Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1999, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999 Utlönd Stuttar fréttir i>v Uppstokkun í norsku stjórninni: Ráðherra veikt- ist af gagnrýni Carls I. Hagens DV, Ósló: „Allt sem ég gerði var rangt. Ég var ábyrg fyrir öllu sem miður fór,“ sagöi Aud-Inger Aure, fráfar- andi dómsmálaráðherra í Noregi, grátandi þegar hún yfirgaf emb- ætti sitt í gær. Hún hefur verið í sjúkraleyfi undanfarnar vikur eft- ir að hún féll aðkenningu að heilablóðfalli vegna vinnuálags. Með orðum sínum kennir dómsmálaráðherrann fyrrverandi formanni Framfaraflokkksins, Carl I. Hagen, um veikindi sin. Hagen hefur í allan vetur lagt Aud-Inger Aure í einelti og sakað hana um dugleysi og stefnuleysi í málum nýbúa í landinu, og lýsti hana óhæfa til að gegna embætti sínu skömmu áður en hún veikt- ist. Norska ríkisstjómin er háð stuðningi Framfaraflokksins. í kjölfar afsagnar dómsmála- ráðherrans stokkaði séra Kjell Magne Bondevik forsætisráð- herra upp stjórn sína að hluta. Tveir nýir ráðherrar koma inn um leið og tveir hætta og nú er í fyrsta sinn kona í embætti varn- armálaráðherra, það er Eldbjörg Löver. Odd-Roger Enoksen, nýkjörinn formaður Miðflokksins, kemur inn sem ráðherra byggða- og sveitarstjómarmála. Hann er eld- heitur andstæðingur Schengen- samstarfsins, sem hann telur stjórnarskrárbrot. -GK Pólland ætlar sér í ESB 2002 Aleksander Kwasniewski, for- seti Póllands, sagði í morgun að Pólverjar reiknuðu með að ganga í Evrópusambandið fyrir árslok 2002, eða nokkm fyrr en margir telja að verði. í ræðu sem Póllandsforseti hélt fyrir stjóm- arerindreka og opinbera starfs- menn í Malasíu sagðist hann eiga von á að Pólland myndi uppfylla skilyrði fyrir aðild að myntbanda- lagi ESB einhvem tíma á árunum 2006 til 2008. Pólveijar, ásamt nokkrum öðr- um ríkjum, hófú aðildarviöræður við ESB í fýrra. Öttast að 13 hafi farist með þyrlu SÞ á Haítí Þyrla í mannúðarferö á vegum Sameinuðu þjóðanna fórst í af- skekktu fjalllendi á Haítí og er óttast aö allir þrettán sem um borö vora hafi farist. „Þyrlan er gjörónýt. Fjöldi líka og líkamshluta er um allt og bend- ir það til að allir þrettán sem vora um borð hafi farist," sagði Scott Carr, talsmaður bandarísku strandgæslunnar. Síðast heyrðist til þyrlunnar á sunnudagskvöld þegar hún lagði af stað til að bjarga finnskri konu sem hafði meiðst þegar hraðbátur sigldi á hana undan norðurströnd Haítí. Ekki er enn vitað hvað varð til þess að þyrlan hrapaði. Evrópusambandið: Framkvæmda- stjórnin víkur Ráðning fransks tannlæknis í starf vísindaráðgjafa stuðlaði meðal annars að falli framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Edith Cresson, fyrrverandi forsætisráðherra Frakk- lands, sem var ábyrg fyrir mennta- málaáætluninni Leonardo í fram- kvæmdastjórninni, hafði ráðið tann- lækninn úr heimabæ sínum sem ráð- gjafa sinn og fylgdarsvein. í skýrslu óháðrar nefndar um meinta spillingu framkvæmda- stjórnarinnar, sem lögð var fram í gær, kemur fram að ekkert hafi fundist við rannsókn á ferli tann- læknisins, Renes Berthelots, sem tengdi hann við vísindastörf. Segir í skýrslunni að um augljósa einka- vinavæðingu hafi verið að ræða. Fleiri meðlimir framkvæmdastjóm- arinnar voru sakaðir um að hafa ráðið ættingja og vini í störf án til- skilinna réttinda og hæfileika. Forseti framkvæmdastjómarinn- Jacques Santer var öskugrár þegar hann tllkynnti afsögn framkvæmda- stjórnarinnar. Símamynd Reuter ar, Jacques Santer, var öskugrár í andlitinu þegar hann tilkynnti seint í gærkvöld um afsögn allrar fram- kvæmdastjómarinnar í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Sjálfur sætti Santer harðri gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að stjórna öryggisdeild framkvæmdastjómar- innar. Þrátt fyrir að upplýsingar um misferli hafi komið i dagsljósið þegar árið 1993 gerði Santer ekkert i málinu. í skýrslu rannsóknamefndarinn- ar segir að víðtæk spilling hafi átt sér stað innan framkvæmdastjómar- innar og að starfsemin hafi stundum verið stjómlaus. Myndast hafi ríki í ríkinu innan framkvæmdastjómar- innar. En þess er jafnframt getið að meðlimimir sjálfir hafi ekki tekið virkan þátt í misferli heldur hafi þeir látið sem þeir vissu ekki um gerðir embættismanna og