Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Side 59
JjV LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
afmæli
Páll Þorleifsson
Páll Þorleifsson, fyrrv. húsvörð-
ur, Hrafnistu í Hafnarfirði, er ní-
ræður i dag.
Starfsferill
Páll fæddist að Kaganesi við
Reyðarfjörð en ólst upp í foreldra-
húsum að Kömbum til 1918. Þá
drukknaði faðir hans og varð móðir
hans þá að leysa upp heimilið. Páll
fór þá, ásamt þremur systkinum
sinum, til móðurbróður síns, Páls
Þorsteinssonar og k.h., Elínborgar
Stefánsdóttur, að Tungu í Fáskrúðs-
firði.
Páll ílutti suður er hann var um
tvítugt og stundaði nám viö Héraðs-
skólann á Laugarvatni 1931-33.
Hann settist síðan að í Hafnarfirði
og hefur verið búsettur þar síðan.
Páll stundaði fyrst almenna
verkamannavinnu. Hann starfaði
svo í hálfan annan áratug í raf-
tækjaverksmiðjunni Rafha en 1961
varð hann húsvörður við Flensborg-
arskólann og gegndi því starfi í tutt-
ugu ár, eða þar til hann var sjötiu
og eins árs. Þann tíma bjuggu hann
og fjölskylda hans i skólanum. Þá
kenndi hann jafnframt bókband við
Flensborgarskólann um skeið. Eftir
að Páll hætti störfum við Flensborg-
arskólann starfaði hann í fimm ár
hjá Flúrlömpum sf.
Páll söng og starfaði með Karla-
kómum Þröstum i Hafnarfirði í sex-
tíu og fimm ár. Hefur kórinn oft
flutt lög eftir Pál en hann
hefur gert töluvert af því
að semja lög og Ijóð. Þá
var hann einn af ein-
söngvurum kórsins um
árabil. Hann söng jafh-
framt í kirkjukórum í
Hafnarfirði og í ýmsum
kvartettum og sönghóp-
um. Lætur hann sig
aldrei vanta þegar sungið
er' á Hrafnistu en hann
syngur enn fyrsta tenór.
Á yngri árum æfði Páll
fimleika með FH og var í
sýningarflokki undir
stjóm Hallsteins Hinrikssonar.
Eftir Pál hafa komið út 18 sönglög
fyrir karlakóra, útg. 1988, og Kveðja
frá Páli í bundnu máli, ljóð og stök-
ur útg. 1996. Hann er nú búsettur á
Hrafnistu.
Fjölskylda
Páll kvæntist 23.10.1937 Guðfinnu
Ólafiu Sigurbjörgu Einarsdóttur
(Lóu), f. 26.2. 1913, d. 5.12. 1999, hús-
móður. Hún var dóttir Einars Jóns-
sonar, f. í Vola í Flóa 5.5. 1866, d.
1947, og Kristínar Guðmundsdóttur,
f. á Skógströnd í Garðahreppi 13.11.
1873, d. 1955.
Dætur Páls og Ólaflu eru Kristín,
f. 5.3. 1938, kennari og bókasafns-
fræðingur í Hafnarfirði, gift Magn-
úsi R. Aadnegard, f. 9.5. 1942, vél-
virkjameistara og atvinnurekanda;
Þóra Gréta, f. 21.11.
1945 þjónustufulltrúi í
Sparisjóði Hafnaifjarð-
ar, gift Magnúsi Jóni
Sigbjörnssyni, f. 27.5.
1944, vélvirkjameist-
ara.
Böm Kristínar og
Magnúsar eru Páil
Heiðar, f. 31.1.1964, vél-
fræðingur, kvæntur El-
enu Siivonen, lyfja-
fræðingi frá Rússlandi,
en dóttir þeirra er Olga
Karin, f. 7.8. 1983; Lóa
María, f. 29.4. 1966,
kennari og lyfjafræðingur, en mað-
ur hennar er Sigurður Hannesson,
kerfisfræöingur og rafveindavirki
og eru böm þeirra Bjarki Dagur, f.
3.7.1993, Sævar Andri, f. 4.1.1996 og
Eydís Anna, f. 15.7. 1999.
Börn Þóru Grétu og Magnúsar
eru Pálmar Óli, f. 15.5. 1966, véla-
verkfræðingur og framkvæmda-
stjóri, en kona hans er Hildur Karls-
dóttir kennari og eru böm þeirra
Smári, f. 22.2. 1988, Þóra Gréta, f.
16.12. 1992, og Rakel, f. 15.11. 1994;
Bjarki Þór, f. 11.4. 1973, rafeinda-
virki, en unnusta hans er Bára
Hilmarsdóttir og eru dætur þeirra
Eva Rós, f. 4.9. 1991, og Lena Rut, f.
30.8. 1994; ívar Smári, f. 24.3. 1976,
rafvirki, en unnusta hans er íris
Ósk Hafþórsdóttir og er sonur
þeirra Anton Freyr, f. 8.7. 1996;
Alma Björk, f. 30.3. 1980, nemi við
Ví, en unnusti hennar Guðmundur
Jón Viggósson.
Systkini Páls: Sigurbjörg, f. 10.7.
1906, d. 1999, húsmóðir og sauma-
kona, en maður hennar var Markús
Jónsson sem einnig er látinn; Sig-
urður, f. 10.7. 1906, d. 1926; Þórir, f.
18.11. 1908, d. 1991, húsgagnabólstr-
ari, var kvæntur Guörúnu Þ.
Sturludóttur; Stefán, f. 27.9. 1911,
fyrrv. leigubílstjóri og hljómsveitar-
stjóri, var kvæntur Halldóru G.
Hallgrímsdóttur sem er látin;
Eiríkur, f. 23.5. 1913, d. 1993,
rafvirkjameistari, var kvæntur
Sigríði Sigurðardóttur; Magnús, f.
19.9. 1914, d. 1999, viðskipta-
fræðingur, var kvæntur ídu S.
Daníelsdóttur.
Foreldrar Páls voru Þorleifur
Stefánsson, f. á Reyðarfirði 13.9.
1876, d. 1918, og Margrét
Þorsteinsdóttir, f. í Víðivallagerði á
Fljótsdalshéraði 25.6. 1874.
Ætt
Þorleifur var sonur Stefáns
Guðmundssonar, b. í Vaðlavík, og
Önnu Jónsdóttur húsfreyju.
Margrét var dóttir Þorsteins
Jónssonar, b. í Víðivallagerði, og
Sigurbjargar Hinriksdóttur
húsfreyju.
Páll mun eyða afmæliskvöldinu
með fjölskyldu sinni.
Páll Þorleifsson.
Hörður Valdimarsson
Hörður Valdimarsson, fyrrv. að-
stoðarforstöðumaður, Nestúni 17,
Hellu, varð sjötíu og fimm ára á
miðvikudaginn var.
Starfsferill
Hörður fæddist í Reykjavík en
ólst upp að Holtastöðum í Langadal
í Húnavatnssýslu. Hann stundaði
nám við Bændaskólann á Hvann-
eyri og lauk þaðan búfræðinámi
1944.
Hörður hóf störf hjá lögreglu-
stjóraembættinu í Reykjavík 1950 og
stundaöi þar ýmis löggæslustörf til
1972 er hann flutti austur í Rangár-
vallasýslu og gerðist aðstoðarfor-
stöðumaður við Vistheimilið í
Gunnarsholti.
Hörður sat í stjóm og var síðan
formaður Landssamtaka klúbbanna
Öruggur akstur um árabil en þá
ferðaðist hann um landið til fræðslu
um umferðaröryggismál. Hann varð
félagi í Lionsklúbbnum Skyggni á
Hellu 1973 og er þar enn virkur fé-
lagi. Hann var umdæmisstjóri
Lionsumdæmisins 109A starfsárið
1981-82 en 1985 var Hörður gerður
að Melvin Jones félaga sem er ein
æðsta viðurkenning Lionsfélaga.
