Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1999, Side 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999
Fólk í fréttum____________
Magnús Eiríksson
Magnús Eiríksson, tónskáld, tón-
listarmaður og verslunarmaður í
hljóðfæraversluninni Rín, hlaut
heiðursverðlaunin er Islensku tón-
listarverðlaunin voru veitt á
fimmtudaginn var, eins og fram
kom í helgarblaði DV.
Starfsferill
Magnús fæddist í Reykjavík 25.8.
1945 og ólst þar upp í foreldrahús-
um. Hann gekk í Laugamesskól-
ann. Auk þess stundaði hann nám
við Tónlistarskólann í Reykjavík
og lærði á gítar, fyrst hjá Karli Lil-
liendahl en síðan á klassískan gítar
hjá Gunnari Jónssyni.
Magnús hefur leikið með fjölda
danshljómsveita frá sextán ára
aldri. Hann lék með hjómsveitinni
Pónik og Einar á bitlaárunum um
sjö ára skeið, með Blues Company,
Onkel Johns-band, öðru nafni Lísa,
og með Mannakomi. Þá spiiaði
hann með Brunaliðinu, spilaði oft
með Guðmundi Ingólfssyni píanó-
leikara og hefur á síðustu misserum
komið fram með Kristjáni Krist-
jánssyni.
Magnús lék inn á tvær litlar
hljómplötur með Pónik og Einari,
sjö plötur með Mannakorni, s.s.
Mannakom; í gegnum tíðina; Brott-
för kl. átta; Bræðrabandið; Manna-
kom 6, og Spilaðu lagið. Þá gaf
hann út, ásamt Brunaliðinu, plöt-
una Úr öskunni í eldinn, gaf út sóló-
plötuna Smámyndir, og diskinn
Ómissandi fólk, með Kristjáni Krist-
jánssyni. Hann hefur auk þess átt
þátt í plötu- og diskagerð fjölda ann-
arra tónlistarmanna.
Magnús hefur samið rúmlega
hundrað og fimmtíu lög
sem komiö hafa út á
hljómplötum. Hann
samdi, ásamt Gunnari
Þórðarsyni, tónlistina
við kvikmyndina Óðal
feðranna, og samdi tón-
listina við kvikmyndina
í hita og þunga dagsins,
báðar eftir Hrafn Gunn-
laugsson. Þá samdi
Magnús tónlistina í ís-
lensku sjónvarpsþátta-
röðina í dönskukennslu
sem sýnd var í ríkissjón-
varpinu fyrir nokkram árum.
Sýndur var tónlistarþátturinn
Braggablús með lögum Magnúsar á
Hótel íslandi 1997.
Á unglingsárunum var Magnús
verslunarmaður í verslun Ludvig
Storr í Reykjavík og var i siglingum
með Eimskipafélagsskipum. Hann
hóf störf i Hljóðfæraversluninni Rín
1966 og hefur stcufað þar síðan að
meira eða minna leyti og er einn
eigenda verslunarinnar frá 1981.
Magnús var einn helsti hvata-
maður að stofnun Blue Note, áhuga-
klúbbs um blues-tónlist 1969, var
einn stofnenda og fyrsti formaður
FTT, Félags tónskálda og textahöf-
unda, og fyrsti formaður þess. Þá
var hann formaður STEFS í nokkur
ár.
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Elsa Guð-
rún Líndal, f. 14.1. 1949, verslunar-
maður og húsmóðir. Hún er dóttir
Stefáns Líndal sem er látinn, kaup-
manns í versluninni Rín, og Herdís-
ar Sigurðardóttur Líndal húsmóður.
Synir Magnúsar og Elsu
Guðrúnar eru Stefán Már
Magnússon, f. 28.7. 1971,
tónlistarmaður og há-
skólanemi í Reykjavík en
kona hans er Elma Lísa
Gunnarsdóttir leiklistar-
nemi: Andri Magnússon, f.
27.10. 1978, nemi í tölvu-
fræði;Magnús Örn Magn-
ússon, f. 21.8. 1983, nemi.
Systkini Magnúsar era
Áxel, f. 21.8. 1948, úrsmið-
ur í Reykjavík; Ingibjörg,
f. 28.7. 1950, deildarstjóri á
Skattstofunni í Reykjavík; Grímur
Ólafur, f. 21.8.1957, tæknifræðingur
og útgerðarstjóri í Chile; Helga, f.
