Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1999, Page 36
36
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 1999 DV
ítartöflu-
ugmyndir
„Þetta eru nú gamlar krít-;
, artöfluhugmyndir
, sem hafa oft sést
áður á krítartöfl-
um kennara hér í
i Reykjavík."
Þorsteinn Pálsson
. sjávarútvegsráð-
herra, um tillögur
áhugahóps um
auðlindir, í Morgunblaðinu.
Þjóðarhagsmunum
ekki ógnað
„Er þjóðarhagsmunum ógnað
þó að ég og mínir félagar rekrnn
Áburðarverksmiðjuna í stað
þess að einhverjir þingmenn
eða ráðherrar geri það? Erum
við ekki menn eins og þeir?
Erum við að fara að framleiða
eitthvað verri áburð en þeir? Er
meiri hætta á að við töpum pen-
ingum heldur en þeir? Hvaða
vitleysa er þetta eiginlega? Get-
ur nokkur látið svona út úr sér
nema vera bara eitthvað ga-ga?“
Haraldur Haraldsson í Andra,
iDV.
Skemmtiferðir til Asíu
„Ég er ekki að segja að hús-
[ byggjendum geti
ekki liðið vel í
þeim nærliggjandi
sveitarfélögum
sem straumurinn
liggur til. Ég vil
hins vegar kalla
eftir metnaði fyr-
ir hönd Reykjavíkur.
Til þess eru borgarfufltrúar
kosnir en ekki til þess að fara í
skemmtiferðir til Asíu.“
Júlíus Vifill Ingvarsson borgar-
fulltrúi, í DV.
Hörundsárir
fjölmiðlamenn
„Sfjómmálamenn taka gagn-
rýni misjafhlega vel en verst
þola gagnrýni fjölmiðlamenn.
Þaö eru einkum þeir sem hafa
kveinkað sér undan heimasíðu
minni.“
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra, i Degi.
Engin lægð
svo djúp ...
„Mikilvægast er .að halda
haus og berjast
áfram - það er eng-
in lægð svo djúp
að maður komist
ekki upp aftur.“
Kristinn Björnsson
skíðakappi, í Morg-
unblaðinu.
Skapar æfinginn
meistarann?
„Þetta hefst allt með því að
æfa nógu helv... lítið.“
Sigurður Sveinsson handbolta-
kappi á fertugsafmæli sínu,
í Morgunblaðinu.
Sólrún
Bragadóttlr.
11NJ r=T.
BRIEKf<T
^=1 i='L_f=7l~L.ETNt DI
Sigurður Sveinsson handboltakappi:
Kominn tími til að
leiki í úrslitakeppninni
Lokahnykkurinn í deildarkeppn-
inni í handknattleik verður annað
kvöld, þegar síðasta umferðin verð-
ur leikin. Ljóst er að barist verður
af mikilli hörku um tvö sæti í átta
liða úrslitakeppninni um íslands-
meistaratitilinn. Sex lið hafa þegar
tryggt sér sæti í úrslitunum og fjög-
ur lið eiga möguleika á sæti. Meðal
þeirra er HK, sem hinn fertugi ung-
lingur Sigurður Sveins- _
son stýrir utan vallar
sem innan. Sigurður
hélt upp á fertugsafmæli
sitt með þvi að skora ellefu mörk í
sigri HK á Haukum á sunnudags-
kvöldið og sannaði enn eina ferðina
að hcum er í dag, sem fyrr á árum,
einn besti handknattleiksmaður
lcmdsins. í stuttu spjalli sagði Sig-
urður að nú væri komin mikil
spenna í deildina: „Það má búast
við miklu fjöri annað kvöld og við
mætum með það eitt í huga að sigra
að Hlíðarenda þar sem við leikum
við Val. Þeir yerða einnig að sigra
svo það verðtn* sjálfsagt allt vitlaust
í húsinu og ekkert gefið eftir.“
Sigurður hefúr reynsluna til að
mæta í leik sem þennan og er ekki
kvíðinn: Svona leikir gefa líflnu
gildi og í mínum huga er aðeins til-
hlökkun að leika leikinn, enginn
kvíði eða stress."
