Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Qupperneq 25
JLlV LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 Stefán Jón Hafstein fjölmiðlamaður, stangaveiðigarpur og sjarmatröll er sá karlmaður sem þjóðin vill helst fá upp í til sín. Stefán virðist oft svo nálæg- ur þegar kímnisglampinn í augunum og skeggið fylla út í skjáinn að ekki er að undra þótt konur dreymi. Stefán hljómar eins og hann hafi vit á öllu og staðfestir þannig hve kynþokki er nátengdur gáfum. Svo er hann gríðariega fingraiipur eftir áralangar æfingar f fluguhnýtingum og slíka mýkt kunna konur að meta. Þessar karlar eru líka Sigmundur Ernir Rúnarsson les fréttir af slíkum þokka og norð- lenskum hreim að hann fer í eitt af efstu sætunum. Svo yrkir hann Ijóð og eignast börn af meira kappi en aðrir. Þetta svínvirkar auðvitað. Svona menn vilja margar konur. Þorsteinn Joð Vilhjálmsson er með- al sjarmatrölla sem hvað flest ís- lensk fljóð dreymir um. Kannski er það breiða hvíta brosið? Kannski eru það ólíkindalegar og Ijóðrænar spurningar hans. Sennilega dregur lengst þessi einlægi áhugi sem maðurinn virðist hafa á öllu milli himins og jarðar. Líka konum. kynþokkafullir: Hilmir Snær Guðnason Páll Óskar Hjálmtýsson Fjölnir Þorgeirsson Þórhallur Gunnarsson Arnar Björnsson Árni Mathiesen Árni Þór Vigfússon Björn Jörundur Friðbjörnss. Bogi Ágústsson Geir Sveinsson Gísli Marteinn Baldursson Guðjón Þórðarson Gunnar Vigf ússon Hinrik Ólafsson Jóhann G. Jóhannsson Júlíus Jónasson Karl Garðarsson Pálmi Gestsson Sigurður Sveinsson Stefán Karl Stefánsson Svavar Örn Valdimar Örn Flygenring Þorgrímur Þráinsson Þorvaldur Þorsteinsson bæði Ólafur Ragnar Grimsson, forseti íslands, og Dorrit Moussai- eff komust inn á lista en hann fékk meiri stuðning en hún. Þokki óháður aldri Stundum er samtími okkar skammaður fyrir æskudýrkun í óhófi. Ef marka má þessa kosn- ingu fer kynþokkinn ekki að ljóma neitt að ráði fyrr en eftir þrítugt. Konur eiga hér heldur erfiðar upp- dráttar en karlar, en í fljótu bragði sýnist aðeins ein kona á listanum vera um fimmtugt, hinar eru yngri. Þessu er öfugt farið hjá körlum. Þar virðist kynþokkinn farn spinna af ncr hpra .Tnn Rnldvin Björgvin Haildórs- son á að hafa spurt stúlku eitt sinn: Veistu ekki hver ég var? Kynþokki hans er greinilega ekki alveg í þátíð því kappinn kemst á blað. ~| Páll Skúlason fékk atkvæði út á sinn kynþokka og sýnir '■ að andinn heillar . T ’ ekki síður en efnið V * en Páll er þekktur 'JéJ fyrir heimspekilega nálgun frekar en Karl Sigurbjörns- son biskup komst á listann yfir þá sem dálitlum kynþokka stafar frá. Sumar konur virðast halda að hann sé enginn engill. Ingvar Sigurðsson er mörgum konurn minnisstæður frá því að hann steypti berrassaður stömpum á leik- sviðinu og lék svan. Hann skipar greinilega ýmis hlutverk í draumum íslenskra kvenna sem vildu gjarnan fá hann, með eða án fjaðrahams. Bergþór Pálsson, söngvari og leikari, á greinilega upp á pallborðið hjá mörgum sem vilja ólmir komast upp í til hans. Bergþór syngur sig ekki bara inn í hjörtu fólks heldur hreyfir við öðrum boðefnum líka. IP Sigursteinn Más- son reyndi að upp- | ■ lýsa Geirfinnsmálið ” <T en tókst ekki. Hann kemst hátt á listann því íslenskum kon- um finnst barátta hans fyrir töpuðum málstað svo heillandi. Nema það séu brúnu augun. Það fer greinilega skjálfti um íslensk- ar konur þegar risa- vaxið og blíðlegt andlit Ragnars Stef- ánsson birtist á skjánum. Hann er fulltrúi hinna þétt- vöxnu íslensku karlmanna sem kon- ur vilja greinilega fá að faðma að sér. Dúndurhjónin Jón Baldvin Hannibals- son og Bryndís Schram eru bæði á listanum svo Ijóst er að kynþokkinn dregur yfir hafið langt úr vestri yfir tímabeltin fimm eða sex. Þau eru hvort um sig meðal elstu einstak- linga sem fá atkvæði. Það er valdið sem Jón hefur sem hrífur konur hvar sem er í heiminum en Bryndís hefur ailtaf heillað íslenska karla, allt frá Stundinni okkar hérna um árið. BO| Hér eru önnur I dúndurhjón sem " - \'sípjP| bæði beilla kynin 'upp úr skónum. Ingibjörg Sólrún AJ stjórnar borginni *’ ■ og karlana dreymir um að láta hana -——1-3 stjórna sér. Kannski ekki með harðri hendi samt. Hjörleifur Sveinbjörnsson þýðandi og maður hennar veit hvað allt þýðir, meira að segja þótt það sé á kínversku. Svona maður hlýtur að skilja konur iíka. Ólafur Ragnar og Karl Sigur- björnsson vitni um það. Sem sagt: einu sinni sexí, ávallt sexí. páá Þótt fullyrt sé f Fókusi að Stuðmenn séu að selja líkið af ömmu sinni á lát- lausum hringferðum um landið er ekkert dauðyflislegt við eggslétt höfuðlag barítonsins og erkistuðmannsins Egils Ólafssonar. Kappinn þrykkir sér beint f annað sæti þótt hann sé kominn á fimmtugsaldurinn. Það handleikur enginn fallusartákn hljóðnemans af sömu lipurð og Egill. Jón Arnar Magnússon. Það að hann skyldi vera látinn keppa í spretthlaupi við stríðalinn skagfirskan gæðing í Dagsljósi hér um árið staðfestir að í vit- und þjóðarinnar er maðurinn alger stóðhestur. Þetta á við um kvenþjóðina sem lætur ekki sérviskulegt litað skeggið og misjafnt gengi í tugþraut villa sér sýn. Hann kemst alltaf í mark hjá þeim. Baltasar Kormákur hefur sýnt styrkt taumhald um dagana og tregafullt augnaráðið í bland við suðrænt úfið yfirbragð tryggir honum pláss í draum- um íslenskra kvenna. Hann brokkar beint í eitt af efstu sætunum í flokki með fréttamönnum og slfkum sjarmahaukum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.