlega
fyrir Arsenal ffarnan af en Preston náði
tveggja marka forystu og var Kurt Nolan
að verki í bæði skiptin. Undir lok fyrri
hálfleiks tókst Luis Boa Morte að laga stöð-
una fyrir Arsenal. I síðari hálfleik bætti
Arsenal við þremur mörkum, tveim frá
Emmanuel Petit og fjórða markið skoraði
Marc Overmars. Preston lék einum færri
síðasta hálftímann og urðu þá kaflaskil í
leiknum. Arsenal mætir Wolves í 4. um-
ferð. -JKS
Handboltafólk tekur fram skóna
að nýju í kvöld en þá verður leikin
heil umferð, bæði í karla- og
kvennaflokki.
Afturelding er í toppsæti deildar-
innar í karlaflokki og í kvöld mætir
liðið Stjömunni í Garðabæ. Þetta
verður að teljast stórleikur umferð-
arinnar. Mosfellingar hafa leikið
liða best í vetur en Stjömumenn
hafa verið vaxandi og hafa sýnt og
sannað að þeir geta unnið hvaða lið
sem er.
I Eyjum taka heimamenn á móti
KA. Viðureignir þessara liða hafa
oftar en ekki verið mjög spennandi
og verður fróðlegt að sjá hvort KA
til leiks. Grótta/KR þarf nauðsyn-
lega á stigum að halda í botnbarátt-
unni og það er aldrei að vita nema
liðinu takist að leggja Val að velli
eins og í bikarleiknum á dögunum.
Hörkuleikur í Austurbergi
ÍAusturbergi verður sannkallað-
ur botnbaráttuslagur en þar eigast
við ÍR og HK. Bæði liðin em við
botn deildarinnar og því eru stigin
sem í boði em mjög mikilvæg.
Botnlið deildarinnar, Selfoss, fær
Hauka í heimsókn og þar þurfa Sel-
fyssingar lífsnauösynlega á stigum
að halda. Haukarnir hafa gengið í
gegnum erfiða tíma. Þeir töpuðu sjö
IR
HK
13
13
8 322-347
7 306-335
Grótta/KR 13 2 3 8 322-352 7
Selfoss 13 2 2 9 295-340 6
Á blaðsíðu 25 getur að líta fróð-
lega tölfræði úr umferðunum 13
sem búnar em.
Fjórir kvennaleikir
Hjá kvenfólkinu eru fjórir leikir á
dagskrá sem allir hefiast klukkan
18.30. FH tekur á móti ÍR,
Grótta/KR fær Fram í heimsókn,
ÍBV og Valur eigast við í Eyjum og
Körfuknattleikur:
Þriðji Kaninn
til Haukanna
Selfoss-Haukar 20.00 verði fyrst liða tÚ að taka stig í Eyj- leikjum í röð áður en þeir lögðu ÍR- Staðan í deildinni fyrir umferð-
FH-Fram 20.30 um á þessari leiktíð. inga aö velli fyrir jólafríið og sá sig- ina í kvöld er þessi:
Valur-Grótta/KR 20.30 Framarar sækja FH-inga heim í ur hefur örugglega aukið sjálfs- Stjarnan 12 10 1 1 339-253 21
ÍBV-KA 20.30 Kaplakrika og þar má búast við traustið í herbúðum Haukanna. Fram 12 9 1 2 316-260 19
hörkuleik. Fram og FH mættust í Staðan í deildinni fyrir umferð- Haukar 11 8 1 2 249-223 17
1. deild kvenna í handknattleik: undanúrslitunum á íslandsmótinu á ina í kvöld er þessi: Valur 11 7 1 3 246-204 15
FH-ÍR 18.30 síðasta tímabili og þar höfðu Fram- Afturelding 13 10 1 2 353-313 21 Víkingur 11 5 3 3 253-243 13
Grótta/KR-Fram 19.00 arar betur í oddaleik. Fram 13 9 0 4 359-322 18 Grótta/KR 11 4 2 5 225-232 10
ÍBV-Valur 18.30 íslandsmeistarar Vals taka á móti Stjaman 13 8 1 4 324-319 17 FH 11 3 2 6 249-236 8
Víkingur-Haukar .... 18.30 nýliðum Gróttu/KR. Valsmenn Valur 13 8 0 5 304-282 16 ÍBV 10 3 1 6 230-241 7
voru í mikilli niðursveiflu áður en KA 13 8 0 5 336-320 16 KA 12 1 0 11 217-317 2
1. deild kvenna f körfubolta: jólafríið skall á en hver veit nema ÍBV 13 6 2 5 304-298 14 ÍR 11 0 0 11 178-295 0
Grindavík-KR 20.00 jólasteikin hctfi fariö vel ofan í Hlíð- Haukar 13 5 1 7 350-348 11 - GH
arendapiltana og þeir komi sterkari FH 13 5 1 7 317-315 11
Valsmenn minnast Benfica-leiksins
Knattspyrnulið Vals frá árinu 1968 kom saman á Hlíðarenda á gamlársdag til að minnast þess að í haust voru 30 ár
liðin frá hinum fræga leik Valsmanna gegn Benfica í Evrópukeppni meistaraliða. Áhorfendur á Laugardalsvellinum
voru 18.243 og það er aðsóknarmet hér á landi sem sennilega verður aldrei slegið. Úrslitin vöktu líka athygli því leik-
urinn endaði 0-0. Benfica hafði um vorið mætt Manchester United í úrslitaleik Evrópukeppninnar og var með hálft
bronslið Portúgals frá HM 1966 innanborðs, og þar á meðal Eusebio, markakóng þeirrar keppni. Leikmennirnir og
aðstandendur liðsins gáfu félaginu í tilefni tímamótanna glæsilegt veggspjald með margvíslegum minjagripum frá
leiknum. Á myndinni eru þeir með spjaidið. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Frímannsson, formaður fjáröfiunar-
nefndar, Þórður Þorkelsson stjórnarmaður, Ægir Ferdinandsson, formaður Vals, Bergsveinn Alfonsson, Þorsteinn
Friðþjófsson, Reynir Jónsson, Halldór Einarsson, Sigurður Ólafsson, Sigurður Dagsson, Alexander Jóhannesson
og Elías Hergeirsson, formaður knattspyrnudeildar. Fremri röð frá vinstri: Ingvar Elíasson, Sigurður Jónsson, Gunn-
steinn Skúlason, Smári Jónsson og Hermann Gunnarsson. Á myndina vantar Pái Ragnarsson, Samúel Erlingsson
og Baldvin Jónsson, formann áróðursnefndar. -VS/DV-mynd HH
Úrvalsdeildarlið Hauka í körfuknatt-
leik teflir fram nýjum Bandaríkjamanni
þegar það mætir KFÍ í fyrstu umferðinni
eftir jólafríið á fimmtudagskvöldið.
