Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Síða 8
frettir
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
íslendingar eyða milljónum í símatorgsþjónustu á ári hverju og markaðurinn stækkar enn:
Fjögur fyrirtæki berjast
um unaðinn í símanum
- tilkoma Íslandssíma blés upp verðið. Spár um tvöföldun veltu á næstunni.
Símatorg er eitt þeirra fyrirbrigða
sem landsmenn kynntust á tíunda
áratugnum. Fyrst um sinn var boðið
upp á stefnumótalínur af ýmsu tagi en
á undanfömum árum hefur markað-
urinn stækkað gríðarlega og ýmsar
nýjungar komið fram. Um margra ára
skeið hélst verðskráin óbreytt og var
markaðurinn takmarkaður af þeim
sökum. í fyrra var fyrst farið að bjóða
upp á beint samtal, símasex eins og
það hefur verið kallað en fram að þvi
voru einungis hljóðritanir í boöi og á
sama tíma tóku gjaldflokkamir mikl-
um breytingum. Það fékkst í gegn
hækkun en hana má rekja til tilkomu
Íslandssíma en þeir buðu fyrstir upp á
nokkum veginn frjálst verðlag i þess-
um geira. Að sögn viömælenda DV
hefur þetta opnað markaðinn upp á
gátt og haft afgerandi áhrif á veltu því
möguleiki er nú á verðflokkum allt
upp í 300 krónur á mínútu auk þess að
hægt er að mkka fasta krónutölu fyr-
ir hvert símtal. Einn viðmælandi var
þeirrar skoðunar að þessi breyting
myndi jafnvel tvöfalda veltu markað-
arins.
í dag eru fjögur fyrirtæki á markað-
inum, Veitan, Tjáskipti, Rauða torgið
og Símamiðlun ehf. Veitan er elsta
fyrirtækið í bransanum og lengi vel
var það stærst ásamt Rauða torginu.
Samkvæmt heimildum DV hefur það
þó breyst og nú eru tveir aðilar
langstærstir, Veitan og Tjáskipti með
um 70-80% markaðarins og hin tvö
með rúmlega 20%. Það gæti stutt þetta
að skoða magn auglýsinga fyrirtækj-
anna.
200 milljóna ársvelta?
Kostnaðurinn fyrir þá sem nýta sér
þjónustu símatorgs er mikill, sérstak-
lega eftir tilkomu nýju gjaldskrárinn-
ar. Það er því freistandi að álykta að
þeir sem standa að fyrirtækjunum séu
moldríkir menn. Giskað hefur verið á
að velta fyrirtækjanna nemi um 200
milljónum á ári hverju og þeir fái 2000
símtöl á degi
hverjum. Við-
mælendur DV
eru ekki á eitt
sáttir um hvað sé
hæft í þessum
tölum en þó virð-
ist þetta ekki
vera fjarri lagi.
„Mér finnst talan
200 milljónir ekki vera svo stór þegar
henni er skipt á milli fjögurra aðila og
dreginn frá kostnaður, sem er mikill í
þessum bransa,“ segir Ágúst Sverris-
son hjá Veitunni. Þegar kostnaðurinn
er skoðaður kemur í ljós að hann er
þónokkur. „Þaö sem við síma-
torgsveitendur veltum í heild er í
raun ekki nema brot af því sem kem-
ur inn á símatorgunum. Það sem
neytandinn borgar er allt annað err
það sem við veltum," sagði einn við-
mælenda DV. Það
eru þrír aðilar sem
koma að hverju
gjaldnúmeri, símafé-
lagið með innheimtu-
kostnað, ríkissjóður
með virðisauka og
svo þjónustuveitand-
inn með um helming
innkomunnar. Af því
dregst svo almennur kostnaður við
rekstur frá auk auglýsingakostnaðar
sem gríðarlegur í þessum bransa.
Eignarhald á símatorgsfyrirtækjun-
um er ekki hverjum sem er opið. Þeg-
ar spurst er fyrir um það kemur fólk
víðast að lokuðum dyrum, sérstaklega
þar sem flest fyrirtækin auglýsa und-
ir öðrum nöfnum en sínum eigin.
Rauöa torgiö
„Við byrjuðum í
maí 1995 og erum
eina fyrirtækið sem
hefur lagt áherslu á
nafnþekkingu og
allt sem við gerum
er undir okkar
nafni. Þegar fólk
skoðar aðrar auglýs-
ingar um símaerótík
hefur það oft ekki
hugmynd um hver stendur á bak við
þetta,“ segir Jens Kristjánsson hjá
Rauða torginu. Samkvæmt heimild-
um DV er Jens stór eigandi í fyrirtæk-
inu en ásamt honum hefur verið
nefndur tii sögunnar Jón Þorbergs-
son, sem skráður er fyrir eignarhalds-
félaginu sem stendur að baki fyrir-
tækinu en sama fólk hefur átt það frá
upphafí. Klara Kristín Einarsdóttir er
varamaður í stjórn og einn eigenda.
