Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Page 63
RADAUGLYSIMGAR RCT 550 5000
þú velur þér
INNKA Uf?ASTOFNUN
REYKJA VIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi3-101 Reykjavík-Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang: isr@rhus.rvk.is
F.h. Kjarvalsstaða er óskað eftir aðilum sem áhuga hafa á
að taka þátt í lokuðu útboði/verðkönnun vegna:
•Reksturs á kaffiteríum á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi.
•Reksturs á verslunum á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi.
•Gaeslu á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi, bæði á
opnunartíma og utan hans.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessu
útboði/verðkönnun eru vinsamlega beðnir að skila
upplýsingum á skrifstofu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar eigi síðar en kl. 16.00, 21. febrúar
2000. Kynningarfundir og vettvangsskoðun mun fara
fram 23. og 24. febrúar nk.
Skjól Hjúkrunairheirniii
Kleppsvegi 64 Reykjavík
Starfsfólk óskast
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa, m.a. eru 60%
næturvaktir í boði, greitt eftir If. B8.
Sjúkraliðar óskast til starfa, um er að ræða
vaktavinnu, hlutastörf eða fullt starf.
Starfsfólk við aðhlynningu óskast til starfa, 100%
störf eða hlutastörf, vaktavinna. Einnig er um að
ræða morgunvaktir kl. 8-13 og unnið aðra hverja
helgi.
Skjól er nýlegt hjúkrunarheimili aldraðra þar sem hjúkrun er
veitt í heimilislegu umhverfi. Góð starfsaðstaða og hér ríkir góður
starfsandi. Reyklaus vinnustaður. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri í síma 568 8500.
UTANRÍK ISÞJÓNUSTAN
Ritgerðarsamkeppni
íslenskra ungmenna 16-20 ára
I tilefni 60 ára afmælis utanríkisþjónustunnar á Islandi, 10. aprll 2000, efnir utanríkisráöuneytiö
til ritgerðarsamkeppni meðal íslenskra ungmenna á aldrinum 16-20 ára undir yfirskriftinni:
„Hlutverk íslands og hagsmunir í alþjóöasamfélaginu á nýrri öld.”
Lögö er áhersla á aö þátttakendur fjalli um stöðu íslands á alþjóöavettvangi og framtíöarhagsmuni
í utanríkismálum á sviöi stjórnmála, öryggismála, viðskipta- og menningarmála.
Lengd ritgeröa miðast viö 4-6 vélritaðar blaösíöur í stærðinni A-4.
Skilafrestur er til 17. mars 2000.
Ferðaverðlaun veröa veitt fyrir fjórar bestu ritgerðirnar. Verölaunin taka öll miö af verkefnum
og starfsemi utanríkisþjónustunnar erlendis:
A. Heimsókn á heimssýninguna EXPO 2000 í Hannover og í nýtt íslenskt sendiráð í Berlín.
B. Heimsókn í sendiráó Islands í Brussel og fastanefnd íslands hjá Atlantshafsbandalaginu.
C. Heimsókn í fastanefnd íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Norrænu menningarmiðstöðina
í New York.
D. Heimsókn til aðalræðisskrifstofu fslands í Winnipeg í Kanada og þátttaka í fjölbreyttri
dagskrá íslendingadagsins 5.-7. ágúst.
Ritgeröirnar skulu berast utanríkisráöuneytinu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, í umslögum
merktum „Ritgerðarsamkeppni-2000“, eigi síðar en 17. mars 2000.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu upplýsinga-menningarmála og ræðistengsla í
utanrlkisráöuneytinu.
Ýmsar gagnlegar heimildir um íslensk utanríkismál, starfsemi utanríkisráðuneytisins og
sendiskrifstofa erlendis er aö finna á heimasíöu utanríkisráðuneytisins.
UTANRlKISRÁÐUNEYTIÐ
RAUÐARÁRSTlG 25 150 REYKJAVlK
SlMI 560 9900 FAX 562 3152
www.mfa.it
Blaðbera vantar
í eftirtaldar götur:
Austurbrún Njálsgötu
Norðurbrún Grettisgötu
Hverfisgata 66-100
Ahugasamir hafi samband
við afgreiðslu blaðsins
í síma 550 5777.
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
F ríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík-Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang: isr@rhus.rvk.is
ÚTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboóum í viðhald raflagna í ýmsum fasteignum.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 29. febrúar 2000, kl. 11.00 á sama stað.
BGD 25/0
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í viðhald pípulagna í ýmsum fasteignum.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 29. febrúar 2000, kl. 14.00 á sama stað.
BGD 26/0
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir
tilboðum í verkið: Umferðarmerki 2000 - 2004.
Helstu magntölur eru: Ýmis umferðarmerki: 5.000 stk.
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2004.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með
15. febrúar nk. gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 2. mars 2000,
kl. 14.00 á sama stað.
GAT 27/0
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík, Orkuveitu
Reykjavíkur og Reykjavíkurhafnar er leitað tilboða í
verkið: „Klettagarðar, gatnagerð og þrýstilagnir við
hreinsistöð“.Helstu magntölur eru:
• Útvegun og lagning 1200 m plastpípna: um 510 m
• Gatnagerð, holræsi, vatns- og hitalagnir í Klettagarða
og Héðinsgötu, gatnalengd: um 420 m
Skiladagur er 1. nóvember 2000. Útboðsgögn fást á skrif-
stofu okkar frá og með 15. febrúar 2000 gegn 20.000 kr.
skilatryggingu. Opnun tilboða: 1. mars 2000, kl. 14.00
á sama stað.
