Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2000, Page 36
Nýr Isjizu Trooper
ISU2U
159 hestöfl
Sjálfskiptur
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í stma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 2000
Haraldur Orn
hringdi ekki
Haraldur öm Ólafsson pólfari
hringdi ekki heim til íslands í nótt
eins og hann er vanur að gera. Olli
þetta aðstandendum hans miklum
áhyggjum. Þegar leið á morguninn
kom í ljós að bilun var í jarðstöð Iridi-
um símakerfisins í Róm. Var því von-
ast til að það væri ástæða þess að Har-
aldur öm lét ekkert í sér heyra. Ólaf-
ur Öm Haraldsson, faðir Haraldar
Amar, sagði við DV að hann hefði átt
áhyggjufulla nótt. Það sem olli fólki
hins vegar mestum heilabrotum í
morgun var að sé gert ráð fyrir að Iri-
dium-kerflð sé dottið út þá höfðu eng-
in svokölluð Argos boð borist enn þá
frá Haraldi Emi þegar DV fór í prent-
un. -Ótt
Barist við elda
Sinueldar valda enn vandræðum.
Slökkvilið Hafnarfjarðar var kallað
að sinueldum á opnu svæði norðan
við Fjölbrautaskólann í Garðabæ á tí-
unda tímanum í gærkvöld.
Tveir slökkviliðsbílar og sjúkrabíll
voru á staðnum og kalla varð út liðs-
auka til að slökkva eldinn.
Mikinn reyk lagði af eldunum yfir
Kópavog, Reykjavík og Seltjarnames.
Stórt svæði brann en björgunarmönn-
um tókst að slökkva eldinn rétt eftir
miðnætti og engar skemmdir urðu á
mannvirkjum. -SMK
DV-MYND TEITUR
Árlegur peysufatadagur Versllnga.
Viðskiptaráðherra Framsóknarflokksins Valgerður Sverrisdóttir, í miðið, heilsaði dóttur sinni Ingunni Kro, til hægri, og
öörum 4. bekkjar nemum Verslunarskóla íslands í Rúgbrauðsgerðinni í morgun. Peysufataklæddir Verslingar snæddu
morgunverð með Valgerði og fleiri kvenráðherrum og þingkonum Framsóknarflokksins.
Mývatn:
Sérfræð-
ingar tví-
stígandi
DV, AKUREYRI:
Skýrsla visindamanna frá Nor-
egi og Svíþjóð um lífríki Mývatns
og áhrif kfsilgúrtöku úr vatninu
er mjög varfærnisleg en skýrslan
verður höfð til hliðsjónar þegar
ákvörðun verður tekin um fram-
tíð Kísiliðjunnar. Niðurstöður
skýrslunnar hafa reyndar verið
túlkaðar á mjög mismunandi hátt,
allt eftir því hvort menn eru fylgj-
andi eða andvígir kísilgúrtöku úr
vatninu.
Erlendu sérfræðingamir hafa
miklar áhyggjur af áhrifum kísil-
gúrtöku i Ytriflóa en þar hefur
vinnslusvæði verksmiðjunnar
verið til þessa. Þeir leggja til að
vinnslu verði hætt þar eða hún
a.m.k. minnkuð verulega. Hins
vegar leggjast þeir ekki gegn
vinnslu á vissum svæðum í Syðri-
flóa og í skýrslunni segja þeir að
ekki megi tengja sveiflur i lífríki
vatnsins ótvirætt við kísilgúr-
námið. -gk
Ferðalög og
barneignir
I Fókus, sem fylgir DV á morgun,
er fjallaö um það hvemig bameign-
ir geta breytt lífi fólks, hvort við-
skiptavinurinn hafi alltaf rétt fyrir
og hvaða gildi 1. maí hefur í hugum
launþega. Tónlistarspekúlantinn
Ólafur Páll á Rás 2 segir frá æsku
sinni og skoðun á útvarpi á íslandi
og Fókus bendir einnig á þá ferða-
möguleika sem eru í boði fyrir 100
þúsund kall en þeir eru ófáir. Lífiö
eftir vinnu, nákvæmur leiðarvísir
»-«. um skemmtana- og menningarlífiö,
er svo að sjálfsögðu á sínum stað.
Reykjavíkurborg beggja megin borðs í fjarskiptastríði Irju og TNets:
Ríki og borg berjast
-töldum tilboð Irju ógilt segir framkvæmdastjóri TNets
Fjarskiptastríðið á milli Irju og
TNets um svokallað Tetra fjar-
skiptakerfi og sagt var frá í DV í
gær hefur vakið mikla athygli.
Ljóst er að hörð átök eru um þetta
mál og ekki allt sem sýnist.