18.3. 1966, þroskaþjálfi í Danmörku.
Foreldrar Magnúsar vora Eirikur
Ólafsson, f. 23.11. 1919, d. 1989, loft-
skeytamaður og skrifstofumaður í
Reykjavík, og Rannveig Axelsdóttir,
f. 21.11. 1927, húsmóðir.
Ætt
Eiríkur var sonur Ólafs, gjald-
kera hjá Kveldúlfl Jónssonar, b. á
Hafursstöðum Jasonarsonar. Móðir
Ólafs var Ásta María, systir Júlíu
Ingibjargar, ömmu Páls Kolka lækn-
is. Hálfsystir Ástu Maríu, samfeðra,
var Rósa, amma Meyvatns bílstjóra,
afa Más Elíasar, dreifingarstjóra
DV. Ásta María var dóttir Ólafs, b.
og smiðs á Vatnsenda í Vesturhópi
Ásmundssonar, b. á Halldórsstöðum
í Laxárdal Sölvasonar. Móðir Ástu
Maríu var Ingibjörg Magnúsdóttir,
af Stórabrekkuætt í Fljótum Óbeðs-
sonar.
Móðir Eiríks var Ingibjörg, systir
Guðfinns útgerðarmanns, föður út-
gerðamannanna i Keflavík, Guð-
mundar og Sigurþórs. Ingibjörg var
dóttir Eiríks, sjómanns í Nýjabæ á
Miðnesi, sonar Jóns Benónýssonar
og Guðrúnar Eiríksdóttur. Móðir
Ingibjargar var Guðríður Jónsdótt-
ir. Móðir Guðriðar var Kolfinna
Kjartansdóttir, b. á Króki i Villinga-
holti Jónssonar, Kjartanssonar, Ey-
vindssonar. Systir Kjartans Ey-
vindssonar var Ragnheiður, móðir
Fjalla-Eyvindar.
Rannveig var dóttir Axels, hús-
gagnasmiðs í Reykjavík Grímsson-
ar, b. á Króki í Grafningi Jóhanns-
sonar, b. á Nesjavöllum, bróður
Jóns, langafa Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta. Annar bróðir Jó-
hanns var Bjarni, langafi Guðjóns
Bjamasonar arkitekts. Þriðji bróðir
Jóhanns var Eiríkur, langafi Krist-
jóns, föður Braga bóksala og Jó-
hönnu blaðamanns, móður Illuga
Jökulssonar. Jóhann var sonur
Gríms, skyttu á Nesjavöllum Þor-
leifssonar, ættföður Nesjavallaættar
Guðmundssonar, b. í Norðurkoti
Brandssonar, b. á Krossi Eysteins-
sonar, bróður Jóns, föður Guðna,
ættföður Reykjakotsættar, langafa
Halldórs, afa Halldórs Laxness, og
langafa Guðna, langafa Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Axels var
Rannveig, systir Ingólfs, föður
Lárasar leikara. Rannveig var dótt-
ir Lárasar, b. á Reykjum í Lundar-
reykjadal Bjamasonar, og Rósu Jón-
asdóttur.
Móðir Rannveigar Axelsdóttur
var Marta Kolbeinsdóttir. Móðir
Mörtu var Ólöf Jónsdóttir.
Magnús Eiríksson.
Afmæli
Markús Sigurjónsson
Markús Sigurjónsson, bóndi í
Reykjarhóli í Skagafirði, er níræður
í dag.
Starfsferill
Markús fæddist í Eyhildarholti
og átti þar heima fyrstu þrjú árin,
að Sjávarborg næstu þrjú ár, þá að
íbishóli til tólf ára aldurs og loks að
Reykjarhóli þar sem hann átti
heima til 1934. Hann ólst upp við öll
almenn sveitastörf þess tíma og var
síðan átta vertíöir á Kveldúlfstogur-
um á unglingsáranum.
Markús hóf búskap í Brekku 1936
og bjó þar til 1945 er hann flutti á
Reykjarhól þar sem hann hefur bú-
ið síðan.
Markús var minkabani í Skaga-
firði um áratugaskeið og fór á skytt-
irí fram á síðustu ár. Hann stofnaði
Sauðfjárræktarfélag Seyluhrepps,
var formaður þess tvo áratugi og
var lengi formaður Nautgriparækt-
arfélags Seyluhrepps. Þá var hann
einn af stofnendum Hestamanncifé-
lagsins Stígandi.
