Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
I
Leiddir inn í réttarsalinn
Foad og félagar hans rifu í sundur
pappír sem þeir kveiktu í viö stóiinn.
Kveikti í stól og
drap 63 á balli
Hinn 19 ára gamli Foad kveikti í
samkomuhúsinu í Gautaborg, þar
sem 63 ungmenni létu lífið í elds-
voða, vegna þess að honum fannst
vera komið illa fram við sig á dans-
leiknum. „Þetta snýst ekki um pen-
inga heldur hvemig var komið fram
við drenginn," sagði lögfræðingur
Foads. „Hugmyndin var að kveikja í
stól og valda með því tjóni,“ sagði
lögræðingurinn enn fremur. Þetta
ásamt fleiru kom fram á öðrum degi
réttarhalda í dómsmáli gegn fjórum
ungmennum sem sökuð eru um að
hafa kveikt i umræddu samkomu-
húsi með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Varð eitur Napóle-
oni að aldurtila?
Franskur meinafræðingur, sem
þykir fremstur á sinu sviði, setti
fram tilgátu að hugsanlegum dauð-
daga Napóleons á fimmtudaginn.
Var Napóleoni byrlað eitur eða át
hann skelfisk skömmu áður en
hann lést? Um þetta snýst kenning-
in um hugsanlegan dauða Napóle-
ons sem byggð er á því að á sínum
tíma fannst arseník í hársverði
hans. Þessi umræða komst í hámæli
eftir að það sannaðist á dögunum að
sonur Loðvíks XVI hefði látið lífið í
fangelsi en ekki verið sleppt úr
haldi eins og margir höfðu haldið
fram. Vilja Frakkar nú einnig kom-
ast að hinu rétta í máli Napóleons.
Kenning vísindamannsins mun að
mestu leyti vera byggð á hársýni
sem tekið var eftir dauða hans og er
nú í vörslu FBI.
Jiang Zemin
Hefur veriö viö völd síöan 1992.
Umskipti innan
kínverska komm-
únistaflokksins
South China Moming Post
greindi frá því að Jiang Zemin, for-
seti Kína, myndi segja af sér frá og
með 2002 þegar kjörtímabili hans
lýkur. Zemin, sem er 73 ára gamall,
hefur þegar tilnefnt eftirmann sinn,
hinn 57 ára gamla Hu Jintao sem
gegnir embætti varaforseta lands-
ins. Hefur Zemin auk þess lagt til að
fjórir af sjö meðlimum Politbureau,
valdamesta kjama Kommúnista-
flokksins, segi af sér og fari á eftir-
laun. Ekki hefur verið greint frá
hverjir muni koma í þeirra stað.
Landamæraátök ísraela og Líbana halda áfram:
EK'
Arabaráðið boðar
neyðarfund í Kaíró
Átök milli ísraela og Líbana hafa
haldið áfram nær linnulaust síðan
ísraelar svöruðu árás skæruliða-
samtaka Hizbollah í fyrradag þegar
um 40 Katyusha-flaugum var skotið
á hernumin svæði ísraela í Suður-
Líbanon. fsraelar, sem hafa hafst
við á landsvæðinu síðastliðin 22 ár,
höfðu áður en til átakanna kom
íhugað alvarlega að yfirgefa svæðið
en aðeins klukkustund eftir að
gagnárás ísraela hófst var von á
sérlegum sendifulltrúa Sameinuðu
þjóðanna til að miðla málum i deil-
um ríkjanna.
Hizbollah segir í fréttatilkynn-
ingu að þeir séu „ákveðnir í að
verja fólkið sitt, land og innri bygg-
ingu þess“.
„Við vömm óvini okkar við að
nauðga landinu okkar því við mun-
um mæta þeim og svara fyrir okk-
ur,“ sagði talsmaður skæruliðasam-
takanna. Sams konar viðbrögð hafa
komið frá ísraelsmönnum og sagði
Eyöileggingarmáttur stríösins
ísraelskir lögreglumenn róta í braki
íbúöarhúss sem Líbanar skutu á.
ísraelsforseti, Ezer Weizman, í gær
að ísraelsþjóð myndi færa myrkur
yfir Hizbollah fyrir eldflaugaárásir
þeirra á ísrael.
Frönsk og bandarísk yfirvöld
hafa hvatt báða aðila til að hætta
átökum og Arabaráðið hefur boðað
neyðarfund í Kaíró í dag til að ræða
ástandið. Palestínumenn hvöttu
ísraela á óformlegum fundi sem
þjóðimar áttu í gær til að láta
hernumdu landsvæðin af hendi svo
að unnt yrði að komast að raun-
verulegu samkomulagi þjóðanna.
Fleiri fundir milli ísraela og Palest-
ínumanna eru ráðgerðir í vikunni
en einn ráðamaður úr röðum
Palestínumanna komst svo að orði
að útgöngupunktur viðráeðnanna
yrði að vera sá að ísraelar væru til-
búnir að færa landamæri sín til
baka þangað sem þau voru árið
1967. Á sama tíma og landamæra-
átökin eiga sér stað minnka vin-
sældir Ehud Baraks heima fyrir.
Dansaö í New Orleans
Nú stendur yfir árlegjasshátíö í New Orleans í Bandaríkjunum. Þessi hátíö, sem nú er haldin í 31. sinn, laöar aö sér
fjölmenni ár hvert en hún mun standa út helgina. Á myndinni sést hvar gestir skemmta sér i hópdansi.