Jens segir að Rauða torgið sé um þess-
ar mundir í lægð þar sem verið sé að
taka í notkun nýtt tölvukerfi. Það
tölvukerfi mun auðvelda starf fyrir-
tækisins til muna. „Fastráðnir starfs-
menn hjá okkur eru núna 1,6. Þegar
nýja forritið kemst í gagnið verður
vinnutími á sólarhring einn og hálfur
klukkutími. Forritið byggir á sjálf-
virkni og það er hægt að fjarstýra því
úr fartölvu hvaðan sem er úr heimin-
um og eykur það hagkvæmni til
muna,“ segir Jens. En lifa menn auð-
veldlega á laununum í þessum
bransa? „Menn hafa í sig og á en ég
hugsa að duglegur iðnverkamaður
hafi hærri laun,“ segir Jens Kristjáns-
son.
Tjáskipti
Fyrirtækið Tjá-
skipti er mjög ungt
á markaönum en
hefur þó náð sterkri
fótfestu og má aðal-
lega rekja það til til-
komu símasexins.
Fyrirtækið auglýsir
undir nöfnunum
Draumveitan og
Telís, en Telis er
jafnframt skráð sem fyrirtæki i síma-
torgsgeiranum. Framkvæmdastjóri
fyrirtækisins heitir Ágúst Smári
Beaumont og er hann jafnframt einn
af þremur eigendunum. Ekki náðist í
Ágúst 1 gær. Annar aðili sem heimild-
ir DV herma að sé stór hluthafi er
Brynjar Hauksson og er hann stjórn-
arformaður. Báðir eru þessir menn
ungir að árum, rétt ríflega tvítugir.
Þriðji aðilinn er Björk Kristjánsdóttir.
Eins og áður segir er Tjáskipti annar
stóru aðilanna á markaðnum en það
er mat heimildamanna DV að þeir séu
langstærstir á sviði símasexins. Telja
sumir að þeir séu jafnvel að fara fram
úr Veitunni sem hefur verið stærst.
Þeir hafa verið mjög ötulir við að
bjóða upp á live sex-þjónustu og buðu
upp á hana með greiðslukortum þar
til aðstaða og leyfi fékkst til að bjóða
upp á það í gegnum símatorg. Til
marks um það voru þeir t.d. með
fastakúnna í greiðslukortunum áður
en leyfi fékkst fyrir símasexið í sima-
torgi.
Veitan
Ágúst Sverrisson
rekur Veituna og
hefur unnið við
símatorg frá því það
byrjaði. Fyrirtækið
auglýsir einnig und-
ir nafninu Draum-
sýn. „Veitan var
stofnuð árið 1996 og
með henni kom eitt-
hvað sem hefur
talist umdeilt, erótískt efni. Það voru
til stefnumótalínur áður en með til-
komu Veitunnar þá varð þessi mark-
aður til eins og ljann er núna,“ segir
Ágúst. Ágúst segir að nokkrir aðilar
eigi fyrirtækið og er einn þeirra Pétur
Hilmarsson, sem er einn aðaleigand-
inn. Samkvæmt hlutafélagaskrá eru
aðrir stjómarmenn Kristján Franklín
Magnús og Ágúst Sverrisson. „Það er
þannig að ég er eini fasti starfsmaður-
inn en svo kaupi ég bæði forritunar-
þjónustu og verktakaþjónustu, þannig
að þetta gætu verið þrjú starfsgildi
þegar allt er talið.“ Ágúst segir að sér
sé ekki heimilt að tala um veltu fyrir-
tækisins en eins og áður sagði telur
hann 200 milljóna heildarveltu á
markaðnum ekki fjarlæga. Hann telur
erfltt að átta sig á hvort markaðurinn
muni stækka með nýfengnum breyt-
ingum en á þó frekar von á því. Eins
og staðan er núna er Veitan sterkust
á sviði stefnumótalína, þar sem konur
hringja frítt og fólk kynnist og spjall-
ar saman. Möguleikana þar telur
hann ótæmandi því fólk ræður algjör-
lega hvað það spjaUar um. Veitan býð-
ur einnig upp á annars konar þjón-
ustu en hefðbundna símatorgsþjón-
ustu. Fyrirtækið er með skjáleikinn á
Sýn og stjömuspárlínu svo eitthvað sé
nefnt.
Símamiðlun ehf.
„Fyrirtækið er búið að vera til frá
1997,“ segir forsvarsmaður Símamiðl-
unar ehf. sem vill ekki láta nafns síns
getið. Símamiðlun auglýsir undir eig-
in nafni og fær fyrirtækið um 250 sím-
töl á dag. Það eru aðallega verktakar
sem starfa í fyrirtækinu, ein stúlka á
símanum í hlutastarfi, manneskja
sem sér um reksturinn og á hlut í fyr-
irtækinu og svo framvegis. Rekstur-
inn er í formi hlutafélags með
nokkram eigendum. Samkvæmt
hlutafélagskrá skipuðu stjóm félags-
ins þegar síðast var skráð þau Ragn-
heiður G. Sigurðardóttir, Gústaf Sam-
ir Hasan og Bima Hilmarsdóttir sem
munu hafa selt sinn hlut.
Fréttaljós
Höskuldur Daði Magnússon
Jens
Kristjánsson.
Chiwpractic heUsudýnumar SvefnherbergLshúsgögri
Hetisukoddar Hlíjhardýmur Rúmteppasett Hágœða
hómullarlök Sœngur Sœngurver Lampar Speglar
jAvík-AKU^É
Listhúsinu Laugardal, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheils