Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Síða 23
39
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
VÖRUBÍLAR & VINNUVÉLAR
Varðeldur i Herðubreiðarlindum. Ulfar með gitar-
inn og stjórnar fjöldasöng.
landi. Verðlagið hér hefur á stundum
vafist fyrir erlendum ferðamönnum
sem hyggja á ferðir hingað til lands.
„Fólk hlýtur að hugsa sig tvisvar um
ef það getur fengið þriggja vikna ferö
til Austurlanda eða Kyrrahafsins og
gist þar á fimm stjömu hótelum fyrir
lægra verð en tveggja vikna tjaldferð
til íslands," sagði Úlfar eitt sinn í við-
tali og bætti við: „En íslenska hálend-
ið hefur svo sterk áhrif á ferðamenn
sem hingað hafa komið að það er talið
líkjast mest þeim áhrifum sem fólk
verður fyrir af trúarbrögðum." Úlfar
reyndi flest til að halda verði ferðanna
lágu. Til dæmis tók hann leiðsögn um
skipulagðar stuttferðir upp á segul-
band þegar svo var komið að leiðsögu-
menn kostuðu hátt í jafnmikið og rút-
an. Ferðaskrifstofa Úlfars sá ferðafólki
sínu fyrir sérsaumuðum íslenskum
tjöldum til að gista í og ljúffengu
heilsufæði úr eldhúsbíl-
um fyrirtækisins þannig
að ferðalangar þurftu lít-
ið annað að taka með sér
í ferðir en hlý föt og gott
skap.
Það passar,
hann spáði
sólskini...
Ekki er á vísan að róa
með veður inni á hálend-
inu. í einni ferð getur
fólk kynnst ægifagurri
sumarblíðu með 30 stiga
hita, lent í bálhvössum sandbyljum
sem engu eira eða jafnvel frosti og
snjókomu. En allt telst þetta til ævin-
týris hjá hinum erlendu ferðamönn-
um. Fátt er það sem þetta fólk er
meira hissa á eða
spyr jafnmikið um
og vatnið i lækjun-
um á Qöllum.
Hvaðan kemur
þetta vatn? Er
óhætt að þvo sér
upp úr því? Er
kannski hættulaust
að drekka það?
spyr fólkið og þeg-
ar það hefur verið
fullvissað um að
vatnið sé hættu-
laust leggst það á
lækjarbakkann og
sýpur líkt því að
það sé að smakka
vatn í fyrsta skipti
á ævinni.
Gamli Víponinn er...
Gamli Víponinn, sem Úlfar Jacob-
sen festi kaup á 1948, er upphaf mik-
illa umsvifa i ferðaþjónustu hér á
landi. Á ferli sínum eignaðist Úlfar
marga öfluga fjallabíla sem báru
hróður íslenskra bilstjóra um víða
veröld. Allir bílar Úlfars, bæði far-
þega- og eldhúsbilar, voru með ís-
lenskri yfirbyggingu. Árið 1989 hætti
ferðaskrifstofa Úlfars rekstri og þar
með óbyggðaferðum. En nafnið
Iceland safari lifir enn þar sem ferða-
skrifstofan Úrval-Útsýn keypti rekst-
ur fyrirtækisins og hefur haldið
áfram að selja erlendum ferðamönn-
um safariferðir tU Islands.
-Guðmundur Sigurðsson
Fyrirsagnir eru teknar úr dœgur-
lagatextum Ómars Ragnarssonar.
Heimildir: Hálendiö heillar og
blaöaviötöl.
Þegar bilstjórar urðu að hafa kunnáttu frekar en
bindi. Gert við á fjöllum.
Egill Jacobsen, á eldhúsbíl frá lllfari föður sínum, „spilar" hér pikkfasta rútu frá Guðmundi Jónassyni upp úr Sand-
gigjukvísl.
HOKRCHER
HÁÞRÝSTI
DÆLUR
» *
SKEIFUNNI 3E-F • SIMI 581 2333 ■ FAX 568 0215
MASTO vírasmyrjarinn
þrýstir feitinni inn (vírinn og
óhreinindum út úr honum um leið
og eykur þannig endingu hans.
Auðbrekku 32, 200 Kópavogur
Símar:
894 8400
854 8400
Fax:
554 4437
Heimas:
554 6002
Láttu sjá þig
í umferðinni
Leifturljós (Strobe) eru notuð á öllum lögreglu- og
sjúkrabifreiðum hériendis. Nú bjóðum við úrval af
gulum leifturljósum
og Ijósabogum.
Engar reimar engin tannhjól - hljóðlát, endingargóð,
taka lítinn straum en umfram alltsjástvel.
Ljóskúplar, Ijósabogar, segulljós, pinnatengi, stök
Ijós innbyggð eða utanáliggjandi. Sérstök díóðuljós
(LED) fyrir rafmagnslyftara, hæð aðeins 6,5 sm
og nota einungis 24mA.
Aukum öryggið í umferðinni og notum góð leifturljós
til viðvörunnar.
SBdelta d
o divnlon ol NICOTECH limltad
esign
J
Heildsala
smásala
Donna
Háahvammi 16
220 Hafnarfirði
Sími: 555 3100
Fax: 565 3455
^DAEWOO ^
Hjólaskóflur
9850-21700 kg
Smagröfur
770-4950 kg
4. gerðir
Hjólagröfur
4900-19400 kg
4. geröir
VERKVER
Beltagrofur
6800-44500 kg 8. geröir
Smiðjuvegi 4b • 200 Kópavogur • 567 6620 • Fax 567 6627 • verkver@ifn.is