Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 Fréttir Aðeins eitt tilboð barst í FBA - 26 aðilar standa að því: Kaupa FBA-hlutinn á lágmarksgengi Tveir lífeyrissjóðir eru stærstir í hópi þeirra 26 aðila sem kaupa munu 51% hlut ríkisins í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins (FBA) á 9.710 milljónir króna. Aðeins eitt tilboð barst og var það að frumkvæði Orca- hópsins. Undanfarna daga hefur verið unnið að því að fá fleiri aðila inn í tilboðið og var endanlega gengið frá þátttöku Árni Bergmann: Á launum hjá sovétkommum „Það var boðið upp á að Pravda greiddi póst- og símakostnað sem ég notaði eiginlega ekki. Svo var mér útveguð íbúð. En fjármálin voru leyst dálítið öðru vísi,“ segir Ámi Bergmann en sovéski komm- únistaflokkur- inn samþykkti að greiða laun og annað kostn- að við dvöl Áma sem fréttaritara Þjóðviljans í Moskvu að því er fram kemur í Moskvulínunni, bók Amórs Hanni- balssonar. „Ég man ekki hvort mér var bein- linis boðið þetta en ég ræddi við þann mann sem hafði með þetta að gera og sagði honum að ég vildi held- ur reyna að fá „free-lance“ verkefni. Svo var konan mín að vinna,“ segir Árni. Hann vísar því á bug að hafa þegið 2000 rúblna mánaðarlaun sem sovéski Rauði krossinn átti að greiða honum sem fréttaritara Þjóðviljans í Moskvu. Ámi bætir við aö flókin íjölskyldumái hans hafl þurft úr- lausnar við og að kommúnistaflokk- urinn einn hefði getað leyst þau. „Ég bað Magnús Kjartansson að hjálpa mér að fá blaðamannaréttindi og hann hefur beðið Einar Olgeirsson að ganga í málið," segir hann. Ámi átti að fá 2000 rúblur i laun á mánuði en þorri verkamanna 600 til 700 rúblna mánaðarlaun á þessum tíma. Prófessorar fengu þó 6000 til 10.000 rúblur. -GAR 62 ára karlmaður aðilanna í gær, fóstudag. Lífeyrissjóð- ur verslunarmanna og lífeyrisjóður- inn Framsýn munu hvor um sig eiga 6% i bankanum eftir kaupin og nokkrir aðrir lífeyrissjóðir samtals 5%, en þessir sjóðir em Lífeyrisjóður Vesturlands, Lífeyrissjóður Vest- mannaeyja, Söfnunarsjóður lífeyris- réttinda, Lífeyrisjóður sjómanna og Samvinnulífeyrissjóðurinn. Meðal annarra fjárfesta má nefna Þróunarfé- lag íslands og Samvinnusjóð íslands, Gunnar Björgvinsson flugvélasala sem eignast mun 4% hlut í bankan- um, Bjarna Armannsson, forstjóra FBA, og þrjá framkvæmdastjóra bankans, Svanbjörn Thoroddsen, Tómas Kristjánsson og Erlend Magn- ússon, sem kaupa munu lítinn hlut, auk þess sem bankinn sjálfur hefur skráð sig fyrir liðlega 4% hlut. Þá munu liðsmenn Orca-hópsins hafa skráð sig fyrir nokkrum hlut. Þess ut- an era ýmsir einstaklingar skráðir fyrir á bilinu 1% til 4%. Enginn banki er í hópi bjóðenda. Þórarinn V. Þórarinsson, stjómar- formaður Framsýnar, staðfestir þátt- töku sjóðsins í FBA-tilboðinu. „Fjár- festingarbankinn er mjög áhugaverð- ur en salan hefur ekki farið fram þannig aö það er ekkert meira um málið að segja fyrr en eftir það,“ seg- ir Þórarinn. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyr- issjóðs verslunarmanna, segir FBA mjög áhugaverðan. „Það er öflugur stjórnendahópur og mjög öflugt starfs- lið í bankanum. Bankinn hefur sýnt frá því að hann var stofnaður að hann hefur alla möguleika inn í þá miklu þróun sem er á fjármagnsmarkaði og þær breytingar sem era að verða með því að aflir múrar milli fjármagns- markaðarins hér innanlands og er- lendis eru að falla,“ segir Þorgeir. Eina þátttökutilkynningin sem barst vegna sölunnar uppfyllir alla skilmála um skyldleika, fjárhagsleg tengsl og eignarhlut hvers bjóðanda, samkvæmt áliti sérstakrar matsnefndar. Því hefur framkvæmdanefnd um einkavæðingu boðið hópnum kaupa allan 51% hlut ríkisins á 9.710,4 milljónir króna eða á genginu 2,8. Frestur bjóðenda til að svara þessu boði er til næsta fóstudags og skal greiðsla alls söluverðsins fara fram í siðasta lagi mánudaginn 15. nóvember. -GAR Mikið var að gera í Blóðbankanum í gær eftir að auglýst hafði verið í útvarpi að blóðgjafar fengju tvo miða í bíó fyrir að gefa blóð. Hér sést starfsmaður Blóðbankans gefa blóðgjafa miða með bros á vör, enda geta báðir tekið undir að sælla er að gefa en að þiggja. DV-mynd E.