Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Side 31
1>V LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 bókarkafli« danskri heimsvaldastefnu og dönsku konungsveldi. Til þess að geta svikið verkamenn noti burgeisastéttin Aiþýðuflokkinn, sem hafl að sínu leyti svikið verka- menn og alla stéttapólitík. Alþýðu- flokkurinn vinni að því að spilla æskulýðnum með því að ráða unga menn í þjónustu ríkisins eða ríkisauð- valdsfyrirtækja. Sentristar hafi alveg fallið í faðm hins spillta krataveldis. Verkamenn hafi kosið Alþýðuflokk- inn 1927 en einungis séð allar sínar vonir sviknar. Holdgervingur svikanna sé leiðtoginn, Jon Bald- evonsin (svo í textanum, á að vera Baldvinsson). Af öllu þessu leiði, að verkalýðs- stéttin sé að verða æ róttækari. Bar- áttan gegn miskunnarlausu innlendu og erlendu arðráni, gegn hinni aftur- haldssömu burgeisapólitík, sé hafin og falli saman við viðleitni kommún- ista. En ef Alþýðuflokkurinn eigi ekki að sigra verði kommúnistar að halda sig við rétta stefnu og megi ekki falla í hentistefnu- og sentrista-öngþveiti. Félög kommúnista skorti miðstýringu og þjálfaða leiðtoga. Þetta hafi t.d. komið í ljós í greinum í tímaritinu Rétti, þar sem daðrað hafi verið við smáborgaralegar blekkingar eins og að þingræði gæti nýtzt til einhvers (í greininni „Erindi bolsivismans til bænda"). Kommúnistar stofni sjáifstætt verkalýðs- samband Einar Olgeirsson var tíður gestur í Moskvu allt frá því hann sótti þing Komiterns. Hér er Einari fagnað við komuna til Austur-Berlín 1969 en þá var Einar við- staddur hátíðahöld á tuttugu ára afmæli þýska alþýðulýðveldisins. Verkefni kommúnista eru skil- greind svo: 1. Stofna sjálfstætt verkalýðssam- band. Til marks um það, hversu mikla áherzlu leiðtogamir í Moskvu lögðu á, að íslenzkir kommúnistar stofnuðu sérstakt verkalýðssamband, er bréf frá Profintern, Rauða alheimsverka- lýðssambandinu, til íslenzkra komm- únista frá því í maí 1930 þar sem gef- in er skipun um stofnun slíks sam- bands og gefið nákvæmlega upp hversu skuli skipuleggja það, hvaða hugmyndafræði það skuli aðhyllast og hvaða kröfur skuli settar á oddinn. KtS: 534-6-80,12-18. 2. Krefjast styttri vinnudags með fullum launum, tveggja vikna orlofs, gegn akkorðsvinnu. 3. Meistarar kenni lærlingum en noti þá ekki sem ódýrt vinnuafl. 4. Starfsemi verkalýðsfélaga verði á grunni stéttabaráttunnar og undir for- ystu Rauða alheimsverkalýðssam- bandsins (Profinterns). 5. Lækkun tolla og skatta. 6. Verkalýðsfélög séu öllum opin án tillits til stjórnmálaskoðana; brjóta á íslands í því stríði. 9. Komið sé í veg fyrir verkfalls- brot. Komið sé upp varðliði verkalýðs til baráttu gegn verkfallsbrjótum og fasistum. 10. Gegn allri stéttasamvinnu, gegn gerðardómum, eining gegn auðvaldi. 11. Byltingarsinnar taki forystu í verkfollum. 12. Framlög verkamanna til Al- þýðuflokksins (gegnum Alþýðusam- bandið) verði sett í verkfallssjóði. 13. Kommúnistar komi upp liðum í öllum félögum verkalýðshreyfmgar- innar. 14. Sama verði gert í öllum al- mannasamtökum. Stofnuð verði „samúðarsamtök“ og kommúnistar hafi sterk lið i þeim ölliun. 15. Kommúnistar verði að skipu- leggja sig og koma upp miðstjórn til að stýra öllu starfmu. Þetta var i september 1930. Hinn 1. október sendir Komintern íslenzkum kommúnistum bréf með fyrirmælum um næstu skref. Brynjólfur Bjarnason og Hendrik Ottósson í hópi ungra manna sm voru í for- ystu Alþjóðasambands ungra kommúnista. Myndin er tekin 1920 þegar 2. þing Kominterns stóð yfir. Brynjólfur stendur í annarri röð lengst til hægri, en Hendrik er honum á hægri hönd. Sitjandi, 4. maður frá hægri, er Willi Munzenberg. bak aftur veldi sósialdemó-krata í verkalýðshreyfmgunni. 7. Verkamenn séu i forystu í verka- lýðsfélögum. 8. Hert sé á áróðri fyrir Sovétríkj- unum og gegn öllum tilraunum til að gera verkalýðinn óvinveittan þeim. Efld sé barátta gegn heimsvaldastríði á hendur Sovétríkjunum og þátttöku Smáborgaralegur hugs- unarháttur lanulægur í upphafi er farið yfir það hversu kommúnistar hafi staðið sig við að fylgja fyrirmælum frá 1. apríl 1930. Lögð er á það áherzla, að á íslandi sé smáborgaralegur hugsunarháttur landlægur og því hætta á, að komm- únistar smitist af honum. Þvi séu meðal íslenzkra kommúnista menn, sem fremji þá villu að telja, að það gangi fyrir að rífa verkalýðsfélög út úr Alþýðusambandinu án þess að skilja hlutverk kommúnistaflokksins sem forystuafls og skipuleggjanda ein- dreginnar baráttu gegn sósíalde- mókrötum og sentristum og leggist því gegn stofnun sjálfstæðs kommún- istaflokks. Þá hafi blaðið Mjölnir á Siglufirði mælt með því að kommún- istar greiddu krötum atkvæði í kosn- ingum, og nú, þegar stéttaandstæður harðni, sé alið á þeirri blekkingu að valdataka verkalýðsstéttarinnar (þ.e. flokksins) geti orðið með þingræðis- legum hætti. „Allir félagarnir á Is- landi verða að gera sér grein fyrir þvi, að stofnun kommúnistaflokks er það höfuðverkefni, sem þeir standa nú frammi fyrir.