Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Side 6
6
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 JLj"V
||
stuttar fréttir
Boðar skæruhernað
Forseti Tsjetsjeníu, Aslan
Maskhadov, lýsti í gær yfir
skæruhernaöi gegn Rússum um
allt landiö.
Sprengt á Wall Street
Sprengja sprakk í gær á Wall
Street í New York. Einn særðist í
árásinni og tvær byggingar
skemmdust.
Hafha Bondevik
Norðmenn vilja heldur að Jens
Stoltenberg, nýr þingflokksfor-
maður Verka-
mannaflokksins,
stjómi landi
þeirra heldur en
Kjell Magne
Bondevik forsæt-
isráðherra. Sam-
kvæmt skoðana-
könnun blaðsins
Verdens Gang
vilja 61 prósent Stoltenberg í stól
forsætisráðherra. Aðeins 39 pró-
sent vilja Bondevik.
Vodkaverð hækkar
Rússnesk yfirvöld ætla að
hækka verð á vodka og öðru
áfengi um 40 prósent innan
skamms. Eftir hækkunina kostar
lítrinn af vodka 180 íslenskar
krónur.
Aukin verðbólga
Verðbólgan í Þýskalandi jókst
um 1,6 prósent í fyrra. 1 desem-
ber hækkaði verð um 0,4 prósent.
Ísíðustu viku hækkaði Seðla-
banki Evrópu vexti til þess að
reyna að draga úr verðbólgu í að-
ildarlöndum evrópska mynt-
bandalagsins.
Roger Vadim látinn
Franski kvikmyndaleikstjór-
inn Roger Vadim, sem uppgötv-
aði Brigitte Bardot, er látinn af
völdum krabbameins.
Barði eiginkonurnar
Nelson Mandela, fyrrverandi
forseti Afríku, sem í gær fagnaði
því að 10 ár voru
liðin frá þvi að
hann lauk 27 ára
fangelsisvist,
greindi frá því
við heimsókn í
fæðingarbæ sin-
um Mveso að
faðir hans hefði
bariö allar fjórar
eiginkonur sínar. „Munið að ef
við berjum ykkur er það vegna
ástar á ykkur,“ sagði Mandela.
Hann bætti því að faðirinn hefði
skellt á afturendann á konunum
til að þær yrðu feimnar við að
kæra hann og sýna meiðslin. Við-
staddir hlógu vandræðalega að
orðum Mandela.
Vilja afsögn Raus
Nær þriöjungur Þjóðverja er
þeirrar skoðunar að Johannes
Rau forseti eigi að segja af sér
fyrir að hafa þegið flugferðir af
banka er hann var forsætisráð-
herra Nordhein-Westfalen.
ísraelar gengu út
ísraelar gengu í gær út af fundi
með Lfbönum og bandarískum og
frönskum stjómarerindrekum
um ástandið í suöurhluta Lí-
banons. Voru ísraelar kallaðir
heim vegna morðs Hizbollah-
skæruliða á ísraelskum her-
manni.
Skirður í laumi
Vladimir Pútín, starfandi for-
seti Rússlands, greindi frá því í
blaðaviðtali í
gær aö hann
hefði í bemsku
verið skírður í
laumi á valda-
tíma kommún-
ista. Sagöi
Pútín móður
sína og nágrannakonu hennar
hafa laumast með hann, er hann
var nokkurra mánaða, til kirkju
til að láta skíra hann án þess að
greina fóöur hans, sem var í
Kommúnistaflokknum, frá.
Stjórn N-lrlands
leyst upp í gær
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
stjómmálaarms írska
lýðveldishersins, IRA, var þungur á
brún í gær er hann sagði að Peter
Mandelson, ráðherra málefna N-
Irlands í bresku ríkisstjóminni,
hefði leyst upp stjóm N-írlands
vegna hótunar frá flokki
sambandsinna. Peter Mandelson
leysti stjómina upp þrátt fyrir
tímamótatillögu frá Sinn Fein um
lausn á deilunni um afvopnun IRA.
