Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Blaðsíða 56
68 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 J>"V tytótgæðingur vikunnar Nýkaup Þa r sen i ferskleikim i b\r Y Peruterta Tekur dálitinn tíma 2 stk. brúnir botnar 140 g sykur 4 egg 80 g hveiti 2 msk. kartöflumjöl 1 msk. kakó 1 tsk. matarsóti Frómas 2 eggjarauður 40 g sykur 6 blöð matarlím 150-200 suðusúkkulaði 2 dl rjómi 1 dl rjómi Þeytið sykur og egg mjög vel saman (ca 10-13 mín.) sigtið þurr- efnin saman við og blandið var- lega saman með sleikju. Bakið við 220° C í 8-9 mín. í tveimur fromum, 26 cm. Þeytið rauður og sykur vel saman, leysið matar- límið upp og blandið perusafa saman við. Blandið matarlíminu saman við þeytinguna, hellið svo bræddu súkkulaðinu saman við, blandið vel saman, blandið svo þeytingunni saman við þeyttan rjómann, raðið perum á botninn og setjið frómasinn yfir, skreytið meö perum og súkkulaði. Kælið í ca 3-6 tíma. Jarðarber og hindber „Sabayon" Handa flórum 2 öskjur jarðarber, fersk 2 öskjur hindber, fersk Sabayonsósa 4 eggjarauður 3 dl eplacider 2 msk. sykur 1 dl léttþeyttur rjómi Skolið berin vandlega og snyrt- ið. Setjið í djúpa diska eða skál- ar. Hellið sósunni yfir. Sabayonsósa Setjið eggjarauð- ur, sykur og eplacider í pott og þeytið saman yfir hita í 2 mínút- ur. Þegar sósan er orðin vel freyðandi er léttþeyttum rjóma bætt saman við. Hrærið saman j og hellið yfir berin. Hollráð í þessa sósu má einnig setja jj líkjör eftir smekk eða freyðivín. Vanilluís gefur réttinum enn betri blæ. I Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. ... ......................;.:z.íc:í:-Æ mmm Að hætti Magneu: ítalskt pasta og frönsk lauksúpa - og Ijúffengur ávaxtadesert með súkkulaðikurli Það er Magnea Sif Agnarsdóttir sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. „Þessir réttir eru alltaf efst á lista hjá mér þegar ég er í átaki. Lauksúpan er hrein og bein snilld, bragðmikil og góð og er í miklu uppáhaldi hjá mér. Pastað er létt og sérlega gott, mér fannst þetta tilvalinn réttiu- að koma á framfæri, þar sem helmingur okkar íslend- inga er í átaki. Að vísu verðum við jú alltaf að fá að láta eitthvað eftir okkur og þar kemur að desertinum sem er vægast sagt algjört sælgæti, en auðvitað er það dagamunur hvort samviskan leyfir okkur svona kaloríubombu. Ég persónulega ætla að geyma hann í ca tvo mánuði, en hvort það stenst verður timinn að leiða í ljós,“ sagði Magnea Sif, mat- gæðingur vikunnar að þessu sinni. Frönsk lauksúpa Fyrir 4 4 stórir laukar 1 púrrulaukur 8 sveppir (meðalstórir) 1/2 1 kjötsoð 4 þykkar hveitibrauðsneiðar ostur, rifinn (magn eftir smekk) salt pipar blandað grænmetiskrydd 1 nautakjötsteningur 1 grænmetisteningur Aðferð: Leggið brauðsneiðamar í botninn á 4 eldfostum súpuskálum. Skerið púrrulaukinn og sveppina í þunnar sneiðar og dreifið yfir brauðið. Setj- ið kjötsoðið i pott og látið sjóða með kryddinu meðan þið léttsteikið laukinn. Setjið laukinn út í soðið, látið malla í eina til tvær mínútur, hellið í skálamar, setjið ostinn yfir og látið í ofn við 170 C, þar til ostur- inn hefur brúnast. ítalskt pasta 11/2 pakki ferskt pasta, tortilini 4 harðsoðin egg 1 rauðlaukm- 1/2 iceberg 2 tómatar 1/2 agúrka 2 dósir túnfisk í vatni 1 dós grænar ólífur 1/2-1 dós feta-ostur 1 dós af grænu pestó Aðferð Brytjið grænmetið niður og seijið í skál. Hitið pastanúðlumar í 3 mín- útur. Blandið saman og látið standa í minnst 20 mínútur áöur en borið er fram. Kampavínslegnir ávextir 1 peli rjómi 1 tsk. vanillusykur hesilhnetm- jarðarber bláber epli mandarinur súkkulaðispænir Aðferð Blandið saman rjómanum og vanillusykrinum og þeytið. Ávext- imir em skomir niður og látnir liggja í sykri í ca 2 klst. Síðan settir í skál og rétt áður en desertinn er borinn fram er örlitlu freyðivíni hellt yfir eftir smekk. Rjóminn fer i sér skál og súkkulaðispænirinn yfir hann. Ég skora á Hannes Jónsson „frægðarljóma" sem matgæðing næstu viku. Nykaup Þar semferskleikinn bfr Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. Appelsínuís með marsipanskál Tekur smátíma en er ein- staklega bragðgóður og mjúk- ur. 4 eggjarauður 75 g sykur appelsína, bæði safi og börkur 60 g sykur 2 msk. vatn ' 5 dl rjómi Marsipanskál 400 g marsi 150 g flórsykur suðusúkkulaði Setjið SEunan appelsínusafann og börkinn, sykurinn og vatnið og sjóðið rólega í 5-7 min., þeytið á meðan sykur og eggjarauður, sigtið safann og hellið út i þeyt- inguna þegar hún er tilbúin. Þeytið áfram í ca 1-2 mín., bland- ið svo rjómanum varlega saman við með sleikju. Frystið, berið fram meö súkkulaðisósu og marsipanskál ef vill. Vinnið saman marsann og flórsykurinn, fletjið út deigið og skerið út hring (fyrir 3 kúl- ur er hringurinn eins og undir- skál). Penslið súkkulaðið yfir og brjótið upp á. Gott er að geyma skálina yfir glasi meðan súkkulaðið er að stífna. Carpaccio Fyrir 6 400 g hráar nautalundir (eiimig 1 má nota file eða innra læri) 2 stórar sítrónur fínt salt nýmalaður svartur pipar 1/2 dl ólífuolía (extra virgin) parmesanostur Kjötið er skorið í þunnar sneið- ar, u.þ.b. 25 g hver. Sneiðarnar eru flattar út með spaða þar til þær eru örþunnar. Því næst eru þær settar yfir á matardisk. Hent- ugt er að leggja plast ofan á og renna fingri eftir þvi til aö jafna kjötið á diskinum. Ólífuoliunni er smurt yfir. Kryddið síðan með salti og pipar. Að lokum er sítróna kreist létt yfir kjötið og nýrifnum parmesanosti stráð yfir. Skreytt með steinselju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.