Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 33 V : tj fréttir Hjálmar Jónsson um umboðssölu lögmanna fyrir almenning á sjúkraskrám til ÍE: Ekkert rangt að greiða fyrir sjúkraskrár - þannig myndi arður ÍE ekki safnast á hendur fáum efnuðum peningamönnum „Ég get vel hugsað mér að allur almenningur hafi nokkuð fyrir sinn snúð fyrir persónuuplýsingar sínar í gagnagrunninn. Þannig myndi arður íslenskrar erfða- greiningar ekki safiiast á fáeina peningamenn eða fáeina menn sem eiga nóga fjármuni fyrir. Því sé ég ekkert siðferðilega rangt viö að greitt sé fyr- ir þessi verðmæti, jafnvel með hlutabréfum í deCODE genetics," sagði Hjálmar Jónsson, þing- maður Sjálfstæðis- flokks.við DV. Valdimar Jóhannesson hefur birt sýnsihom af bréfi sem boriö verður inn á íslensk heimili á næstu dögum undir yfirskriftinni „Réttlát gjaldtaka". Er þar vísað í hóp manna sem vilja að íslensk erföagreining greiði fólki fyrir að- gang aö gögnum í sjúkraskrám þess. Lögmannsstofa Jóns Magnússonar hrl. mun taka að sér að semja við ís- lenska erfðagreiningu en fyrr- nefndu bréfi mun fylgja beiðni um úrsögn úr gagnagrunni á heilbrigð- issviði og umboð til handa lögmönn- um til að „gera sem mest úr þeim verðmætum sem liggja í heimild þinni til að veita aðgengi að upplýs- ingum um þig“. „Þetta er alveg nýr vinkill á mál- ið,“ segir Hjálmar. „Enginn hefúr neitt aö selja nema sá sem sagt hef- ur sig úr grunninum. Því er nauð- synlegt að vita um þessi áform, t.a.m. hvaða lög- menn eru þama á ferð- inni. Er þetta ef til vill hugsað til að tæla fólk út úr grunninum? Það er nauðsynlegt að fá svar við því. Fyrr er ekki hægt aö tjá sig fyllilega um málið. Ég vil fyrir hvem mun að sjúkraskýrslur um mig og aðra íslendinga nýtist til að þróa lyf og upplýs- ingamar nýtist til meira heilbrigðis, bæði hér og annars staðar i veröldinni. Ég samþykkti frumvarp til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði eftir að svo var búið um hnútana að tryggilega væri gengiö frá persónuvemd og nær úti- lokað að misnota upplýsingamar. En allt gengur þetta fyrir fjár- magni. Hér er um að ræða verð- mæti sem einstaklingamir eiga sjálfir. Vissulega kemur þjóðin til með að njóta þess gegnum stóra styrktarsjóðinn en hins vegar er spuming hvort hluthafamir í deCode eiga að græða út á sérstöðu þessa litla samfélags sem íslenska þjóðin í raun og vem er. Jón Magnússon hrl. Gefi ekki auðlindir „Ég undirritaður hef tekiö að mér að vera málsvari hóps fólks sem hvorki er með eða á móti starf- semi íslenskrar erfðagreiningar ehf. en finnst óeðlilegt að einn aðili skuli fá einokunarleyfi sér nánast að kostnaðarlausu (70 millj. á ári) samanbor- ið viö þá milljarða hags- muni sem að einokunar- leyfið þýðir fyrir íslenska erfðagreiningu ehf.,“ segir í bréfi sem Valdimar Jó- hannesson undirritar fyr- ir hönd hóps er nefiiist „Réttlát gjaldtaka". Segir að alþingismenn hafi sennilega ekki áttað sig á þeim miklu verðmætum sem væra fólgin í „einokunarréttinum “. Síðan segir: „Finnst þér eðlilegt að fyrirtæki fái vegna vangár alþingismanna og ríkisstjómar tugi milljarða að gjöf? Verðmæti einokunarleyfisins, sem felst í aðgengi að mikilvægustu upplýsingum um þig, er taliö nema verulegum fjármunum fyrir hvem einasta íslending, jafnvel hundraðum þús- unda króna. Er ekki fráleitt að deCode og/eða íslensk erfðagreining ehf. fái alla þessa peninga gefins? Er ekki rétt að íslendingar njóti ávaxta af þeim auð- lindum og þeim eignum sem þeir eiga en gefi þær ekki? ...eigum við venjuleg- ir íslendingar nú aðeins einn kost, að sameinast um að segja okkur úr miölægum gagnagrunni á heilbrigðissviði með skipulegum hætti?“ -hlh Valdimar Johannesson. Ný sjónvarpsstöð í vor: Þessi verður ekki til sölu - segir stofnandi SkjásEins „Þessi stöð verður ekki til sölu. Hún verður skemmti- leg og býður ekki upp á ann- að en erlent efiii - gaman- myndir fram eftir kvöldi, þá kvikmyndir og svo spennu- myndir undir svefiiinn og allt verður þetta áhorfend- um að kostnaðarlausu," sagði Hólmgeir Baldursson, stofnandi sjónvarpsstöðvar- innar SkjárEinn, sem hyggst stofha nýja sjón- varpsstöð, Stöð 1, og koma í loftiö um miðjan maí. Hólmgeir seldi sem kunnugt er SKjáEinn eftir tiltölulega stuttan rekstur. „SkjárEinn sýndi okkur aö þaö er hægt að reka ókeyp- is sjónvarpsstöðvar hér á landi. Á Stöð 1 ætlum við að nýta nýj- ustu tækni við dreifingu sjónvarpsefnis og ná þannig til sem flestra landsmanna, auk þess að nýta okkur þær dreifingaraðferðir sem þegar tíðkast," sagði Hólmgeir. Stöð 1 hefúr þegar tryggt sé sýningarrétt á fjölmörgum gamanmyndaflokkum sem landsmönnum eru að góðu kunnir, eins og Löður, Dísa í flöskunni, Benson og Get Smart. „Þetta kostar mikla peninga en þeir eru þegar til í kassanum. Viö veröum til húsa í Engihjalla 8 þar sem Poptíví var áður,“ sagði Hólm- geir Baldursson. -EIR m Tg - 1 Hólmgeir Baldursson. Hjálmar Jónsson getur hugsað sér að allur almenningur hafi nokkuð fyrir sinn snúb fyrir persónuupplýsingar sínar í gagnagrunninn. í sjálfu sér sé ég ekkert rangt við að sérhver íslendingur fái greiðslu fyrir sínar skýrslur. Þær eru hans persónulega eign,“ sagði Hjálmar Jónsson. Grátt svæöi, segir Össur „Eignarhald á þessum upplýsing- um er á gráu svæði. Það er fúUkom- lega eðlilegt að menn leiti réttar síns í þessu efni. Ég er hins vegar sannfærður um að af þessu hljóti að rísa mál þar sem útkljáö verður fyr- ir dómstólum hvar hið raunvera- lega eignarhald liggur. Löggjafinn talar ekki skýrt í þessu máli. Við höfum rætt þetta á Alþingi. Þar var niðurstaðan ekki klár,“ sagði Össur Skarphéðinsson um sölu einstak- linga á sjúkraskrám til ÍE. -Ótt Fólk átti fótum fjör ab launa f óveðrinu sem skall á < gær. Myndin er tekin í Lækjargötu og glittir í Stjórnarrábib í baksýn. DV-mynd Teitur stuttar fréttir Kemur ekki til greina Kári Stef- ánsson, for- stjóri íslenskr- ar erfðagrein- ingar, segir að ekki komi til greina að ÍE muni greiöa fólki fyrir að veita upplýsingar í gagnagrann á heilbrigðissviði. Hann segir hý- enur og hælbíta veitast aö félag- inu. Rikissjónvarpiö greindi frá. Tákn nýrra tíma Markaöslaunakerfi VR er tákn nýrra tíma, sagði varaformaður félagsins í samtali við fréttastofú Bylgjunnar og vísar aðfinnslum formanns Sambands íslenskra bankamanna á bug. Sendinefnd tll Rússiands Tuttugu manna sendinefnd, sem í verða fulltrúar 16 íslenskra fyrirtækja, mun fylgja Halldóri Ásgrímssyni til Rússlands i byij- un mars. Tilgangur ferðarinnar er fyrst og fremst að efla við- skiptatengsl. Bylgjan greindi frá. Dole sendi Davíö bréf Á ríkisstjómarfundi í gær var samþykkt að veita tveggja milij- óna króna styrk vegna starfa Evu Klonowski réttarmannfræð- ings í Bosníu. Stefna aö netverslun ÁTVR opnaði í gær nýja heimasíöu þar sem birtast m.a. fregnir um verðbreytingar, sölu- tölur, ýmsar tilkynningar, auk almennra frétta sem snerta fyrir- tækið. Vísir.is greindi frá. Hækkar vexti Bankastjóm Seðlabanka ís- lands hefúr ákveðið að víkka vikmörk gengisstefn- unnar um 3% í hvora átt frá mánudeginum 14. febrúar 2000. Bankasijóm Seðlabanka íslands hefur einnig ákveðið að hækka vexti bankans um 0,3 prósentustig. Wesley Clark tll íslands Wesley K. Clark, yfirmaður Evrópuherstjórnar Atiantshafs- bandalagsins, SACEUR, kemur í kveðjuheimsókn til Islands á mánudag. 40 ára Um þessar mundir fagnar Fé- lag heymarlausra 40 ára afinæli sínu. I tilefiii af þessum tímamót- um verður haldin afmælishátið í Miðbergi í dag. Vísir.is greindi frá. Jaröskjálftar Jarðskjálfti upp á 3,2 á Richter varð 17 km vestur af Kópaskeri klukkan átta á fimmtudagskvöld. Mikil fjölgun ökutækja Áætlaöur fjöldi skráðra bif- reiöa á höfuöborgarsvæðinu, Suðumesjum og Vesturlandi eykst um 42,3% frá 1994 til 1. júlí 2000 samkvæmt upplýsingum sem ríkislögreglustjóri hefur afl- að vegna væntanlegrar Kristni- tökuhátíðar á Þingvöllum. Á höf- uðborgarsvæðinu einu er áætiuð Öölgun 45,1%. Vísir.is greindi frá. Farmiöalaust Flugfélag Flugfélag íslands hættir með öllu aö gefa út farmiða. Grétaf hlátri Bók Einars Kárasonar, Heimskra manna ráö, hefúr hlotið frábæra dóma í Þýskalandi. Þannig segist einn gagnrýn- andi hafa grátið af hlátri og ann- ar kallar bókina „lestrarunað, skáldsögu í hæsta bókmennta- lega gæðaflokki." Vísir.is greindi frá. -AA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.