Mandelson sagði tillöguna ekki hafa
verið fullnægjandi en viss árangur
hefði þó náðst í viðræðunum
undanfama daga.
Mandelson sagði nauðsynlegt að
leysa deiluna um afvopnun í eitt
skipti fyrir öll.
David Trimble, leiðtogi
sambandssinna og fyrsti ráðherra
n-írsku stjómarinnar, kvaðst harma
að það skyldi hafa reynst
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, var
ósáttur við endalok mála í gær.
nauðsynlegt að leysa stjómina upp.
Hann sagði ekkert mikilvægt skref
hafa verið tekið til að leysa
afvopnunardeiluna. Kvað hann
nauðsynlegt að byggja á lýðræði en
ekki einkaherjum þegar n-írsk
stjóm yrði mynduð á ný.
Með því að leysa upp stjómina
vonast bresk yfírvöld til að geta
komið í veg fyrir að friðarferlið á N-
írlandi fari út um þúfur.
Mandelson kvaðst vona að hægt
yrði að byggja á þeim árangri sem
þegar hefði náðst til að leysa
deiluna. Hann kvaðst jafnframt
vilja að málið yrði leyst eins fljótt
og hægt væri. Það væri hins vegar
ekkert vit í því að gera það á
síðustu stundu síðdegis á föstudegi.
„Við verðum að sýna skynsemi.
Þetta þarf að ganga rólega fyrir sig
svo allir viti hvað er á borðinu,“
sagði Mandelson.
Innflytjandi frá Marokkó þvær fötin sfn viö skjólvegg úr plasti sem komiö hefur veriö upp skammt frá bænum El Ejido
á Spáni. Hundruö innflytjenda frá Noröur-Afríku hafa flúiö til fjalla eftir átök í bænum. Hundruð Spánverja þyrptust
út á götur, hrópuöu slagorö gegn útlendingum, brutu rúöur f gluggum verslana araba og kveiktu í nokkrum
fbúöarhúsum þeirra. Spánverjar uröu æfir er ung spænsk kona var stungin til bana á markaði. Símamynd Reuter
Austurrískur ráðherra
frystur á ESB-fundi
Atvinnumálaráðherrar Evrópusam-
bandsins, ESB, frystu kollega sinn frá
Austurríki, Elisabeth Sickl, á fundi
sínum i Lissabon í Portúgal í gær.
Þegar Sickl hóf mál sitt gengu
fulltrúar Frakklands og Belgíu út úr
fundarsalnum. Þeir sneru ekki aftur
fyrr en lokinni ræðu hennar.
Hver ráðherrann á fætur öðrum
gagnrýndi Sickl í ræðu sinni. Gest-
gjafinn, Eduardo Ferro Rodrigues,
vinnumálaráðherra Portúgals, varð
hvað eftir annað að minna ráð-
herrana á að halda sig við efniö.
Elisabeth Sickl ákvað að svara ekki
árásunum.
Hún er í Frelsisflokki Jörgs
Haiders. Þetta er í fyrsta sinn sem
ráðherra Frelsisflokksins tekur þátt
í fundi á vegum Evrópusambands-
ins frá því að flokkurinn myndaði
stjóm með Þjóðarflokknum í Aust-
Elisabeth Sickl kemur til ESB-
fundarins í Lissabon f gær.
urríki.
Enginn ESB-ráðherrann heilsaði
Sickl þegar fundurinn hófst. Til
þess að komast hjá vandræðum
hafði opnunarathöfn og ýmsum
menningarviðburðum, sem gert var
ráö fyrir að ráðherramir tækju þátt
í, verið aflýst.
Á fimmtudaginn gengu fulltrúar
Frakklands og Belgíu út þegar nýr
utanríkisráðherra Austurríkis,
Benita Ferrero-Waldner, hélt ræðu
á fundi öryggis- og samvinnustofn-
unar Evrópu í Vín.
