Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1999, Qupperneq 14
14
LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 DV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11, 105
RVÍK, SIMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vfsir, netútgáfa Frjálsrar íölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöiuverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Pirringsgildi óþekktarorma
Leiötogar vesturveldanna og einkum Bandaríkjanna
leggja mikla áherzlu á aö sleikja fýluna úr ráðamönnum
Rússlands meö því að fjölyrða um mikilvægi landsins og
leiðtoga þess í heimsmálunum. Þeir hafa gert Rússland
að heiðursfélaga í klúbbi sjö helztu iðnríkja heims.
Rússland hefur ekki efnahagsburði til að verða átt-
unda ríkið í þessum hópi. Það hefur raunar ekki lengur
burði til að vera heimsveldi, því að vígvélar þess hafa
lamazt vegna þjófnaðar og skorts á viðhaldi. Rússland
hefur breytzt í betlara fyrir dyrum alþjóðabanka.
Rússland getur ekki einu sinni komið hermönnum til
Kosovo, af því að fyrrverandi leppríki þess í Varsjár-
bandalaginu sáluga neita því um rétt til yfirflugs. Rúss-
land varð að flytja 200 hermenn frá Bosníu til Kosovo til
að geta sagt, að Rússland væri með á taflborðinu.
Landinu er stjórnað af fársjúkum fyllirafti, sem magn-
ar óreiðuna með því að ráða og reka ráðherra í tíma og
ótíma. Glæpamenn hafa komizt yfir eignir ríkisins og
mestan hluta þróunaraðstoðarinnar. Rússneska þingið
er málfundaklúbbur, sem setur ekki lög.
Samt heimtar Rússland virðingu og fær hana í orði
kveðnu. Það er ekki virðing af völdum ógnar, heldur
virðing af völdum pirrings. Rússland ógnar ekki lengur
neinum, en getur valdið ýmsum vandræðum, sem aðrir
vilja forðast. Þetta heitir pirringsgildi á fagmáli.
Vesturveldin vilja, að Rússar reyni að hafa áhrif á
Serba, þótt reynslan sýni, að það eru fremur Serbar, sem
stjóma Rússum. Vesturveldin vilja, að Rússar styðji
Rómarfrið nútímans og auðveldi vesturveldunum að
innleiða vestræn gildi víðs vegar um heim.
Vesturveldin vilja draga úr biturð og reiði Rússlands
með því að efla þess hag og sýna því virðingu. Hingað til
hefur þetta ekki gengið upp. Rússland verður fátækara
með hverjum deginum sem líður. Biturð Rússlands og
reiði vex í sífellu og þar með pirringsgildi þess.
Heiðra skaltu skálkinn, svo að hann skaði þig ekki,
segir spakmælið, sem vesturveldin hafa að leiðarljósi í
samskiptum við Rússland og ýmis önnur lönd, sem eru
til vandræða, til dæmis Pakistan, sem hvað eftir annað
hefur efnt til ófriðar á landamærum Indlands.
Til langs tíma litið kunna að gagnast þessar aðferðir
við að beita sálgæzlu í heimsmálunum. Það hlýtur að
minnsta kosti að vera markmiðið, því að skammtíma-
gagnið hefur ekki reynzt vera mikið. Ef til vill verða
menn smám saman flnir menn af flnimannsleik.
Slíkri sálgæzlu má líka beita við smærri lönd, sem
hafa pirringsgildi. Norður í Atlantshafi er til dæmis stór-
auðugt eyríki, sem heimtar að fá að menga heimrnn
meira, þegar bláfátæk ríki lofa að menga hann minna, og
æsir önnur ríki til að sýna hliðstætt ábyrgðarleysi.
Að hætti vesturveldanna má reyna að sýna slíku ríki
með pirringsgildi þá virðingu að taka kvótaerfmgjann,
sem vill menga heiminn í þágu meintra austfirzkra stór-
iðjuhagsmuna, og gera hann að stjórnarformanni Evr-
ópuráðsins í þeirri von, að mannasiðimir leki inn.
Þegar óþekktarormurinn er orðinn háður finimanns-
leik í ljóma sjónvarpsvéla, er hægt að reyna að breyta
leiknum í raunverulega flnimennsku og segja honum, að
eitt auðríkja heims geti ekki hagað sér gagnvart náttúr-
unni eins og það rambi á hengiflugi gjaldþrots.
