Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 1999
7
sandkorn
Vilja LÍÚ út
Það er lítil ánægja innan Vinnu-
veitendasambands íslands með veru
Landssambands islenskra útgerðar-
manna innan samtakanna. Sérstak-
lega eru forsvars-
menn iðnaðarins
óhressir með
Kristján Ragnars-
son og félaga sem
þeir segja að
greiði aðeins 5
milljónir króna
árlega á móti 40
milljónum
þeirra. Þetta sé
alvarlegt í ljósi þess að öll mál inn-
an VSÍ séu afgreidd með sátt og þar
skipti fátækt eða ríkidæmi ekki
máli. Vandinn er sá að mati iðnað-
armanna að útgerðarmenn séu alltaf
þversum og erfitt að kreista fram
sættir í ýmsum málum. Best væri
því að þeir fyndu sér annan vett-
vang með 5 milljónirnar sínar...
Frekar morð
Árshátíð Önflrðingafélagsins var
haldin um síðustu helgi með stæl.
Miklu var til tjaldað, enda félagið
eitt hið öflugasta á landinu og vand-
fundnir þeir íslend-
ingar sem Björn
Ingi Bjarnason
formaður hefur
ekki talið eiga er-
indi í félagið.
Heiðursgestur há-
tíðarinnar var
Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrr-
verandi forseti ís-
lands, sem umsvifalaust var tekin
inn sem félagi. Séra Gunnar
Björnsson, sóknarprestur í Holti,
fór á kostum þar sem hann rifjaði
upp eitt og annað. Hann lýsti því
meðal annars að hann hefði rætt
við háaldraða konu sem um rúm-
lega hálfrar aldar skeið hafði búið í
erfiðu hjónabandi. Séra Gunnar
spurði hana hvort henni hefði
aldrei dottið í hug skilnaður: „Nei,
aldrei!" svaraði gamla konan af
þunga en bætti svo við: „En mér
hefur oft dottið morð í hug...“
Nýr bjargvættur
Örlög Guðjóns A. Kristjánsson-
ar, varaþingmanns Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum, hafa vakið
mikla athygli. Hann féll sem kunn-
ugt er fyrir hinni
gjörvilegu og skel-
eggu Ragnheiði Há-
konardóttur sem er
hinn nýi bjargvætt-
ur sem standa skal
þétt við hlið gamla
bjargvættarins,
Einars Odds
Kristjánssonar.
Ekki eru allir sáttir við vegsemd
Ragnheiðar sem er eiginkona Guð-
bjartar Ásgeirssonar, skipstjóra á
þýska togaranum Guðbjörgu ÍS sem
forðum var flaggskip ísfirðinga.
Andskotar Ragnheiðar telja að hún
eigi sinn hlut í því að Guggunni var
breytt í hlutabréf hjá Samherja. Hún
sé því ekki sá bjargvættur sem Vest-
firðingar þurfi á erfiðleikatímum...
Hljóður
í öllu írafárinu í kringum menn-
ingar- og holræsaför Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra
og Alfreðs Þorsteinssonar borgar-
fuUtrúa til Japans
hefur vakið athygli
að borgarfulltrúar
sjálfstæðismanna
hafa hver um ann-
an þveran lýst
ógeði sínu á
meintri spilling-
arför til Mitsubis-
hi. Vilhjálmur Þ.
hjálmsson, fulltrúi D-listans, hefur
ekki sagt múkk um ferðina, enda
talið að hann vilji ekki styggja sinn
góða vin, Alfreð Þorsteinsson.
Innan borgarstjórnar er mikið rætt
um vináttu þeirra félaga sem sam-
eiginlega kallast gjarnan ViUreð...
Umsjón: Stefán Ásgrímsson
Netfang: sandkom @ff. is
Fréttir
Hrossabændur bíta
í skjaldarrendur
- óvenju margar sölusýningar í vetur
Sala á hrossum dróst saman í
fyrra í kjölfar hitasóttar í íslenska
hrossastofninum.
Hrossabændur ætla þó ekki að
gefast upp, hafa bitið í skjaldarrend-
ur og snúið bökum saman tU að
reyna að auglýsa vöru sína og selja.
Að sögn Huldu G. Geirsdóttur hjá
félagi hrossabænda hafa óvenju
margar sölusýningar veriö og verða
í vetur, jafnt hjá einstaklingum sem
samtökum.
í Skáney í Borgarfirði og hrossa-
búinu Hindisvík í Mosfellsbæ voru
sölusýningar í vetur, í Reiðhöllinni
á Ingólfshvoli í Ölfusi verður sölu-
sýning aUa laugardaga og Skagfirð-
ingar og Austur-Húnvetningar eru
að undirbúa sýningar. Mjög líklega
verða sýningamar fleiri.
„Það hafa verið að seljast hross í
vetur, þó ekki í bunkum," segir
Hulda.