Landsvirkjun og Landssími ís-
lands eru opinber fyrirtæki og eig-
endur að TNeti ásamt Tölvumynd-
um. Þó Irja hafi í þessu samhengi
verið nefnt sem einkafyrirtæki þá
keypti Lína.Net fyrir skömmu öll
hlutabréf í fyrirtækinu. Lína.Net
er svo aftur afkvæmi Orkuveitu
Reykjavíkur. Því virðist sem opin-
berir risar séu þama að takast á
um völdin á fjarskiptamarkaðnum.
Þá er Reykjavíkurborg komin í
sérkennilega stöðu sem eigandi
Orkuveitunnar og Línu.Nets og
verandi um leið eignaraðili í
Landsvirkjun og þar með eigandi
að TNeti ehf.
Getur ekki gengið
Guðmundur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri
TNets ehf., segir
að fyrirtækið
hafi lagt mikla
vinnu í gerð til-
boðsgagna. í út-
boði Ríkiskaupa
hafl verið tekið
fram hvaða skil-
yrði bjóðandi
þyrfti að upp-
fylla. Þar hafi
m.a. þurft að
sýna fram á
samning við
framleiðanda
búnaðar. Hann
þurfi að sýna
fram á tilvist fyr-
irtækis sem eigi
að reka kerfið,
nefna starfsmenn og ýmis önnur
atriði.
„Tilboð okkar var í einni
tommuþykkri A-4 möppu en tilboð
Irju var á tveim A-4 blaðsíðum.
Guömundur
Gunnarsson,
framkvæmda-
stjóri TNets ehf.
„ Viö erum ekki
að sækjast eftir
þeim notendum
sem Irja hefur nú
þegar fengið í
gegnum útboð-
ið.“
Á opnunar-
degi tilboða
hafði Irja engan
aðila sem fram-
leiðanda búnað-
ar. Við töldum
því frá fyrsta
degi að tilboð
Iiju væri ógilt og
ekki samkvæmt
útboðsgögnum.
Það bæri þess
vegna aö visa
því frá. Þá töld-
um við líka að
fjárhagslega
gæti það ekki
gengið."
„Með umsókn
okkar erum við
ekki að sækjast
eftir þeim not-
endum sem Irja hefur nú þegar
fengið í gegnum útboðið. Við sækj-
um síðan aðeins um einn fimmta
af þvi tíðnissviði sem Irja er á.“
Jón Þóroddur
Jónsson, fram-
kvæmdastjóri
Irju
„Aö sjálfsögðu
eru þeir að sækj-
ast eftir hluta af
okkar notend-
um.“
Ólöglegt fyrirtæki
„Hvernig getur hann vitað
hvemig okkar tilboð leit út? Sam-
kvæmt reglum hef ég ekki fengið
að skoða þeirra tilboð í smáatrið-
um.
Ríkiskaup taldi okkar tilboð gilt.
Ef eitthvert tilboð hefur verið ógilt
þá var það tilboð TNets vegna þess
að það kom frá ólöglegu fyrirtæki,"
segir Jón Þóroddur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Irju.
„Ég tel að ekkert hafl vantað í
okkar tOboð sem gert var að skO-
yrði í útboði. Að sjálfsögðu eru
þeir að sækjast eftir hluta af okkar
notendum. Ef þeir eru ekki að gera
það, tO hvers eru þeir þá að fara
inn á öryggistíðnisviðið? í útboð-
inu var gert ráð fyrir að ég gæti
náð tO annarra notenda líka og
þannig lækkað verðið tO ríkisins.
Með innkomu sinni á þetta tíðni-
svið er TNet hins vegar að eyði-
leggja þann möguleika." -HKr.
Prófstress
Nemendur i 10. bekk Austurbæjarskóla tóku fyrsta samræmda prófið
í morgun.
Grunnskólar:
Samræmdu pröfin
hófust í morgun
íslenskukunnátta nemenda 10.
bekkjar var prófuð í morgun í fyrsta
samræmda prófinu.
AOs voru 4040 nemendur úr 137
skólum á landinu skráðir í prófið
sem hófst klukkan 9 i morgun.
Á morgun verður dönskukunn-
átta unglinganna könnuð. Nemend-
ur fá svo helgina tO þess að búa sig
undir enskuprófið sem er á þriðju-
daginn. Lokaprófið, stærðfræði,
verður svo haldið á miðvikudaginn.
Unga fólkið fær þrjá tíma tO þess að
leysa hvert próf.
MikOvægt er aö standa sig vel í
samræmdu prófunum því þau geta
ráðið úrslitum um framhaldsnám
bamanna. -SMK
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport