Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2000, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000 33 "V
Útlönd_________________________________________________
Forsætisráðherrafrú Kambódíu:
Grunuð um morð a
ástkonu eiginmannsins
Kambódíska leikkonan Piseth
Pelika var skotin til bana í júlí síð-
astliðnum. Nú bendir allt til að for-
sætisráðherrafrú Kambódíu hafi
pantað morðið. Leikkonan hafði
nefnilega í marga mánuði staðið í
eldheitu ástarsambandi við Hun
Sen forsætisráðherra.
Piseth Pelika er sögð blanda af
Díönu prinsessu og Monicu Lewin-
sky. Hún var elskuð og dáð af þjóð-
inni. En hún var einnig ástfangin af
valdamesta manni landsins.
Fallegasta leikkona og söngkona
landsins varð fyrir hálfu ári aðal-
persónan i hneykslismáli sem fjall-
ar um völd og morð, kynlíf og af-
brýði, ágirnd og frægð.
Meðal annarra persóna i sögunni,
sem hefur nánast þróast í sápuóp-
eru og hryllingsmynd, er ástsjúkur
forsætisráðherra, forsætisráðherra-
frú hvít af reiði og afbrýði, veik-
geðja lögreglustjóri og sennilega
tveir leigumorðingjar.
Syrgjandi ættingjar Peliku Piseth sem lést eftir skotárás á markaöi í Phnom Penh síöastliöiö sumar. Grunur ieikur á aö forsætisráðherrafrú Kambódíu hafi
fengið leigumoröingja til aö ryöja leikkonunni úr vegi. Símamynd Reuter
Uppnám meðal þjóðarinnar
Andlát Piseth Pelika hefur valdið
svo miklu uppnámi meðal kam-
bódísku þjóðarinnar að það er álita-
mál hvort hún lítur dauða hennar
eða þjóðarmorð rauðu khmeranna
sem stærsta glæpinn sem framinn
hefur verið í landinu.
Piseth Pelika dó nefnilega ekki af
eðlilegum orsökum. Hún var tekin
af lifi, skotin til bana í hefndar-
skyni. Margt þykir nú benda til að
Bun Rany, eiginkona forsætisráð-
herrans, hafi fyrirskipað morðið.
Þegar nokkrum klukkustundum
eftir að Pelika var skotin á markaði
6. júlí síðastliðinn í Phnom Penh
ríkti þjóðarsorg í Kambódíu. Þús-
undir Kambódíumanna komu úr
öllum héruðum landsins til þess að
vaka og biðja fyrir utan sjúkrahús-
ið þar sem hin heittelskaða stjarna
lá milli heims og helju í nokkra
daga áður en hún lést.
Við bálför Peliku viku seinna
komu jafnvel fátækir betlarar með
fórnargjafir að bálinu. Fjöldi manna
tók sér frí frá störfum til að vera við
útförina.
Keypti hús og bíl handa ást-
konunni
Þá þegar var
orðrómur kominn á
kreik um að hátt-
settir aðilar tengd-
ust morðinu. í bæn-
um Ta Khmao, fyrir
sunnan Phnom
Penh, þar sem Hun
Sen hefur aðsetur,
var það á allra vit-
orði að forsætisráð-
herrann hafði keypt hús handa
hinni frægu ástkonu sinni nálægt
sinni eigin glæsivillu. Nokkur hug-
rökk stjórnarandstöðublöð höfðu
þegar ymprað á þeirri skoðun al-
mennings að það hefði verið Bun
Rany sem fyrirskipaði morðið á
Peliku.
Ríkissaksóknarinn, sem enn
rannsakar morðið, vísaði á bug öll-
um grunsemdum gegn forsætisráð-
herrahjónunum. Málið virtist smátt
og smátt ætla að falia i gleymsku í
spilltu réttarkerfinu í Kambódíu.
Sprengifimar dagbókarsíöur
En þá sprakk sprengjan. Pelika
hafði skrifað dagbók á meðan á ást-
arsambandi hennar og forsætisráð-
herrans stóð og einnig eftir að því
lauk. I dagbókinni greinir leikkon-
an fyrst frá eldheitri ást sinni á for-
sætisráðherranum og leynifundum
þeirra. Síðan skrifaði hún um ótta
sinn við afleiðingarnar af hinu
hættulega sambandi.
Samkvæmt dagbókinni var fyrsta
stefnumótið 18. ágúst 1998. Pelika
þorir i fyrstu ekki að nefna nýjan
Eiginkonan lokaði banka-
reikningnum
En utanhjónabandshamingju
Peliku lauk í apríl þegar Bun Rany
komst að sambandinu og krafðist
þess að endi yrði bundinn á það.