Fjölskylda
Markús kvænist 1936 Þórönnu
Jónsdóttur, f. 26.6.1905, d. 1980, hús-
freyju. Hún var dóttir Jóns, b. í
Kársstöðum í Landbroti, Einarsson-
ar, og k.h., Sigurlaugar Einarsdótt-
ur húsfreyju.
Fósturdóttir Markúsar og Þór-
önnu er Aðalheiður, f.
20.3.1938, skrifstofumað-
ur í Reykjavík og eign-
aðist hún einn son.
Börn Markúsar og
Þórönnu era Sigurjón, f.
26.5. 1941, bifvélavirki, í
Hafnarfirði, kvæntur
Önnu Gunnlaugsdóttur
húsmóður og eiga þau
fjögur börn og þrjú
barnabörn; Sigurlaug
Ingibjörg, f. 6.7. 1944,
bóndi á Reykjarhóli.
Systkini Markúsar
eru nú öll látin. Alsystk-
ini hans voru María, lengi verslun-
arstjóri í Reykjavík; Líney, húsmóð-
ir á Sauðárkróki; Vigfús, verkamað-
ur í Brekku og á Reykjar-
hóli og síðan í Reykjavík.
Hálfsystur Markúsar, sam-
feðra, vora Steinunn, hús-
móðir í Hátúni; Þorbjörg,
síðast húsmóðir í Reykja-
vík; Sigrún, húsmóðir í
Reykjavík; Kristín, sauma-
kona í Reykjavík.
Foreldrar Markúsar vora
Sigurjón Markússon, f.
1868, d. 1919, b. í Eyhildar-
holti og víðar, og kona
hans, Sigurlaug Vigfús-
dóttir, f. 1870, d. 1951, hús-
freyja og fyrsta rjómabús-
stýra í Skagafirði.
Markús liggur á Sjúkrahúsi Skag-
firðinga.
Undur oq stormerki... ^
******
-V
-V -T
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Til hamingju
með afmælið
16. mars
95 ára
Hermína Sigurgeirsdóttir,
Reynimel 31, Reykjavík.
85 ára
Jónasa Þórðardóttir,
Hólmgarði 13, Reykjavík.
María Þorbjarnardóttir,
Kumbaravogi, Stokkseyri.
Steinn J. Guðmundsson,
Miðholti 10, Þórshöfn.
80 ára
Guðmundur Stefánsson,
Furalundi 7a, Akureyri.
Stella Guðmundsdóttir,
Hólmgarði 40, Reykjavík.
75 ára
Pétur Auðunsson,
Hrauntungu 6, Hafnarfirði.
70 ára
Benedikt Kjartansson,
Miðvangi 41, Hafnarfirði.
60 ára
Gunnar G. Bachmann,
Vesturbergi 132, Reykjavík.
Randver V. Alfonsson,
Sandholti 26, Ólafsvík.
50 ára
Bima G. Magnúsdóttir,
Hvassaleiti 12, Reykjavík.
Brynjólfur I. Guðmundsson,
Eyjahrauni 41, Þorlákshöfn.
Ingimundur Tómasson,
Barmahlíð 5, Sauðárkróki.
Páll M. Stefánsson,
Silungakvísl 8, Reykjavík.
Steingrímur Bergsson,
Melavöllum, Kjalamesi.
40 ára
Dagný Guðmundsdóttir,
Garðastræti 49, Reykjávík.
Davíð Hinrik Gígja,
Ólafsvegi 36, Ólafsfirði.
Gunnar Sigurðsson,
Njálsgötu 3, Reykjavík.
Hörður Jóelsson,
Brautartungu, Stokkseyri.
Jón Eyjólfsson,
Reykási 14, Reykjavík.
Karl Þorvaldur Jónsson,
Skagabraut 28, Akranesi.
Lilja Kristjana
Þorbjörnsdóttir,
Ásgarði 6, Reykjavík.
Ósk Jónsdóttir,
Suðurhúsum 7, Reykjavík.
Sigurlaug J.
Vilhjálmsdóttir,
Gröf I, Eyjafjarðarsveit.
Stefán Halldórsson,
Laufási við Laufásveg,
Reykjavík.
Unnur Dís Skaptadóttir,
Fálkagötu 13, Reykjavík.
/
JJrval
- gott í hægmdastólinn