Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1999, Síða 21
20
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 1999
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 1999
21
íþróttir
Bland í poka
Steve Elkington frá Ástralíu bar sig-
ur úr býtum á PGA móti í golfi sem
lauk í Miami í fyrrinótt. Elkington
lauk keppni á 275 höggum. Annar
varö Bandarikjamaðurinn Greg
Kraft á 275 höggum og jafnir i þriðja
sæti á 276 höggum uröu David
Thomas, Tommy Armour, Jay
Haas, Ernie Els og Scott Dunlap.
Aron Kristjánsson og félagar hans í
Skjern eru i öðru sæti dönsku A-
deildarinnar í handknattleik. Skjern
gerði um helgina jafntefli, 20-20, gegn
Virum á útivelli og meistarar GOG
gerðu sömuleiðis jafntefli, 21-21, gegn
FIF. GOG er með 28 stig í efsta sæti,
Skjem 26 og Helsinge 25.
Tómas Ingi Tómasson lék síðustu 25
mínútumar í liði AGF og Ólafur H.
Kristjánsson síðustu 10 mínútumar
þegar liðið lagði AaB, 1-0, í dönsku
A-deildinni í knattspymu um helg-
ina.
Boóhlaupió með ólympíukyndilinn
fyrir leikana í Sydney á næsta ári
hefst í maí eftir rúmt ár. Hlaupið
verður með kyndilinn 27 þúsund kíló-
metra leið áður en ólympíueldurinn
verður tendraðor á ólympíuleikvang-
inum þann 15. september. Aldrei í
sögu ólympíuleikanna hefur verið
hlaupin jafnlöng leið með kyndilinn.
Forráóamenn Ferrari-liðsins í For-
mula 1 kappakstrinum hafa haldið
sig á jörðinni þrátt fyrir sigur írans
Eddie Irvine. „Við vitum nákvæm-
lega hvemig staðan er. McLaren bíl-
arnir era enn þeir Ðjótustu og
McLaren-liðið er það lið sem við þurf-
um að sigra. Þessi keppni er rétt að
byija. Viö eram mjög ánægðir með
að Irvine tókst að sigra, hann átti það
svo sannarlega skilið," sagði Ferrari-
maðurinn.
Helgi Kolviósson og félagar i Mainz
unnu góðan sigur á Bielefeld, 3-1, í
þýsku B-deildinni í knattspymu 1
gærkvöld. Mainz komst þar með í 7.
sætið með 32 stig en efst em Unter-
haching með 42 stig, Fúrth með 41 og
Bielefeld með 39 stig. Helgi kom inn á
sem varamaður undir lok leiksins en
hann missti af næsta leik á undan
vegna meiösla. Hann fór til Lúxem-
borgar strax eftir leikinn til móts við
íslenska landsliðshópinn sem kom
þar saman í gær fyrir leikinn viö
Lúxemborg annað kvöld.
Guöjón Þórðarson landsliðsþjálfari
sagði við DV í gærkvöld aö allir
landsliðsmennimir hefðu skilað sér
heilir til Lúxemborgar eftir leiki
helgarinnar. Ljóst var áður að fjórir
gætu ekki leikiö, Siguröur Jónsson,
Stefán Þ. Þóröarson og Pétur Mar-
teinsson eru meiddir og Þóröur
Guójónsson spilar með Genk sama
kvöld. Það snjóaði í Lúxemborg í
gærkvöld þannig að vallarskilyrðin
þar annað kvöld gætu orðið erfið.
Ómar Bendtsen, knattspyrnumaður
úr Fylki, er genginn til liös við 2.
deildar lið KS frá Siglufirði.
Fylkismenn hafa hins vegar fengiö
til sín Júgóslavann Zoran Stosic sem
hefur leikiö með Ægismönnum i 2.
deild undanfarin ár.
Kvennaliös Vals í knattspymu hefur
fengið til sin tvo máttarstólpa 1.
deildar liðs tBA frá Akureyri. Þaö
era markaskorarinn Erna Lind
Rögnvaldsdóttir og systir hennar,
markvörðurinn Þóra Reyn Rögn-
valdsdóttir.
