Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Síða 33
Tilvera
i
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
DV
Fríður flokkur í ferðahug
Þessi myndarlegi 22 manna hópur hefur nýlokiö sjö mánaöa feröamálanámi
frá Feröamálaskólanum I Kópavogi. Námiö felst í fargjaldaútreikningi og notk-
un farbókunarkerfis auk heföbundinna feröagreina, eins og feröalandafræöi
útlanda, feröalandafræöi íslands, markaösfræöi, þjónustusamskiptum og
sölutækni. Námiö er sniöið aö íslenskum aöstæöum en er einnig alþjóðlega
viöurkennt enda eru námsgögn aö stórum hluta frá
Alþjóölegu flugmálasamtökunum.
Hélt hjónaband-
inu leyndu
Hin unga og efnilega leikkona
Mena Suvari kom mörgum á óvart
á þegar hún mætti til óskarsverð-
launahátíðarinnar á dögunum með
eiginmann upp á arminn. Enginn
vissi að leikkonan unga væri svo
Ímikið sem trúlofuð hinum 38 ára
gamla Robert Brinkman, sem er
kvikmyndatökumaður. Þykir
mörgum að hjónaband Menu
minni óþægilega á kvikmyndina
American Beauty, sem skaut henni
upp á stjömuhimininn, en þar
leikur hún táningsstúlku sem fell-
ur fyrir miðaldra manni.
Aldursmunur Menu og Roberts
er 17 ár og segir leikkonan það
engu skipta og bendir á 1 því sam-
bandi að aldursmunur foreldra
hennar er 24 ár og þeirra hjóna-
band hafi verið farsælt.
Ástfangin
Mena Suvari er nýgift og yfir sig
ástfangin.
Dansað inn í
dýpri vitund
Breski leikarinn, dansarinn og
trommarinn, Alain Allard, ætlar að
kenna íslendingum að dansa sig inn
í dýpri vitund um næstu helgi.
Dansinn, svokallaður 5Rythms-
dans, er sagður vera vestræn að-
ferð, sambærileg hinu indverska
jóga, hinu japanska aikido og hinu
kínverska Tai Chi.
5Rythms, sem einnig er kallaður
The Wave, eða Aldan, var þróaður á
30 árum í Bandaríkjunum af
Gabrielle Roth. í dansinum eru
flmm taktar og er hægt að dansa þá
við alls konar tónlist og mun það
koma berlega í ljós á námskeiðinu
um helgina.
Alain Allard mun hafa hlotið sjö
ára ítarlega þjálfun hjá þeim Ya-
Acov og Susannah Darling Kahn en
þau eru sögð vera meðal fremstu
5Rythms-kennara Evrópu. Allard
starfar við sálfræðimeðferð - tran-
spersonal psycoherapy - og er sú
reynsla hans, ásamt langri aikido-
ástundun, sögö fléttast inn í starf
hans sem kennara í hreyfingu og
dansi.
Skipuleggjandi 5Rythms-nám-
Hinn ítarlega þjálfaði Alain Allard
Kennir íslendingum aö dansa
5Rythms-dans um helgina.
skeiðsins er Sigurborg Kr. Hannes-
dóttir og fer það fram í Reykjadal í
Mosfellsbæ dagana 28. til 30. apríl.
Fyrstir með
viðskiptafréttimart
Notaðu vísifingurínn!
www.visir.is
___________________.
37 S