Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 26
26 lk LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 ... í prófíl Anna tók ömmu sína sér til fyrirmyndar þegar hún fékkst viö húsmóöurhlutverkið í listsköpun sinni. Ég og kýr eigum vel saman - Anna Líndal myndlistarkona segir frá kúabúskap og girðingarvinnu í dag fer fram í Menningarmið- stöðinn Gerðubergi Sjónþing Önnu Lindal, þar sem verk myndlistar- konunnar verða rædd, auk þess sem reynt verður að varpa ljósi á þau og túlka. í kjölfarið verður opnuð yfir- litssýning á verkum Önnu þar sem gest- um og gang- andi gefst kostur á að kynnast breiddinni i verkum henn- ar. Fæstir vita hins vegar að listakonan sleit barns- skónum í sveitasælunni fyrir norðan. Þegar Anna er innt eftir þessu kemst hún svo aö orði: „Ég er borinn og bamfæddur Húnvetningur og ólst upp á bænum Lækjamóti í Víðidal. Við erum fimm systkinin, þar af tvö hálfsystk- in, og er ég yngst. Foreldrar minir, Elín og Sigurður Líndal, voru með búskap á Lækjamóti en bærinn er upphaflega landnámsjörð og hefur verið í eigu fjölskyldunnar síöan 1835. Faðir minn var hreppstjóri og mikill athafnamaður. Þar var alltaf nóg af fólki, bæði vinnumönnum, sumarbömum, Grænlendingum og öðrum gestrnn og gangandi. Það má segja að Lækjamót hafi legið i alfar- arleið. Hér var pósthús, reyndar fyr- ir minn tima, og síðan var hér sím- stöð sem við systkinin störfuðum við um tima. Þetta var blandað bú með u.þ.b. 450 kindur, 12 mjólkandi kýr og 70 hross,“ segir Anna um leið og húri hugsar til baka og rifjar upp bemskuárin. Heilagar kýr Anna segist hafa umgengist dýrin á bænum riiikið og hafi oft verið í hlutverki kúasmalans og sótt kým- ar. Það hafi þó gegnt sama máli um kýmar eins og mannfólkið að sum- ar skepnumar hafi verið dyntóttar og einungis hlýtt þegar ákveðinn aðili átti í hlut. „Það er mikið mýrlendi í Húna- vatnssýslu. Ég átti það stundum til að fara úr sokkum og stígvélum og vaða í mýrinni á sumrin þegar ég var að sækja kým- ar. Það var gott að finna volga mýrina milli tánna. Ég hef reyndar aUtaf litið svo á að kýr séu gáfaðar og glæsilegar skepnur. Á námsárum mínum í Myndlista- og handiðaskólanum urðu kýmar mér oft innblástur í verk mín. Ég og kýr höfum alltaf átt vel saman og ég minnist þess að ein kýrin á bænum hafi ekki tekið annað i mál en að ég mjólkaöi hana, þá var ég aðeins þrettán ára. Lækjamót mikið menningarsetur Anna segir náttúruna í Vfðidal að vísu ekki hafa orðið henni að sér- stöku myndefni eða innblæstri í verkum sínum. En miklu fremur væri það menningin í sveitinni sem orðið hefði fyrir valinu í verkum hennar. Anna tekur þó skýrt fram að ólíkt rómantískum hugmyndum borgarbúa tun sveitina, sé sveitalíf- ið fyrst og fremst hörð barátta fyrir sæmilegum kjörum og afkomu. „Frá mínum bæjardyrum séð var lífið í sveitinni fyrst og fremst spuming um það hvort nægt fóður væri til fyrir dýrin, hvort sláttur og þurrkur héldust i hendur og hvort vélamar gengju. Hitt er svo annað mál að á Lækjamóti var alltaf blóm- leg menning og bærinn mikið menningarsetur. Það er umfram allt þessi þáttur sveitalífsins sem hefur orðið mér innblástur í verk mín.“ Anna nefnir hér til sögunnar ömmu sína, Jónínu Sigurðardóttur, sem reit Heimilishandbókina, en á þeim tíma var starfræktur hús- mæðraskóli á bænum. „Ég datt nið- ur á bókina hennar ömmu á sínum tima og hún varð mér hugleikin þegar ég fékkst við húsmóður- hlutverkið í listsköpun minni. Ég get líka bætt þvi við að mamma var mjög ljóðelsk, það var mikið sungið á bænum og pólitískar umræður daglegt brauð. Þetta sit- ur auðvitað í manni." Hekla gýs Anna segir frá þegar hún vann sumarlangt uppi á heiði við að reisa girðingu frá Miðfirði að Arn- arvatni. „Ég var i girðingarvinnu- flokki, átta manna hópi sem vann við að koma upp girðingu vegna sauðfjárveikivarna. Þaö var vot- lent þama uppi á heiðinni og því ekki hægt að koma neinum farar- tækjinn við og því nauðsynlegt að flytja girðingarstaurana á hestmn. Þetta var mjög frumstætt. Við gist- um i kofum og unnum i tiu daga skorpum. Mér er enn þá í fersku minni miðnætursólin, lyktin og umfram allt kyrrðin sem var ótrú- lega mikil.