Björn Jakobs-
son, knatt-
spymumaður úr
KR, dvelur þessa
dagana viö æf-
ingar hjá enska
D-deildar liðinu
Brentford, liði
Hermanns
Hreióarssonar.
Norska kvennahandknattleiksliðiö
Bækkelaget var með taprekstur sem
nam um 12 milljónum íslenskra
króna á síðasta ári. Þar vega þyngst
kaupin á suöur-kóresku landsliðskon-
unni Jeong-Ho Hong og launa-
greiðslurnar sem Anja Andersen,
besta handknattleikskona heims, fær
hjá félaginu.
Celtic vann Greenock Morton, 3-0, í 8
liða úrslitum skosku bikarkeppninn-
ar í knattspymu í gærkvöld. Mark
Viduka 2 og Henrik Larsson gerðu
mörkin. Celtic mætir sigurvegaran-
um í leik Ayr og Dundee United í
undanúrslitum.
Hafnaboltaleikarinn Joe DiMaggio,
einn dáðasti íþróttamaður I sögu
Bandaríkjanna, lést i gær, 84 ára að
aldri.
-GH/SK/VS
Miljkovic í vanda
Rúnar Alexandersson ekki á leið til Svíþjóðar:
Samningsbundinn
Gerplu út 2000
- segir Árni Þór Árnason, formaður Fimleikasambands
„Það hafa af og til komið fram
fréttir í sænskum fjölmiðlum þess
efnis að Rúnar ætli að keppa fyrir
Svía og hann vilji verða Svíi. Við
kippum okkur ekki upp við þetta
enda vitum við betur,“ sagði Árni
Þór Ámason, formaður Fimleika-
sambands íslands, í samtali við DV.
í DV í gær var greint frá viðtali í
sænska sjónvarpinu í fyrrakvöld
þar sem Rúnar sagði það sinn
stærsta draum að keppa fyrir Sví-
þjóð. Nýverið lýsti Rúnar því yfir í
DV að hann væri íslendingur,
myndi keppa fyrir ísland og ekki
stæði til að breyta því.
„Staðreyndin er sú að Rúnar er
samningsbundinn Gerplu út árið
2000. Hann mun örugglega keppa
fyrir ísland á þeim tima. Hvað þá
tekur við veit enginn. Þaö er mikið
til undir okkur sjálfum komið hvort
Rúnar keppir áfram fyrir ísland eft-
ir árið 2000. Þetta er vitskuld dýrt
og það er ekki útilokað að Rúnar
keppi einhven tímann fyrir aðra
þjóð en ísland. Ég er þó bjartsýnn á
að svo verði ekki og að við verðum
svo heppin að halda þessum frá-
bæra íþróttamanni sem íslenskum
ríkisborgara. Hitt er svo ljóst að
Svíar munu halda áfram að reyna
að krækja í hann. Þá vantar hann í
sitt landslið fyrir heimsmeistara-
mótið í Kína eins og margoft hefur
komið ffam í sænskum fjölmiðl-
um,“ sagði Árni Þór Ámason.
Sviar virðast eiga afar erfitt með
að sætta sig við orðinn hlut hvað
Rúnar varðar, Völu Flosadóttur og
einnig íslandsmeistarann í bad-
minton, Tómas Garðarson. Þeir geta
með engu móti sætt sig við þjóðemi
þessa íþróttafólks og eflaust eiga eft-
ir að birtast fleiri öfundarfréttir í
sænskum fjölmiðlum í framtíðinni
um Rúnar, Völu og Tómas.
Fjögurra mánaða viðtal
Kristján Erlendsson, formaður
Gerplu, sagði einnig að Rúnar væri
samningsbundinn Kópavogsfélag-
inu út næsta ár.
„Viðtalið sem Svíamir sýndu við
Rúnar var ekki nýtt, heldur tekið
fyrir fjórum mánuðum. Á þeim tíma
var Rúnar að æfa í Svíþjóð og var
beittur geysilegum þrýstingi um að
gerast Svíi,“ sagði Kristján við DV.
