Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1999, Qupperneq 62
7« myndbönd LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 Jjl'V" yndbanda GAGNRÝNI eXistenZ vEruleikuR Allegra Gefler (Jennifer Jason Leigh) er magnaður launveruleikja-hönnuður á flótta. Stoð hennar og stytta er Ted (Jude Law) sem bæði óttast og dáir leiki hennar í senn. Á flóttanum verða þau stöðugt nánari og kemur að því að þau grípa til „gleðipinna" sinna. Fjörið er slíkt að helst vilja þau segja skilið við raun- veruleikann. Eða hvað? Cronenberg er um margt sjálfum sér líkur í eXistenZ. Hér er að flnna ótrúlega magnaðar og áhugaverðar kynlífsvísanir. Nóg er af grótesku og næsta súrrealísku líffæra- og innyflagrúski. Og persónur myndarinnar gefa öðrum furðufyrirbærum lítið eftir. Persóna Jude Law er þó ekki nægilega áhugaverð og er þessum stórfína leikara nokkur vorkunn. Jennifer Jason Leigh er aftur á móti í áhugaverðasta hlutverki sem hún hefur lengi leikið og stendur sig vel. Helsti galli myndarinnar er fólginn í skiptunum á milli raunveruleika og launveruleika (virtual reality). Það er afskaplega þreyt- andi að heyra persónur spyrja sig si og æ í hvaða veruleika þær séu. Það er nú hægt að ætlast til þess að áhorfendur séu búnir að átta sig á lykil- þema myndarinnar þegar langt er liðið á hana. Veruleika-leikurinn er enn- fremur fíarri því að vera jafnáhugaverður og i hinni mögnuðu Matrix. eX- istenZ er þó ágætis upphitun þangað til hún kemur á leigurnar. Utgofandi Myndform. Leikstjóri David Cronenberg. Aðalhlutverk: Jennifer Jason Leigh, Jude Law, lan Holm og Don McKellar. Bandarísk, 1999. Lengd 97 mín. Bönnuð innan 16. -BÆN The Big One Krossferð gegn kapítalisma ★★★ Michael Moore er feitur, ómenntaður blá- flibbi sem hefur vakið athygli vestra fyrir myndir og bækur þar sem hann ræðst á kapítalískt kerfi og mannfjandsamlega stefnu stórfyrirtækja með kaldhæðni að vopni. Þessi léttlynda heimildarmynd fylgir honum eftir á kynningarferðalagi fyrir bók hans, Downsize This! Myndavélarnar fylgja honum eftir þar sem hann áritar bæk- ur, talar á samkomum, ræðir við verkafólk í vandræðum og atvinnulausa, og hrekkir talsmenn stórfyrirtækja með því að mæta óvænt í heimsókn og veita stjómendum verðlaun fyrir mestu ijöldauppsagnirnar og þess háttar. Þvi er ekki að neita að þrátt fyrir góðan vilja og sannleikskorn í mörgu sem hann segir eru skoðanir hans ansi öfgakenndar. En háðið er beitt og það er ansi gaman að fylgjast með þessum uppreisnarsegg og hrekkjum hans. Sumt gæti farið fyrir ofan garð og neðan hjá þeim sem ekki fylgjast mikið með bandarískri þjóðmálaumræðu en burtséð frá því eru mörg prakkarastrikin alveg óborganleg. Útgefandi Myndform. Leikstjóri Michael Moore. Aöalhlutverk Michael Moore. Bandarísk, 1998. Lengd 90 mín. Öllum leyfð. -PJ Orphans Aðfaranótt útfara Mi rOIU PAEENTS A IIHDEIf? ter'M OýmUm I "IV etST fkn T 0> * 4. MWt* mww mi ISMVM H* Ih. il m* - - Nóttina fyrir útför móður þeirra fara fjög- ur systkini hvert sína leið. Heittrúaður elsti bróðirinn vakir yfir kistunni í kirkjunni alla nóttina. Miðbróðirinn vafrar um í stefnuleysi blæðandi út af hnífsstungu. Yngsti bróðirinn slæst í fór með kolbrjál- uðum sendli og hyggst drepa þann sem stakk bróður hans. Þar með er enginn til að passa upp á fatlaða systur þeirra sem er upp á ókunnuga komin. Það er leikarinn Peter Mullan (My Name Is Joe) sem þreytir hér frumraun sina