“ En það eru ekki eingöngu ljúfu stundimar sem koma upp þegar hugsað er til baka. Anna rifjar upp minnisstæða atburði úr æsku. „Ég minnist þess þegar ég var á ung- lingsárum að Hekla gaus eitt sum- arið. Ég hef kannski verið þrettán, fjórtán ára. Þetta var um það leyti sem sauðburður fór fram, það var mikið öskufall í sveitinni og við þurftum að gefa lömbunum úr pela þar sem æmar misstu mjólk- ina. En það var ekki allt og sumt. Kindumar drápust þó svo þær væru á húsi og því ekki annað að gera en að hirða dauðar rollumar Synti mikið Hannes Ingvar 25 ára sálfræðinemi Hann heitir Hannes Ingvar og hans heitasta ósk er að verða frægur, hann er sálfræðinemi í Háskóla Island. Hann seg- ist vera þessi dæmigerði meðalmaður og finnst súrt að „venjulegt fólk“ eins og hann komist aldrei í blöðin. Fullt nafn: Hannes Ingvar Jónsson. Fæðingardagur og ár: 29. júní 1974. Maki: Trúðurinn Sigríður. Böm: Engin. og dysja. Ég tók þátt í þessu og það er nokkuð sem ég gleymi aldrei." Anna riíjar upp skólagönguna íbyggin á svip. „Ég var í heimavistar- skóla á Reykjum í Hrútafirði til sext- án ára aldurs. Það voru einungis tvö helgarfrí á ári, eitt fyrir jól og eitt eft- ir jól. Þetta gerði það náttúrlega að verkum að ég varð snemma að taka ábyrgð á sjálfri mér, varð sjálfstæð, vonandi á jákvæðan hátt,“ segir Anna og skellir upp úr. „Mér þótti alltaf mjög gaman í skóla. Eins þótti mér gaman í íþrótt- um og stundaði þær af kappi. Það er góð sundlaug að Reykjum o'g og því synti ég eðlilega mjög mikið. Þegar ég kom til Reykjavíkur fór ég einnig að æfa júdó, þar er hins vegar spmning hvort sú ástríða tengist sveitinni." í þjóðbraut Anna segist fara reglulega á heimaslóðimar í Víðidal. Systir hennar sé tekin við búi af föður þeirra og mikill kærleikur milli fjölskyldnanna. Aðspurð um það hvort margt hafi breyst frá fyrri tíð, er hún var að alast upp á Lækja- móti, segir Anna bæinn hafa staðist timans tönn. „Það hefur aldrei neinu verið breytt þar. Lækjamót er og verður alltaf homsteinn fjölskyldunnar. Það er sama hvað maður hefur ferð- ast erlendis, ég hef alltaf átt heim að sækja.“ Anna segir þó að þar sé mun færra fólk á sumrin frá því sem áður var. Landbúnaðurinn hafi átt á brattann að sækja um árabil og viðhorf til landbúnaðar hafi al- mennt verið mjög neikvætt meðal landsmanna. Þó sé það svo að margt hafi breyst til batnaðar. Mennta- kerfið sé mun betra í dag miðað við þá og eins séu samgöngumar miklu betri. „Héma áður fyrr gat tekið tutt- ugu tíma að aka til Reykjavíkur. Nú er þetta hins vegar ekki nema þriggja tíma akstur, jafnvel tveir og hálfur fyrir vanan mann.“ Skemmtilegast: Að spila í PlayStation. Leiðinlegast: Skúra. Uppáhaldsmatur: Jóla- kalkúnn. Uppáhaldsdrykkur: RC- cola. Fallegasta manneskja: Segjum Julia Ormond. Fallegasta röddin: Röddin Björns Jörundar bræðir mig. Fallegasti líkamshluti: Rass (en þó ekki á Bimi Jr.) Hvaða hlut finnst þér vænst um? Homið á sæng- urverinu mínu. Hvaða teiknimyndaper- sóna myndirðu vilja vera? Viggó viðutan. Uppáhaldsleikari: A1 Pacino. Uppáhaldstónlistarmað- ur: Trini Lopez. Sætasti stjórnmálamaður: Össur Skarphéðinsson. Uppáhaldssjónvarpsþátt- ur: McCallum. Leiðinlegasta auglýsing- in: Sjónvarpshandbókin. Besta kvikmyndin: Shaws- hank Redemption. Sætasti sjónvarpsmaður- inn: Elín Hirst. Uppáhaldsskemmtistað- ur: Dubliners. Besta „pikk-öpp“-línan: Hæbb! Hvað ætlaðir þú að verða? Roger Moore. Eitthvað að lokum: Hvað er þetta Tema teater sem . allir eru aö tala um?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.