Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Síða 62
74 <&yndbönd
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 J-j’V
yndbanda
GAGNRÝNI
Lola Rennt:
Virðingarvert virðingarleysi
★★★■i Með kvikmyndaskáldunum stóru, Herzog, Fassbinder og
Wenders, átti þýsk kvikmyndagerð sitt síðasta blómaskeið á
áttunda áratugnum en hefur átt erfitt uppdráttar síðan. Yngri kvik-
myndagerðarmenn festust í pælingum þeirra og bættu litlu við. Nú hafa
ungir eldhugar hins vegar snúið við þeim baki og þeirra lærifeður eru
MTV og Tarantino. Lola Rennt rýkur af stað og heldur uppi stanslausri
keyrslu á 82 mínútum (og nær að segja þrjár mismunandi útgáfur af sög-
unni á þeim tíma). Hún gefur listasnobbsmafíunni langt nef og keyrir
yfír smáatriði eins og vandaða persónusköpun, vitrænan söguþráð og
innihald sem þau væru ómerkilegir rigningarpollar á hraðbrautinni.
Ævintýralega ýkt stílbrigði og hraði í frásögn gefa áhorfendanum litinn
tíma til þess að hugsa um innihaldið. Kvikmyndavélin er á stöðugri
hreyfingu, klippingar hraðar og atburðarásin öll ein rússíbanaferð. Æsi-
leg tónlist undirstrikar skyldleikann við tónlistarmyndbönd. Myndin er
langt frá því að vera fullkomin en virðingarvert virðingarleysi hennar
gagnvart hefðum kvikmyndaformsins er hressilegt og skemmtilegt inn-
legg í kvikmyndaflóruna.
Útgefandi: Stjörnubíó. Leikstjóri: Tom Tykwer. Aðalhlutverk: Franka
Potente og Moritz Bleibtreu. Þýsk, 1998. Lengd: 82 mín. Bönnuð innan 12
ára. -PJ
The Mill on the Floss:
Orlagaástir
Þetta verk segir frá ástum og örlögum Tulli-
ver-fjölskyldunnar. FVrst kynnumst við systkinunum
Maggie og Tom á barnsaldri ásamt Philip Wakem, syni
erkióvinar fóður þeirra. Börnin verða þó mestu mátar,
einkum þó Philip og Maggie sem ákveða að láta ekki
deilur feðra sinna spilla vináttunni. Örlögin haga aftur
á móti málum svo að þegar þau komast á giftingaraldur fá þau vart talast við.
Hjúskaparmál vina og skyldmenna flækja svo vináttuböndin enn frekar.
Eftir miklar vinsældir mynda, byggða á skáldsögum Jane Austin, kemur
ekki á óvart að leitað sé í brunn George Eliot. Líkt og í sögum fyrmefndu
skáldkonunnar eru hjúskaparmálin í brennidepli en undirtónninn þó held-
ur alvarlegri. Sagan er mikil að vöxtum og því miður tekst ekki að tengja at-
burði myndarinnar í markvissa hefld. Vaðið er úr einu i annað og ofsafeng-
in tilfínningatengsl persóna eru ósannfærandi. Leikstjórinn Graham Theak-
ston hefur nær eingöngu unnið fyrir sjónvarp og líklega hefði árangurinn
orðið miklu athyglisverðri hefði verið um að ræða sjónvarpsþáttaröð. Þeir
sem hrífast af enskri epík ættu þó endilega að lauma þessari í tækið því
sjarmi hefðarinnar leynir sér ekki.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Graham Theakston. Aðalhlutverk: Emily
Watson, Cheryl Campbell, James Frain og Bernard Hill. Ensk, 1998.
Lengd: 120 mín. Öllum leyfð. -bæn
Election:
Kosningar
'k'k'k Jim McAllister (Matthew Broderick) er
kennari af hugsjón og hefur þrisvar verið valinn
kennari ársins. Hann á gott líf og er ánægður I
vinnunni þar til að Tracy Flick (Reese Wither-
spoon) býður sig fram til forseta nemendastjórnar.
Hann þolir hana nefnilega ekki og reynir hvað
hann getur til að spilla framboðinu.
Eftir allt lofið sem þessi mynd hefur hlotið varð ég fyrir örlitlum von-
brigðum. Mér fannst háðið ekki alveg jafnsnjallt og umfjöllunin gaf efni
til að ætla. Hins vegar er það ferskt og skemmtilegt og myndin öfl hin
hressilegasta. Það er fyrst og fremst fjörlegri persónusköpun að þakka,
ásamt frábærri túlkun leikaranna. Matthew Broderick hefur alltaf átt
gott með að leika vinalegar vandamálapersónur og fer vel með kennar-
ann góða en breyska sem lætur kosningamar setja líf sitt og siðferðis-
kennd á annan endann. Chris Klein er einnig mjög fínn í kostulegu hlut-
verki auðtrúa og sakleysislegrar ruðningshetju sem lætur McAllister ýta
sér út í framboð. Það er þó Reese Witherspoon sem á þessa mynd og hef-
ur ekki verið betri síðan í Freeway. Hún leikur framapotarann unga af
þvílíkum fitonskrafti að það hálfa væri nóg.