Með brostið hjarta sk.rifar Pelika
síðan um hvernig hún hafi þurft að
afhenda forsætisráðherrafrúnni hús
sitt og bílinn sem forsætisráðherr-
ann hafði keypt handa henni. Pelika
uppgötvaði einnig að Bun Rany
hafði látið loka bankareikningi með
200 þúsund dollurum sem Hun Sen
hafði stofnað í nafni ástkonu sinn-
ar.
Hjartasorg kvikmyndastjörnunn-
ar breyttist smátt og smátt í ótta við
hina bálreiðu forsætisráðherrafrú
og það augsýnilega ekki að ástæðu-
lausu.
Ríkislögreglustjórinn varaði
leikkonuna við
í dagbók Peliku stóð meðal ann-
ars: „Mánudaginn 10. mai klukkan
9.15 hringdi ríkislögreglustjórinn,
Hok Lundy, og bað mig að koma á
sinn fund því að hann ætlaði að
segja mér svolítið. ... Hann sagði að
ég yrði að flýja til annars staðar um
skeið af því að ... Bun Rany væri
mjög reið og hefði í hyggju að drepa
mig.“
Tveimur mánuðum síðar lá
Pelika særð til ólífis á markaðnum f
Phnom Penh.
Stjórnarandstöðuleiðtoginn Sam
Rainsy á að hluta til þátt í því að
dagbókarskrif Peliku urðu opinber.
En áður en dagbókinni var smyglað
út úr Kambódíu var hún rannsökuð
nákvæmlega af óháðum Kambódíu-
sérfræðingi, Steve Heder, sem
starfar við stofnun Austurlanda og
Afríku í London. Heder hefur lýst
því yfir opinberlega að hann sé
sannfærður um að dagbókarsíðurn-
ar sprengifimu hafi verið ritaðar af
Peliku Piseth.
Ófær um ástarsamband eftir
botlangaskurö
Síðastliðið haust birti franska
vikuritið L’Express söguna um dag-
bók Peliku ásamt eldheitu ástarljóði
sem Hun Sen var sagður hafa ort til
ástkonu sinnar. Greinin vakti gríð-
arlega athygli og hörð viðbrögð.
Forsætisráðherrahjón Kambódíu
létu ráðgjafa sinn vísa öllum ásök-
unum á bug. Ráðgjafinn, Yentieng,
benti á það í skriflegri yfirlýsingu
að forsætisráðherrann hefði alls
ekki verið fær um kynferðislegt
samband í ágúst 1998 þar sem hann
hefði á þeim tíma verið ófær um
slíkt eftir botnlangaskurð mánuði
áður.
Yentieng viðurkenndi reyndar að
Hun Sen væri höfundur ástarljóðs-
ins. Hann vísaði því hins vegar á
bug að það hefði verið ort til Peliku.
Hok Lundy ríkislögreglustjóri harð-
neitaði einnig að hann hefði átt
fund með forsmáðu leikkonunni til
að vara hana við reiði Bun Rany.
Málið þagað í hel
Nú velta menn því fyrir sér
hvernig málið muni þróast. Hun
Sen og Bun Rany hótuðu að lög-
sækja L’Express. Fjölskylda Peliku,
sem flúði frá Kambódíu, fullyrðir að
hún hafi ýmsar aðrar sannanir fyr-
ir tengslum forsætisráðherrahjón-
anna við morðið.
Dagbókin og ástarljóð Huns Sens
eru nú vel geymd í bankahólfi í Par-
ís. í Kambódíu, þar sem fólk er dag-
lega skotið af minna tilefni, hika
fjölmiðlar við að fjalla um málið. Yf-
irvöld þegja um nýjustu afhjúpan-
irnar. Lönd, sem veita Kambódíu
fjárhagsaðstoð og ýmsar stofnanir
hafa heldur ekki sýnt mikinn áhuga
á að ræða málið.
Byggt á Jyllands-Posten o.fl.
elskhuga sinn með nafni. Hún kall-
ar hann bara „manninn“. í lok árs-
ins er leikkonan farin að skrifa nafn
elskhugans og fljótlega eftir það
skrifar hún: „Minn elskaði Sen“. í
upphafi ársins 1999 skrifar Pelika:
„Eitt sinni hitti ég minn ástkæra
Sen á núðluveitingastað í Ta Khmao
án þess að nokkur vissi. Seinna
hitti ég hann
þegar við prufu-
keyrðum nýjan
bíl míns elskaöa
Sens.“
Pelika skrif-
aði einnig: ,,Ó,
elskaði Sen. Þú
sagðir að þú
——1--------------- værir hamingju-
samur yfir aö
hafa unnið bæði
hjarta mitt og
líkama. Ég yrði einnig hamingju-
söm ef þú hugsaðir um mig og gætt-
ir mín að eilífu.“
Erlent frétta-
Hun Sun, forsætisráðherra Kambódíu, á baki fíls við vígslu dýragarös í
Phnom Tamao nú í vikunni. Símamynd Reuter