-SK/VS
Hrafnhildur og Helga:
Höfnuðu Sola
og stefna í FH
Hrafhhildur Skúladóttir og Helga Torfadóttir, landsliðs-
konur í handknattleik, höfnuðu í gær nýju tilboði ffá
norska félaginu Sola sem vildi fá þær til sín frá Bryne.
Þar með er ljóst að þær leika hér á landi næsta vetur eft-
ir eins árs dvöl í Noregi og væntanlega spila þær báðar
með FH. Hrafnhildur lék með FH áður en hún fór til Nor-
egs og hefur ákveðið að fara aftur þangað. Helga varði
mark Víkings en reiknar með því að fylgja með í Hafnar-
fjörðinn. Báðar voru þær í lykilhlutverkum hjá Bryne í
vetur og þóttu sterkustu leikmenn liðsins. -ih/VS
Metaleikur
Keflavík vann sinn 26. heimaleik í röð og þann 18. í röð
í úrvalsdeildinni i körfúbolta á sunnudag er Þórsarar
komu í heimsókn til Keflavíkur. Þetta var jöfnun á félags-
meti yfir flesta heimasigra í röð í deildinni en liðið tryggði
sér deildarmeistaratitilinn í þessum leik. Keflavíkurliðið
jafnaði og setti önnur met í þessum leik en 138 stig liðsins
í leiknum er fimmta hæsta skor eins liðs í venjulegum
leiktima í sögu úrvalsdeildar.
Keflvíkingar eiga þar metið, geröu 149 stig gegn Tinda-
stóli 6. mars 1997 og eiga nú 6 af 7 hæstu skorum í einum
leik í úrvalsdeild.
Keflavíkurliðið gerði 24 þriggja stiga körfur í leiknum
sem jafnar met það sem Grindvíkingar settu fyrr í vetur
gegn Val á Hlíðarenda. Ennfremur hefur Keflavík skorað
258 3ja stiga körfúr í 21 leik í vetur (Damon Johnson 54,
Falur Harðarson 51, Guðjón Skúlason 42, Hjörtur Harðar-
son 47, Gunnar Einarsson 45, Kristján Guðlaugsson 19).
Þetta gerir 12,3 körfúr að meðaltali í leik og er nýtt met
þrátt fyrir að liðið eigi einn leik eftir því Keflavík gerði
mest áður 256 körfur í 22 leikjum 1996-97 eða 11,6 að með-
altali í leik. Það var metið en Keflavíkurliðið hefur nú gert
tveimur fleiri og hefur því eignast metið þrátt fyrir að ein-
um leik sé enn ólokið. -ÓÓJ
Héðinn
skoraði sjo
Héðinn Gilsson átti mjög góðan leik með Bayer
Dormagen þegar liðið sigraði Eintracht Wies-
baden, 26-28, á útivelli í þýsku B-deildinni í
handknattleik um helgina. Héðinn skoraði 7
mörk og var markahæstur í liði Dormagen. Ró-
bert Sighvatsson skoraði 2 mörk en Daði Haf-
þórsson komst ekki á blað.
„Þetta var einn af betri leikjum mínum í vetur. Aldrei þessu vant var
lítið um hraðaupphlaup hjá okkur og það gaf manni meira tækifæri á að
spila í sókninni. Við erum í harðri baráttu við Willstatt og úrslitin í riðl-
inum ráðast sennilega þegar við mætum þeim í lokaumferðunum," sagöi
Héðinn Gilsson við DV í gær.
Dormagen er með 47 stig í efsta sætinu, Willstátt er með 46 stig en lið-
ið gerði óvænt jafntefli gegn Saarbrúcken um helgina, 24-24, Gústaf
Bjamason lék ekki með Willstatt vegna veikinda. Leuterhausen er svo í
þriðja sætinu með 42 stig. -GH
Suhr á leið í gjaldþrot
- Lee á leiðinni til Amicitia Zíirich
Svissneska handknattleiksfélagið
Suhr, sem Júlíus Jónasson lék með
fyrir tveimur árum, er mjög illa
statt fjárhagslega og flest bendir til
þess að félagið verði úrskurðað
gjaldþrota í lok leiktíðarinnar.
Suhr, sem er í öðru sæti úrslita-
keppninnar, skuldar um 50 milljón-
ir króna og eins og staðan er í dag
virðist ekki vera hægt aö forða lið-
inu frá gjaldþroti.
Kóreumaðurinn Suk-Hyung Lee,
sem lék í marki FH á síðasta keppn-
istímabili, leikur í marki Suhr og
samkvæmt heimildum DV hefur
hann ákveðið að ganga í raðir
Amicitia Zúrich, liðsins sem Gunn-
ar Andrésson leikur með. -GH
Arnar Hrafn Jóhannsson
skoraði fyrir Víking í gær.
Tvö mörk
frá ívari
Fram sigraði Fylki, 2-0, í
fyrstu umferð Reykjavíkur-
mótsins í knattspyrnu á
Leiknisvelli í gærkvöld.
ívar Jónsson, sem Fram
fékk frá HK í vetur, skoraði
bæði mörk liðsins.
Víkingur vann Létti, 3-0,
á Leiknisvelli. Viktor Bjarki
Amarsson (16 ára), Amar
Hrafn Jóhannsson og Daníel
Hafliðason skomðu mörkin.
ÍR vann Fjölni, 1-0, á
gervigrasinu í Laugardal.
Kristján Haildórsson skor-
aði markið úr vítaspymu
undir lokin.
-VS
Eyjamenn gætu orðið fyrir miklu áfalli:
- veittist aö dómara - bíður leikbanns sem gæti haft áhrif hér á landi
Zoran Miljkovic, vamarmaðurinn
öflugi sem leikur með Eyjamönnum,
er í miklum vandræðum í heimalandi
sínu, Júgóslavíu, eftir atvik í leik
með Zemun gegn Rauðu stjömunni í
A-deildinni þar í landi um helgina.
Þaö atvik gæti komið í veg fyrir að
hann léki með ÍBV hér á landi í sum-
ar. Hann hefúr orðið íslandsmeistari
síðustu fimm ár, fyrst þrjú ár með ÍA
og síöan tvö ár með ÍBV.
Miljkovic var rekinn af velli í
seinni hálfleik þegar hann fékk sitt
annað gula spjald. Þá sauð upp úr hjá
leikmönnum Zemun sem töldu brott-
reksturinn óréttlátan en einnig töldu
þeir að dómarinn hefði áður geflð
Rauðu stjömunni rangstöðumark.
Leikmennimir veittust harkalega
er sú hve mikinn þátt hann verður
talinn eiga í uppþotinu. Verði þáttur
hans talinn minni háttar sleppur
hann með nokkra leiki sem ekki hafa
áhrif á íslandsfor hans í vor.
En verði hann fundinn sekur um
að slá dómarann verður bannið langt,
jafhvel 1-2 ár samkvæmt heimildum
DV í Júgóslavíu og þá gildir það alls
staðar og kemur í veg fyrir að hann
leiki með ÍBV eins og samið hafði
verið um.
Fyrirhugað var að Miljkovic kæmi
til móts við Eyjamenn um páskana
þegar þeir fara í æfmgaferð til Portú-
gals. Þeir bíða nú með öndina í háls-
inum eftir frekari fréttum frá
Júgóslavíu. -VS
að dómaranum og
samkvæmt frétta-
skeytum fékk hann
bæði hnefahögg og
spörk frá þeim. Leik-
urinn var flautaður
af en staðan var 2-1
fyrir Rauðu stjörn-
una.
í gær var leikurinn
síðan dæmdur Zemun
tapaður, 0-3.
Samkvæmt heim-
ildum DV í Júgó-
slavíu er ekki annað
að sjá af sjónvarps-
myndum en Miljkovic hafi verið einn
þeirra sem veittust að dómaraum.