Útgefandi: CIC mynbönd. Leikstjóri: Alexander Payne. Aðalhlutverk: Matt-
hew Broderick og Reese Witherspoon. Bandarísk, 1999. Lengd: 103 mín.
Bönnuð innan 12 ára. -PJ
TheBreak up:
Ekki hundum bjóðandi
0 Jimmy (Bridget Fonda) er gift brjálæðingi sem
beitir hana grófu ofbeldi. Snemma kemur þó í ljós
að hann lætur ekki við heimilisofbeldið eitt sitja.
Eftir að hún er flutt nær dauða en lífi á sjúkrahús
finnst lík í bíl eiginmannsins sem lögreglan telur
hans. Annað kemur þó í ljós (ég er ekkert að kjafta
frá, þetta er einungis ein af mörgum augljósum
„gátum“ myndarinnar) og brátt er Jimmy komin á
flótta undan hjónabandssælunni og lögreglunni.
Ferifl Kiefers Sutherlands er búinn að vera á hraðri leið í hundana og
slæst Bridget Fonda hér í för með honum. Ótrúverðugleika Jimmys má
reyndar að miklu leyti rekja til handritsins en það er með því alversta
sem skrifað hefur verið. Tökum dæmi um heimskulega framvinduna:
Brjálæðingurinn vondi er að beygla og rífa úr sér tennurnar og brenna
á sér hendumar. Stuttu síðar kemst sérfræðingur lögreglunnar að þeirri
niðurstöðu að hann muni ekki vera sökudólgurinn þar sem tanngarður-
inn sé annar og ómögulegt að taka fingraför! Af hverju Sutherland og
Fonda samþykktu að taka þátt í slíkri hundalógík er ofar mínum skiln-
ingi.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Paul Marcus. Aðalhlutverk: Bridget
Fonda og Kiefer Sutherland. Bandarísk, 1998. Lengd: 101 mín. Bönnuð
innan 16. -bæn
Matthew Broderick:
Indælismaður í hremmingum
Hann var hér um bil búinn að
koma af stað kjarnorkustyrjöld í
fyrstu mynd sinni og það átti fyrir
honum að liggja að leika ófáa indæl-
ismenn sem afltaf lenda í hinum
ótrúlegustu hremmingum og rata
ekki úr þeim þrátt fyrir að vera
góðum gáfum gæddir. Þessi hlut-
verk eru sérgrein leikarans með
strákslega andlitið, Matthews
Brodericks. Hans verður þó ávaflt
minnst fyrir hlutverkið sem skaut
honum upp á stjörnuhimininn, hlut-
verk skróparans Ferris Bueller.
Matthew Broderick fæddist 21.
mars árið 1962 inn í leiklistarfjöl-
skyldu. Faðir hans var leikari og
móðir hans leikskáld og handrita-
höfundur. Hann ólst upp við leik-
húslíf New York borgar og rataði
nánast sjálfkrafa inn á leiklistar-
brautina. Sautján ára gamall fór
hann að vinna með föður sínum við
tilraunaleikhús og varð strax eftir-
sóttur. Fljótlega var hann farinn að
leika á Broadway í leikritum eins
og Biloxi Blues og Brighton Beach
Memoirs eftir Neil Simon og Torch
Song Trilogy eftir Harvey Fierstein.
Hann vann Tony-verðlaunin, ósk-
arsverðlaun leikhúslífsins, fyrir
hlutverk sitt i Brighton Beach
Memoirs.
Missti af Alex P. Keaton
Hann hafnaði tilboði um að leika
Alex P. Keaton í sjónvarpsþáttunum
Family Ties þar sem faðir hans var
þá orðinn illa haldinn af krabba-
meini og hann hefði þurft að flytja
til Los Angeles. í staðinn fékk Mich-
ael J. Fox hlutverkið sem gerði
hann að stjörnu. Matthew Broder-
ick og Michael J. Fox eiga það
reyndar sameiginlegt að líta mjög
unglega út og leika gjarnan langt
niður fyrir sig í aldri. Það má segja
að þetta hafi fært báðum viss tæki-
færi en þetta hefur kannski einnig
kvikmyndauppfærslum á tveimur
af sínum stærstu leikhúsverkefn-
um, Biloxi Blues og Torch Song
Trilogy (þar sem hann reyndar lék
annað hlutverk en hann hafði gert í
leikritinu). Báðar myndimar voru
gerðar 1988 en sama ár olli hann al-
varlegu og umtöluðu bílslysi á Ir-
landi þar sem hann var í fríi með
þáverandi kærustu sinni, Jennifer
Grey. Hann missti stjóm á bíl sín-
um og keyrði á bíl sem var að koma
úr gagnstæðri átt. í bílnum
voru mæðgin sem
létust. Eftir tvo
mánuði á
sjúkrahúsi
þurfti
hann. að
mæta
fyrir
dómara
sem
sleppti
honum
með sekt
-fyrir gá-
leysisleg-
an akstur
en fjöl-
skylda
hinna
látnu var
sárhneyksl-
uð.
