Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 24
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 33"V 24 %enning - Jón Viðar Jónsson, refsivöndur ísiensks leikiistarlífs, segir skoðun sína á íslensku leikhúsi og rifjar upp ferilinn Jón Viðar Jónsson er sennilega þekktasti leikhúsgagnrýnandi okk- ar tima. Hann hefur starfað sem gagnrýnandi bæði á blöðum, út- varpi og sjónvarpi og það hefur jafn- an staðið styr um skrif hans. Jón var seinast í sviösljósinu sem leik- húsgagnrýnandi Sjónvarpsins með fasta pistla í Dagsljósi. Hann hætti því vorið 1997 og síðan hefur rödd hans sem gagnrýnanda ekki heyrst opinberlega ef frá er talinn stuttur tími 1998/99 þegar hann ritaði um leikhús í tímaritiö Frjálsa verslun. Um þessar mundir sinnir Jón kennslu og rannsóknarstörfum en hann er meðal þeirra íslendinga sem best eru menntaðir á sviði leik- húsfræða, er með doktorspróf. Jón hefur aldrei hikaö við að segja skoðun sína á íslensku leik- húsi og síðast kvaddi hann sér hljóðs opinberlega þegar hann, fyrir skömmu, dró með formlegum hætti umsókn sína um starf leikhússtjóra Borgarleikhússins til baka. Hörmulegt ástand Hvers vegna gerði hann það? „Mér finnst hörmulegt að horfa upp á það sem er að gerast í Leik- félagi Reykjavíkur. Með því að stjómin ákveður að auglýsa stöðu leikhússtjóra á þann hátt sem hún gerir hefur hún beinlínis klofið fé- lagið. Þetta eru afar sérstök vinnu- brögð, svo ekki sé meira sagt. Það er algerlega óviðunandi fyrir nýj- an leikhússljóra að koma inn við slíkar aðstæður og þurfa að byrja á því að takast á við klofning. Þetta er allt hið versta mál, bæði fyrir Leikfélagið og ekki síður leiklistina í landinu, og ég kærði mig ekki um að verða bitbein í einhverri valdabaráttu bak við tjöldin," sagði Jón í samtali við DV. Skil ekki leyndina í Listaháskólanum Nú bíður leikhúsheimurinn eft- ir því að önnur staða verði veitt en það er staða deildarstjóra leiklist- arsviðs Listaháskóla íslcuids sem skal taka skal til starfa 1. mars nk. Reiknað er með að undir sviðið heyri meðal annars öll leiklistar- kennsla. Jón er þar meðal um- sækjenda en umsóknarfrestur rann út í byrjun janúar. „Ég verð að segja að ég á bágt með að skilja þá leynd sem hvílir yfir þessari ráðningu af hálfu skól- ans. Þetta er mjög mikilvæg staða í íslensku leikhúslífi og það kemur öllum við hveijir gefa kost á sér í hana.“ Þama vísar Jón til þess að ekki hefur verið gefið upp af hálfu Listaháskólans hverjir umsækj- endur eru um stöðuna en þeir munu vera sex talsins. Samkvæmt bestu heimildum DV era auk Jóns meðal umsækjenda þungavigtar- menn úr íslensku leikhúsi eins og Guðjón Pedersen, Kjartan Ragn- arsson, Hlín Agnarsdóttir og Mar- ía Kristjánsdóttir. Var snemma illa tekið FerOl Jóns sem gagnrýnanda hófst þegar hann árið 1978 skrifaði um leiklist í Þjóðviljann á móti Sverri Hólmarssyni. 1979 hóf hann að fjalla reglulega um leiklist í pistlum i Ríkisútvarpinu í blönd- uðum þætti um menningarmál og markaði þar spor i íslenska leik- listarsögu því Ríkisútvarpið hafði ekki áður fiallað um leiklist með gagnrýnum hætti. „Þeirri umfiöllun minni var oft mjög illa tekið,“ segir Jón og glott- ir við tönn þegar hann rifiar upp þessa tíma. „Þá var Ríkisútvarpið eini fiöl- miðillinn á sínu sviði og sumir leikhússtjórar báru sig aumlega undan þeim stóradómi sem þeir töldu gagnrýni mína vera oft á tíð- um. Annars hef ég alltaf haft mikla ánægju af þvi að starfa sem gagnrýnandi. Gagnrýni er vita- skuld aldrei annað en skoðun eins manns en hún verður að vera fag- lega rökstudd, annars er hún einskis virði. Leikhúsinu er það mikils virði, eins og öðrum list- greinum, að um starfsemi þess sé lifandi og fiölþætt umræða borin uppi af þekkingu og ást á listinni. Það getur verið að þeim sem reka leikhúsin sé ekki alltaf vel við óþægilega gagnrýni en þá eru þeir að horfa á stundarhagsmuni, ekki það sem máli skiptir til lengri tíma litið.