á sviði handritsgerðar og leikstjórnar. Hand- ritið er vissulega hugmyndaríkt en einhvern veginn nær hann ekki að gera myndina jafnheillandi og t.d. Trainspotting sem beitir að vissu marki svip- uðum frásagnaraðferðum. Hann nær ekki að tengja svartan húmorinn nógu vel dramanu þannig að myndin er of mikið úr snertingu við raunveruleik- ann til að hægt sé að taka hana mjög alvarlega og heldur ekki dampi í svört- um húmomum. Sérstaklega er hún afar lengi að komast af stað. Myndin er afar athyglisvert tilraunaverkefni í frásagnarstíl en tilraunin heppnast því miður ekki alveg sem skyldi. Útgefandi Bergvík. Leikstjóri Peter Mullan. Aöalhlutverk: Douglas Henshall, Gary Lewis, Stephen McCole og Rosemarie Stevenson. Bresk, 1997. Lengd 101 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ The Darwin Conspiracy ís-lensk erfðagreining Hlutskipti bræðranna Jack (Jason Brooks) og Andy (Robert Floyd) er æði ólíkt. Sá fyrr- nefndi er hæfasti erfðafræðingur Bandaríkjanna meðan bróðir hans er andlega fatlaður eftir mistök við fæðingu. Þegar forfaðir mannsins finnst fros- inn í landi mikilla ísa hefur það óvænt áhrif á bræðurna. Jack er narraður til þess að endurlífga hina mjög svo þróuðu hæfileika forfóðurins (en ef marka má myndina staðfesta þeir heimspeki Az- teka). Áfangurinn gæti breytt mannkynssögtmni. Ósjaldan gerist það að ódýrar myndir öðlast öllu raunsærra yfirbragð en fokdýrar stórmyndir. Ákveðnar kvikmyndagreinar nærast aftur á móti á gríðarlegum fiárútlátum, ekki síst myndir með vís- indasöguyfirbragði líkt og The Darwin Conspiracy. í henni eyðileggur hrá- leikinn alla innlifun, blekkingin gengur ekki upp. Handrit þessarar sjón- varpsmyndar er illa útfært og hefur maður jafnvel á tilfinningunni að hreinlega hafi gleymst að skrifa í það endinn. Leikur er misjafn, rokkar frá hinum vonlausa Robert Floyd upp í hina ágætu Stacy Haiduk. Sem mikill aðdáandi samsærisþrillera hélt ég að ég gæti látið allt yfir mig ganga í þeim efnum en hér er allt undir frostmarki. Útgefandi ClC-myndbönd. Leikstjóri Winrich Kolbe. Aðalhlutverk: Jason Brooks, Robert Floyd, Stacy Haiduk og Kevin Tighe. Bandarísk, 1999. Lengd 85 mín. Öll- um leyfö. -bæn Jennifer Jason Leigh: f A skjön við Hollywood Jennifer Jason Leigh í hlutverki sinu í Washington Square. Geðsjúklingar, fíkniefnaneytendur, fórnarlömb nauðgana, morðingjar og ófáar vændiskonur eru meðalíþeirra hlutverka sem Jennifer Jason Leigh hefur tekist á við á ferli sínupi. Hún hefur bæði útlitið og hæfileikana með sér, en áhersla hennar á myrkar og truflaðar persónur hefur komið í veg fyrir að hún komist á þann stall sem helstu kvenstjörnur Hollywood deila. Af Hollywood-fólki komin Jennifer Lee Morrow fæddist 5. febrúar 1962 í Hollywood. Foreldrar hennar voru leikarinn Vic Morrow, sem dó í alræmdu slysi við gerð myndarinnar Twilight Zone the Movie þegar hún var tvítug, og hand- ritshöfundurinn og leikkonan Bar- bara Turner. Jennifer var aðeins tveggja ára þegar foreldrar hennar skildu en hún hélt sambandi við þá báða og fékk leyfi beggja til að hefja leiklistamám en þá hafði hún þegar 9 ára að aldri komið fram í smáhlut- verki í myndinni Death of a Stranger. Hún breytti nafni sínu snemma í Jennifer Jason Leigh til að orðstír foreldranna hefði ekki áhrif á feril- inn. Millinafnið Jason var til heiðurs Qölskylduvini þeirra, leikaranum Jason Robards, Jr. Snemma á táningsaldri var hún