Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Side 32
36 FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999 T>V nn Ummæli' •Blað allra landsmanna 1 „Það er mál að linni þessum , fiflagangi á Morgun- blaðinu og að rit- stjóramir snúi sér að því að gera blað- ið að blaði allra landsmanna og láti af þröngsýnum hreppasjónarmið- um sem þar ríða röftum." Kristinn H. Gunnarsson alþingis- maöur, í Morgunblaðinu. ísland og Ráðstjómarríkin „Lýðveldi okkar íslendinga á það sameiginlegt með Ráðstjóm- arríkjunum að vera og hafa nán- ast alla tíð verið undir pólitískri stjóm sama aðila og stjómar efha- hagslífi samfélagsins. Og það hef- ur líklega aldrei verið það hrein- legar en nú eftir að samvinnu- hreyfmgin lagði upp laupana." Gunnar Karlsson prófessor, ÍDV. Umhverfismálin „Ég er þess fullviss að Norsk Hydro hefur mun meiri skilning á um- hverfismálum en ís- lenski iðnaðarráð- herrann og jafnvel meiri skilning en íslenski umhverf- isráðherrann." Hrafnkell A. Jóns- son, form. Samtaka um vernd- un hálendis Austurlands, i Degi. 1 Hagvöxturinn „Ég vil benda á að allt að þriðjung af þeim hagvexti sem verið hefur hérlendis undanfar- in ár má rekja beint til stóriðju- framkvæmda. Ef af frekari fram- kvæmdum verður, t.d. á Austur- landi, mun það tvímælalaust hafa áhrif á hagvöxt." Þóröur Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, í Viðskipta- blaðinu. Eina liðið í heiminum „Viö hljótum að vera eina lið- ið í heiminum sem spilar í efstu deild og hefur aldrei tap- að leik þar.“ Pétur Ingvarsson, þjálfari nýliða Ham- ars í úrvalsdeildinni í | körfuboltanum, í Degi. f Sjóveikistilfinning á tónleikum „Lokaverkið á tónleikunum byrjaði einnig vel en um leið og kom að átakakafla keyrði um þverbak og þegar leið á verkið var maður kominn með hálf- gerða sjóveikistilfinningu.“ Arndís Björg Ásgeirsdóttir tón- listargagnrýnandi, í DV. Gísli G. Jónsson torfærukappi: Stefndi alltaf á þriðja heimsmeistaratitilinn „Eg get ekki annað en verið ánægður með sumarið. Þetta er þriðja árið í röð sem ég stend uppi sem heimsmeistari í torfæruakstri og það var ánægjulegt að undir- strika það með sigri á síðasta mót- inu. En mér er engin launung á því að ég stefndi alltaf á þriðja titilinn," segir Gísli G. Jónsson sem tryggði sér heimsmeistaratitil í þriðju og síðustu umferð í heimsbikarmóta- röðinni í gryfjunum við Grindavík um síðustu helgi. Gísli segist ekki frekar en aðrir hafa farið varhluta af óhöppum í þessari litríku keppni þar sem svo sannarlega reynir á þor og dug hvers bíl- |l/| a■ r stjóra: „Ég slapp við IflflOUl stór óhöpp í þetta skiptið. Þetta er kostnaðarsöm íþrótt og það verðim alltaf að reikna með aukakostnaði. Það bilaði dálít- ið, sjálfskiptingar fóru og mótorar og það er þetta sem alltaf má reikna með.“ Gísli hefúr verið á sama bílnum öll þau ár sem hann hefur sigrað, bíl sem hann nefnir Arctic Truck: Hann er búinn að reyna ýmislegt á ferlinum. Ég hóf keppni i torfæru árið 1991og þá á bíl sem kallaðist Bleiki pardusinn. Ég seldi þann bíl að keppnistímabilinu loknu, taldi þetta of dýrt fyrir mig en þegar fór að vora hafði ég rýmri fjárráð og keypti bíl sem Guðbergur Guð- bergsson átti og má segja að ég sé á þeim bíl enn. Gísli rekur eigið bifreiðaverk- stæði, Bilaiðjuna í Þorlákshöfn þar sem hann býr og gerir að mestu leyti við bílinn sjálfur. „Stundum fæ ég stráka til að hjálpa mér við viðgerðir en geri þetta að mestu leyti einn. Það munar öllu að hafa góða aðstöðu eins og ég hef hér, maður gerir ekki við bílinn á göt- unni.“ Gísli segist hafa mjög gaman að tor- færunni: „Þetta er samt mjög lýjandi og það er ekki laust við að á dagsins haustin sé mað- ur orðinn mjög þreyttur enda er unnið með þessu af fullum krafti Það má segja að allt sumarið fari í þetta. Maður er í vinnunni dagsdag- lega, kepp- ir inn helg- ar og ger- ir vi* á kvöldin. Það er nú samt þannig að þó maður sé búinn að fá nóg á haustin kemur alltaf fiðringurinn upp í manni á vorin. Ég hef haft það fyrir sið undanfarið að setja bíl- inn í geymslu yfir vetrarmánuðina svo ég hafi hann ekki fyrir augun- um, reyni að losna við að hugsa um hann og það hefur tekist ágæt- lega.