Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 31
IJV LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 tölvur Er þetta tölva sem ég tala við? - tölvur notaðar í ríkara mæli í mannlegum samskiptum Þegar við tökum upp símann og hringjum og Kolbrún Halldórsdóttir svarar og segir: Annaðhvort getur verið slökkt á farsimanum eða hann er utan þjónustusvæðis þá vitum við vel að við erum ekki að tala við manneskju heldur tölvu sem styðst við innlestur Kolbrúnar. Það sama á við t.d. um þjónustu- linur bankanna. Þótt Bjami Vest- mann þylji stirðri röddu nákvæm- lega innstæðuna á reikningnum þá þýöir það ekki að hann sé að snuðra í reikningunum heldur las hann inn á tölvukerfið sem síðan tínir út rétt orð úr safninu svo hann nefni alltaf rétta tölu. Þetta vitum við og ótt- umst því ekki. Við viljum alltaf vita hvort það er maður eða tölva sem við erum að tala við. Þetta er sjálfvirkur símsvari Þegar stór þjónustufyrirtæki voru að taka þessa tækni í þjónustu sína fyrir nokkrum áratugum voru stunduð sett vamaðarorð inn í lest- urinn til að tryggja að hlustandinn eða notandinn gerði sér grein fyrir því að hann væri ekki að tala við manneskju heldur vél eða upptöku. Af slíkum misskilningi spruttu síð- an gamanþættir eins og af mannin- um sem ræddi lengi dags við fröken klukku og skildi ekkert í því hvað hún var alltaf þurr á manninn. Þetta er mjög algengt enn í dag að innlesið svar hefjist á orðunum: Þetta er sjálfvirkur símsvari. Tölvupósturinn vinsæli í nútímanum er tölvupóstur eitt vinsælasta og mest notaða sam- skiptaformið og fer mjög vaxandi. Rétt eins og fólk notar tölvupóst sín á mUli í stað bréfa og símtala hafa stór fyrirtæki og stofnanir í vaxandi mæli samskipti við viðskiptavini sína gegnum Netið og þá jafnan með tölvupósti. Margir þekkja t.d. net- verslanir eins og Amazon sem send- ir viðskiptavinum ábendingar í tæki, sem stunda mikil viðskipti á Netinu, tekið í notkun afar fullkom- in tölvubúnað til þess að lesa og flokka tölvupóst sem berst til fyrir- tækisins. Öfugt við frumherjana sem settu inn vamaðarorðin um að þú værir að hlusta á upptöku þá gæta fyrirtækin þess að viðskipta- vinurinn verði þess ekki var að hann sé að fá tölvupóst sem tölva hefúr sent honum. Tölvan sár um svörin Gott dæmi um þetta er embætti forseta Bandaríkjanna, Hvíta húsið. Þangað berst gríðarlegt magn af tölvupósti, ætlað forsetanum og embætti hans með fyrirspurnum af ýmsu tagi. Það er tölva sem les all- an póstinn og flokkar eftir inni- haldi. Siðan velur tölvan staðlað svar úr safni svara sem starfsmenn Hvíta hússins hafa skrifað og send- ir um hæl. Þetta er hugbúnaður sem var hannaður af rannsóknarstofu Massachusetts Institute of Technology sem fæst sérstaklega við gervigreind. Það er síðan einn starfsmaður sem situr við og fylgist með að kerfið starfi eðlilega og tek- ur sýnishom af svörunum annað veifið. Nú kynni einhver að segja að þetta væri í rauninni aðeins nú- tímaútgáfa af því að senda stöðluð svarbréf við algengum fyrirspum- um og má það rétt vera. Kerfið stíg- ur hins vegar skrefi lengra því það fylgist með því hver oft viðkomandi hefur skrifað til Hvíta hússins og gætir þess að hann fái ekki sams konar bréf tvisvar í röð. Þannig er reynt að halda uppi þeirri tálsýn að sendandi standi í raunverulegum samskiptum við Hvita húsið þegar raunveruleikinn líkist því að talað sé við sjálfvirkan símsvara. Tölvan sendi viðvörun í janúarhefti Techology Review, sem MIT gefur út, er fjallað um slíka tölvuvædda póstþjónustu sem getur stigið skrefi lengra. Þetta er Hvernig getum við veriö viss um aö þaö sé ekki tölva sem viö erum að skipt- ast á tölvupósti viö? tölvupósti um nýjar bækur