Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1999, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999
Hringiðan
m!:::::
Msæs
******'
Wm
zSHIZZT?***'
mm
mmhíx
;^í«
lii
BáfííSass I
IfMa
ÉMÉÉí
Elva Jónsdóttir opnaði
á laugardaginn sýn-
ingu á verkum sínum
Listasafni Kópavogs
Gerðarsafni. Elva er
hér ásamt Ingu Sig-
urjónsdóttur og Ingu
Haraldsdóttur á
opnunardaginn.
Ragnhildur Stefánsdóttir opnaði sýningu í Ás-
mundarsafni á laugardaginn. Dætur listakon-
unnar, Ragnhildur Lára og Margrét
Helga Friðriksdætur, skoðuðu
sig um í safni meistara Ás
mundar.
Á laugardagskvöldið
skelltu gestir lands-
fundar Sjálfstæðis-
flokksins sér á ball
sem haldlð var á
Broadway, svona að-
eins til að létta mönn-
um lundína fyrir loka-
daginn. Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir og
Ástríður Thorarensen
höfðu um margt að ræða.
A föstudaginn opnuðu nýútskrifaðir arkitektar sýningu á
verkum sínum í Ráðhúsinu undir yfirskriftinni Vaxtarbrodd-
ar. Hér eru þrír arkitektanna, Valdís Vffilsdóttir, Tinna Gunn-
arsdóttir og Steinþór Kári Kárason.
Sjálfstæðismenn slógu upp
balli á Broadway á laugar-
dagskvöldið. Konungur
sveiflunnar, Geirmundur
Valtýsson, sá um að halda
uppi stuðinu fram á rauða
nótt.
Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar stóð fyrir herrafatasýningu í Há-
skólabíói á föstudaginn. Þá var verið að hleypa af stokkunum kvikmynda-
hátíðinni Halur og sprund. Þar verða sýndar myndir sem ella hefðu ekki
komist á hvíta tjaldið hérlendis. Sumartíska „grínarans" mun líta út eitt-
hvað þessu líkt, ef marka má þá Kormák og Skjöld. DV-myndir Hari
Á fimmtudaginn verður frumsýnt í Iðnó leikritið „Hnetan Geimsápa". Verkið er eins konar framhaldsleikrit, byggt á spunatækni
gerist um borð í geimskipi hinu framtíðarlegasta. Eitthvað fannst leikstjóranum, Martin Geijer, þó vanta upp á geislabyssutækni
leikhópsins. Því var brugðið á það ráð að setja mannskapinn í Lazer tag á föstudagskvöldið. Leikaraliðið Gunnar Hansson, Linda
Ásgeirsdóttir, Ingrid Jónsdóttir, Friðrik Friðriksson og Gunnar Helgason var heldur betur hrikalegt þetta kvöld.
Á laugardaginn
opnaði Ragn-
hildur Stefáns-
dóttir listakona
sýningu í Ás-
mundarsafni.
Á myndinni
eru Birna
Kristjánsdótt-
ir, Friðrik Örn
Weiss-
happel, eig-
Inmaður
listakon-
unnar, Ragnhildur, Guð-
rún Jónsdóttir og Eiríkur Þorláksson.
Listakonurnar
Kristín ísleifsdóttir
og Sigrid Valtin-
gojer opnuðu
saman sýningu í
Listasafni ASÍ á
iaugardaginn. Að
vanda var Kristín
með keramik og
Sigrid með grafík.
Handboltakapparnir Þorbergur Aðalsteinsson
og Þorgils Óttar Mathiesen voru meðal gesta í
afmælisveislu Sigga Sveins, sem hann hélt á
Hótel Loftleiðum á föstudaginn.