“ Á veturna hefur Gisli mjög gaman af fjallaferðum: „Ég fer dálítið á jeppa upp um fjöll, það er að segja ef ég á hann, og einnig á snjósleðum þegar hentar." Eiginkona Gisla heitir Vigdís Helgadóttir og eiga þau tvær dætur.“ -HK Einelti Fyrirlestur um einelti verður í hátíðarsal Breið- holtsskóla í kvöld, kl. 20.30. Fyrirlesturinn heldur Guð- jón Ólafsson sérkennslu- fræðingur. Að þessum fyrir- lestri stendur Foreldrafélag Breiðholtsskóla og einnig foreldrafélög leikskólanna Amarborg- ar, ,Bakka- borgar og Fálkaborgar. Á tyrirlestrinum verður rætt um einelti og hvað for- eldrar geta gert við því. Slímhúðar- bólusetning í dag, kl. 16.15, flytur Haavard M. Jakobsen fyrir- lesturinn: Slímhúðarbólu- setning meö prótíntengdum pneumokokkafjölsykrum í músum í málstofu lækna- deildar. Málstofan fer fram í sal Krabbameinsfélags ís- lands, efstu hæð. Ný lífssjón Ný lífssjón, samtök fólks sem vantar á útlimi og að- standenda þeirra, halda fund á Akur- eyri á laugar- dag, kl. 14, í sal Kiwanis- klúbbsins, verslunarmið- stöðinni Sunnuhlíð 12k. Samtökin voru stofnuð 4. apríl 1998 og sóttu fundinn þrjátíu manns. í dag er skráður fjöldi félagsmanna um áttatíu og er bæði um að ræða einstaklinga sem hafa misst eða fæðst án út- lims og aðstandendur og velunnara. Samkomur Skriðmælir Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorðl. Bjartur í Sumarhúsum (Ingvar E. Sigurðsson). Sjálfstætt fólk í Þjóðleikhúsinu eru að hefjast á ný sýningar á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríð- ar Margrétar Guðmundsdóttur. Leikritið skiptist í tvo hluta, Bjart og Ástu Sóllilju. Sýningar á fyrri hlutanum hefjast í kvöld og á síð- ari hlutanum annað kvöld. Sjálf- stætt fólk var frumsýnt á liðnum vetri og hlaut mjög góðar viðtökur í alla staði. Nokkrar mannabreytingar hafa orðiö í sýningunni síðan í vor, Elva Ósk Ólafsdóttir hefúr tekið við af Eddu Amljótsdóttur og Edda Heiðrún Backman hefur tek- ið við af Ólafiu Hrönn Jónsdóttur. Einnig hefur orðið sú breyting í hljómsveitinni að í stað Tatu Kantomaa er kominn Krist- ján Eldjám. Aðrir leikarar í Sjálfstæðu fólki eru Ingvar E. Sigurðsson, Amar Jónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Valdimar Örn Flygenring, Herdís Þorvaldsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Bergur Þór Ingólfsson, Gunnar Eyjólfsson, Kristbjörg Kjeld, Magnús Ragnarsson, Stefán Jónsson, Þór H. Tulinius og Rand- ver Þorláksson. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson. Leikhús Bridge I mörgum tilfellum er hægt að draga miklar upplýsingar af sögn- um andstæðinganna en margir gleyma þvi að það felast einnig upp- lýsingar í því að andstæðingarnir segja ekki á spilin. Hér er 30 ára gamalt spil þar sem sagnhafi var Bandaríkjamaðurinn Billy Eisen- berg. Hann lenti í samningi sem leit ekki gæfulega út en dró réttar álykt- anir sem leiddu til vinnings í spil- inu. Suður gjafari og AV á hættu: * Á1082 •* DG7 * 872 * 642 * K7 •* ÁK42 * 1096 * G1085 é D9653 •* 1096 * K53 * K3 Suður vestur norður austur Pass 1 * pass 1 * Pass 1 grand pass 2 grönd Pass' 3 grönd p/h Ósköp eðlilegar sagnir á standard sagnkerfi,. Eisenberg sat i vestur, lofaði 12-14 punktum og jafnskiptri hendi þegar hann sagði eitt grand og þegar félagi hans gaf áskorun hækkaði hann í þijú. Norður spilaði út spaðatvisti og þær upplýsingar fást að útspilaregl- umar hjá vöminni gegn grandsamn- ingnum eru fjórða hæsta. Þar með ligg- ur nokkuð ljóst fyrir að norður á 4 spil og suður 5 spil í spaða. Samningurinn er ekki gæfulegur og báðir láglitakóngamir verða ein- faldlega að liggja i spilinu til að hægt sé að vinna það. En hvort á að hleypa spaðanum yfir á gosann heima eða stinga upp kóngnum í blindum? Eisenberg vissi nákvæm- lega hvað hann var að gera. Suður varð að eiga báða láglitakóngana og ef hann átti einnig spaðaásinn hefði hann einfaldlega komið inn á einum spaða eftir hjartasögn austurs. Með það fyrir augum stakk hann upp kóngnum í blindum og fékk 11 slagi. ísak Örn Sigurðsson * G4 •* 853 * ÁDG4 * ÁD97

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.