Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1999, Side 15
Lífleg unglingastarfsemi hjá Skákfélagi Akureyrar:
Unglingastarfsemin hjá Skákfélagi Akureyrar hefur verið líf-
leg í vetur ogfjöldi efnilegra barna og unglinga leggur þar
stund á þessa skemmtilegu íþrótt hugans. Tilveran leit inn í
skákheimilið við Þingvallastræti og ræddi við þrjá unga meist-
ara og leiðbeinanda þeirra, Rúnar Sigurpálsson.-gk
Margir skák-
menn í ættinni
- segir Stefán Steingrímur Bergsson
P g var 6 ára þegar ég byrjaði að
K tefla. Það eru margir skák-
menn í ættinni minni og þetta
byrjaði þannig að pabbi kenndi mér
mannganginn,“ segir Stefán Stein-
grimur Bergsson en hérnn er Akur-
eyrarmeistari í unglingaflokki hjá
Skákfélagi Akureyrar.
Stefán segir að fljótlega eftir að
pabbi hans kenndi honum mann-
ganginn hafi hann farið að stunda
skákæfingar í skólanum og átta ára
var hann genginn í Skákfélag Akur-
eyrar og farinn að stunda æfrngar
þar einnig.
„Mér hefur yfirleitt gengið mjög
vel og ég hef unnið marga titla í
yngri flokkunum en ekki neinn í
eldri flokknum enn þá. Ég ætla að
halda áfram að æfa mig og tefla á
meðan ég hef gaman af þessu en ég
hef ekki sett stefnuna á neitt ákveð-
ið eins og það að verða meistari eða
svoleiðis."
Stefán segir að í hverri viku sé
hann í um 15 klukkustundir við æf-
Stefán Steingrímur Bergsson:
„Byrjaði að tefla 6 ára.“
DV-mynd gk
ingar eða keppni og um uppáhalds-
skákmenn sína segir hann: „Það er
enginn sérstakur í uppáhaldi nema
þá Bobby Fischer ef einhver er og
svo auðvitað bara ég sjálfur." -gk
Jón Heiðar Sigurðsson: „Skemmtilegast að vinna.'
6 | | | !L II
7 G 5 \ 4 * —-Vfc-:: i 0 í 3 twuas _ ' 1
n «****«. L_
JJ .
1 r
L 1‘
Rúnar Sigurpálsson útskýrir leyndardóma skákarinnar fyrir stórstjörnum framtíðarinnar. DV-mynd gk
Unglingastarfið er á
mikilli uppleið
- segir leiðbeinandinn, Rúnar Sigurpálsson
að eru á bilinu 20 til 30 ung-
ir skákmenn á aldrinum
8-15 ára sem æfa hjá okkur
reglulega og svo er mikill fjöldi sem
æfir skák í grunnskólunum, t.d. um
40 strákar i Lundarskóla," segir
Rúnar Sigurpálsson en hann er leið-
beinandi og umsjónarmaður bama-
og unglingastarfsins hjá Skákfélagi
Akureyrar.
Æfingar eru tvisvar í viku. Á
annarri þeirra er fyrirlestur eða
hópvinna og síðan er teflt í stiga-
móti en á hinni æfingunni er
gjaman farið yfir skákir sem nem-
endumir hafa teflt sjálfir, þeim er
þá bent á hvað betur hefði mátt
fara hjá þeim og ýmislegt lagfært.
„Bama- og unglingastarfið er á
uppleið hjá okkur. Við eigum
stigahæstu unglinga landsins og
það virkar auðvitað hvetjandi á
alla hina. Því miður hefur okkur
hins vegar haldist illa á stelpunum
en þær vilja hætta þegar þær em
orðnar 16-17 ára og önnur áhuga-
mál taka við. Þetta þyrfti að laga
en framtíðin er björt hjá okkur,"
segir Rúnar. -gk
Maður verður að
hafa markmið
segir Ágúst Björnsson
Ég fékk tafl í jólagjöf þegar ég
var 7 ára og þá byrjaði ég
strax að læra mannganginn
og að tefla. Mér fannst þetta strax
mjög skemmtilegt og fór strax í
Skákfélagið þegar ég sá auglýsingu
í blaði þar sem auglýst vora nám-
skeið," segir Ágúst Björnsson.
Hann er 10 ára og meistari Skákfé-
lags Akureyrar í 10-12 ára flokki.
„Ég er alltaf með í mótum í mín-
um aldursflokki og einstaka sinn-
um í fullorðinsflokknum. Félags-
skapurinn í kringum þetta er mjög
skemmtilegur en það sem skiptir
mestu máli er að skákin er svo
skemmtileg að maður getur alveg
gleymt sér yfir henni.
Ég stefni að því að verða skák-
meistari og síðan stórmeistari.
Maður verður að hafa einhver
markmið til að stefna að. Þá geng-
ur manni örugglega betur,“ sagði
þessi ákveðni ungi meistari að lok-
um.
-gk
Ágúst Bjömsson: „Ætla að verða
stórmeistari." DV-mynd gk.
Mér finnst rosalega gaman að
tefla skák og auðvitað er
skemmtilegast að vinna,"
segir hinn 8 ára gamli skákmeistari,
Jón Heiðar Sigurðsson, en hann er Ak-
ureyrarmeistari í flokki 9 ára og yngri.
Jón Heiðar er búinn að tefla skák i
2-3 ár og segir að sér hafi farið mikið
fram á þeim tíma „Ég er búinn að vera
í Skákfélaginu í svona eitt ár og hef
lært mikið hér. Ég held að mér hafi far-
ið mikið fram og bróðir minn, sem er
einu ári eldri, hefur kennt mér mikið.
Ég held að ég hafi lært mest af honum."
Jón Heiðar segist einnig æfa knatt-
spymu hjá KA en hann segist alveg
ákveðinn að halda áfram í skákinni.
„Það er alveg öruggt að ég verð í skák-
inni áfram á meðan ég hef gaman af
þessu. Mér finnst skemmtilegast að
tefla miðtaflið, það er einhvem veginn
það sem ég kann best við.“
Og þegar hann var spurður um upp-
áhaldsskákmann sinn stóð ekki á svar-
i: „Það er Rúnar Sigurpálsson sem
kennir okkur."
-gk