„Sölusýningar hafa ekki verið
reyndar að ráði á síðustu tveimur
til þremur árum en nú er komið líf
í hrossabændur og þessar sölusýn-
ingar eru tilraun til að opna mark-
aðinn á ný. Það er mjög jákvætt en
ljóst að það þarf þolinmæði tU að
halda þessu áfram,“ segir Hulda og
viU minna á að Félag hrossabænda
er að taka í notkun vefsíðuna
www.stak.is/fhb
Verðlögðum hvert ár á
25.000 krónur
Birna Hauksdóttir og Bjarni
Marinósson í Skáney héldu sýn-
ingu í reiðhöUinni í Skáney 21.
febrúar síðastliðinn.
„Við erum mjög ánægð með út-
komuna," segir Birna.
„Það komi fiöldi fólks, meðal
annars fólk sem við höfum ekki
séð fyrr. Við giskum á 70 tU 100
manns.
Við sýndum 37 hross, öU fædd í
Skáney nema eitt, og voru 14
þeirra tamin. Við verðlögðum
hrossin á 25.000 krónur á hvert ár
og seldum fjögur hross.
Tömdu hrossin voru sýnd í reið
en hin tvö og tvö saman og kynnt-
um við þau. Svo var fólki boðið í
kaffi og kleinur.
Það er nauðsynlegt að láta vita
af sér og við vorum mjög ánægð
með sýninguna," segir Birna.
Sýningar allan ársins hring
á Suðurlandi
Hrossaræktarsamtök Suðurlands
standa að sýningum á Ingólfshvoli
fyrsta laugardag í hverjum mánuði.
Jón Finnur Hansson er í forsvari
fyrir samtökin.
„Við ætlum að halda úti þessum
sýningum aUan ársins hring á meðan
einhver áhugi er fyrir hendi,“ segir
hann.
„Við höfum auglýst þessar sýning-
ar í útlöndum og sýnum í nýju reið-
höUinni aUs konar hross. Einni sýn-
ingu er lokið en fljótlega kemur i ljós
hvers konar hrossum er verið að leita
að. Þátttökugjald er 500 krónur og
geta aUir komið og prófað og skoðað
hrossin.
Á fyrstu sýningunni voru ekki mörg
hross, um það bU 20, aUt að keppnis-
hrossum, en um 100 manns komu að
kikja á þau. Það seldist ekki mikið en
þetta er byrjunin," segir Jón Finnur.
Karlakórinn syngur fyrir
sýningargesti
Hrossaræktarsamband Skaga-
fjarðar hyggst sýna hross í reiðhöU-
inni í Kópavogi laugardaginn 20.
mars klukkan 17.00.
„Við verðum stífir á gæðum og
fórum með góð hross sem eru tamin
og verða sýnd í reið,“ segir Ingimar
Ingimarsson, tamningamaður í
Skagafirði.
„Þau verða ekki endilega mörg,
svona 10 til 20. Við Elvar Einars-
son og Guðmundur Sveinsson
munum velja hrossin.
Það er nauðsynlegt að minna á
að við erum til. Þessu fylgir kostn-
aður en menn vfija leggja þetta á
sig.
Karlakórinn Heimir er i söngför
á Suðurlandi og slæst í hópinn
með okkur og syngur nokkur lög,
enda eru hrossabændur í kórnum.
Það var ákveðið að gera þetta
svona saman og vera með öðruvisi
sýningu, ekki sist sem auglýsingu
fýrir Skagafjörð," segir Ingimar
Ingimarsson.
Öll umræða hefur áhrif
Samtök hrossabænda í Austur-
Húnavatnssýslu verða með sölu-
sýningu í reiðhöllinni á Þingeyr-
um laugardaginn 10. aprU og hefst
hún klukkan 14.00.
Björn Magnússon á Hólabaki
telur að öU umræða hafi áhrif.
„Framboð á hrossum er mikið i
landinu og það er nauðsynlegt að
kynna hvað tU er. Við ætlumst tU
að hrossin á sýningunni séu eitt-
hvað tamin og verður þeim skipt í
verðflokka. Við erum að leita að
fiölbreytni þannig að fólk geti
fundið hross við sitt hæfi. Ægir
Sigurgeirsson í Stekkjardal mun
sjá um skráningu og hefur verið
rætt um að forskoða hrossin og
kynna sér þau.
Við vorum með sýningu árið
1997 og tókst vel tU, þó svo að veðr-
ið hafi verið það slæmt að fólk
komst ekki langt að. Það seldist
töluvert á sýningunni og í kjölfar
hennar," segir Björn.
Sýning Hundaræktarfélags íslands var haldin í reiðhöllinni í Kópavogi um helgina. Besti hundur sýningarinnar var
valinn þýskur fjárhundur, ís.m. Gildewangen’s Aramis, fæddur í Noregi. Ræktandi er Wanberg Hilde. Eigandi er Hjör-
dís H. Ágústsdóttir sem sést hér ásamt Terry Thorn, dómara frá Englandi.
DV-mynd Arnheiður