Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1999, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999
29
Ólafur Hannibalsson: „Margir fóru heim að sofa um þetta leyti og standa ef-
laust enn í þeirri trú að ég sé á þingi.“
Stefanía Traustadóttir: „Það var mikið hringt, og þá sérstaklega f foreldra
mína.“
Hver kom annars inn í staöinn
fyrirþig?
„í þessum kosningalögum er ekki
hægt að vita fyrir víst hver kemur í
staðinn fyrir hvem, því hver maður
inni hróflar við allri stöðunni. En
mér skilst að Sighvatur Björgvins-
son hafl einungis verið með þrjátíu
og fimm atkvæðum fleiri en ég,“
segir Pétur en hann er í framboði í
ár og kýs að sjáifsögðu sjáifan sig.
Stefanía Traustadóttir var í
öðru sæti á lista Alþýðubanda-
lagsins á Norðurlandi eystra 1991
Fór í beina útsendingu
„Mig minnir að ég hafl verið inni
strax þegar íyrstu tölur komu,“ seg-
ir Stefanía Traustadóttir félags-
fræðingur, sem var í öðru sæti á
lista Alþýðubandalgsins í Norður-
landskjördæmi eystra.
Hvernig leiö þér þessa tvo klukku-
tíma sem þú varst þingmaóur?
„Það lá nú fyrir frá upphafi að
þetta yrði ekki niðurstaðan. En það
sem mér þótti merkilegast við þetta
var að ég þurfti að hlaupa í skarðið
fyrir Steingrim J. Sigfússon. Hann
var í fyrsta sæti en fylgdist með
kosningunum í Þistilfirði og þar
sem ég var á Akureyri þurfti ég að
fara í myndverið þar til að tala fyr-
ir hönd flokksins í beinni útsend-
ingu. Var þar með mönnum á borð
við Halldór Blöndal og fleirum og
það þótti mér meira mál en að vera
þingmaður í þessa tvo tíma.“
Þaö hefur tekiö meira á taugarn-
ar?
„Já. Mér er sjónvarpsútsendingin
í rauninni meira minnisstæð. Að
þurfa að vera í þessu hlutverki i
beinni útsendingu," segir Stefanía
og hlær.
En var ekki mikið hringt til aö
óska þér til hamingju?
„Jú. Það var mikið hringt og þá
sérstaklega í foreldra mína. Frænd-
fólkið vildi auðvitað ræða þessi mál
og pabbi gerði mikið grín að þessu.
Hann var farinn að svara með því
að segja: „Alþingi, gott kvöld.“ Og
þetta þótti allt mjög skemmtilegt."
Hver var þaó svo sem tók sœtið
þitt?
„Mig minnir að það hafi verið
Kristinn H. Gunnarsson sem kom
inn sem uppbótarþingmaður,“ segir
Stefanía, en hún heldur enn tryggð
við Steingrím og er honum nærri
því i ár er hún sjötti maður á lista
Vinstri-grænna í Reykjavík.
Jörundur Guðmundsson var í
þriðja sæti á lista Þjóðvaka í
Reykjaneskjördæmi 1995
Mjög slæm tilfinning
„Ég held ég hafi verið inni í eina
eða kannski tvær mínútur," segir
Jörundur Guðmundsson mark-
aðsstjóri, en hann var í þriðja sæti
hjá Þjóðvaka í Reykjaneskjördæmi
árið 1995.
Mannstu klukkan hvaö þetta
var?
„Þetta var bara strax þegar
fyrstu tölur komu um tíuleytið.
Það urðu einhver mistök varðandi
tölurnar, vitlaust slegið inn í tölvu
eða eitthvað svoleiðis og allt í einu
var Þjóðvaki bara kominn með
Hársnyrtistofan Opus
óskar eftir að ráða duglegan og
reglusaman hársnyrtisvein \ hálfs dags
starf, frá og með mánaðarmótum júlí -
ágúst. Umsóknir með upplýsingum um
síma, aldur, starfsreynslu og meðmœli
sendist til:
Hársnyrtistofan Opus
Breiðumörk 2, 810 Hveragerði
þrjá þingmenn á Reykjanesi," seg-
ir Jörundur og minnst þess að
hann var akkúrat að klæða sig í
buxur þegar hann heyrði fyrstu
tölur. „Ég stóð frammi á stigapall-
inum heima og var með annan fót-
inn í skálminni þegar ég var allt í
einu kominn á þing og það lá við
að ég dytti um koll við tilhugsun-
ina.“
Og hvernig tilfmning var þaö aö
vera þingmaöur í tœpar tvœr mín-
útur?
„Hún var mjög slæm því ég ætl-
aði mér aldrei að verða þingmaður
og sá fyrir mér að vera fastbund-
inn næstu fjögur árin.“
Náöi einhver aö hringja í þig til
að óska þér til hamingju á þessum
mínútum?
„Nei. Eða jú, konan mín
hringdi. Hún var að vinna þetta
kvöld og var ekki með sjónvarp en
það voru einhverjir sem óskuðu
henni til hamingju með mann-
inn.“
Fór einhver inn í þinn staö?
„Nei. Þetta voru bara byrjunar-
mistök hjá einhverjum tölvuköll-
um held ég og niðurstaða kosning-
anna varð að Þjóðvaki fékk einn
landskjörinn þingmann, hann
Ágúst Einarsson."
Jörundur Guðmundsson er ekki
í framboði í ár en kýs Samfylking-
una.
Arnþrúður Karlsdóttir: „Ég var inni meira og minna alla nóttina."
Jörundur Guðmundsson: „Ég held ég hafi verið inni í eina eða kannski tvær
mínútur."