Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Qupperneq 23
23
1
LAUGARDAGUR 30. OKTOBER 1999
ijk *
'•:/á
9
IJJ Nj | \ r l Ú
91
A'I
l\
Bá£S
!/éé
BL-aR ; v*
F\ 11
%
l
Vi
‘ jlÉJEECíSL^ f '
$ ' . j*. .'JVLZim - 4
I-W ' '--..i > »
r
Morgunsjónvarp
Stöðvar 2 og Bylgjunnar
hefst kl. 7 á mánudagsmorgun
r*. Halldóra Biarnadóttir, Gunnar Smári Egilsson-hitamál
h Samskipti Kynjanna Kristjnn R ó|afsson ■ Madrid
r, Valdimar Svavarsson, Guðni Ölversson - Noregi
ii Fjármál Þorvaldur Jensen - Kaupmannahöfn
Morgunþátturinn ísland í bítið er í umsjón Gudrúnar Gunnarsdóttur,
Snorra Más Skúlasonar og Þorgeirs Astvaldssonar.
Þessir glaðvakandi morgunhanar færa þér daginn á silfurfati. Horfðu
á fréttirnar og taktu púlsinn á þjóðmálunum, umferðinni, færðinni,
veðrinu og íþróttunum strax í bítið. Fylgstu med forvitnilegum
pistlum frá öllum lands- og heimshornum, njóttu góðrar tónlistar
- og vertu með á nótunum!
Morgunhressir íslendingar verða heimsóttir og gestir líta inn til að
ræða það sem er efst á baugi, bæði í gamni og alvöru. Umsjónarmenn
þáttarins skoða dagblöðin og netið.
Fastir pistlahöfundar þáttarins verða meðal annarra Össur
Skarphéðinsson og Pétur Blöndal sem fjalla um pólitík; Gunnar
Smári Egilsson sem fjallar á beinskeyttan hátt um hitamál líðandi
stundar; Halldóra Bjarnadóttir lítur inn og ræðir um kynlíf og
kynlífshegðun;Valdimar Svavarsson skýrir frá því sem hæst ber í
heimi viðskiptanna; Súsanna Svavarsdóttir talar um nýjustu
bókmenntirnar og Óskar Jónasson verður með bíógagnrýni.Að auki
láta pistlahöfundar í útlöndum til sín taka en af þeim má nefna
Kristin R. Ólafsson í Madríd, Guðna Ölversson í Noregi og Þorvald
Jensen í Kaupmannahöfn.
ísland í bítið er í opinni dagskrá Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Það þýðir
að ef þú þarft að rjúka áður en umræðunni er lokið getur þú haldið
áfram að fylgjast með í bílnum (eða í vinnunni).
Útsending á Stöð 2 mun halda áfram eftir kl. 9.00, sem er einnig
nýjung, og verður þá dagskrá Stöðvar 2 samfelld frá kl. 7.00 á
morgnana og fram yfir miðnætti alla virka daga.
r