eða geisladiska sem þeir kynnu að hafa áhuga á að er ábendingin þá byggð á fyrri viðskiptum viðkomandi við fyrirtækið. Það er mjög líklegt að mannshöndin komi þar hvergi ná- lægt heldur sé það fullkomið hug- búnaðarkerfi sem sér um útsending- ar og gætir þess að réttir viðskipta- vinir fái réttan póst. í Bandaríkjunum hafa stór fyrir- hugbúnaður sem heitir Echo Mail og gegnir líku hlutverki og því sem lýst er í Hvíta húsinu en Echo Mail er einkum notað af stórum fyrir- tækjum. Meðal þeirra sem nota Echo Mail er bandarisku stórfyrirtækin J.C. Penney og Nike. Echo Mail les allan tölvupóst og beinir honum til réttra deilda eftir því hvort um að ræða pantanir, kvartanir eða eitthvað Áöur fyrr mátti treysta því að í samskiptum viö stórfyrirtæki og stofnanir væri alltaf mannvera á hinum endanum á línunni. í dag gegna tölvur vaxandi hlutverki í mannlegum samskiptum og á köflum getur veriö erfitt aö greina mun- inn á henni og manninum. annað og sendir svör. Kerfið metur innihald skeytanna og „viðhorf" sendandans. J.C. Penney var um tíma kostun- araðili eða „sponsor" á vinsælli sjónvarpsþáttaröð sem heitir Ellen og margir íslenskir áhorfendur kannast við. Það vakti mikla athygli i Bandaríkjunum þegar aðalleik- kona i þáttaröðinni fjallaði opinber- lega um samkynhneigð sína, þ.e. „kom út úr skápnum“ eins og það mun vera kallað. í kjölfarið fjölgaði mjög tölvuskeytum til J.C. Penney þar sem greina mátti andúð í garð fyrirtækisins vegna þessa. Echo Mail gerði þegar stað viðvart með því að senda eftirlitsmanni keríls- ins tölvupóst þar sem vakin var at- hygli á tölfræðilegri íjölgun skeyta með slíkum undirtóni og það tengt við sjónvarpsþáttinn. I kjölfarið ákvað J.C. Penney að hætta stuðn- ingi við þáttaröðina. kunnugt um að slík forrit væru í notkun á íslandi hjá hérlendum fyr- irtækjum. „Viö munum fylgjast grannt með þessari þróun því þetta er þjónusta sem við viljum geta boðið viðskipta- vinum okkar upp á. Mér finnst þetta mjög spennandi tækni en við förum oft varlega í að taka í sölu glænýjan hugbúnað fyrr en við erum vissir um að búið sé að full- þróa hann og losna við villur." -PÁÁ Toyota Nissan Range Rover Ford Chevrolet Suzuki Cherokee JeepWillys Land Rover Musso Isuzu S (M) ALLT PLAST Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 Framleiðum brettakanta. sólskyggni og boddíhluti á flestar gerðir jeppa, einnig boddíhluti í vörubíla og vanbíla. Sérsmíði og viðgerðir. Ertu maður eða tölva? í nettímaritinu Salon Magazine var nýlega fjallað um þetta og bent á þá möguleika sem felast i því að láta tölvu í raun dulbúast sem mað- ur og koma þannig auglýsingaskila- boðum á framfæri eins og um skila- boð frá „kunningja" væri að ræða. Þannig sæju stórfyrirtæki leið til að komast fram hjá auglýsingapósti sem netverjar hata meira en allt annað. í Salon er dregin upp sú framtíð- arsýn að i netsamræðum framtíðar- innar verði allir „menn“ með sér- staka kennitölu eða auðkenni sem þeir geti notað til að sanna að þeir séu menn en ekki tölvur. filboð óskast / bein sala Hino KL-645, árgerð 1981. Eigin þyngd 4550 kg, burðargeta 4950 kg. Heildarþyngd 9500 kg. Ekinn 394.804 km. Nissan Patrol, árgerð 1987 dísil ekinn 373.343 km. Bíllinn er grár að lit og þarfnast lagfæringa Bíllinn er gulur að lit og þarfhast lagfæringa. r Ahugaverð þróun Halldór Hafsteinsson, markaðs- stjóri netþjónustu Nýherja, sagði í samtali við DV að sér væri ekki Báðar bifreiðamar hafa verið í notkun og viðhaldi hjá verkstæði V&Þ. Ofangreindar bifreiðar eru til sýnis og sölu hjá Vélum og Þjónustu hf., sími 5-800-200, Gunnar Már (upplýsingar) eða Stefán (verðtilboð).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.