Fjölskylda
Hörður kvæntist 13.2. 1950 Jór-
unni Erlu Bjamadóttur, f. 25.6.1930,
fyrrv. yfirmatráðsmanni. Hún er
dóttir Bjarna Guðmundssonar,
stýrimanns og skipstjóra en síðar
ökukennara og strætisvagnstjóra í
Reykjavík, og Gyðu Guðmundsdótt-
ur húsmóður.
Börn Harðar og Jórunnar Erlu
eru Bjarni Rúnar Harðarson, f.
14.10. 1950, loftskeytamaður við
Loftskeytastöðina í Gufunesi, bú-
settur í Keflavík og á hann fimm
syni en sambýliskona hans er Inga
Guðmundsdóttir verslunarmaður;
Guðrún Bryndís Harðardóttir, f.
30.10. 1953, bókari í Reykjavík,
ekkja eftir Jón Árnason símvirkja
og eru synir þeirra tveir; Hafdís
Erna Harðardóttir, f. 25.4. 1955,
bankamaður í Reykjavík, og á hún
fimm börn en sambýlismaður henn-
ar er Frederick Allan Jónsson múr-
ari; Sævar Logi Harðarson, f. 21.3.
1957, rafvirkjameistari á Hellu, en
kona hans er Fjóla Lárusdóttir mat-
reiðslumaður og eiga þau þrjú börn.
Systkini Harðar eru Þráinn
Valdimarsson, fyrrv. framkvæmda-
stjóri í Reykjavík; Vilhjálmur Valdi-
marsson, gjaldkeri á Seltjarnamesi;
Erla Valdimarsdóttir, verslunar-
maður í Reykjavik; Ásdís Valdi-
marsdóttir, fóstra í Reykjavík;
Hrafnhildur Valdimarsdóttir, búsett
í Reykjavík; Stefán J. Valdimars-
son, eftirlitsmaður i Reykjavík.
Foreldrar Harðar voru Valdimar
Stefánsson, f. 1.8. 1898, d. 25.4. 1988,
fyrrv. vitavörður og múrari, og k.h.,
Guðrún Vilhjálmsdóttir, f. 13.2.1901,
d. 2.9. 1935, húsmóðir.
Hörður og Jórunn Erla taka á
móti gestum að heimili sinu,
Nestúni 17, laugard. 12.2. frá kl.
15.00.
Til hamingju með afmælið 13. febrúar
90 ára
Páll Þorleifsson, Hrafnistu, Hafnarfirði. Þorbjörg Váldimarsdóttir, Dælengi 16, Selfossi.
85 ára
Gróa Kristjánsdóttir, Hólmi, Hvolsvelli. Sölvi Ólason, Hlíðargötu 62, Fáskrúðsflrði.
80 ára
Júlíana Hinriksdóttir, Rauðumýri 3, Akureyri. örlygur Sigurðsson, Skúlagötu 20, Reykjavík.
75 ára
Guði-ún Jóna Jónsdóttir, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
70 ára
Emilía Thorarensen, Álfheimum 20, Reykjavík.
60 ára
Árni Eyvindsson, Ægisíðu 62, Reykjavík. Steinunn Jónsdóttir, Fosshóli, Sauðárkróki. Valgerður Þorvarðsdóttir, Lindarbrekku, Hvammstanga.
50 ára
Grétar G. Vilmundarson, Vallarbraut 10, Seltjarnamesi. Guðrún Jónasdóttir, Elliðavöllum 12, Keflavík. Hólmfríður Sigurðardóttir, Dalsbyggð 3, Garöabæ. Ingi Leifsson, Akurgerði 1, Reykjavík. Kristján Guðmundsson, Sæbóli 26, Grundarfirði. Sigríður Guðnadóttir, Reykjabraut 4, Þorlákshöfn.
40 ára
Geir Sigurðsson, Engihjalla 9, Kópavogi. Halldór Garðar Bjömsson, Tunguvegi 1, Hafnarfirði. Helen Patricia Brown, Lindarflöt 34, Garðabæ. Smári Kristjánsson, Álfaskeiði 88, Hafnarflrði.