Hvar sem skálkar eru heiðraðir, svo að þeir skaði ekki
umheiminn, er brýnt, að þess sé sífellt krafizt, að þeir
sýni fram á, að þeir séu virðingar verðir.
Jónas Kristjánsson
Spádómurinn um Obuchi
„Ef þið eru ný í þessum fræðum, þá er nærri því
allt sem þið haldið um Japan einfaldlega rangt.“
Þannig byrjaði lærifaðir minn í japönskum fræðum
fyrsta fyrirlestur haustsins. „Japanir eru einstak-
lingshyggjumenn," sagði hann,
„ekki hópsálir eins og allir Vest-
urlandabúar halda. Þeir eru hins
vegar einstaklingar innan allt
annars konar kerfis en við þekkj-
um, kerfls sem enginn bjó til og
enginn stýrir. Þeir gerðu bylt-
ingu á síðustu öld án þess að
hafa leiðtoga, þeir fóru í heims-
styrjöld og lögðu undir sig hálfan
heiminn án þess að nokkur vissi
hver setti stríðið af stað, eða
hver raunverulega réð ferðinni.
Og nú hafa þeir byggt úr rústum
stríðsins ríkasta og sumpart þró-
aðasta hagkerfl heimsins án þess
að nokkur viti hver stjórnar
landinu eða atvinnulifinu."
Næstu fyrirlestrar á eftir fóru í
leit að þráðum valdsins í Japan.
Námskeiðinu lauk án þess að
okkur tækist að rekja þá saman
í annað en hnút. Kennarinn var
afskaplega ánægður með þann árangur og þótti sem
skilningur okkar hefði aukist. Hann sagði okkur að
hugsa um eiginleika hnútsins, þeir væru aðrir en
þræðirnir gæfu til kynna.
Samstaða gegn breytíngum
Það vildi svo til, þegar þetta var, að nýlega hafði
verið skipt um forsætisráðherra í Japan. Mörg spjót
stóðu á nýja forsætisráðherranum vegna þess að það
fór saman að Japan veu- mjög í miðju í deilum um
heimsviðskipti og í umræðum um alþjóðapólitík.
Fjölmiðlar ræddu mikið um forsætisráðherra, ríkis-
stjóm, þing og stjómarflokk Japans og um afstöðu
þessara aðila og stofnana til hinna stóru mála. Kenn-
ari minn blés á þetta allt saman og sagði þetta fréttir
af orðræðu sem væri fjarri kjama málsins, enda
hefðu þessar valdastofnanir hvorki vilja né mögu-
leika til að taka á þeim málum sem þarna vom á ferð-
inni. Enda kom það á daginn að yflrlýsingar forsæt-
isráðherra, ríkis-
stjórnar, þings og
talsmanna stjómar-
flokksins um vilja
til mikilvægra
breytinga á við-
skiptum Japana við
umheiminn, og um
þátttöku landsins í
alþj óðastj órnmál-
um, efni sem þóttu
mjög fréttnæm um
öfl Vesturlönd á
þeim tíma, voru
eins og tal út í vind-
inn sem enginn tók
mark á í Japan.
Kennari minn
reyndist líka for-
spár um annað.
„Þegar þrýstingur-
inn í hagkerfi og
stjómmálakerfi í
Japan vex,“ sagði
hann, „þá mun
valdakerfið í fyrstu
ná samstöðu um
það eitt að kaupa
sér frið frá breyt-
ingum.“
sem hér var á ferð í vikunni, er sem birting þessa
spádóms. Sjálfur er hann valdalitill eins og flestir fyr-
irrennarar hans en í kringum hann er víðtækt og
afar flókið valdakerfi sem hefur náð saman um það
eitt að nota peninga næstu kynslóðar
til þess að kaupa sér frest frá víðtækum
umbótum. Á síðustu misserum hefur
japanska ríkið sett um að bil 25 þúsund
milljarða króna í árangurslitlar til-
raunir til þess að hleypa vexti í jap-
anska hagkerfið. Peningarnir eru tekn-
ir að láni, enda leikurinn til þess gerð-
ur að auka umsetningu I hagkerfinu.
Skuldir japanska ríkisins vaxa á hverri
viku um þreföld flárlög íslenska ríkis-
ins og stefna nú í sexhundruðfaldar
þjóðartekjur íslendinga. Peningarnir
fara ekki í aukna þjónustu við almenn-
ing, heldur í fraunkvæmdir sem eiga að
auka umsetningu og eftirspurn. Dómur
sögunnar verður líklega þungur.
