Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Qupperneq 68
Sölukössum er lokað
kl. 19.30
JM á laugardögum
og dregið
kl. 19.45
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Gullúr á
uppboði
„Úriö hefur væntanlega verið sett
til tryggingar vegna skuldar og því er
hægt að ganga að þvi á þennan hátt,“
sagði Úlfar Lúðvíksson hjá sýslu-
manninum í Reykjavík, sem ætlar að
bjóða upp Orator 17 rubin-gullúr á
skrifstofu sinni 10. janúar næstkom-
andi klukkan 14.00. „Með þessu erum
við að sjálfsögðu að reyna að þvinga
fram
greiðslu á
skuldinni en
mér sýnist
nú að úrið
hafi meira
minjagildi
en að það sé
svo verð-
mætt, þó ég
viti ekkert
um það,“
* sagði Úlfar,
Nauðungarv/
sala x
á Orator 17 RubinguHúrl
NaiKVjngiíMÍa á Oraiar 17 Rubin-gulldrí J
ícr ffiun j skriúlolu ivnlununrsiiu i'l
ReykjaviTc, raúajdagiiut 10. junjdi aúið ]
7000.11.14.00___
Cfóiðslii við hamanbðgg._
^SVSl.lJMAPUKIKNÍREVKJAVfK ,
Auglýsing sýslumanns.
uppboðshaldari sýslumanns.
Að sögn Gilberts Guðjónssonar úr-
smiðs eru Orator-úr ekki meðal þeirra
þekktari í heiminum. 17 rubin-úr eru
þeirrar gerðar að í þeim eru 17 rúbín-
ar sem settir eru við helstu slitfleti
þar sem hjólin hreyfast hraðast,"
sagði Gilbert úrsmiður.
Gullúrið verður boðið upp eitt og
sér á skrifstofu Úlfars Lúðvíkssonar
hjá sýslumanninum í Reykjavik.
Greiðsla fer fram við hamarshögg.
-EIR
Banaslys
36 ára gamall Suðumesjamaður lést
eftir geysiharðan árekstur á Grinda-
víkurvegi í gærmorgun. Maðurinn
var fluttur á sjúkrahús en var úr-
skurðaður látinn er þangað kom.
Slysið varð laust eftir klukkan hálf
ellefu við Seltjörn en fólksbíl manns-
ins og jeppa sem kom úr gagnstæðri
átt laust saman með þessum hörmu-
legu afleiðingum. Ökumaður jeppans
hlaut aðeins lítils háttar meiðsl en
bæði hann og maðurinn sem lést voru
einir í bílum sínum. Ekki er hægt að
greina frá nafni mannsins að svo
stöddu en hann er af Suðurnesjum,
t- 'y, eins og áður sagði, þó ekki úr Grinda-
vík. -GAR
DV kemur næst út eldsnemma
mánudaginn 3. janúar.
Smáauglýsingadeild DV er opin
til kl. 12 í dag. Lokað nýársdag. Op-
ið sunnudaginn 2. janúar frá kl.
16-22.
Blaðaafgreiðsla DV er opin til kl.
12 í dag. Lokað verður nýársdag og
2. janúar. Síminn er 550 5000.
Kristín Siggeirsdóttir og Elín Ýr Hauksdóttir bera saman bumburnar sínar en þær eiga báöar von á sér í byrjun nýs
árs. Háspenna ríkir nú meðal verðandi foreldra um það hvaða barn veröur hið fyrsta á nýju árþúsundi. Pá er ekki
síður eftirvænting varöandi hvaða barn verður hið síöastaá árþúsundinu sem er aö Ijúka. Nánar á bls. 2. DV-mynd
Pjetur
Kaffi Hafnarfjörður:
E-pillulaust partí
„Það verður ekkert e-pillupartí hér
á gamlárskvöld. Eftir handtöku Guð-
mundar Þóroddssonar verður hann
ekki frekar með okkur í þessu. Okk-
ur var með öllu ókunnugt um að hér
ætti að vera e-pillupartí á gamlárs-
kvöld,“ sagði Ragnar Þorsteinsson,
einn þeirra sem standa aö mannfagn-
aði á veitingastaðnum Kaffi Hafnar-
firði um áramótin og kynntur hefur
verið sem e-pUlupartí undir rós á
dreifimiðum.