“ En eftir að Kommún- istaflokkur íslands hafi verið stofnað- ur verði kommúnistar að halda áfram að starfa innan Alþýðuflokksins til að berjast gegn stéttsvikum krataforingj- anna. Þá eru ítrekuð flest þeirra bar- áttumála, sem greint var frá hér að ofan, en lögð á það höfuðáherzla að kommúnistar búi sig vel undir kom- andi Alþýðusambandsþing, og til- greind þau mál, sem kommúnistar skuli bera þar upp. Þar er lögð höfuð- áherzla á baráttu fyrir því að rifa verkalýðsfélög út úr Alþýðusamband- inu og stofna sjálfstætt verkalýðssam- band, sem segi sig úr lögum við Al- þjóðaverkalýðssambandið í Amster- dam... Kommúnistaflokkur Is- lands viðurkenndur Kommúnistaflokkur íslands var siðan stofnaður 29. nóvember 1930. Stofnendur voru 17. Viku síðar sendi félagi Hilt skeyti til leiðtoga hins nýstofnaða flokks: „Berjast gegn auðvaldi, afhjúpa leiðtoga sósíaldemókrata, útbreiða flokksblöðin, uppræta öll tækifær- issinnuð öfl í eigin röðum stop Við væntum þess að fá skýrslu um þing- ið . . . Gerið svo vel að senda reglu- lega Verkalýðsblaðið og Rétt. Hilt.“ Hinn 18. febrúar 1931 samþykkti stjómmálanefnd Kominterns að við- urkenna Kommúnistaflokk íslands sem deild í Komintern." (Millifyrirsagnir eru blaðsins.) Samþykkt að greiða félaga Bergmann í bók Arnórs Hannibalssonar er birt skrá úr safni Alþjóöadeildar Kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna (KFSR) um samband hans (önnur en fjármálasamskipti) við forystumenn Samein- ingarflokks alþýöu - Sósíalistaflokksins (SAS) á árunum 1953-1980. Eftirfarandi er stutt brot um samskiptin árin 1959-1960. „*18.2. 1959: Samþ. að verða við beiðni Einars Olgeirssonar um komu hans til Sovétríkjanna í marz-apríl 1959. Alþjóðadeild og skrifstofa miðstjórnar KFSR greiða kostnað. *4.3. 1959: Samþ. áætlun um menningarsamskipti við ísland á árinu 1959. Þar er fyrirhugað að bjóða rithöfundinum Laxness til dvalar í Sovétríkjunum á vegum sovézka rithöfundasambandsins. *10.4. 1959: Samþ. að taka við til hvíldardvalar Áskeli Snorrasyni að beiðni miðstjórnar SAS. Allan kostnað skal fjármálaráðuneyti greiða, nema útgjöld í erlendum gjaldeyri. *24.4. 1959: Samþ. að skipa menningarmálaráðuneyti SR að greiða rithöfundinum Halldóri Laxness höfundarlaun fyrir leik- verkið Seld vögguvísa (Silfur- tunglið) að upphæð 10.000 rúblur í erlendum gjaldeyri. *5.5. 1959: Samþykkt: 1) Verða við beiðni miðstjórnar SAS að taka við Árna Bergmann sem fréttaritara Þjóðviljans í Moskvu. 2) Skylda dagblaðið Pravda til að taka á sig póst- og símakostnað fréttaritara Þjóðviljans. 3) Skylda framkvæmdastjórn sovézka Rauða krossins og Rauða hálfmánans til að greiða fél. Bergmann laun mán- aðarlega að upphæð 2000 rúblur og greiða honum einnig eingreiðslu að upphæð 3000 rúblur. 4) Skylda skrifstofu miðstjómar KFSR tll að láta fél. Bergmann til afnota tveggja herbergja íbúð með hús- gögnum, en borgarstjórn Moskvu að láta sambærilega íbúð í té skrif- stofu miðstjórnar KFSR á árinu 1959. Tilkynna skal fél. Olgeirs- syni, að fél. Bergmann geti nú þeg- ar tekið til starfa sem fréttaritari Þjóðviljans í Moskvu. *29.10. 1959: Taka við til lækn- inga starfsfrömuði SAS Magnúsi Guðmundssyni. Kostnaður verði greiddur. *24.11. 1960: Samþ. að til lækn- inga i Sovétríkjunum komi Ját- varður Jökull Júlíusson. Kostnað greiði alþjóðadeild KFSR og heil- hrigðisráðuneyti. *7.12. 1960: Samþ. að verða við beiðni formanns SAS, Einars 01- geirssonar, að strika út skuldir út- gáfunnar Máls og menningar við Mézhdúnarodnaja Kníga að upp- hæð 511.611, íslenzkar krónui (53.872 rúblur), sem veittar voru á árunum 1955-1958 til að gefa út sovézkar bækur á íslenzku. *16.4. 1960: Samþ. að verða við beiðni forystu SAS að veita íjórum forystumönnum SAS dvöl í Sovét- ríkjunum. Alþjóðadeild KFSR og 4. deild heilbrigðisráðuneytis greiða kostnaö."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.