Þriðja byltingin
Japanska kerflð skilaði meiri árangri í
efnahagsmálum en nánast nokkurt
annað hagkerfi á flörutíu ára tímabili
sem náði fram á þennan áratug. Japanskir peningar
stóðu líka að baki mikiili uppbyggingu um alla Aust-
ur- og Suðaustur-Asiu. Kerfið var hins vegar flarri
því að vera gallalaust og breyttar aðstæður í heims-
viðskiptum hafa gert verstu galla þess stórum verri.
Alvarlegasta ókost japanska kerfisins í atvinnulífi og
stjórnmálum er hins vegar að finna í þeim erfiðleik-
um sem eru á því að breyta kerfi sem enginn stjóm-
ar. Japan hefur tvívegis gengið í gegnum byltingar á
síðustu hundrað og fimmtíu árum. Báðar byltingarn-
ar, bæði opnun landsins fyrir viðskiptum á síðustu
öld og endurskipulagning ríkis og atvinnulífs eftir
ósigur Japana í síðari heimsstyrjöldinni, vom knún-
ar fram af utanaðkomandi öflum. Báðar fóm hins
vegar fram á forsendum Japana, þótt annað kunni að
hafa sýnst. Það verður líklega eins með þær stór-
felldu breytingar sem Japanir verða knúnir til að
gera á þjóðfélagi sínu á næstu árum þegar stefnuleys-
ið, sem Obuchi er fufltrúi fyrir, kemst endanlega í
þrot.
Erlend tíðindi
Jón Ormur Halldórsson
Obuchi
Keizo Obuchi,
„Keizo Obuchi er sem birting þessa spádóms. Sjálfur er hann valdalítill eins og flestir fyr-
irrennarar hans en í kringum hann er víðtækt og afar flókið valdakerfi sem hefur náð sam-
stöðu um það eitt að nota peninga næstu kynslóðar til þess að kaupa sér frest frá víðtæk-
um umbótum."
★ *
oðanir annarra
K ÍC
Komum í veg fyrir mann-
dráp
„Brýnasta verkefiii NATO er að koma í veg fyrir
frekari manndráp. Umtalsverður flöldi Albana sem
voru handteknirfyrir pólitíska starfsemi í Kosovo
fyrir striðið hefur verið fluttur í fangelsi í Serbiu
þar sem þeir eru í hættu. Það ætti að vera ofarlega
á forgangslistanum að tryggja örugga heimkomu
þeirra. Umfang voðaverkanna ætti að styrkja ásetn-
ing Vesturlanda um að leyfa aðeins fáeinar
serbneskar öryggissveitir til málamynda í Kosovo
og koma í veg fyrir að rússneskar friðargæslusveit-
ir starfi sem staðgenglar Serba.“
Úr forystugrein New York Times 22. júní.
Þú líka, norski kjúklingur
„Belgísk yfirvöld höfðu ekki fyrr fundiö orsakir
díoxíneitrunarinnar í dýrafóðri en að fregnir bár-
ust um að norskt kjöt væri heldur ekki gott og
hreint, eins og haldið hefur verið fram. Vandinn
með matvöru sem stenst ekki þær kröfur sem sér-
hver neytandi hefur fullt leyfi til að gera vegna eig-
in heilsu og annarra virðir ekki landamæri. Þegar
matvælaeftirlit ríkisins finnur bakteríur sem sýkla-
lyf vinna ekki á í meira en helmingi sýna af
kjúklingum eru auglýsingarnar um að norskar vör-
ur séu bestar ekki sérlega trúverðugar.“
Úr forystugrein Aftenposten 23. júní.
Ruglast á eplum og perum
„í umræðunni um flárfestingu er eplum allt of oft
ruglað saman viö perur. Eign útlendinga er oft rugl-
að saman við flutning fyrirtækja, heimsvæðingu
viðskiptalífsins er ruglað saman við aðstæður fyr-
ir fyrirtæki heima fyrir og svo framvegis. Neikvæð
öfl innan stjórnmálanna sjá tækifæri tfl að gagn-
rýna stjómina og segja skilyrðin fyrir fyrirtæki
heima fyrir léleg. Staðreyndirnar sýna allt annað.
Skilyrði fyrir flárfestingar hafa ekki verið betri í
áratugi. Verðbólga er lítil, vextir eru lágir, atvinnu-
tækifærum flölgar og frá því að hafa þurft að fá
þriðju hverju krónu lánaða er nú afgangur á flárlög-
nm biá ríkirm “