ráðgjafa. Framkvæmdastjórnin hafi einungis hagnast óbeint með því að ráða ætt- ingja og vini í vel launuð störf. Bráðabirgðastjóm, sem stýra mun málefnu ESB, verður mynduð í dag. í —ST m | [|| Til óláta kom í miðborg Quito, höfuðborgar Ekvadors, í gær þegar leigubílstjórar lokuðu öllum helstu aöalgötum til að mótmæla 165 prósenta hækkun á eldsneyti. Hermenn, eins og þessi, voru sendir út á göturnar til að standa vörð og sjá til þess að ekki færi allt úr böndunum. Stjórnvöld hækkuðu bensínverö til að afla fjár í ríkiskassann. Kosovo-Albanar ætla að undirrita friðarsamning: Enn beðið eftir Milosevic Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að NATO ætti fárra kosta annarra völ en að gera loft- árásir á Júgóslavíu ef stjórnvöld í Belgrad skrifa ekki undir friðar- samninga um Kosovo-hérað sem fulltrúar albanska meirihlutans hafa lýst stuðningi við. „Ef hann (Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti) sýnir af sér óbil- gimi og yfirgang finnst mér fátt koma til greina,“ sagði Clinton við fréttamenn áður en hann settist niður með Javier Solana, fram- kvæmdastjóra NATO, í gærkvöld. Kosovo-Albanir höfðu fyrr um daginn ritað Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, bréf þar sem þeir fullvissuðu hana um að þeir myndu skrifa undir bráðabirgðasamkomulagið sem sett var saman í Rambouillet-höll fyrir utan París í síðasta mánuði. Friðarviðræðunum var fram haldið í París í gær. Á sama tíma héldu Serbar uppi flugskeyta- og sprengjuárásum á skotmörk í norðanverðu Kosovo þar sem talið er að skæraliðar aðskilnaðarsinna haldi til. Vesturveldin vona að í nýhafinni samningalotu verði hægt að þvinga Serba til að undirrita samninginn. Serbar hafa hins vegar ekki enn fallist á að um þrjátíu þúsund er- lendir hermenn komi til Kosovo. Fyrr á fætur Mexíkóskir ríkisstarfsmenn þurfa að fara klukkutímanum fyrr á fætur frá 1. apríl og byrja að vinna klukkan sjö í stað átta. Krefst meiri bóta Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku heimastjórnarinnar, hefur boðað dönskum stjórn- völdum að þau fái sendan háan reikning til við- bótar fyrri skaða- bótakröfum vegna nauðung- arflutninga íbúa Thule árið 1953. í Eystri-landsrétti í Kaupmannahöfn standa enn yfir réttarhöld vegna fyrri milljóna- krafha Grænlendinga. Allt mest í Ameríku í Bandaríkjunum eru fleiri fangar en á nokkru öðra byggðu bóli og svo kann að fara að þar- lendir slái met Rússa þar sem fangar era hlutfallslega flestir. Lestarslys Farþegalest rakst á stálflutn- ingabO skammt frá Chicago sið- astliðna nótt. Óttast var að hundruð farþega hefðu slasast. Flugverkfall á Spáni Flugmenn spænska flugfélags- ins Iberia boðuðu í gær verkfall um páska verði ekki nýir samn- ingar undirritaðir. Harðir dómar Fjórir þekktustu stjómarand- stæðinga Kúbu voru í gær dæmd- ir í allt að fimm ára fangelsi. Féllu dómarnir samtímis því sem stjórn Fidels Castros Kúbuforseta setti hert lög gegn stjórnar- andstæðingum. Samkvæmt nýju lögunum geta stjórnarandstæð- ingar og blaðamenn sem „vinna gegn kúbska ríkinu“ átt yfir höfði sér 20 ára fangelsi. Njósnahneyksli Bandaríska leyniþjónustan sagði í gær að óháð nefnd myndi meta skaðann sem hlotist hefði af kjarnorkuvopnanjósnum Kín- verja sém valdið hafa miklum úlfaþýt í bandarískri pólítík. Ofbeldi vegna reykinga Synh' mæðra sem reykja á með- göngunni hafa meiri tilhneigingu en aðrir tO þess að verða ofbeldis- hneigðir. Ástæðan getur verið skaði á miðtaugakerfinu, að því er kemur fram í rannsókn banda- rískra vísindamanna sem byggð er á upplýsingum frá Danmörku. Yfir á heftinu Elizabeth drottningarmóðir nýtur allra lífsins gæða þótt hún sé oröin 98 ára. Bankaráðgjafa hennar í London þykir drottingar- móðirin ef tO viU lifa of ljúfú lífi því hún er sögð hafa farið yfir á heftinu um nær 500 mUljónir íslenskra króna. Helsta ástriða drottningar- móðurinnar er uppeldi veð- hlaupahesta sem sjaldnast vinna. Auk þess nýtur hún að ferðast um í þyrlum og í höUum hennar um Bretland er fjöldi starfsfólks sem sumt sér yfirmann sinn aðeins um eina helgi á ári. Við höfum flutt skrifstofu okkar og söludeildir nýrra bíla og atvinnutækja að Bíldshöfða 6f 112 Reykjavík & brimborg Bíldshöfða 6 • Sími 515 7010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.