farin að leika í ódýrum B-myndum og sjónvarpsmyndum. Hún var sannkall- aður draumur B-myndaleikstjórans, vílaði ekki fyrir sér að fækka fötum og leika subbulegar persónur. Hún tók hlutverkin þó alltaf alvarlega, leikhæfileikarnir leyndu sér ekki og aðeins tímaspurning hvenær hún kæmist í eitthvað bitastæðara. Enginn persónuleiki Persónulegasta hlutverkið Árið 1995 framleiddi hún og lék að- alhlutverkið í Ge- orgia sem skrifuð var af móð- ur henn- ar sem hafði til hlið- sjónar sam- band hennar og dætra sinna, Carrie og Jennifer. Þetta er senni- lega per- sómflegasta verkefni leikkonunnar sem þótti hlutverkið mjög erfitt og léttist mikið við gerð myndarinnar. Hún er svo sem ekki ókunnug því enda létti hún sig um 40 kíló þegar hún lék stúlku með lystarstol árið 1981 í sjónvarpsmyndinni The Best Little Girl in the World. Það er dæmigert fyrir hana að búa sig mjög vandlega undir hlutverk- in sín og gefa sig alla í þau, að hætti method-leikara. Til stendur að hún leiki aðal- hlutverk í frumraun móður sinnar sem leikstjóra, en hveiju sem við megum ann- ars eiga von á frá henni á næstu öld held ég óhætt að segja að hún muni áfram halda sig utan við hin hefðbundnu hlut- verk. -PJ Dolores Claiborne. Kathy Bates og Jennifer Jason Leigh. Þegar leið á níunda áratuginn fór hún að næla í hlutverk í aðeins merkilegri myndum og endaði ára- tuginn á Last Exit to Brooklyn og Mi- ami Blues, en fyrir frammistöðu sína í þessum tveimur myndum var hún verðlaunuð af gagnrýnendasamtök- um New York. Meðal mynda sem hún hefur leikið í undanfarinn áratug eru Backdraft, Single White Female, Mrs. Parker and the Vicious Circle (valin besta leikkonan af gagnrýnendasam- tökum Bandaríkjanna fyrir hlutverk sitt), Dolores Claiborne og myndir leikstjórans Robert Altman, Short Cuts og Kansas City. Robert Altman var afar hrifinn af henni sem leikkonu og dáðist að hæfl- leikum hennar til að búa til persónur og lifa sig inn í þær. Hins vegar fannst honum sem hún hefði yfirleitt engan persónuleika sjálf. Þetta teng- ist kannski æsku hennar og eldri systur, Carrie, sem var uppreisnar- gjarn unglingur og fór að heiman og ferðaðist með sirkushópi. Carrie var ástríðufull og tilfinningasöm en Jennifer hæglát, ábyrg og íhugul. Undir niðri hefur þó væntanlega ým- islegt kraumað og móðir hennar seg- ist hafa vitað frá upphafi að hún væri öðruvísi en aðrir krakkar. Leiklistin varð síðan tæki til að veita tilfinning- um útrás og systir hennar hefur sennilega veitt henni innblástur í mörgum hlutverkanna. ndaiisti vikunnar • : « Vikan 19. - 25. október SÆTI FYRRI V1K A VIKUR S LISTA TITILl ÚTGEF. TEG. 1 2 2 Austin Powers II Myndform Gaman 2 1 3 8mm Slufan Spenna 3 NÝ 1 Ariinton raod Háskólabíó Spenna 4 3 6 Payback WamerMyndir Spenna 5 NÝ 1 At first sight Wamer Myndir Drama 6 5 4 Shakespesre in love CIC Myndbönd Gaman 7 4 5 She's all that Skdan Caman 8 NÝ 1 Tbe deep end of the ocean Skifan Drama 9 6 7 Patch Adams CIC Myndbönd Gaman 10 7 3 Varísty blues CIC Myndbönd Drama 11 8 3 Waking Ned Bergvík Gaman 12 10 2 200 cigarettes Gaman 13 11 6 Festen Háskólabíó Drama 14 12 2 Pödduhf SAM Myndbönd Gaman 15 14 2 One true thing CIC Myndbönd Drama 16 9 4 Cupe Stjömubíó Speraia 17 16 10 1 Basketball CIC Myndbönd Gaman 18 18 4 1 Celebríty Myndform Gaman 19 15 7 Faculty Skífan Spenna 20 NÝ 1 Destiny of her own Skffan Draraa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.