Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Blaðsíða 22
26 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 Sviðsljós Strandvarðaprinsinn og stórleikarinn David Hasselhoff gat ekki stillt sig um að smella kossi á eiginkonuna Pamelu í haustsólinni í Cannes. Hasselhoff er þar til að kynna nýja þáttaröð sína, Aka Picasso. Enn flækjast ástar- málin Elvisardóttur Maður verður nú bara ruglaður á því að pæla í ástarmálum Lizu Marie Evisardóttur Presley. Hún ku núna vera byrjuö með tónlistar- manninum John Oszajca. Fregnir herma hins vegar að hún haii nýlega aflýst fyrirhuguðu brúðkaupi sínu og lífvarðarins Lúkes Watsons og farið síðan að vera með fyrrum eiginmanni sín- um, Danny Keough. Móðir Johns segir að Liza og sonur hennar séu búin að vera saman frá því snemma á þessu ári. „Þau eru afskaplega ástfangin," segir mamma. Hún er meira að segja búin að hitta stúlkuna. „John kom með hana til Hawaii og við áttum nokkra frídaga sam- an. Hún er yndisleg stúlka, mjög jarðbundin. Þau eru fallegt par og hamingjusamt," segir mamma gamla. Kunnugir segja að ekki sé útilok- að að skötuhjúin gangi í hjónaband áður en langt um líður. Breski kvikmyndaleikarinn og sjarmörinn Roger Moore ver nú öllum stunduð við sjúkrabeð elskunnar sinn- ar, hinnar sænsku Christ- inu. Hún varð fyrir þyí óláni að drukkinn ökumaður ók á hana fyrir utan diskótek eitt í París. „Ekkert er mikilvægara en að Christinu batni,“ sagði Roger í viðtali við blaðamann sænska blaðsins Aftonbladet. Hinrik franski sýnir snilldina Hinrik drottningarmaður í Danmörku er þekktur áhugamað- ur um matar- gerðarlist og fylgist af áhuga með starfi kokk- anna í höllu drottningar. Færri vita hins vegar að prins- inn er sjálfur listakokkur mikill. Reyndar svo mikill að í októberlok kemur út í Danmörku bók með bestu uppskriftunum hans. Bókin mun heita því ágæta nafni Ekki alltaf gæsalifúr. Roger situr hjá elskunni sinni Ekki alltaf gaman hjá gamanleikara: mry r.r.i »$ 1 •-' H -• ‘w v 550 5000. Uf: v*** *♦#>* Mi 4* * 4 •>*.## 'Jk % *• • •*• m t r ,„#> \ * 3* •# k , » : ■ # IiHM' Skilatími: Pantanir og vinnsluauglýsingar þurfa að 66 ó berast fyrir kl. 16 á fimmtudögum en tilbúnar auglýsingar fyrir kl. 14 á föstudögum. V'rgf» aú.fw ar Antt< Netfang: auglysingar@ff.is Bond reddar ekki prinsinum James Bond kann að vera njósnari hennar hátignar Breta- drottningar en hann ætlar nú samt ekki að koma fjárvana sjón- varpsframleiðslufyrirtæki sonar hennar til bjargar. Þannig var að Játvarður prins hafði mikinn áhuga á að gera sjónvarpsþáttaröð um líf Bonds áður en hann varð ofumjósnari númer 007. Þannig ætlaði prins- inn að bjarga fyrirtæki sínu úr ljárhagskröggum. Hann gerði sér meira að segja ferð til Hollywood og lagði áform sín fram við Bar- böru Broccoli, fulltrúa rétthafa of- urhetjunnar. Barbara lét ekki sannfærast og því fór Játvarður tómhentur heim. Carrey dapur vegna ástleysis Það er ekki alltaf gaman að vera gamanleikari í Hollywood. Það segir að minnsta kosti sprellikarlinn Jim Carrey. En það er ekki bara vinnan sem þyngir lund hans þessa dagana heldur einkalífið. Bæði hjónabönd Carreys hafa misheppnast og sem stendur er hann piparsveinn. Það er nú eiginlega aðallega það sem íþyngir honum. Það vantar nefnilega ást í líf hans. „Það er engin sérstök manneskja í lífi mínu og það gengur nærri mér,“ segir Carrey í opinskáu viðtali tímaritið Vanity Fair. Honum gengur að minnsta kosti vel í vinnunni. Margir spá því að Carrey, sem er 37 ára, fái óskarinn fyrir leik sinn í myndinni Man on the Moon. Sjálfur er hann alls ekki viss um að hann hreppi óskarinn. Hann segir líka að það skipti ekki svo miklu máli. LifimdiJctzz íhvöldl KLAUSTRID ANNO MCMXCIX Veitinga- og skenitistaðurinn KLiustrið Klapparstíg 26 • Sími 552 6022 Jim Carrey var glaður þegar hann tók við Golden Globe-verðlaunun- um. Símamynd Reuter „Það er líklega stórkostlegt að fá óskar. En mér geðjast ekki að hugmyndinni um að þuifa að smjaðra fyrir mörgu fólki og breyta sjálfum mér til þess að ég þyki verðugur verðlauna," segir Carrey. Reyndar kom það mörgum á óvart að Carrey skyldi ekki verða útnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni Truman Show sem hann fékk Golden Globe- verðlaunin fyrir. Og ýmsir fullyrtu að hann hefði verið vonsvikinn. En hann kom samt á óskarsverðlauna- hátíðina. Það var til að afhenda verðlaun. Hann gat að minnsta kostið huggað sig við að hann fékk að vera með. Kvikmyndaleikarinn, sem meðal annars er þekktur fyrir leik sinn í myndunum Ace Ventura: Pet Detective, The Mask, Dumb & Dumber og Liar, getur eiginlega hugsað sér að segja alveg skilið við skemmtanabransann. „Ég gæti alveg hætt á morgun. Ég er búinn að fá nóg. Fólk í þessum bransa er svo sjálfselskt og stundum verður mér óglatt af því hvemig ég er sjálfur," viðurkennir Carrey.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.