ÓI. sá sem lögreglan hirti af þúsundir svæsinna klámspólna: Ég keypti barna- klámið í Danmörku „Ég hef verið að kaupa þetta efni meðal annars í Kolaportinu og víð- ar. Bamaklámið er efni sem ég keypti fyrir mörgum árum í Dan- mörku og Hollandi," sagði Birgir Th. Bragason, 62 ára íbúi í Reykja- vík, sem er grunaður um að hafa leigt út svæsið klám sem vekur við- bjóð og ekki síst barnaklám. Lög- reglan lagði hald á 4000 myndbönd á heimili mannsins, um 2000 mynd- bönd með svæsnu klámi og um 100 myndbönd með barnaklámi þar sem 5-6 ára börn eru m.a. bundin og bar- in. Lögreglan lítur mál Birgis mjög alvarlegum augum. Samkvæmt heimildum DV varð lögreglumönn- um svo mikiö um að sjá ýmislegt af hinum rúmlega tvö þúsund klám- spólum mannsins að menn urðu andvaka á eftir. - Er ekki ónátt- úra og ólög að vera með barnaklám undir höndum? „Ég horfði nú sárasjaldan á þetta.“ - Sýndir þú öðr- um barnaklámið? „Ég vil nú helst Birgir Th. Bragason ekkert tjá mig um það. Það eru nokkrir öfugugg- ar hér á landi sem ég vil ekki nafngreina að svo stöddu. Ég gaf. skýrslu um þetta í gær. Það er sagt að ég hafi verið að leigja og selja barnaklám en það er lygi og vitleysa." - En annað klámefni, leigðir þú það út? „Bara það sem menn geta fengið á öllum videoleig- um og geta keypt bæði í Kolaport- inu og á öðrum stöðum." - En þú ert ekki með myndbanda- leigu? „Nei, þetta hefur bara verið í einkaleigu hjá mér í gegnum árin.“ - En hvers vegna ertu með barnaklám undir höndum? „Þetta eru myndir sem ég keypti fyrir mörgum árum í Danmörku og Hollandi, á þeim árum sem þetta var leyfilegt." Mál Birgis verður sent ákæra- valdi áður en langt um líður. Hann mun síðan mæta fyrir dóm þar sem svarað verður til saka. -Ótt Stuttar fréttir i>v Rafmagnstruflanir Rafmagnstraflanir urðu um klukkan hálf átta í gærmorgun, m.a. í Hátúni, Skipholti og á Laugarvegi. Samkvæmt upplýsingum frá Orku- veitu Reykjavíkur höfðu tveir há- spennustrengir slitnað. Vísir.is greindi frá. Kristnihátíð í Forseti Is- lands, Ólafur Ragnar Gríms- son, flytur hátíð- arræðu á Kristnihátíð Snæfellsnes- og Dalaprófasts- dæmis sem hald- in verður á sunnudag. Hátíðin verð- ur haldin í Stykkishólmskirkju og munu kirkjukórar og tónlistarfólk frá Snæfellsnesi syngja og flyfja tón- list. Benda á fólk í atvinnuleit Svæðisráð Vinnumiðlunar höfuð- borgarsvæðisins hefur sent leikskól- um Reykjavíkur bréf, þar sem bent er á að um 1600 manns séu í leit að atvinnu, en 12 leikskólar á höfúð- borgarsvæðinu senda nú böm fyrr heim vegna skorts á vinnuafli. Minni laxveiði en í fýrra Laxveiðitímabilinu í íslenskum ám lauk 30. september. Samkvæmt fyrstu tölum var stangaveiði um 30.800 laxar sem er um 23% minni veiði en var 1998 og um 13% undir meðalveiði áranna 1974-1998. Vís- ir.is greindi frá. Starfsmenn ekki í hættu Forsvarsmenn Noröuráls vilja taka fram að viðbrögð starfsmanna hafi verið fumlaus og ákveðin og í samræmi við viðbragðsáætlun Norðuráls. Starfsmenn hafi enn fremur ekki verið í hættu. Landgræðsluverðlaun Landgræðsla ríkisins veitti í gær land- græðsluverð- laun. Vora þau veitt Jóni Hall- grímssyni, Mæh- völlum, Jökul- dal, Leó Guð- laugssyni, Kópavogi og ungmenna- hreyfing Rauða kross íslands. LR að eyða samkeppni? Bandalag atvinnuleikara íhuga að kæra LR til samkeppnisstofnunar fyrir að selja leikhúsmiða á hálf- virði. Bandalagið telur að með þessu sé LR að fella miðaverð í krafti styrkja frá Reykjavíkurborg og drepa niður samkeppni á þessum markaði. Ámi Möller, framkvæmda- sfjóri LR, vísar því á bug. Bylgjan greindi frá. Aukin rafleiðni í ánum Samkvæmt heimildum frá Vatna- mælingarmönnum Orkustofnunar reyndist rafleiðni í Múlakvísl og Jökulsá í fyrradag og í gær en und- anfama daga. Aukin rafleiðni vísar til aukins hlutfalls jarðhitavatns. Færri ferðir á gamlársdag Flugleiðir hafa ákveðið að fækka ferðum í áætlunarflugi félagsins á gamlársdag. Þetta er fyrst og fremst gert vegna lítillar eftirspurnar. Ekkert úr samruna Ekkert verður úr kaupum ís- lenska útvarps- félagsins á Fín- um miðh en við- ræður ÍÚ og Saga Commun- ications, sem á ráðandi hluta í Finum miðli, vora komnar á loka- stig nú í vikunni. Vísir.is greindi frá. Básafell stokkað upp Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf., Básafell hf., Þormóður rammi-Sæ- herg hf. og fleiri hafa stofnað félag sem kaupir rækjuverksmiðju og frystigeymslu Básafells á ísafirði. Þá hefur orðið að samkomulagi að Hraðfrystihúsið-Gunnvör kaupi var- anlegar aflaheimOdir af Básafelli fyrir allt að 600 milljónir króna. Við- skiptavefurinn á Vísi.is greindi frá. -AA Stykkisholmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.