Jörg Haider, leiðtogi Frelsis-
flokksins, sagði í viðtali i gær við
tyrkneska blaðið Hurriyet að sér
þætti það hlægilegt að aflur heimur-
inn* þar á meðal forseti Bandarikj-
anna, væri hræddur við lítinn
stjómmálaflokk, við litla Austur-
ríki.
Frakkar vísa á
bug gagnrýni á
friðargæsluliða
sína í Kosovo
Franska vamarmálaráðuneyt-
ið vísar því á bug að franskir
friðargæsluliðar í Kosovo séu
hlutdrægir og óhæfir til að
koma í veg fyrir árekstra milli
Albana og Serba. Því var haldið
fram í greinum í Washington
Post og Intemational Herald
Tribune að franskir hermenn
vernduðu ekki Albana í Kosovo.
Washington Post hafði það eftir
l um tug lögreglumanna Samein-
'« uðu þjóðanna í bænum
Mitrovica í Kosovo að franskir
> hermenn hefðu verið viðstaddir
en ekki veitt þeim aðstoð þegar
óbreyttir serbneskir borgarar
réðust á þá í síðustu viku. í
greininni var því haldið fram að
Frakkar hefðu neitað að taka
þátt í aðgerðum gegn meintum
serbneskum óeirðaseggjum í
Mitrovica.
Franski ofurstinn Henri
Pelissier mótmælti ásökunun-
um á fundi með fréttamönnum í
París. Sagði hann franska her-
menn hafa bjargað 120 albönsk-
um borgurum og komið þeim í
í skjól kvöldið sem átta Albanar
? vom drepnir í kjölfar sprengju-
árásar á serbneskt kafflhús.
Franskir embættismenn segja
| einnig að yfirmenn friðargæslu-
j liðsins og fulltrúar Sameinuðu
;, þjóðannahafi vísað frétt Was-
hington Post á bug og hrósað
| Frökkunum.
Breskir hermenn vom sendir
í gær til liðsinnis Frökkum í
I Mitrovica.
Kæra til
lögreglu vegna
danskrar
gullfiskasúpu
Sýning í listasafninu Trapholt
í Kolding í Danmörku hefur ver-
ið kærð til lögreglu af dönsku
dýraverndunarsamtökunum.
Eitt listaverkanna samanstend-
ur af 10 gullfiskum sem synda í
matvinnsluvél. Með því að ýta á
takka geta gestir breytt inni-
haldinu í gullfiskasúpu.
Bæði safnið og listamaðurinn,
Marco Evaristti hafa verið
kærð. Safnstjórninn, Peter
Meyer, kveðst undrandi á
kærunni og kveðst líta á hana
sem atlögu að tjáningarfrelsi og
listrænu frelsi. Hann bendir á
að það séu gestir safhsins sem
taki ákvörðun um hvort gull-
fiskamir eigi að deyja eða ekki
I með því að ýta á takka.
Flugræningjarn-
ir eiga yfir
höföi sér
dauðarefsingu
Ræningjar afgönsku farþega-
flugvélarinnar, sem var rænt í
innanlandsflugi og snúið til
j London, geta átt von á því að
verða teknir af lífí verði þeir
sendir heim til Afganistans.
Þetta sagði einn leiðtoga tale-
bana, herforinginn Rahmatullah
Safí, sem var á Stanstedflugvelli
á meðan samið var við flugræn-
ingjana, í viðtali við BBC. Safi
j sagði að refsa ætti flugræningj-
unum, annaðhvort í Bretlandi
| eða Afganistan.
ISafi lét þessi orð falla samtím-
is því sem mannréttindasamtök
báðu Jack Straw, innanríkisráð-
herra Bretlands, um að vísa
ekki úr landi þeim farþegum
sem sótt hafa um pólitískt hæli í
Bretlandi.
Aðstoðarutanríkisráðherra
talebana, Abdul Rahman Zahid,
sagði í gær að talebanar væru
ánægðir með að gíslamir yrðu
brátt sendir heim og að flugræn-
ingjunum yrði refsað í samræmi
við bresk lög.