Hvers vegna var dreifimiðinn
merktur með stóru E líkt og e-pillur?
„Það var bara tilviljun. E-ið stendur
fyrir eilífð,“ sagði Ragnar, sem
ótrauður heldur áfram skipulagn-
ingu áramótaveislunnar í Hafnar-
firði ásamt félögum sínum, þó svo
forsprakkinn, Guðmundur Þórodds-
son, sé kominn á bak við lás og slá og
e-pillumar verið gerðar upptækar.
„Við erum með 400 miða i sölu og
þegar búnir að selja hundrað," sagði
Ragnar Þorsteinsson.
-EIR
Lögreglan lét gera DNA-rannsókn í kærumáli karlmanns gegn útlendingi:
Farbann á S-Ameríku-
mann í kynferðismáli
- kæröur fyrir að misbjóöa gagnkynhneigðum manni sem svaf í samkvæmi
Ríkisborgari frá landi í Suður-
Ameríku, samkynhneigður, hefur
verið úrskurðaður í farbann hér á
landi vegna kæru á hendur hon-
um fyrir kynferðisbrot gagnvart
gagnkynhneigðum karlmanni í
Reykjavík sem átti sér stað í sam-
kvæmi í höfuðborginni snemma á
árinu. Farbannið var nýlega úr-
skurðað þar sem hinn kærði hugð-
ist fara heim til Suður-Ameríku
annan í jólum en ekki koma til
baka fyrr en 30. desember á næsta
ári, 2000.
Lögreglan, sem hefur látið fram-
kvæma kostnaðarsama og tíma-
freka DNA-rannsókn í Noregi
vegna málsins, taldi verulega
hættu á að maðurinn myndi ekki
koma tO baka til íslands og ákvað
því að fá manninn kyrrsettan hér
þar til réttarhöld verða yfirstaðin.
Málavextir eru þeir að kærand-
inn í málinu og Suður-Ameríku-
maðurinn voru í samkvæmi þegar
sá fyrrnefndi sofnaði ölvunar-
svefni. Þegar maðurinn vaknaði
varð hann þess áskynja, sam-
kvæmt gögnum málsins, að hinn
samkynhneigði Suður-Ameríku-
maður var að' hafa við hann
munnmök.
Maðurinn greip strax til viðeig-
andi aðgerða hvað varðar kæru.
Sýni voru tekin af honum, Suður-
Ameríkumaðurinn yfirheyrður og
sýni einnig tekin úr honum. Við
svo búið voru sýnin send til Nor-
egs í DNA-rannsókn.
Málið hefur tafist talsvert. Þeg-
ar lögreglan taldi liggja fyrir að
Suður-Ameríkumaðurinn ætlaði
sér af landi brott og ekki snúa til
baka fyrr en að rúmu ári liðnu
var ákveðið að krefjast farbanns.
Ástæðan var m.a. sú að ekki er
gagnkvæm dómsmálaaðstoð á
milli íslands og heimalands
Slydda á köflum og él
Á laugardag og sunnudag verður breytileg átt og slydda á köflum austanlands en suðvestlæg átt, él og vægt
frost vestan til. Á mánudag verður suðvestlæg átt og él sunnan- og vestanlands en skýjað með köflum norðaustan
til. Hiti nálægt frostmarki.
Veörið í dag er á bls. 67.
mannsins í Suður-Ameríku. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur kvað upp
farbannsúrskurð til 1. febrúar.
Suður-Ameríkumaðurinn kærði
hann til Hæstaréttar sem ákvað
að staðfesta farbann héraðsdóms.
Búist er við að ákæra á hendur
manninum verði tekin til dóms-
meðferðar á næstunni. Ekki er
útilokað að dómur verði kveðinn
upp áður en farbannsúrskurður-
inn rennur út. Lögreglan telur að
brot mannsins varði við 196. grein
hegningarlaga sem varðar allt að
6 ára fangelsi.
-Ótt
VSK-bílar
til afgreiðslu
STRAX!
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfba 2a Sími:S2S 9000
vvvwv. bilheimar. is