Sá heitir Antonie Brockington og er 24
ára gamall bakvörður. Hann útskrifaðist
úr Coppin State háskólanum í vor. Hann
hefur ekki leikið í Evrópu en hefur ver-
ið að spila í minni deildum í Bandaríkj-
unum og var stigahæsti leikmaðurinn í
sínum riðli með 20 stig að meðaltali í
leik og var valinn besti leikmaðurinn.
Að sögn Jóns Arnars Ingvarssonar,
þjálfara og leikmanns Hauka, er Brock-
ington mjög góður íþróttamaður sem
Haukar binda miklar vonir við. Brock-
ington er 1,88 metrar á hæð og er með
mikinn stökkkraft enda iðinn viö að
troða knettinum í körfú andstæðing-
anna, segir Jón Amar.
Hann verður þriðji Bandaríkjamaður-
inn sem klæðist Haukabúningnum á
þessari leiktíð. Myron Walker hóf leik-
tíðina með Haukunum en hann hélt
heim á leið af persónulegum ástæðum
eftir rúmlega eins mánaðar dvöl.
Brian Holbert leysti Walker af hólmi
en staldraði stutt við. Holbert lék aðeins
einn leik með Haukum og ekki er hægt
að segja annað en að hann hafi slegið í
gegn þvi hann skoraði 44 stig í leik gegn
Þór. Holbert kunni ekki við sig á land-
inu og kaus að fara heim.
Haukar vona nú aö vera Brockingtons
hér á landi verði lengri og að hann leiki
með liðinu út leiktíðina en hann mætti á
sína fyrstu æfingu í gærkvöldi og er
kominn með leikheimild.
-GH
Bland í poka
Þórey Edda Elísdóttir stangar-
stökkvari var útnefhd íþróttamaöur
FH 1998 en valiö átti sér stað á gaml-
ársdag. Þórey skaust fram á sjónar-
sviðið í stang-
arstökkinu og .fímP®'
náði mjög
góðum ár-
angri á þeim
mótum sem
hún keppti á.
Þá var hún i
sigursveit FH-
inga sem varð
íslands- og
bikarmeistari
í frjálsum íþróttum á árinu. Þórey hóf
að leggja stund á stangarstökk fyrir
þremur árum og framfarimar hjá
henni hafa verið gríðarlega miklar.
Handboltakonan Harpa Melsted
varð fyrir valinu sem íþróttamaður
Hauka fyrir árið 1998. Harpa hefur iðk-
aö handknattleik hjá Haukum allt frá
bamsaldri og hefur verið lykiimaður í
öllum flokk-
um. Þá hefur
hún leikið
með öllum
kvennalands-
liðum ís-
lands. Harpa
hefur verið
sigursæll fyr-
irliði meist-
araflokks
kvenna á
undanfómum árum, bikarmeistari og
íslandsmeistari 2 ár i röð. Hún hefur
leikið 300 leiki með meistaraflokki og
hefur ætið vakið athygli og aðdáun
fyrir mikla baráttu og er sönn fyrir-
mynd góðra íþróttamanna.
Guðmundur Hrafnkelsson var á
gamlársdag útnefndur Valsmaður árs-
ins 1998. Guð-
mundur var
fyrirliöi Vals-
manna sem
urðu bæði ís-
lands- og bik-
armeistarar i
handknattleik
á árinu og
hann varði
mark íslenska
landsliðsins af
sama krafti og fyrr.
í lyfjaprófi fyrir skömmu kom í ljós
að íslenskur íþróttamaður var yfir
þeim viðmiðunarmörkum sem unniö
er eftir. Viðbótarpróf verður tekið til
samanburðar og liggja niðurstööur
jafnvel fyrir í lok febrúar. Þess má
geta að þrír íslenskir íþróttamenn
hafa fallið á þessu prófl.
-GH/VS/JKS