Hvetur Mugabe til að
miðla málum I deilunni
Thabo Mbeki, forseti Suður Afr-
íku, hitti Robert Mugabe, forseta
Simbabve, í gær, en Mbeki hefur
kosið að standa gegn alþjóðlegum
þrýstingi um að fordæma fram-
göngu stjómvalda í málum svokall-
aöra landtökumanna gegn hvítum
bændum þar í landi. Fleiri býli
hvítra voru tekin eignamámi í gær
og að sögn er andrúmsloftið þrúgað
og hlaðið spennu. Bónda og konu
hans var haldið í gíslingu af land-
tökumönnum í stuttan tíma í gær
en síðan sleppt að loknum samn-
ingaviðræðum. Á fundi Afríkuleið-
toganna tveggja hvatti Mbeki
Mugabe til að miðla málum milli
hvítra og svarta í deilunni.
í ræðu sem Mbeki flutti af þessu
tilefni gerði hann að umtalsefni
Mugabe og Mbeki
Mbeki ráölagöi forsetanum að miöla
málum í deilum hvítra og svartra.
mikilvægi friðar, stöðugleika, lýð-
ræðis og félagslegrar þróunar í
samfélagi þjóðanna. „Sem mann-
eskjur hljótum við að vera sann-
færð um að það sé fyrir bestu að
þetta mikilvæga mál sé leyst á sam-
eiginlegan og átakalausan hátt af
öllum þegnum þessa þjóðfélags,
bæði svartra og hvítra, og sýna þar
með fram á árangur samtakamáttar
þjóðarinnar," sagði Mbeki meðal
annars.
Á síðastliðnum vikum og mánuð-
um hafa landtökumenn lagt hald á
um 700 býli hvítra en þar fer
fremstur i flokki leiðtogi uppgjafa-
hermanna, Chenjerai Hunzvi.
Mugabe hefur haldið hlífiskildi yflr
Hunzvi og sagt opinberlega að hann
muni ekki krefja skæruliða um að
skila jörðum hvítra. Á sama tíma
hefur efnahagur landsins hrið-
versnað.
Vilja stýra Tsjetsjeníu
Dómsmálaráðu-
neyti Rússlands
undirbýr nú laga-
frumvarp sem
myndi gera
Vladmiír Pútín, for-
seta landsins, kleift
að stjóma Tsje-
tsjeníu beint frá
Moskvu. Tsjetsjenía er sem kunnugt
er ekki sjálfstæð þjóð heldur lýð-
veldi innan sambandslýðveldisins
Rússlands. Eiga Rússar mikilla
hagsmuna að gæta í Tsjetsjeníu sem
státar m.a. af auðugum olíuauðlind-
Sprenging í Karachi
Einn lét lífið og flmm særðust þegar
sprengja sprakk í námunda við
lögreglustöð i borginni Karachi.
Árásin kemur í kjölfar fjölmargra
árása á lögreglusveitir þar í borg.
íhaldsmenn tapa fylgi
Verkamannaflokkurinn tapaði
um 600 fulltrúum á landsvísu í
sveita- og borgarstjórnarkosningum
á Bretlandi í gær. Hefur Verka-
mannaflokkurinn ekki mælst með
svo lítið fylgi eftir að Blaire komst
til valda árið 1997. Er sigur Kens
Livingstones í borgarstjómarkosn-
ingum í London túlkaður sem ósig-
ur fyrir Blair.
Nýr forseti í Tyrklandi
Ahmet Necdet
Sezer var i gær kos-
inn forseti Tyrk-
lands en hann var
tilnefndur af for-
sætisráðherra
landsins, Bulent
Ecevit. Er hann 10.
forseti landsins.
Með Brittney í fríið
í niðurstöðu könnunar sem Walt
Disney lét gera meðal barna og ung-
linga í Bretlandi og birtar voru í
gær kemur fram að um þriðjungur
aðspurðra myndi taka söngkonuna
Brittney Spears með sér í sumarfrí.
Þingkosningar í íran
EÖnnur umferð
þingkosninganna í
íran hófst í gær en
stuðningsmenn for-
seta landsins, Mo-
hammad Khatamis,
gera sé vonir um að
fylgi hans mælist
jafn sterkt og í fyrri
umferð kosninganna.
Beitti hæfilegu ofbeldi
Miklar umræður hafa farið af
stað að nýju í Bretlandi eftir að
dómari þar í landi ályktaði nýverið
í dómsúrskurði að í lagi væri að lú-
berja innbrotsþjóf með hafnabolta-
kylfu. „Ég hef enga samúð með
þeim sem þjást fyrir aö fremja af-
brot,“ sagði dómarinn.
Atkvæöagreiðsla
Stjórnvöld í Austurríki segjast
reiðubúin til að leggja pólitískar
þvinganir gegn Austurríki fyrir at-
kvæðagreiðslu til að kanna afstöðu
þjóðarinnar til málsins. Hafa stjórn-
völd í hyggju að atkvæðagreiðslan
fari fram næstkomandi haust en 14
þjóðir Evrópubandalagsins hafa slit-
ið stjómmálatengslum við Austur-
ríki eftir að Jörg Haider komst í
kanslarastólinn.