Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1999, Blaðsíða 16
Ueið(
falleg og sterk
samkomutjöld
Framsókn
fíkniefnum
■
- segir Einar Brekkan
FRAMSOKNARFLOKKURINN
Vertu með á miðjunni
Einar Brekkan, atvinnuknatt-
spyrnumaður í Svíþjóð, er ekki
mikið þekktur á íslandi enda hef-
ur hann búið í Svíþjóð undanfarin
tuttugu ár.
Faðir hans, Einar Brekkan
læknir, flutti til Svíþjóðar fyrir
tveimur áratugum og Einar yngri
með. Hann hefur þó haldið ís-
lenska ríkisborgararéttinum.
„Ég get ekki séð að það séu
neinir kostir við að vera með
sænskan ríkisborgararétt en
fáir gallar við íslenskan rík-
isborgararétt," segir Einar.
„Ég get að vísu ekki kos-
ið í alþingiskosningum í
Svíþjóð en get kosið í
sveitarstj órnarkosning-
um. Á móti kemur að
Svíar geta ekki kallað
mig í herinn. Að öðru
leyti er ég með flest rétt-
indi Svía,“ segir hann.
Einar spilaði bandy
sem unglingur en hóf
að spila knattspyrnu
með Sirius í B-deild-
inni árið 1994 og var
með liðinu til ársins
1996.
Vásterás, sem komst upp
í A-deildina haustið 1996,
Einar Brekkan hjá Örebro í leik gegn Vástra Frölunda í Gautaborg.
DV-mynd E.J.
samdi við Einar og hann var hjá
félaginu í tvö ár. Vasterás spilaði í
A-deiIdinni sumarið 1997 og þar
voru töluverðar væringar og með-
al annars voru þrír þjálfarar hjá
liðinu sem féll úr A-deiIdinni um
haustið. í B-deildinni árið 1998
skoraði Einar 12 mörk í 24 leikjum
og vakti þá töluveröa athygli
margra liða. Hann var samnings-
laus um haustið 1998 en fékk mörg
tilboð, meðal annars frá
Haugesund, sem féll í B-deildina í
Noregi síðastliðið haust, og Trelle-
borg og Örebro í A-deildinni í Sví-
Þjóð.
„Samningur við Haugesund
heföi gefið mest af sér en mig lang-
aði að spila með liði í A-deildinni
og valdi Örebro. Þótt ég hafi verið
með lausan samning þurfti Örebro
að borga fyrir mig 7 milljónir
króna af þvf að ég var seldur inn-
anlands. Ég var með umboðsmann
en fannst hann ekki vinna nógu
vel fyrir mig og sá um samninginn
við Örebro sjálfur og samdi til
þriggja ára.
Það hafa orðið miklar breyting-
ar frá Örebro á síðustu árum og fé-
lagið hefur misst marga snjalla
knattspyrnumenn. íslendingarnir
Sigurður Jónsson, Arnór Guðjohn-
sen og Hlynur Birgisson eru allir
farnir og Gunnlaugur Jónsson fór
í mars til Akraness. Það er talað
mjög hlýlega um íslendingana hér
og ekki verra fyrir mig að vera ís-
lendingur.
Við erum með 14 manna hóp
sem er sterkur en þar fyrir utan
imga og efnilega leikmenn. Hér
eru hvorki stjörnur né þekktir
leikmenn. Örebro hefur verið eitt
af bestu liðum Svíþjóðar á liðnum
árum og ef metin er sætaskipan
liða á síðasta áratug er einungis
Göteborg með betri árangur liða í
A-deildinni í Svíþjóð.
Ég missti af sex vikum í undir-
búningi vegna meiðsla í hné en
sýnist að hnéð sé að komast í lag
og stefni á fullan styrk um miðjan
maí. Það borgar sig ekki að fara of
geyst af stað aftur eftir meiðsli.
Við spilum 4-3-3 og sóknarmað-
urinn i miðjunni spilar dýpra. Ég
get ekki spilað þá stöðu og spila
því hægra megin í sókninni en
spilaði ýmist sem tengiliður hægra
megin eða sóknarmaður hjá
Vasterás.
Það er erfitt að spá fyrir hvemig
okkur muni ganga í sumar. Það
hafa orðið miklar breytingar á
flestum liðunum og þau eru að
komast í gang og hafa sum hver
ekki spilað á fullum styrk ennþá.
Okkur er spáð 8.-10. sæti en það
besta sem ég hef séð er 6. sæti.
Ekkert lið er í sérklassa en ég tel
að Helsingborg muni hafa það af
nú. Ég er bjartsýnn á að okkur
muni ganga vel. Við gerðum jafn-
tefli við AIK á útivelli í fyrsta leik
og höfum sýnt góða spretti í öðrum
leikjum“, segir Einar Brekkan hjá
Örebro.
Þess má geta að öllum leikmönn-
um í A-deildinni í Sviþjóð var gef-
inn kostur á að velja þann leik-
mann sem þeir telja að inuni koma
á óvart í A-deildinni í sumar.
Fimm leikmenn af sextíu og einum
völdu Einar Brekkan. Það er því
greinilegt að nafn hans hefur borið
á góma víða.
-EJ
X99
Öðruvísi kosningavaka
verður á Vísi.is í kvöld
Fylgst verður með talningu í öllum kjördæmum og blaðamenn verða
á vettvangi að leita álits og viðbragða frambjóðenda og kjósenda.
Spáið sjálf í spilin á reiknivél vefsins.
Nýjustu upplýsingar eru ávallt tiltækar þegar ykkur hentar.
Kosningasjónvarp Stöðvar 2 verður í beinni útsendingu á Vísi.is
írisir.is
■ Fréttir úr heimi stjórnmála
■ Fréttir úr kjördæmunum
■ Skýr framsetning á
niöurstöðum
allra skoðanakannana
H Framboðin og
framboðslistarnir
■ Úrslit kosninga frá 1995
H Allar upplýsingar
varðandi framkvæmd
kosninganna
H Lesendabréf
H Aðsendar greinar
H Leiðarar
H Véfréttir
Leigjum borð, stóla,
ofna o.fl.
Tjaldaleigan
Skemmtilegt hf.
Dalbrekku 22 - sími 544 5990
LAUGARDAGUR 8. MAI 1999
Gott ai vera íslendingur
hjá Orebro
Gerið spennandi kosningar enn fjörugri með því að fylgjast með þeim á Vísi
is
I
Uggur