Sigurður hefur látið hafa það eft-
ir sér að þetta verði hans síðasta
keppnistímabil: „Nú er það bara
spumingin hvort leikurinn annað
kvöld verður minn síðasti leikur
eða hvort ég enda í úrslitakeppn-
inni. Það væri að sjálfsögðu mikið
skemmtilegra að koma strákunum i
úrslitakeppnina, við höfum ekki
leikið þar áður og er kominn tími til
að HK leiki þar, og með réttri hugs-
un og mikilli baráttu getum við
unnið.“
Sigurður er búinn að leika
handbolta í tuttugu og flmm
ár, hvemig verður lifið án
Maður dagsins
handboltans? „Það á eftir
að koma i ljós, ég þekki
ekkert annað en að vera
á fullu í boltanum og því
held ég áfram í sportinu,
mun örugglega fara að
leika golf, en ég hef haft lít-
inn tíma til þess undanfarin
ár, en nú verður breyting á
og er ég ákveöinn að hella mér
í golflð. Einnig er það veiðin
sem ég hef alltaf haft mikið dá-
læti á, geri mínar eigin flugur og
veiði bæði silung og lax þegar ég
hef tækifæri til. Svo er aldrei að
vita nema ég finni einhvem
nýjan farveg, ég er
mikill dellu-
karl.“
Þegar Sigurður
var beðinn um að
líta yfir farinn
veg I handboltan-
um sagði hann
ekki mjög mik-
inn mun á hand-
boltanum nú frá því hann var að
byrja: „Það snýst allt mun meira
um reksturinn nú, hvort hægt sé
að reka handboltann fyrir ofan
núllið. Þá finnst mér metnaðurinn
hafa aðeins gefið eftir, efnilegir
leikmenn leggja sig ekki eins mik-
ið fram eins og áður
fyrr. Það vantar oft
þessa leikgleði
sem var áber-
andi áður.“
Eiginkona Sig-
urðar heitir
Sigríður Héð-
insdóttir og
eiga þau tvö
börn; Auði,
sem er tólf ára,
og Styrmi, sem
er átta
ára.
-HK
Dúettar og
einsöngsaríur
Stórsöngkonumar Elsa
Waage, alt, og Sólrún
Bragadóttir, sópran, koma
fram á tónleikum Styrktar-
félags íslensku óperunnar í
kvöld, kl. 20.30. Með þeim á
píanó leikur Gerrit Schuil.
Meðal efnis á tónleikunum
verða dúettar eftir Britten
og Mendelssohn og ein-
söngsariur og dúettar úr
Carmen, Ævintýmm
HofEmanns, Samson
og Dalíla og Madame
Butterfly.
Elsa og Sólrún hafa
átt mikilli velgengni
að fagna í söngheim-
inum undanfarin ár.
Báðar hafa þær
sungið á fjölmörgum
einsöngstónleikum
hér heima sem er-
lendis, komið fram með Sin-
fóníuhljómsveit íslands og
Tónleikar
sungið titilhlutverk í upp-
færslum íslensku óperann-
ar. Þær koma sérstaklega
til landsins vegna tónleika-
haldsins en Elsa er nú bú-
sett á Ítalíu og Sólrún í
Þýskalandi.
Hefur nasasjón
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Þorsteinn Gauti
Sigurðsson end-
urtekur tónleika
sína í kvöld í
Salnum.
Glæsilegir tónleikar
endurteknir
Vegna fjölda áskorana og frá-
bærra dóma hefur Þorsteinn Gauti
Sigurðsson ákveðið að endurtaka
píanótónleika sína í Salnum í kvöld,
kl. 20.30.
1 Morgunblaðinu 4. mars sl. ritar
Jón Ásgeirsson tónskáld: „Lokaverk-
ið var stórsónatan eftir Samuel Bar-
ber sem Þorsteinn Gauti lék af því-
líkum glæsibrag að til þess verður að
jafna með þvi sem best hefur heyrst."
í Dagblaðinu sama dag segir Amdís
Björk Ásgeirsdóttir: „Lokaverkið á
efnisskránni var svo sónata op. 26
eftir Samuel Barber sem er eitt
merkasta píanóverk þessarar aldar..
. Flutningur sónötunnar í heild verð-
ur að teljast listviðburður í hæsta
gæðaílokki."
Tónleikar
Þorsteinn Gauti Sigurðsson stund-
aði framhaldsnám við Juilliard
School of Music í New York og í Róm
á Ítalíu. Hann hefúr víða komið fram
á tónleikmn, svo sem í Bandaríkjun-
um, Kanada, Rússlandi, á Norður-
löndunum og í mörgum Evrópulönd-
um. Einnig hefur hann komið ffarn
sem einleikari með hljómsveitum á
Norðurlöndum og oft með Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Tónleikamir í
kvöld hefjast á þremur skemmtileg-
um smástykkjum eftir G. Gershwin
er hann kallar preludiur. Þá leikur
Þorsteinn Gauti Gnossíu eftir Eric
Satie og hina víðfrægu Tunglskins-
sónötu Beethovens. Eftir hlé verða
fluttar Etýöur eftir Fr. Chopin op. 10,
nr. 4, 6 og 8, og tónleikunum lýkur
með sónötu op. 26 eftir S. Barber.
Bridge
Undankeppni íslandsmótsins í
sveitakeppni, sem kennd er við
MasterCard, fór fram um síðustu
helgi. 40 sveitum var raðað niður í 5
riðla eftir styrkleika (frá A-H) og
tvær efstu sveitimar í hverjum riðli
komust áfram í úrslitakeppni ís-
landsmótsins, sem spiluð verður um
páskana. Það hefúr verið viðtekin
venja, að einhveijum sveitmn af A-
eða B-styrkleika hefur mistekist að
komast í úrslitakeppnina og keppnin
í ár var engin undantekning frá
þeirri reglu. Allar A-sveitimar
komust reyndar áfram, en tvær B-
sveitir urðu að bíta í það súra epli að
sitja eftir. í A-riðli komust sveitir
Landsbréfa og Spotlight áfram næsta
auðveldlega. Keppni í B-riðli var jöfn
og spennandi en þar komust sveitir
Samvinnuferða (A-sveit) og Heitra
samloka (C-sveit) í úrslit, en B-sveit
Granda hafnaði i þriðja sæti. í C-
riðli komust sveitir Strengs og
Þriggja Frakka næsta örugglega
áfram. í D-riðli varð A-sveit Stilling-
ar öraggur sigurvegari en B-sveit
Þrastar þurfti að hafa fyrir að ná
öðru sætinu. í E-riðli vann D-sveit
Þróunar næsta öraggan sigur og A-
sveit Holtakjúklinga varð í öðra
sæti, en B-sveit Ingvars Jónssonar
komst ekki áfram. Stærsta sveifla
mótsins í einu spili leit dagsins ljós í
viðureign sveita Samvinnuferða og
Gumma Pé og pjakkanna. Spilið kom
fyrir í síðari hálfleik fimmtu umferð-
ar, suður gjafari og AV á hættu:
♦ 953
D
-f ÁK873
* G1097
4 ADG82
♦ 9542
* 8532
N
V A
S
4 K64
4» ÁKG10874
♦ -
* ÁKD
4 107
•* 96532
•f DG106
* 64
I lokuðum sal höfnuðu AV í sveit
Samvinnuferða í 7 spöðum sem var
ekki vandamál að vinna. í opnum
sal höfnuðu AV í sveit Gumma Pé í
7 gröndum dobluðum. Vömin hirti
5 fyrstu slagina á tígul og fékk 1400
sem bættust við 2210 á hinu borð-
inu. 3610 stig er 23 impa sveifla.
Þrátt fyrir þetta áfall lauk leiknum
með 18-12 sigri Gumma Pé og pjakk-
anna. ísak Öm Sigurðsson