Hann hafi byrjað á að hrinda honum
og síðan hafi hinir
tekið við.
Sló hann ekki
Knattspyrnumaður
frá Júgóslavíu, sem
leikur hér á landi og
ræddi við Miljkovic í
síma í gær, sagði að
hann hefði sagst ekki
hafa slegið dómarann.
Sama sagði hann við
forráðamenn ÍBV í
gær og bað þá að hafa
ekki áhyggjur.
Aganefnd júgóslav-
neska knattspyrnusambandsins tek-
ur málið fyrir í dag. Telja má víst að
Miljkovic fái leikbann og spurningin
Afram íslenskur
Rúnar Alexandersson er ekki í
þann veginn aö gerast Svíi, að
sögn formanns FSÍ og formanns
Gerplu. Sjónvarpsviðtalið
umdeilda reyndist fjögurra
mánaða gamalt þegar það var
sýnt i sænska sjónvarpinu í
fyrrakvöld.
Snóker:
Brynjar
lagði
Jóhannes
Sjöunda og næstsíðasta
stigamót BiUiardsambands
Islands var haldið um helg-
ina. í meistaraflokki karla
sigraði Brynjar Valdimars-
son en hann hafði betur
gegn Jóhannesi B. Jóhann-
essyni, 5-2. Jafnir í 3.-4.
sæti urðu Gunnar Hreið-
arsson og Amar Petersen.
Jóhannes B. Jóhannesson
átti hæsta stuðið á mótinu,
112.
Þegar einu móti er ólok-
ið er Jóhannes B. Jóhann-
esson með 2100 stig en
Brynjar Valdimarsson
kemur næstur með 2040
stig. Ljóst er því aö 8. og
síðasta stigamótið verður
hreint úrslitaeinvígi þeirra
á milli um það hver verður
stigameistari ársins. Jó-
hannes R. Jóhannesson er
í þriðja sæti með 880 stig,
Ásgeir Ásgeirsson fjórði
með 620 stig og Sumarliði
D. Gústafsson er fimmti
með 600 stig.
í 1. flokki sigraði Ingvi
Halldórsson en hann hafði
betur gegn Magnúsi Jó-
hannessyni, 4-1, og í 2.
flokki fagnaði Guðni Páls-
son sigri en hann lagði
Daníel Pétursson í úrslit-
um, 3-0.
-GH
Tómas í mark ÍR-inga
Tómas Ingason, sem varði mark Stjömunnar í fyrra, gekk í gær
til liðs viö 1. deildar lið ÍR í knattspymu. Hann leikur alla vega með
ÍR-ingum í deildabikamum og Reykjavikurmótinu.
Ólafúr Þór Gunnarsson, markvörður ÍR, er við nám í Bandaríkj-
unum en hann hefur verið orðaður við Skagamenn. Ólafur sagði við
DV í gær að enn væri allt óljóst í þeim málum. -VS/GH
NM í keilu unglinga á íslandi 9. til 13. mars:
Búist viö toppkeilu
Noröurlandamót unglinga í keilu er haldið hér á landi í vikunni upp
í Keiluhöll í Mjódd. Mótið er sett í kvöld klukkan níu en fyrsti keppnis-
dagur er á morgun. Hér er kjörið tækifæri til að sjá framtíðarspilara
Norðurlanda í keilu en búast má við mjög skemmtilegri keppni og háum
skorum hjá þeim allra bestu. Það skiptir líka miklu máli að íslensku
krakkarnir fá að njóta heimavallarins og fái góðan stuðning á mótinu en
vonast er til að góður árangur náist, sérstaklega hjá íslensku strákunum.
Svíar og Finnar eru fyrirfram taldir með bestu spilarana en Svíar hafa
tekið langflest verölaun á þessu móti í gegnum tíðina.
Keppnin fer fram frá miðvikudegi fram á laugardag og stendur hvem
dag frá 8.45 og fram á kvöld.
