Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 31
<*f VÖRUBÍLAR & VINNUVÉLAR 47% MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRUAR 1999 Verkver ehf. Barns- skónum slitið - Asíukreppan tryggir viðskiptavin- um lægra verð með vélar frá Suður- Kóreu, einnig höfum við upp á að bjóða skóflur og hraðtengi frá Ardennes í Frakk- landi,“ segir hann. Daewoo lína Verkvers spannar breitt svið. „Daewoo er með beltagröfur, hjólaskóflur, smágröfur, lyftara og skid- steer vélar. Það sem er skemmtilegt við þessar vélar er það að þetta eru gæðatæki sem hægt er að bjóða upp á með óvenju hag- stæðu verði sökum áðurnefnds efnahagsástand. Vinnuvéladeildin okkar er um þessar mundir að slíta af sér bamsskónna og við væntum mikils af okkur í frammtíðinni og vonumst við til þess að það komi viðskiptavinum okkur svo til góðs. í tilefni af útkomu Vinnuvéla- blaðs DV býður Verkver ehf. sér- stakan vélapakka: Daewoo Solar 130 W-V, 13 tonna hjólagröfu með Soosan SB 50 brothamri á kr. 6.770.000. -þt Þeir eru ánægðir með söluna hjá Véladeild Verkvers ehf. Salan hef- ur gengið vel og nýjungar eru mikl- ar. Þeir hafa verið að auka við sig og fengu nýlega nýja línu af gröf- um. „Við erum með nýja kynslóð af vélum frá Daewoo, Solar 220 LC -V og var fyrsta vélin af þeirri tegund afhent til Græðis sf. á Flateyri. Vél- in hefur komið að góðum nótum þar og tilkynnti eigandi Græðis sf. okkur það að vélin stæði sig í álla staði vel,“ segir Gunnar Ámason. Efnahagsástandið í Asíu hefur komið Verkveri ehf. til góða. „Eins og flestum er kunnugt þá hefur verið slæmt ástand á mörk- uðunum í Asíu. Þetta hefur leitt til þess að við getum boðið viðskipta- vinum okkar upp á einstaklega hagstætt verð á þeim vélum er við flytjum inn þaðan. En Daewoo vél- arnar okkar koma frá Suður- Kóreu, sem og brothamrarnir frá Soosan. Við erum þó ekki einungis Gunnar Árnason við eina af vélunum frá Verkver ehf. Hjólaskófla frá Daewoo. Lyftari frá Daewoo. Beltagrafa frá Daewoo en nýlega var fyrsta vélin af þessari tegund afhent til Græðis sf. á Flateyri. Vatnskassalagerinn ehf.: Nýr vatns- kassi á 10 mínútum Vatnskassalagerinn ehf. býður snögga og ömgga þjónustu fyrir við- skiptavini sína. Fyrirtækið hóf rekstur sinn árið 1995. „Við emm sáttir viö gang mála og við reynum að gera öllum til geðs. Við getum skipt um vatns- kassa í flestum gerðum bíla og ger- um það hratt og örugglega. Við- skiptavinir okkar þurfa stxmdum ekki aö bíða nema 10 mínútur eftir því að við skiptum. Við bjóðum einnig upp á það að skipta einungis um elementin og nota gömlu botn- ana og það kostar mun minna fyrir viðskiptavini okkar. Það er haft í öndvegi hjá okkur að skipta hratt og ömgglega um kassana," segir Gunnar Öm Haraldsson, eigandi og framkvæmdastjóri Vatnskassala- gersins. Þeir hafa þó upp á meira en vatnskassa aö bjóða hjá Vatns- kassalagernum: „Við erum einnig með millikæla, bensíntanka og emm með ágætan lager af því öllu. Einnig höfum við verið með pústkerfi í boði. Fyrir- tækið hefur verið að bæta við sig hægt en örugglega. Við höfum það þó frekar að leiðarljósi að bjóða við- skiptavinum okkar faglega og góða þjónustu en að stækka of hratt,“ segir eigandinn og framkvæmda- stjórinn, Gunnar Örn. -þt Gunnar Örn Haraldsson, eigandi og framkvæmdastjóri Vatnskassala- gersins. SÖLUSÝNING gerið góð kaup Við höfum selt mikið af nýjum vinnuvélum undanfarið og eigum því gott úrval notaðra vinnuvéla. Allar vélarnar eru yfírfarnar af Glóbus Vélaver og skoðaðar af Vinnueftirliti ríkisins. Ástandslýsing fylgir hverri vél. Komið -Skoðið - Prófið laugardaginn 20. febrúar kl. 11- 17 sunnudaginn 21.febrúar kl. 13- 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.