Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Síða 5
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999
5
Fréttir
DV
Umferðarskilti sem eru beinlínis hættuleg:
Milljarða umferðarklúður
- segir Sigurður Gíslason ökukennari sem messaði yfir Vegagerðarmönnum
„Umferðarmerkingar eru ekkert
smámál, við getum stórfækkað um-
ferðarslysum með betri og markviss-
ari merkingum í umferðinni. Þetta er
stórmál og getur leikið á 10 til 15 millj-
örðum á næstu árum, ef ekki verður
aðhafst," segir Sigurður Gíslason öku-
kennari, en hann hélt fyrir helgi hálfs
annars tíma fyrirlestur á fjölmennum
fundi með fulltrúum Vegagerðarinn-
ar. Fundarmenn kunnu Sigurði þakk-
ir fyrir framlag hans og létu það í ljósi
í lok fundar, jafnvel þótt hann beindi
á köflum spjótum sínum að fyrirtæk-
inu, sem og Gatnamálastjóranum í
Reykjavik, sem ekki átti fulltrúa á
fundinum. Sigurður sagði í gær að sér
kæmi ekki á óvart að almennir borg-
arar myndu senn stefna ríkisvaldinu
fyrir vanrækslu í þessum efnum, sem
leitt hafa til stórtjóna í umferðinni,
stundum til dauða. Jónas Snæbjöms-
son, verkfræðingur Vegagerðarinnar,
sagði í gær að ræðumanni hefði um
sumt mælst vel, en annað væri hans
skoðun en ekki starfsmanna fyrirtæk-
isins.
Leitt út í opinn dauðann?
Eitt fór kannski mest fyrir brjóstið
á fundarmönnum, en það var þegar
Sigurður Gíslason ökukennari heldur hálfs annars tíma fyrirlest-
ur um umferðarmerkingar sem hann segir að geti stórlega fækk-
að slysum, ef rétt er að málum staðið. DV-mynd E.ÓI.
Sigurður talaði um að verið væri að
leiða fólk út í opinn dauðann þegar
leyfður er framúrakstur nánast alveg
að blindhæðum. Sigurður stendur fast
á því að viða þurfi að endurskoða
þessa hluti og ýmsa aðra. „Umferðar-
merkingar eru í hryllilegum ólestri.
Það er ekki hægt að draga fram einn
ákveðinn sökudólg. Hér er um að
ræða handvömm í vinnubrögðum,
áhugaleysi og ófullkomnar og óná-
kvæmar reglur," sagði Sigurður
Gíslason í gær.
„Það sem er að drepa
okkur, bæði í þessu og
ýmsu öðru, eru óskýrar,
ófullkomnar og illa unnar
reglugerðir. Ef við höld-
um okkur við umferðar-
merkin, þá er sagt í reglu-
gerð að þau eigi að vera
sýnileg og gengið frá þeim
á jarðfastri stöng. Reglugerðarsmið-
irnir hafa auðvitað hugsað sér að
stöngin væri sjálfstæð stöng, gul á lit-
inn, en þá koma þeir með útúrsnún-
Undarlegar leiðbeinlngar í
Reykjavík. Vegafarendum á leið
vestur Miklubraut, á greiðri leið
í miðborgina, er bent á hægri
beygju til norðurs - beint á Esj-
una - og síðan ekki söguna
mg og spyrja
hvort ljósastaur
sé ekki jarðfóst
stöng. Síðan er
biðskyldu-
merkjum hent
hist og her upp
í ljósastaura og
enginn sér þeg-
ar hann keyrir
fram hjá gatna-
mótunum hvort
hann á forgang
eða ekki. Það
veit það ekki
nokkur maður
nema hann
þekki Reykja-
víkurborg út og
inn,“ sagði Sig-
urður í gær.
meir.
DV-mynd Teitur
27 Skilti -
tvö rétt
staösett
Sigurður
bendir á að á
leiðinni frá Reykjavík til Akureyrar
séu 27 aðalbrautarskilti - og aðeins
tvö þeirra séu rétt staðsett. „Það
stendur skýrt í reglugerðinni hvemig
á að ganga frá þessu. Aðalbrautar-
merkið á að þjóna þessum tvíþætta til-
gangi, bæði að segja til um að við
erum að nálgast gatnamótin og undir-
strika það um leið að við eigum for-
gang í gegnum þau,“ sagði Sigurður.
„Þetta ófremdarástand er slæmt
fyrir unga ökumenn sem eru að reyna
að læra á þetta. Gott dæmi um þetta
er þegar keyrt er gömlu leiðina upp
með Vífllsstöðum. Þegar þú ert rétt
kominn fram hjá spítalanum blasir
við merki, þéttbýli lokið, síðan ekkert
annað merki. Svona merki þýðir í
raun að kominn er 90 kílómetra há-
markshraði. Fram undan er þó blind-
hæð og víkja skal fyrir umferð frá
hægri eftir stuttan spöl,“ sagði Sigurð-
ur Gíslason.
Sigurður ræddi fjölmörg vandamál
í umferðinni og slæmar merkingar,
meðal annars við einbreiðar brýr þar
sem alvarleg slys hafa iðulega orðið.
Víða erlendis er merki þar sem tekin
eru af öll tvímæli um hvor bílanna
eigi að víkja. Önnur akreinin á allan
rétt, hin á að stoppa. Slík merking er
á einum stað á landinu, á brú við
Elliðaár.
-JBP
sparar pú verulega
kæfisftáoum ■ nokkra daga!
EDC340 «!l,JIU!U.|llil..yB!l»
Verð áður kr.
84.900.
Þú sparar kr.
15.000.
Tvær hurðir, tvær pressur.
180x59,5x58 cm
EDD230 jjámnilll'iám
tferð áður kr.
59.900.-
Verð nú kr.
43.900.-
Þú sparar kr.
10.000
L
Tvær hurðir,
146x59,8x58,8 cm
JÉÍMfcáit
J
w m
Jvær hurðir Tvær hurðir
70x59,8x 146x55x58 cm
58,8 cm
Verð nú kr.
41.900.-
Þú sparar kr. _
10.000.
DC336
Verð áður kr.
79.900.
kæliskápur m/frysti
Verð nú kr.
Einnig á
frábæru vefði:
EdesaS115
undirborðsskápur
85x55#3x57cm
Verð nú kr. 24.900.-
Verð áður kr. 32.900.-
Þú sparar kr. 8.000.-
Edesa S223
Kæli/frystisk.1 hurð
109x55x58 cm
Verð nú kr. 34.900.-
Verð áður kr. 42.900.-
Þú sparar kr. 8.000.-
Edesa C337
Kæli/frystisk.
2 hurðir/2pressur
170x59,8x58 cm
Vetð nú kr. 59.900.-
Verð áður kr. 79.900.-
Þú sparar kr. 20.000.-
. EDD-226 iiyiUIU.IHInMJMIfc
Verð áður kr.
48.900.-
.rvdiOo
Þú sparar kr. _
30.000
ÞÚ L uu.uu sparar kr «#■ rkálf1 m i .
Ein h 123x iurð 55x58
^/kið
Kæliskápur m/frysti
170x59,5x58 cm
Ath. Öl
verð eru staðgreiðsluverð
RílFTíEKOflPERZLUN ÍSLílNDSEE
- AN NO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776