Mótið er fyrir 18 ára og yngri og hafa 12 krakkar verið valdir til að keila
fyrir hönd íslands. Þeir koma úr þremur félögum, KFR (9), Keflavík (2)
og KR (1), og em eftirtaldir:
Dagný Edda Þórisdóttir, KFR, Jóna Kristbjörg Þórisdóttir, KFR, Karen
Rúnarsdóttir, Keflavík, Matthildur Gunnarsdóttir, KFR, Sigurborg Har-
aldsdóttir, Keflavik, Súsanna Knútsdóttir, KFR, Björgvin Harðarson,
KFR, Hjörvar Ingi Haraldsson, KFR, ívar G. Jónasson, KFR, Magnús
Magnússon, KFR, Steinþór Geirdal Jóhannsson, KR, Þórhallur Hálfdán-
arson, KFR. Þjálfarar liðsins eru þau Mats Wetterberg og Theódóra
Ólafsdóttir.
Unglingalandsllöið í keilu sem tekur þátt í Norðurlandamótinu.
^ Fulltrúar í bandarísku ólympíunefndinni um Juan Antonio Samaranch:
A að segja af sér
FuUtrúar í bandarísku ólympíu-
nefndinni (IOC) hafa greint frá því
að Spánverjinn Juan Antonio Sam-
aranch, forseti Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, eigi að segja strax af
sér embætti í kjölfar spillingar- og
mútumála innan nefndarinnar.
Undanfarnar vikur og mánuði
hafa hinar og þessar nefndir verið
að rannsaka spillingu og mútur
innan IOC og hefur þar ýmislegt
misfagurt litið dagsins ljós.
Þann 17. og 18. mars mun öll
IOC-nefndin koma saman í höfuð-
stöðvum sínum í Lusanne í Sviss.
Þar mun Juan Antonio Samaranch
fara fram á stuðning til áframhald-
andi drottnunar innan IOC. Hann
hefur lýst því yfir að hann vilji fá
stuðningsyfirlýsingu á fundinum
og hann mun fá hana.
Samaranch valdi sjálfur 92
fulltrúa af 114
í dag á Samaranch vísan stuðn-
ing mikils meirihluta fulltrúanna
114 sem sitja í IOC.
Sú staðreynd þarf ekki að koma
á óvart þar sem Samaranch valdi
sjálfur 92 fulltrúa af þeim 114 sem í
nefndinni sitja. Um flmmtungur
fulltrúanna hefur verið sakaður
um grófa spillingu og að hafa þegið
mútur í tengslum við staðarval
ólympíuleika.
Það er talið skýrt merki um
stöðu mála innan IOC að sá maður
sem Samaranch styður helst til
þess að taka við af sér sem forseti
nefhdarinnar er Suður-Kóreumað-
urinn Kim Un Yong. Hann hefur
nú verið sakaður um grófa spill-
ingu í tengslum við baráttu Salt
Lake City við að fá leikana að vetri
til 2002.
Á meðal þess sem Yong er sakað-
ur um er að hafa selt atkvæði sitt
gegn því að dóttir sín fengi að leika
á píanótónleikum í Salt Lake City.
Sjálfur hefur Samaranch forseti
þverbrotið leikreglur IOC. Hann
hefur þegið rándýrar gjafir frá
borgum sem keppt hafa að því
marki að fá að halda Ólympíuleika.
Fulitrúar IOC mega þiggja gjöf sem
ekki er verðmeiri en sem nemur 10
þúsund krónum.
Forsetinn hefur þegið gjafir sem
eru hundruð þúsunda króna virði.
Upp úr miðjum þessum mánuði
mun forsetinn fá umboð frá
meðlimum sínum í IOC sem hann
valdi sjálfur. -SK
íþróttir
NBA-DEILDIN
Úrslit leikja í nótt:
Miami-76’ers .........91-89
Porter 20, Mourning 15, Brown 13 -
Iverseon 28, Snow 14, Hughes 11.
Orlando-Atlanta.......110-114
Anderson 34, Hardaway 16,
Willkins 15 - Smith 24, Henderson
19, Mutombo 18.
Detroit-Washington .... 75-71
Hill 19, Vaught 18, Hunter 16 -
Richmond 22, Howard 14, Mcinnis
10.