“ Hvarf til fræðistarfa Jón sinnti gagnrýnendastarfinu ótrauður til 1982, eða um þriggja ára skeið, en þá tók hann við starfi leiklistarstjóra Ríkisútvarpsins og gegndi því starfi allt til 1991 þegar hann hvarf frá útvarpinu. „Þetta var á heildina litið skemmtilegur tími og margt spennandi að fást við. Ég stýrði verkefhavali leiklistardeildar en kom einnig að hinu listræna starfi, bæði sem þýðandi og leik- stjóri. Þama fékk ég tækifæri til vinna með nokkrum bestu leikur- mn þjóðarinnar sem mér fannst einkar dýrmætt. Þeir kenndu mér margt sem ég mun alltaf búa að meðan ég fæst við þessa hluti. En hugur minn stóð til þess að sinna rannsóknar- og fræðistörfum á sviði leiklistarsögunnar og að þeim sneri ég mér þegar ég hafði lokið mér af á Útvarpinu. Meðal þeirra verka sem ég hef haft einna mesta gleði af fást við var heildar- útgáfa á leikritum Jökuls Jakobs- sonar, nú er ætlunin að gera Guð- mundi Steinssyni sömu skil. Nú síðustu ár hef ég fengið góða styrki, einkinn úr Vísindasjóði og Launasjóði rithöfunda. Það er mikið starf óimnið við rannsóknir á íslenskri leiklistar- sögu og íslenskri leikritun. Ég verð að segja að mér finnst sorg- legt hve Háskóli íslands sinnir því lítið að efla rannsóknir á þessu sviði. Það vantar tilfinnanlega i ís- lenskt leikhús eðlilega tengingu mflli fræðilegrar umræðu og leik- hússtarfs og fyrir þetta liður öll listgreinin meira en menn gera sér almennt grein fyrir. En nú horfír maður mjög til ListaháskólEms í þessum efnum og ég hefi fundið að margt leikhúsfólk bindur við hann miklar vonir.“ Meiri menningarvitar Jón Viðar sinnir einnig kennslu áhugamanna um leikhús á ýmsan hátt og um þessar mimd- ir era tvö námskeið í gangi. Ann- ars vegar er námskeið sem ber yf- irskriftina: Að njóta leikhúss. Það er haldið á vegum Félags háskóla- kvenna en er opið öllum áhuga- mönnum um leikhús. Það nám- skeið sem nú er i gangi er i sam- starfi við Þjóðleikhúsið og fiallar um íslenska leikritun og beinir sérstaklega sjónum að þeim ís- lensku leikritum sem þar eru á fiölunum eða verða færð upp í vetur. „Þjóðleikhúsið hefur sinnt ís- lenskri leikritun nokkuð vel að undanfornu og það er mikils vert að draga fram þessi gömlu leikrit okkar. Einkum finnst mér svið- setning Hilmis Snæs á Gullna hliðinu ánægjulegur viðburður,“ segir Jón sem fer með nemendur sína baksviðs á leiksýningum og fær leikstjóra i heimsókn í tím- ana sem sitja þá fyrir svörum um galdurinn sem knýr leiklistina áfram. En þýðir stuðningur Félags há- skólakvenna að einungis konur sæki námskeiðin? „Vissulega hafa konur verið í meirihluta með nokkram undan- tekningum. Þetta þarf raunar ekki að koma á óvart, konur era einfaldlega meiri listnjótendur en karlamir. Þetta á við um fleiri listgreinar og er alls ekki sérís- lenskt fyrirbæri." Tilraun til menntunar Hitt námskeiðið er nýbreytni en það vinnur Jón Viðar í samvinnu við Ingu Bjamason leikstjóra. Það er ætlað byrjendum og lengra komnum sem hafa áhuga á að stíga á svið og spreyta sig á leik- listinni. Þetta er sem sagt leiklist- amámskeið þar sem farið er í grunnatriði leikrænnar tjáningar eins og framsögn, líkamsbeitingu og fleira. En skýtm- ekki skökku við að doktor í leikhúsi skuli eyða tíma sínum í kenna áhugamönn- um leiklist? „Það tel ég ekki vera. Atvinnu- leikhúsið er sprottið upp úr þeim jarðvegi sem áhugaleikhúsið skap- aði i upphafi og er enn í dag alltaf að skapa. Þegar Bandalag ís- lenskra leikfélaga, sem hefur unn- ið ómetanlegt starf í þágu leiklist- arinnar, var t.d. stofhað fyrir ná- kvæmlega fimmtíu árum vora það vel menntaðir leikhúsmenn eins og Ævar Kvaran og Lárus Sigur- björnsson sem þar voru meðal helstu hvatamanna. Það er þrosk- andi fyrir hvern mann að koma fram á sviði þótt þeir leggi ekki leiklistina fyrir sig sem ævistarf. Þar fyrir utan skortir hér mjög forskóla fyrir þá sem hyggja á fag- legt leiklistarnám. Enginn tónlist- Jón hefur aldrei veriö feiminn viö aö segja skoöun sína á íslensku leikhúsi og segir aö þaö sé hörmulegt aö horfa upp á þaö sem er aö gerast f Borgarleikhúsinu. DV-myndir Hilmar Þór
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.