Næstu
árin gekk
honum
misjafnlega.
Hann lék I mis
góöum mynd-
um og sum-
ar kol-
féllu.
Hann átti þó góða endurkomu í leik-
húslífið og vann sinn annan Tony
árið 1994 fyrir hlutverk sitt í How to
Succeed in Business without Really
Trying. Einnig leikstýrði hann
fyrstu og einu kvikmynd sinni til
þessa, Infinity, ágætismynd sem
fékk vinsamlegar umsagnir en ekki
mikla aðsókn. Frægðarsól hans var
að dvína en mérkilegt nokk þá varð
Godzilla, stærsti skellurinn af öll-
um, til að minna fólk á hann á ný.
Gríðarlega neikvæð gagnrýni á
myndina beindist ekki að
aðalleikaranum og
hann komst í sviðs-
ljósið á ný. Hann
fylgdi þessu eftir
með myndunum
Election og In-
spector
Gadget. Matt-
hew Broder-
ick er þar með
aftur orðinn
eitt af þekkt-
ustu andlitun-
um i bransanum
en nú er eftir að
sjá hvort það end-
Pétur
Jónasson
Inspector Gadget. Matt-
hew Broderick í titilhlutverkinu.
gert þeim erfiðara fyrir að þroskast
sem leikarar. Michael J. Fox tókst
eiginlega aldrei að brjótast út úr
strákshlutverkinu og virðist ekki
ætla að takast það því hans biðu
þau kaldhæðnislegu örlög að þurfa
að draga sig i hlé vegna parkinsons-
veiki sem flestir tengja fremur við
háaldrað fólk. Matthew Broderick
hefur orðið meira ágengt.
Fyrsta kvikmyndahlutverk Matt-
hews Brodericks var í Max Dugan
Retums árið 1983 en hann vakti
fyrst athygli í WarGames sem kom
út síðar sama ár. Þar lék hann ung-
an tölvusnifling sem kemur næstum
því af stað kjamorkustríði fyrir
mistök. Gáfað fólk, sem meinar vel
en klúðrar samt öllu, hefur frá upp-
hafi verið sérgrein hans. WarGames
tryggði honum næga atvinnu næstu
árin en það var Ferris Bueller’s Day
Off sem skaut honum upp á stjörnu-
himininn árið 1986. Allir þeir sem
voru unglingar á þessum tíma
muna eftir myndinni. Persónan sem
hann lék, Ferris Bueller, var svalur,
kærulaus, hress og sniðugur og
varð nánast átrúnaðargoð heillar
kynslóðar.
Olli dauðaslysi
Matthew Broderick neitaði þó að
láta binda sig á klafa unglinga-
mynda. Hann taldi sig fjölhæfari en
svo og vildi reyna að koma því til
skila til fjöldans. Hann lék m.a. í
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI IFYRRI 1VIKUR > : VIKA k LISTAI 1 i 1 TITILL ÚTGEF. J ;teg. j
1 1 1 j 1 2 J FieMummy CIC Myndbönd j Spemu
2 1 2 1 I J 3 i Aiulyzethis j Wamer Mynár J J
3 1 3 1 2 1 The Blair witch project J SAM Myndbönd i Spetma
4 J 1 4 1 1 1 4 I Office space J j SUfan J Gaman
5 ! 5 i 1 4 i Instinct Myndform ; Spciin
6 i 6 1 J J J 3 Í Universa] soldier The return J Skifan J I Sp«iu J
7 1 8 J 7 J Entrapment j Skffan Spnna
8 i I 1 J 6 The out-of-towners CIC Myndbönd Ibrnffl,
9 i 10 T j 1 i Notting hill 1 Háskólabtó J 1 Caman J
10 1 9 1 j j 5 I J Go J Skffan Gaman J
11 1 NÝ j 1 J Virtual Sexuaiity Skðan
12 11 j j 3 f Alit um móJur mina Borft ' Draraa J
13 1 12 j 10 1 EtfTv J CIC Myndbönd 1 Ganun
14 1 16 J j j 8 J 10 things 1 hate about you J J SAMMyndbönd Gaman
15 i j 1 1 i Infemo Myndform Spenna
16 1 NÝ 1 I J 1 | Stonn of the century 1 SAM Myndbönd J Sperau J
17 1 19 J 5 1 Octobersky J CIC Myndbönd j Drama
18 13 J j 6 J The astronauts wife j Myndform J Spenu
19 !> j j 6 f Vmis SSufan Spenu
20 1 18 2 1 Tomnte J Myndform Gaman