GAT 28/0
Félagsþjónustan
Félagsleg heimaþjónusta
Óskum eftir traustu og ábyggilegu fólki til starfa við félagslega
heimaþjónustu fyrir 66 ára og yngri.
Félagsleg heimaþjónusta er fjölbreytileg vinna og er mjög
mikilvæg þeim sem hennar njóta. Verksvið starfsmanna er vel
skilgreint og afmarkað þótt sveigjanleiki og frumkvæði séu
mikilvægir kostir. Starfið getur m.a. falið í sér:
Almenn heimilisstörf
Aðstoð við persónulega umönnun
Dagleg innkaup
Að veita félagsskap
Markmið þjónustunnar er að gera fólki kleift að búa á eigin
heimili, þrátt fyrir veikindi eða erfiðar aðstæður.
Laun skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Umsóknir berist á hverfaskrifstofu Félagsþjónustunnar í Reykjavík
að Skógarhlíð 6.
Nánari upplýsingar veita Herdís Hannesdóttir og Sigríður Á.
Karvelsdóttir, deildarstjórar félagslegrar heimaþjónustu, milli
kl. 10.00 og 12.00 í síma 353 3100.
Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaður sem veitir
borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur
mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk sitt, að
uppiýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavikurborgar i
málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu
sem veitt er. Allir nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og
kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf
reglulega um starfsemi stolnunarinnar.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENOIR 562 3219
Breyting á deiliskipulagi
í Reykjavík
Fossvogshverfi, einbýli
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann
24. ágúst 1999 breytingu á deiliskipulagi
fyrir einbýlishúsahverfi í Fossvogshverfi
sem nær til Árlands, Bjarmalands, Grund-
arlands, Haðarlands, Kvistalands, Lálands
og Traðarlands. í breytingunni felst að
byggingarreitir húsa stækka um 4 metra til
suðurs og nýtingarhlutfall verður 0,24.
Tillagan var auglýst þann 11. júní 1999 og
stóð kynningin til 9. júlí. Athuga-
semdafrestur var til 23. júlí og bárust tvær
athugasemdir við tillöguna. Fallist var á
athugasemdirnar og tillagan samþykkt
með þeirri breytingu að byggingarreitir
nyrðri húsa á þeim reitum sem tillagan tók
til, voru einnig stækkaðir um 4m til suðurs.
Þeim aðilum sem athugasemdir gerður
hefur verið send afgreiðsla borgarráðs.
Skipulagsbreytingin hefur verið send
Skipulagsstofnun til yfirferðar og hlaut gildi við
birtingu í B-deild Stjórnartíðinda þann
4. febrúar 2000.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér
til Borgarskipulags Reykjavíkur.
______________________________
\
Styrkir til atvinnumála kvenna
Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári heimild til að
úthluta í styrki 20 milljónum króna til atvinnumála
kvenna.
Áhersla er lögð á að greinargóð lýsing á verkefhi fylgi
umsókn, sundurliðuð kostnaðaráætlun, svo og að fram
komi hvort leitað hafi verið til annarra um fjárstyrk.
Tilgangur styrkveitinga er einkum að auka fjölbreytni
í atvinnulífi, viðhalda byggð um landið og efla
atvinnutækifæri á landsbyggðinni, auðvelda aðgang
kvenna að fjármagni og að draga úr atvinnuleysi meðal
kvenna.
Skilyrði fyrir umsókn:
• Allar konur hvaðanæva af landinu geta sótt um styrk.
• Aðaláherslan verður á verkefni í þremur atvinnugreinum:
þróun á lífrænum vörum, nýsköpun í ferðaþjónustu og
stuðningur við atvinnuþróunarverkefhi kvennahópa, en
heimilt er að styrkja verkefni innan allra atvinnugreina.
Forgangs njóta verkefhi sem þykja líkleg til að fjölga
atvinnutækifærum kvenna. Svæði þar sem hlutfall
atvinnulausra kvenna er hátt og fábreytni í atvinnulífi em
þar meðtalin.
• Styrkir em ekki veittir til verkefna sem em í samkeppni
við aðila í hliðstæðum atvinnurekstri á landsvísu.
• Til að verkeíhi sé styrkhæft í 2. eða 3. sinn þarf að liggja
fýrir greinargerð vegna fyrri styrkveitinga.
• Ekki em veittir rekstrarstyrkir.
• Ekki em veittir styrkir til listiðnaðar en tekið er tillit til
nytjalistar.
• Stofnstyrki er heimilt að veita að hámarki 25% af
stofnkostnaði til véla- og tækjakaupa og einnig vegna
húsnæðis til hópa.
• Ekki era veittir styrkir til afmarkaðra verkefna sem ekki
em atvinnuskapandi.
• Að öðra jðfhu nemur ffamlag af hálfu ríkisins ekki meira
en 50% af heildarkostnaði við verkefhið.
• Hámarksstyrkur á verkefhi er kr. 2,5 milljónir.
• Þeim aðilum sem hyggjast sækja um styrk tif
námskeiða/mennta-smiðju-verkefha er bent á að hafa
samband við Vinnumálastofhun.
Umsóknareyðublöð fást á Vinnumálastofhun, Hafnaihúsi
v/Tryggvagötu, Reykjavík, sími 5112500, og
á heimasíðu stofhunarinnar
www.vinnumalastofnun.is
Umsóknarfrestur er til 21. mars 2000.