Millwaukee-Chicago . . . 81-76
Allen 17, Brandon 14, Robinson 10,
Curry 10 - Barry 19, Brown 18,
Kukoc 17.
Vancouver-Portland . . . 73-92
Rahim 19, Lopez 12, Bibby 11 -
Jackson 21, Grant 14, William 11.
Úrslit leikja í fyrrinótt:
76’ers-Washington .... 95-103
Iverson 30, Ratliff 16, Lynch 11 -
Howard 28, Richmond 22, Thorpe
14.
Toronto-Boston..........105-92
Carter 26, Christie 17, Willis 15 -
Walker 29, Mercer 22.
Utah-LA Lakers ..........89-97
Malone 34, Stockton 16, Hornacek
14 - Bryant 24, O’Neal 23, Fisher 20.
Denver-San Antonio . . . 96-106
Mcdyess 29, Van Exel 18 - Duncan
34, Robinson 16, Jackson 12.
Portland-Houston.......111-71
Rider 21, Jackson 14 - Olajuwon 16,
Barkley 10, Pippen 10.
Sacramento-Dallas.......94-89
Webber 18, Williamsson 15, Divac
12 - Trent 18, Finley 18, Davis 17.
Seattle-Minnesota........77-87
Payton 20, Ellis 12, Owens 11 -
Garnett 19, Sealy 18, Mitchell 16.
-JKS
ENGLAND
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, og
Gianluca Vialli, stjóri Chelsea, em
sammála um að sigurvegarinn I bik-
arleik liðanna um síðustu helgi hafi
verið meistarar Arsenal. Báðir em
mjög ósáttir við að leika þurfi annan
leik og segja aö þegar svo langt sé liö-
ið á tímabilið skipti hver leikur máli.
United leikur á ný gegn Chelsea í
bikamum annað kvöld en liðin gerðu
markalaust jafntefli á Old Trafford sl.
sunnudag. Chelsea á ekki góðar
minningar frá viðureign sinni gegn
United í bikamum á Stamford Bridge
í fyrra. United komst þá í 0-5 á
heimavelli Chelsea og sigraðiað lok-
um 3-5. Chelsea hefrn- aðeins unnið
sigur I einum leik af síðustu átta
viðureignum liðanna i bikamum.
ítalski knattspymumaðurinn Pier-
luigi Casiraghi er dýrasti leikmað-
urinn sem Chelsea hefur keypt. Hann
hefur ekkert leikið með Chelsea síð-
an í nóvember 1 fyrra en þá meiddist
hann mjög illa í leik gegn West Ham.
Casiraghi sleit liðbönd í hné og þarf
enn að ganga við hækjur.
Talið var að Casiraghi gæti farið að
leika með Chelsea um það leyti sem
keppnistímabilið næsta haust hæfist
en nú er Ijóst að svo verður ekki:
„Þetta hefur gengið mjög rólega enda
eru þetta mjög erfið meiðsli. Þetta
tekur greinilega lengri tíma en fyrst
var talið og ég reikna með að geta far-
ið að sparka bolta um næstu áramót,"
sagði Casiraghi.
Dennis Viollet, einn leikmanna Man-
chester United sem liíðu af tlugslysið
í Múnchen 1958, lést á sunnudag, 65
ára að aldri, af völdum heilaæxlis.
Viollet á markamet United á einu
tímabili, 32 mörk 1 A-deildinni 1959-
60. Hann gerði á annað hundrað
marka fyrir félagið og skoraði síðan
grimmt fyrir Stoke.
Highbury, heimavöllur Arsenal, er
besti völlurinn í A-deildinni sam-
kvæmt skoðanakönnun sem gerð var
meðal þjálfara og birt í gær. Af 20
þjálfurum telja 15 að á Highbury séu
bestu vallarskilyrðin í deildinni.
Tveir gáfu The Dell, heimavelli Sout-
hampton, atkvæði sitt en þrtr vellir
fengu eitt atkvæði hver.
-SK/VS